Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Síða 16
16 DV. ÞRIÐJUDAGUR16. NOVEMBER1982. Spurningin Hvað segir þú um tap Friðriks Ólafssonar í Luzern? Ólafur Ólafsson matreiöslumaður: Eg veit þaö ekki. Þetta er samt mikiö áfall fyrir þjóðina og sýnir aö peningar ráöa ferðinni. Kristleif ur Andrésson, þjáifari líkams- rsktarmanna: Eg er ekkert ánægður. Þetta eru peningamenn þama. Þaö verður bara aö sjá til hvemig sá nýi stendur sig. Friðrik getur alltaf boöiö sig fram aftur. Stefán Karlsson vörubílstjóri: Þaö veit ég ekki, ég fylgist ekki meö í skák. En í og meö er þetta áfall. Hann hefði mátt vera heldur lengur í þessu, karl- greyiö. Tómas Gunnarsson simvirki: Ég geri þaö nú aö takmörkuðu leyti aö fylgjast meö skák. En ég mundi segja að þetta tap Friðriks hafi komiö sér illa fyrir Islendinga. Þaö er miklar líkur á því aö peningar hafi verið í spilinu. Auður Kristinsdéttir ritari: Ég hef ekkert vit á skák, skipti mér ekki af skák og fylgist ekki meö skák. Þaö hlýtur aö hafa verið gott fyrir landiö aö hafa forsetann. En það á ekki að skipta máli hvort hann tapar nú eöa seinna. HrafnhildurÁrnadóttir húsmóðir: Mér finnst það mjög slæmt. Friörik hefur staöið sig mjög vel og hann átti að vinna. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Hvers vegna er engin lögreglustöð i Breiðholti? — ogstaðurinn ekkisá friðvænlegasti á landinu 0919—3421 skrifar: „Þú mátt nú þakka fyrir að fá aö halda lokinu,” sagöi afgreiðslumaður- inn á bensínstöðinni og hló dálitið inn í sig, eins og sá maöur sem horft hefur upp á stóra viðburöi og lætur sér ekki bregöa við smámuni. En í mínu litla lífi var það stórviö- burður að koma aö bílnum mínum bensínlausum sl. föstudagsmorgun. Ég hafði fyllt hann daginn áður. Einar litlar 400,00 krónur kostaði þaö, en ófyrirleitnir óþokkar höföu laumast í tankinn í skjóli nætur og sogið úr honum næstum hvem dropa. Rauöa peran lýsti á bensínmælinum, örin stóö á núlli og þaö var engu líkara en gamli skrjóðurinn minn neytti síðustu krafta og skreiddist niöur á bensínstöö á vilja- þrekinu einu saman. Ég á heima í Breiöholti, Bakkahverfi nánar tiltekið, en hvemig ætli gangi hjá þeim sem búa ofar í holtinu og koma aö bílnum sínum á morgnana í svona ásigkomulagi, svívirtum og rúnum eldsneyti af ræningjahöndum næturinnar? ,,Ja, þú ættir aö sjá þá koma hérna skríöandi á síðustu dropunum og fæstir „Nógu mikiö hafur ríkisvaldið upp úr bensínokrinu til þess að þvi sé engin vorkunn að halda uppi sæmilegri löggæslu á þeim stöðum þar sem þörfin erbrýnust," — segir 0919—3421. þeirra fá nú aö halda lokinu,” sagði afgreiðslumaðurinn hughreystandi. En hvers vegna er engin löggæsla þama aö næturþeli, þegar þörfin er svo brýn? Hvers vegna er engin lögreglu- stöö komin í Breiöholt, sem þó er rúm- lega 20.000 manna staður og ekki sá friðvænlegasti á landinu? Nógu mikið hefur ríkisvaldiö upp úr bensínokrinu til þess aö því sé engin vorkunn að halda uppi sæmilegri löggæslu á þeim stööum þar sem þörfin er brýnust. Dómsmálaráðuneytið fjallar um málið „Þaö er nú í alvarlegri athugun hér í ráðuneytinu hvaö hægt er aö gera til þess aö bæta löggæslu í Breiðholti,” sagöi Hjalti Zóphóníasson, deildar- stjóriídómsmálaráðuneytinu. -FG. Lögreglustöð í Breiðholti: Fáum ekki grænt Ijós frá stjómvöldum —- segir Bjarki Elíasson Viö höföum samband við Bjarka Elíasson yfirlögregluþjón vegna fyrir- spuma 0919—3421 um löggæslu í Breið- holti. Fer svar Bjarka hér á eftir: „Fyrir allmörgum árum var lög- regluembættinu úthlutaö lóð fyrir lög- reglustöð í Mjóddinni í Breiðholti. Þá kom upp sú hugmynd í dómsmálaráöu- neytinu aö athuga um sameiningu löggæslu í' Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfiröi, Seltjamamesi, Garöabæ og hreppum Kjósarsýslu. Var þá frest- aö framkvæmdum viö byggingu stöðv- arinnar í Mjóddinni. Löggæslu í Breiðholti er nú haldið uppi með lögreglubílum daga og næt- ur, en við höfum enga bækistöð í hverf- inu. Það hefur óneitanlega sett strik í reikninginn aö fá ekki þessa stöö í Mjóddinni. Teikningin er til og hægt væri aö hefja framkvæmdir samstund- is en viö fáum ekki grænt ljós frá stjómvöldum. Einnig er rétt aö geta þess að laga- breytingar þurfa aö eiga sér stað til þess að hugmyndin um sameiningu umdæma nái fram að ganga. Frum- varp þess efnis var lagt fyrir Alþingi á síöasta ári en þá einungis um að Sel- tjamames og Mosfellssveit tilheyrðu lögregluumdæmi Reykjavíkur. Mér er þó ókunnugt um hvar þaö frumvarp er ikerfinu.” -FG „Löggæslu i Breiðholti er nú haldið uppi með lögreglubílum daga og nætur, en við höfum enga bæki- stöð i hverfinu," — segir Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn. ,, Lögreglan þarf að fá stuðnmg til pess ao smna þvi hlutverki sem henni ber að inna af hönaum," — segir m.a. ibrófiJóns Sigurðssonar. Lögreglan þarfnast stuðnings almennings — og aukins mannafla, segir í lesendabréfi Jón Sigurðsson skrifar: Síöustu daga hafa spunnist miklar umræður um starfsaöferðir lögregl- unnar, einkum varöandi hörmulegan atburö sem nýlega átti sér stað í um- ferðinni. Gróa gamla á Leiti, endur- borin, hefur átt annríkt viö aö breiöa út hálfsagðar og upplognar sögur og allar miöa þær aö því aö ófrægja þá menn sem gegna því vanþakkláta hlutverki að vemda okkur fyrir ógæfumönnum sem hvorki virða eignarrétt né líf sam- borgara sinna. Eitt af því sem oftast heyrist í sam- tölum fólks er aö lögreglan ætti ekki að elta bifreiöar sem ekið er á ofsahraöa um götumar því þaö gæti æst öku- mennina til enn hættulegri aksturs. Mig langar aö spyrja þá sem svona hugsa: Hvaö álítiö þið aö lögreglan ætti að gera ef maöur með sveöju í hendi gengi berserksgang um bæinn? Ætti lögreglan að láta hann afskipta- lausan, vegna þess aö hann gæti orðið enn óðari ef hann væri eltur? Ég svara neitandi og vil bæta því viö að bifreið í höndum manns, sem af ein- hverjum ástæöum er ófær um að stjóma henni, er. voðalegasta morötól sem til er í umferðinni. Enginn, sem er svo ábyrgðarlaus að setjast ölvaöur undir stýri á ökutæki, ætti nokkru sinni að fá ökuleyfi sitt aft- ur. Þó hann hafi verið svo heppinn aö slasa hvorki sjálfan sig né aðra hefur hann gerst sekur um fjörráð við aðra vegfarendur. Almenningur fordæmi glæframennsku Löggjafinn þyrfti að bera gæfu til aö átta sig á því að eina ráðið til að bæta umferðarmenningu okkar, er aö heröa svo viöurlög viö alvarlegum umferðar- brotum aö ökumenn hugsi sig um áður enþaueruframin. Annaö er þó nauösynlegra, þaö er aö almenningur fordæmi hvers konar glæframennsku í umferöinni, hvort sem er um aö ræða ölvun viö akstur eöa annan háskaakstur. Fleira kemur auövitað til. Lögreglan þarf aö fá stuðning til þess að sinna því hlutverki, sem henni ber aö inna af höndum, og þá ekki síst með því að aimenningur þrýsti á stjómvöld svo lögreglan fái þann mannafla og þau tæki sem þarf til að halda vaxandi óprúttni í umferðinni og ofbeldisverk- um af ööru tagi í skefjum, í stað þess aö fólk leiki hlutverk hælbítanna sem stöðugt reyna aö gera störf löggæslu- manna, sem verða aö vinna störf sín viö erfið skilyröi, tortryggileg. Eitt er enn ónefnt, þaö er seinlætiö í dómsmálum og þaö ófremdarástand sem hér ríkir í fangelsismálum. Meöan svo gengur sem nú er minnir barátta löggæslumanna helst á baráttu Don Quixote við vindmyllumar, hún er dæmd til aö mistakast ef ekkert er aö gert, ekki einhverntíma seinna heldur núþegar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.