Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Blaðsíða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR16. NÖVEMBER1982. 11 VIÐTAUÐ: „Það snýst allt um leiklistina hjá mér” — segirTheódór Júlíusson, nýráðinn framkvæmdastjóri Menningarsamtaka Norðlendinga „Hlutverk mitt veröuraðhjálpaþví tólki sem er að vinna að menningar- málum á einn eða annan hátt, jafnframt því að stuðla að meiri sam- skiptum þeirra á milli,” sagði Theódór Júlíusson, leikari og nýráöinn fram- kvæmdastjóri Menningarsamtaka Norölendinga. Hlutverk Theódórs verður að safna upplýsingum um það sem er að gerast í menningarmálum á Norðurlandi, þannig aö sem víðtækastar upplýsing- ar liggi fyrir á einum stað um það sem er að gerast í fjórðungnum í þessum efnum. Einnig mun Theódór hafa milligöngu um að útvega leiðbeinendur sé þess óskað, svo og að koma á heim- sóknum héraða á milli. Samhliöa mun Theódór vinna að því að fjölga félögum í menningarsamtökunum og hvetja til menningarstarfsemi á þeim stöðum, þar sem hún er ekki f yrir hendi. Theódór er Siglfiröingur að uppruna. Þar steig hann á fjalimar í fyrsta skiptið en síðan lá leiöin til Isa- fjarðar. Þar lék hann með Litla leik- klúbbnum. Frá Isafirði flutti Theoódór til Dalvíkur og starfaði með leik- félaginu þar. En til Akureyrar kom Theódór 1978 og var fastráöinn hjá Leikfélagi Akureyrar, þar sem hann hefur starfað síðan. En hvað gerir hann í frítímanum? „Það snýst allt um leiklistina hjá mér. Þessa dagana nota ég frítímann til að setja upp Hitabylg juna með Leik- félagi öngulsstaðahrepps. Er það í fyrsta skiptið sem áhugamanna- leikfélag tekur þetta verk til sýningar,” sagði Theódór Júlíusson. Theódór mun hafa aðsetur á skrif- EgH Olafsson, einn maðfma Stuðmanna, segir eö Stuömerm, Gœnjr og Gústí standi aó rtýju kvikmyndinni Með aitt á hreinu. Á hann þé við kvikmyndageróarmanninn Ágúst Guðmundsson. MEÐ ALLT Á HREINU Með allt á hreinu, fyrsta islenska dans- og söngvamyndin, verður frumsýnd í litum um jólin. Að sögn Egils Olafssonar, eins meðlima hljómsveitarinnar Stuðmanna, lauk vinnslu á myndinni nýlega. Myndin var tekin á síöastliðnu sumri víðs vegar um landiö og er- lendis, en klipping og eftirvinnsla fór að mestu fram á Englandi. „Margar þekktar hendur lögðu andlit á plóginn við gerð myndarinnar og má þar nefna ýmsar þekktar hægri og vinstri hendur, auk Konráðs Aðils Jónssonar (Konna),” sagði Egill að- spurður. Að lokum gat hann þess að tónlistin í kvikmyndinni, sem væri bæði fjörug og skemmtileg, væri væntanleg á hljómplötu innan skamms. Að mynd- inni standa Ágúst Guömundsson og hljómsveitin Stuðmenn. -JGH. frumsýnd umjólin Ágúst GuOmirtdsson. Theódór Júliusson hefur verið ráöinn framkvæmdastjóri Menningarsam- taka Norðiendinga. D V-mynd GS/Akureyri. stofu Fjórðungssambands Norð- þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 17— lendinga. Þar verður hann til viðtals 19.Síminner22453. -G.S./Ak. Ályktun Verslunarráðs íslands: Seðlabankinn á- kveði aðeins vexti af eigin lánum Verslunarráð Islands gerði nýlega á fundi ályktun um efnahagsmál. I henni er meðal annars fjallað um vaxtamál og taliö alrangt aö taka heimild til vaxtaákvörðunar úr höndum Seölabankans. Reynslan sýni að þetta vald sé betur komið í höndum bankans en ríkisstióm- arinnar. „Stefna Verslunarráðs Islands er hins vegar sú, að Seöla- bankinn eigi einungis að ákveða vexti af eigin lánum, en aðrir vextir eigi að vera frjáls ákvörðun lán- veitanda og lántaka. Við þær aðstæður og frjálsræði á öðmm sviðum atvinnulífs gæti markaðurinn sjálfur á örskömmum tíma aðlagast misvægi í efnahags- málum.” Ennfremur segir í ályktuninni að ef markvissari stefnu hefði verið fylgt til aö draga úr verðbólgunni, samhliða því að verðlags- og gengis- ákvarðanir hefðu verið gefnar frjálsar, hefði mátt auka sparnaö og ná jafnvægi í lánamálum, án þess að hækka vexti verulega. „Einnig var og er enn nauðsynlegt að samræma vaxtakjör, bæði af lánum og spamaði og gera þau sveigjanlegri til aö örva sparnaö og eyðaóeðlilegrimismunun.” -JBH. Meiri óvissa á vinnumarkaði nú en í fyrra — segir ífrétt félagsmálaráðuneytisins um atvinnuastand ílandinu Vinnumálaskrifstofunni bámst í október tíu tilkynningar frá fyrir- tækjum um uppsagnir á starfs- mönnum á móti tveim í sama mánuði í fyrra. Fyrirtækin eru í ýmsum greinum atvinnulifsins, svo sem fiskiðnaði, verktakastarfsemi, verksmiðjuiönaði og byggingar- iðnaði. Gefur þetta til kynna að meiri óvissa ríki nú á vinnu- markaöi almennt en á sama tíma í fyrra. Svo segir í frétt frá félagsmála- ráðuneytinu um atvinnuástandið í landinu. I henni kemur fram að í október voru skráðir samtals 5.600 atvinnuleysisdagar, eða nær jafnmargir og í september. Þetta svarar til þess að 260 manns hafi verið á atvinnuleysisskrá allan októbermánuð sem jafngildir 0,2 prósentum af áætluðummannafla. Atvinnuástand var langbest á Vestfjörðum. Þar var aðeins 21 at- vinnuleysisdagur í mánuöinum. Af stööum þar sem atvinnuleysi var á- berandi má nefna Sauðárkrók, Drangsnes, Hvammstanga, Stöðvar- f jörð, Breiðdalsvík og Akranes. -KMU. t ?*»^skoí VELTUSUI O iOiC c Ic. 1/ ^ a auglýsir Herra leðurmokkasínur Litur: Svart Verfl kr. 465,- Kuldastígvél barna Litir: Blátt — vinrautt Stærðir: 28-33 Verfl kr. 566,- ACT 20571 Loðfóðraðir leðurkuldaskór Stærðir: 36-41 Verfl kr. 810,- ACT 205261 Loðfóðraðir leðurkuldaskór Verfl kr. 883,- PÓSTSENDUM SAMDÆGURS Sími 21212

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.