Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Qupperneq 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR16. NOVEMBER1982.
5
Brotist inn í
Gestgjafann
Tilraun aö innbroti var gerö í
veitingastaðinn Gestgjafann í Eyj-
um um helgina. Þar er veriö að
byggja danshús viö hliö hússins og
hafa innbrotsþjófarnir komist inn
um hurðargat í nýbyggingunni.
Þegar lögreglan kom á staöinn var
enginn maöur sjáanlegur og allt
þýfiö skiliö eftir á staönum.
-RR
■■■■■■^"■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■m*
Bflveltaá
Sandgerðisvegi
Þrír menn slösuöust þegar
Range Rover jeppi valt á Sand-
geröisvegi rétt fyrir klukkan fjór-
tán á laugardag.
Aö sögn lögreglunnar í Keflavík
voru mennirnir á leið frá Keflavík
til Sandgeröis. Þeir voru þrír í
jeppanum. Er þeir voru komnir
miöja leið til Sandgeröis missti
ökumaöurinn váld á jeppanum í
mikilli hálku. Skipti engum togum
aö jeppinn þeyttist út af veginum
og fór síöan tvær veltur.
Mennirnir voru allir fluttir á
sjúkrahúsiö í Keflavík en ökumaö-
urinn var síðan fluttur á slysadeild
Borgarspítalans. Hann er talsvert
slasaöur en mun þó ekki vera í lífs-
hættu.
Range Roverinn er mikiö
skemmdur.
-JGH
Femt á slysadeild
eftir gassprengingu
Faöir ásamt þremur börnum sínum
var fluttur á slysadeild Borgar-
spítalans í síöustu viku eftir aö gas-
sprenging varð í íbúðarhúsinu að
Hringbraut 58 i Hafnarfirði. Þau munu
ekki hafa brennst illa og fengu aö fara
heim sama kvöld.
Að sögn Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins eru tildrög þessa máls þau að raf-
magnslaust varð í Hafnarfirði. Ákvaö
því f jölskyldufaðirinn að nota gaslukt í
rafmagnsleysinu. Þurfti að skipta um
gaskút, og er það var gert, lak gas út i
andrúmsloftiö. Kerti logaöi á eldhús-
borðinu þar sem skipt var um kútinn
og skipti engum togum aö mikil
sprenging varð.
Húsmóöirin á heimilinu slapp i
sprengingunni. Litlar skemmdir urðu
á íbúðinni og gekk greiðlega aö
slökkva eldinn.
-JGH.
Sirrý Geirs i hlutverki sinu i m yndinni Okkar á milli.
„OKKAR A MILU”
íögð fram til óskarsverðlauna
Kvikmyndin Okkar á milli hefur
veriö valin sem framlag Islands til
óskarsverölaunakeppninnar í
Hollywood á þessu ári. Myndin nefnist
á útlensku Inter nos, sem er latneska
heitiö á Okkar á milli.
Oskarsverölaunanefndin útnefnir á
hver ju ári bestu erlendu mynd ársins
og keppir um þann heiöur ein mynd frá
hverju þjóðlandi sem þátt tekur í
keppninni. Val myndanna fer þannig
fram að samtök kvikmyndagerðar-
manna í hverju landi skipa néfnd í
samvinnu viö kvikmyndayfirvöld og
útnefnir nefndin síöan bestu mynd
ársins og er hún send sem fulltrúi
viökomandi lands.
I nefndinni, sem tilnefnd er af
Félagi íslenskra kvikmynda-
gerðarmanna, sitja þeir Eiður Guðna-
son alþingismaður, Magnús Jóhanns-
son og Knútur Hallsson, skrifstofu-
stjóri í menntamálaráðuneytinu.
DV hafði samband viö Hrafn
Gunnlaugsson vegna þessarar fréttar.
Kvaöst hann gleðjast yfir þessari
niðurstööu þótt hann geröi sér litlar
vonir um verðlaun. Til þess aö þora aö
gera sér vonir um sh'kt, þarf maður aö
gera minnst 15—20 myndir í viðbót. Og
nú er bara aö halda áfram aö berjast,
meövindur, sem þessi gefur auövitað
byr í seglin og ég vonast til aö geta
einbeitt mér heilshugar að nýrri
„stórri mynd” strax eftir áramót, þeg-
ar ráöningarsamningur minn viö
sjónvarpið rennur út.
Hrafn vár spurður, hvort hann væri
ekki hræddur um fjárhagslega framtíð
íslenskra mynda vegna vaxandi
Togarinn
Snæfell fékk
á sig brotsjó
Togarinn Snæfell frá Hrísey f ékk á
sig brotsjó aðfaranótt sunnudags-
ins, er hann var aö veiðum við Mel-
rakkasléttu. Tjón varð ekki veru-
legt, en borðstokkur skipsins mun
hafa laskast. Engan sakaði um
borð.
Togarinn hélt þegar til Hriseyjar
og landaöi þeim afla er hann var
með. Viðgerð stendur nú yfir á
SnæfeUi i Slippstöðinni á Akureyri.
PA
notkunar vídeós og minnkandi
aösóknar. „Auövitaö er hver ný mynd
áhættuspil upp á líf og dauða. En
maður veröur aö vera stórhuga,
annars gerist ekkert sem skiptir
máh.” Hrafn sagöi ennfremur aö nú
heföu 36.100 manns séð mynd sína og
yrði það að teljast mjög gott.
Þess má aö lokum geta aö endur-
sýningar á Okkar á milli hef jast í Há-
skólabíói í kvöld, þriöjudagskvöld.
-PA.
Árekstur í Kópavogi:
VITNIVANTAR
Vitni vantar aö árekstri sem varö vantar sjónarvotta að árekstrinum.
við Nýbýlaveg 76 í Kópavogi um Biður hún aha þá sem einhverjar
klukkan átján síðastliðinn þriöjudag. upplýsingar gætu veitt um árekstur-
Lentu þar saman Lada fólksbíll og inn aö hafa samband viö rannsóknar-
FordMercury. deild lögreglunnar í Kópavogi sem
Aö sögn lögreglunnar í Kópavogi fyrst. -JGH
Orkusparandi
eldunaráhöldir
Danska
gæðavaran
INISSEN
trevorurnar
DÖNSK
GÆÐAVARA
NÝJAR
SENDINGAR
4f - -v
... .
Einnig leirmunir eftir Gunnar
Ölafsson og Helga Björgvinsson
styttur eftir Önnu Sigriði.
Póstsendum
OPIO LAUGARDAGA