Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Qupperneq 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR16. NOVEMBER1982.
7
GÚMMÍVINNUSTOFAN
Skipholti 35 — Reykj.avik — Simi 31055.
2175
Þarna er vel merkt. Innihald og nafn framleiðanda. Fleiri bakarar þyrftu aó
gera slikt hiö sama. D V-mynd Bj. Bj.
Hjólbarðasólun
Kaldsólun —
Heitsólun
Úrvals dekk —
Einstakt verð
Fljót
og örugg
þjónusta
^ A. PRJÖNASTOFAN
Uðuntu.
MERKJA ILLA
BRAUÐ OG KÖKUR
en kæra erlenda starfsbræður sína fyrir sama verknað
„Viö höfum lagt mjög hart aö
íslenskum bökurum að merkja vöru
sína vel. Viö krefjumst þess sama af
okkur sjálfum og erlendum bökurum,”
sagöi Jón Albert Kristinsson, for-
maöur Landssambands bakara-
meistara.
Nýlega kæröi félagið erlenda bakara
fyrir aö flytja til landsins kökur sem
væru ekki merktar meö innihaldi og
síöasta söludegi ásamt framleiöslu-
degi. íslenskar reglur kveöa svo á að
allur matur sem seldur er í luktum
umbúöum skuli vera þannig merktur.
Verulegur misbrestur er hins vegar
á þvi aö íslenskir bakarar geri þaö sem
þeir eru að kæra erlenda félaga sína
fyrir að gera ekki. Þar sem ég kaupi
brauö fæ ég þau til dæmis afhent
i glærum plastpoka, gjörsamlega
ómerktum. Ekki einu sinni nafn
brauðsins er á pokanum. Víöa annars
staöar hef ég séð svipaöar merkingar.
Margir merkja eitthvað og einstaka
maöur verulega vel. En flestir, er mér
óhætt aö fullyrða, gera þaö illa eöa alls
ekki. Síðasta söludag eöa framleiöslu-
dag hef ég aldrei séö merktan á íslensk
brauö eða kökur. Fróöir menn segja
mér þó aö slíkt sé á brauðum Mjólkur-
samsölunnar a.m.k. Kannski er þaö
bara tilviljun. Kannski er hér líka i
gildi dæmisagan um flísina í auga
bróöurins og bjálkann í eigin auga.
Eg notaöi tækifæriö til þess aö spyrja
Jón um annaö atriði. Þaö er verö á því
aö skera brauö. Þar sem ég versla
kostar þaö þrjár krónur og fimmtíu
aura á brauð. Skurður þess tekur um
það bil 20 sekúndur. Ég hef heyrt um
hærra verö á þessari athöfn, allt upp í
fimm krónur. „Verðið væri ekki svona
hátt ef ekki væru vísitölubrauðin,”
sagði Jón. Hann rökstuddi þaö meö því
að tap á vísitölubrauðunum væri þaö
mikið aö bakarar yröu aö vinna sér inn
peninga meö því að skera brauöin.
Þeir hefðu ekki í sínum hópi komið sér
saman um verö fyrir þaö en allir sem
hann vissi um heföu eitt jafnaöarverð
fyrir aö skera brauð, hvort heldur
væru vísitölubrauðeöa önnur.
Islensk brauö eru verulega góö. Þau
er hægt aö fá fersk og ný allan ársins
hring. En það er ekki nóg. Neytendur
eiga kröfu á því að fá vel rrierkt
brauð, meö síðasta söludegi og fram-
leiðsludegi merktum á umbúöirnar og
K
án þess aö borga fáránlegt verö fyrir.'
Verö upp í 25 krónur fyrir brauð er út í
hött. Sama þyngd ætti líka alltaf aö
vera á brauðunum. Eg hef tekið eftir
því aö oft þegar verö brauðanna hefur
hækkaö hafa þau minnkaö og lést. Og
jafnvel á milli verðhækkana. Skuröur
á brauöi ætti vitaskuld aö vera ókeypis
eöa í hæsta lagi að kosta nokkra aura.
önnur leið hlýtur að finnast til aö
borga tapið á vísitölubrauöunum.
DS.
DÖMUPEYSUR
PRJÓNAKJÓLAR
HEILIR OG
TVÍSKIPTIR
2191
BARNAPEYSUR,
HEILAR OG
HNEPPTAR
HERRAPEYSUR
OG VESTI
LEGGHLÍFAR
2177
PRJÓNABUXUR
Villti tryllti Villi:
VATNSGLÖSIN
SELD TIL AÐ
KOMA í VEG
FYRIR ÓÞRIFNAÐ
Oánægöur unglingur, sem ómögu-
lega vildi segja til nafns, hringdi og
kvartaöi yfir verölagi á skemmti-
staönum Villta tryllta Villa. Sagði
hann aö drykkjarföng væru þar dýr
og meira að segja vatnið selt.
Tómas A. Tómasson var spurður
um þetta. Hann sagðist ekki selja
nokkrum manni vatn. Hitt sagöist
hann gera aö selja krökkunum glös
til að drekka vatn úr. Væru þetta
plastglös sem kostuöu hann sjálfan
krónu og tíu aura en væru seld á
krónu hvert. Væri þaö aöeins gert til
þess aö krakkarnir dreiföu ekki glös-
unum um næsta nágrenni staðarins.
Þau gætu keypt sér glas í upphafi
kvölds og notaö þaö allt kvöldiö og
jafnvel haft meö sér heim og komið
meö þaö aftur næsta dag.
Varðandi gosdrykki sagöi Tómas
aö þeir væru ódýrari en á flestum
veitingastöðum. Kostuöu þeir 12
krónur eöa 16 krónur eftir stærö
glasa. Víða væru sams konar glös
seld á 30 krónur. Allt starfsfólkiö
sem ynni við gossöluna væri á nætur-
vinnukaupi. Reiknaö væri út á
hverjum degi hvaö inn kæmi og væri
þaö ævinlega svo aö tap væri á gos-
sölunni. Þaö færi allt niöur í helming
krakkanna sem kæmu á staðinn sem
keyptu gosdrykki. Inngangseyri á
Villta tryllta Villa væri líka haldiö í
algjöru lágmarki. Hann væri 99
krónur virka daga en 110 um helgar
þegar hljómsveit spilaði. Á sveita-
böll kostaði hins vegar 180 til 200
krónur.
-DS.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
fe\e*sV>Vt