Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Page 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR16. NÖVEMBER1982.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Andropov
hampaði
kínverska
gestinum
ADOLFS HITLERS
GLÆSIKERRA
Glæsikerran hans Hitlers er nú
enn á ný stödd í Þýskalandi en hún
yfirgaf heimaland foringjans áriö
1945.
Hún er af tegundinni Mereedes
Benz 77 og er í eigu bilasafnarana
Tom Barretts. Bnrrett hefur lánaö
bílinn á stóra bílasýningu sem
halda á i Essen í Þýskalandi í
desember.
1,3 milljónir hafa flúiö Víetnam síðan 1975 og langflestir sjðleiðina, á manndrápsbollum.
Meiri harka gagn-
vart flóttafólki
— en lét austantjaldsfelaga sina bíða
— Chernenko sást hvergi við móttökuna
Yuri Andropov, hinn nýi leiötogi
Sovétríkjanna, hefur sýnt að hann æti-
ar sér sjálfum stórt hlutverk í utan-
ríkismálum Kremlar. Átti hann í gær
marga snögga fundi með erlendum
stjómmálamönnum og þjóðarleiðtog-
um.
Notaöi hann tækifærið þegar margt
var erlendra gesta í Moskvu vegna út-
farar Leonids Brezhnevs forseta. Hann
ræddi við Karl Carstens, forseta V-
Þýskalands, George Bush, varafor-
seta Bandaríkjanna, Indiru Gandhi,
forseta Indlands, Babrak Karmal, leið-
toga Afghanistans.og Zia Ul-Haq, for-
seta Pakistans,auk annarra.
Leiötogar austantjaldslandanna
sneru þó heim frá Moskvu án þess að
hlotnast slíkar sérviðræður við Andro-
pov, sem skildu bíða til annars betra
tækifæris.
Sovétríkin og hin sex Varsjárbanda-
lagsríkin munu eiga fund i Prag I
næsta mánuði, sem fyrir löngu var ráð-
gerður og þykir líklegt að hinn nýi
Sovétleiðtogi muni nota hann til þess
aö ræða við bandamennina.
Þykir þetta annar háttur hafður á en
venja var á dögum Brezhnevs, sem lét
austantjaldsfélaga sína ganga fyrir.
Mönnum varð starsýnt á að Babrak
Karmal var meðal þeirra sem Andro-
pov gaf sér stund til þess að ræða við
einslega og þykir það vísbending um
að Andropov muni láta Afghanistan-
málið njóta forgangs í sinni stjóm.
Erlendir gestir við jarðarförina
veittu því eftirtekt að Huang Hua, ut-
anríkisráðherra Kína, var tekið með
meiri viðhöfn en mörgum öðrum gest-
um, eins og gestgjafamir vildu leggja
á það áherslu hve mikið kappsmál
þefa) er að bæta sambúðina við Kína.
Búist var við að Hua mundi eiga fund
með Andrei Gromyko utanríkisráð-
herra í dag. Svo háttsettir embættis-
menn þessara stærstu kommúnista-
ríkja heims hafa ekki hist til viðræðna
síðan 1969.
Mesta athygli vakti þó móttakan
sem Andropov hélt fyrir gestina en
með honum í móttökunni vora nokkrir
Kremlverjar. Þar var Nikolai Tikhon-
ov, forsætisráðherra, Vasily Kuznet-
sov, fyrsti varaforseti og Andrei
Gromyko utanríkisráðherra. Þessir
munu þykja mestir valdamenn í
Kreml eftir leiðtogaskiptin auk Dimi-
try Ustinovs vamarmálaráðherra,
sem var næsti ræðumaður á eftir
Andropov við minningarathöfnina um
hinn látna forseta. — En þar sást
hvergi Kostantin Chemenko, sem var
hægri hönd Brezhnevs og þótti helstur
keppinautur Andropovs um sæti
Brezhnevs. Þykir hans stjarna óneit-
anlega hafa dalað mikið.
Ljóst þykir af harkalegum ummæl-
um Andropovs í fyrstu ræðu sinni um
mikilvægi hemaðarmáttar Sovétríkj-
anna að hann hafi orðið að leggja sig
sérstaklega fram til þess að vinna fylgi
Rauða hersins við útnefningu sína í
aðalritaraembættið.
— segir Poul Hartling um afstöðu margra ríkisstjóma
til landflótta fólks
Bretland hefur óskað hjálpar hjá
Sameinuðu þjóðunum vegna þúsunda
flóttamanna frá Indókína sem nú eru
staddir í Hong Kong án þess að eiga sér
nokkurs staöar landvist vísa. Til Hong
Kong hefur komið um helmingur alls
þess „bátafólks” sem flúið hefur sjó-
leiðina frá Víetnam.
Um 90 þúsund Víetnama sem flúið
hafa til Hong Kong hafa f engið landvist
annars staðar'en enn bíða um þrettán
þúsundir þess aö finna sér ný heimili.
Fulltrúi Thailands segir aö það séu
yfir 168 þúsund víetnamskir flótta-
menn í búðum í Thailandi en þar fyrir
utan telur hann að yfir 300 þúsund
Kampútsíumenn og Víetnamar við
landamæri Kampútsíu og Thailand
þurfihjálparmeð.
Talið er að 1,3 milljónir Víetnama
Malcolm Fras-
er af spítala
Forsætisráðherra Astralíu, Malcolm
Fraser, var í gær útskrifaður af
sjúkrahúsi þar sem hann hafði legið í
16 daga vegna minni háttar skurðaö-
geröar í baki. Sagði hann fréttamönn-
um að hann myndi dveljast sér til
hvíldar á búgarði sínum norð-vestan
við Viktoríu í a.m.k. þrjár vikur.
Þetta þýðir að hann tekur varia
nokkurn beinan þátt í áætluöum fundi
ráðherra og fylkisstjóra 7. desember,
en þar á að ræða hugsanlegt þak á
laun. Er þakið liður í ráðagerðum
stjórnarinnar í baráttu hennar við
verðbólgu, sem nú er 12,3%, og at-
vinnuleysi, 7,7%.
hafi flúið föðurland sitt síðan 1975.
Poul Hartling, forstöðumaður flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna,
tók til máls i þessum umræðum í einni
fastanefnd allsherjarþings S.Þ. í gær
og sagði að flóttamannavandamálið
væri enn hrikalegra en fram hefði
komið í tölunum um Víetnamana. I
Afríku sagði hann að væra 5 milljónir
flóttamanna. Tvær milljónir Afgana
eru landflótta í Pakistan og um 590
þúsund flóttamenn eru í Evrópu.
Hartling, sem forðum var forsætis-
ráðherra Danmerkur, sagði að marg-
ar ríkisstjórnir beittu í dag meiri
hörku í afstööu sinni til landflótta
fólks. Brögð væra að því að fólk væri
með valdi hrakið frá landamæram og
beint aftur í faðm þeirra sem það hafði
flúið frá og jafnvel þó líf þess væri í
hættu.
Walesa finnst hann eins og
loftfimleikamaður á línu
Lech Walesa likir lausn sinni úr
fangelsinu við það að ganga á sleipri
línu. Hann segist þó ákveðinn í að falla
ekki.
Blaöamenn hittu hann að máli i gær
og sagði hann þeim aö hann yröi að
haga orðum sínum og gerðum varlega,
ella mundi hann lenda í fangelsi aftur.
Kvaöst hann þurfa að gefa sér tima
til þess að meta ástandið í Póllandi og
eigin framtíðarmöguleika eftir ellefu
mánaða einangrun í varðhaldinu. —
,3g þarf að hlusta á rödd föðurlands
míns,”sagðihann.
Walesa sagðist að vísu þurfa að sýna
fulla varkárni í tilraunum til þess að
ná sáttum og samlyndi en það jafngilti
þó ekki kjarkleysi. — Hann lét í ljós
undran yfir því að honum skyldi sleppt
lausum á meðan hiindruð félaga hans
úr Einingu væra enn í haldi.
Þeirra á meðal er Wladyslaw Fras-
yníuk, sem kemur fyrir rétt í Wroclaw
í dag vegna andófsaðgerða sinna með-
an hann fór huldu höfði. Hann var meö-
al þeirra sem sat ásamt Walesa í fram-
kvæmdastjórn landssamtaka Einingar
og hefur enginn annar jafnháttsettur í
samtökunum verið dreginn fyrir rétt
síðan herlögin voru leidd í gildi.
Jaruzelski hershöfðingi hefur sagt
að hann vonist til þess að aflétta megi
herlögunum í lok þessa árs og þykja
ýmis teikn á lofti um að hann og her-
lagayf irvöld stefni einmitt að því.