Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1982, Qupperneq 36
36 DV. ÞRIÐJUDAGUR16. NOVEMBER1982. DÆGRADVÖL DÆGRADVOL DÆGRADVÖL Rikaröur Pálsson kannar skemmdir. / þetta skiptið hafði losnað fylling. Aðstoðarstúlkan fylgist spennt með. Við i Dægradvölinni höfum alltaf verið kviðnir þegar við höfum þurft að fara til tannlœknis. En við höfum bara bitið á jaxlinn og drifið okkur. „Jæja, eruð þið tilbúin að taka við þessari sendingu frá Dægradvöl- inni? Það var gott. Þá látum við boltann flakka." Skvass, skvúss, skviss. Þettaer sko fjaðrafok ilagi. Og við hrópum til ykkar: „Úti?", „Æææii", „Ómöguleg kúla", „Nei, hann lenti á linunni". ,,Helviti missum við hann út af". „Stoppum þessa leiftursókn". „Jæja, þá gefum við upp". „Gat á spaðanum?". „Hef hann". „Úti? Nei. Jú. Vist". Þessi er hættulegur". „Hvernig er staðan?" Og þá skiptum við um spaða. Látum þann götótta frá okkur og heyrum hvað viðmælendur okkar hafa að segja. „Gleymir stressinu og daglegu amstrí — Ríkharður Pálsson tannlæknir höndlar spaðann af fimi enda er „engin hola” á hans spaða Þetta eru taktar sem ekki sjást i hverri keppni. Á bak við hann stendur Lovísa Sigurðardóttir, kunnur badmintonspilari. „Þú átt hann, Rikki."„Rikki, góður þessi."„Það var rótt þetta, Rikki." Já, þau vita hvað á að kalla sveiflurnar, badmintonfólkið. Aö sitja fullur örvæntingar í tann- læknastólnum og sjá borubrattan bor- inn nálgast er afar óskemmtijeg til- finning. Þó getur maöur dregið úr hræðslunni meö því aö láta deyfa sig. Þaö hefur líka jafnan veriö minn siður þegar ég fer til tannlæknis. 1 þetta skiptiö var ég þó ákveðinn aö sleppa deyfingunni enda var jú aöeins mein- ingin aö rabba viö einn eldhressan badmintonmann sem hefur tanniækn- ingar aö atvinnu. Umræddur tann- læknir heitir Ríkharður Pálsson. „Þaö besta viö badmintonið er aö maöur gleymir stressinu og hinu dag- lega amstri. Og i rauninni er þaö mun betri hvíld að spila badminton eftir vinnu en aö fara heim og leggja sig,” sagði Ríkharöur, þegar hann var í óöa önn aö gera viö tennur eins sjúkl- ings síns og sem betur fer reyndist sá hafa áhuga á badminton. „Stálslegnar kúlur" Ríkharöur sagöist hafa byrjað aö spila badminton af fullum krafti fyrir um sautján árum. Áöur kynntist hann íþróttinni þegar hann var viö nám í Bandaríkjunum en siöan kom timabil sem hann snerti ekki á spaöa. „Spaö- amir voru ekki eins fullkomnir í þá daga og nú. Sem dæmi má nefna aö í Bandaríkjunum notaði ég spaöa með stálvír í staö girnis.” Dægradvölin skaut inn í að þaö hlyti aö hafa veriö munur aö spila með „stálslegnum kúl- um”. En hversu oft skyldi Ríkharöur spila badminton? ,dSg hef spilaö um sex tíma á viku síðustu árin og íþróttin er geysi- skemmtiieg. Ég spila fyrst og fremst í miðri viku, því á veturna fer ég á skíði umhelgar.” Badmintonið betra enfyrráárum Ríkharður er fyrrverandi formaður TBR. Hann kvaö badmintonið hér á landi vera mun betra en fyrr á árum. Þetta stafaöi af því aö börnin byrjuöu nú mun fyrr aö æfa. Einnig kvaö hann ásókn í badminton hafa aukist mikiö á síöustu árum, sem þýddi aö húsnæði fyrir badmintonf ólk vantaöi. „Gam/e mænd hollið" Sjúklingur Ríkharös, sem hlustað haföi á umræðurnar meö athygli, máttinú fara að bíta á jaxlinn, því bor- inn var settur í gang og „sogpípan” komin á sinn staö viö augntönnina. Þegar átökunum var lokið, spuröi ég Ríkharð hvort badmintoninu fylgdi ekki mikið félagslíf. „Jú, maöur hefur kynnst mjög mörgum í gegnum badmintonið og þaö hafa veriö sérlega ánægjuleg kynni. Eg spila í fjórtán manna holli sem nefnist „Gamle mænd holliö”. Þaö er kennt við Eirík hús- vörð, en hann kallar okkur þessu nafiii. Þetta holl heldur sérstaka árshátíð og ermeð innbyröismót.” Rikki, góður þessi! Síöar um daginn mátti heyra inni i TBR-húsi: „Þú átt hann, Rikki.’’ „Rikki, góöur þessi.” „Þaðvar rétt þetta, Rikki.” Hann var þá að spiia með þeim Ottó Guöjónssyni, Hönnu Láru Pálsdóttur og Lovísu Sigurðardóttur. Og þaö var tekiö á. Greinilega ólíkt sniöugra að skreppa í badminton eftir vinnu en aö fara heim og sofa. framkvæmdastjóri TBR. „Það færist i vöxt að fyrirtæki borgi badmintontima starfsfólksins og leyfi þvi að spila á fullu kaupi." „Um hundraö ársföan badminton byrjaöi” — segir Sigfús Ægir Ámason, framkvæmdastjóri TBR „Þaö er talið að um fimm þúsund og tvö hundruð spili badminton á Is- landi. Hann sagöi einnig áberandi að þeir sem stunduðu kyrrsetuvinnu æföu íþróttina mest. I TBR eru um tvö þúsund manns og er jöfn skipting karla og kvenna í félaginu. Af unglingum er meira um að stúlkur stundi íþróttina en af eldri kynslóðinni eru karlmennirnir virk- ari,” sagði Sigfús ennfremur. Þaö kom fram hjá Sigfúsi aö íþróttin er um hundrað ára gömul, kennd viö staðinn Badminton í Eng- landi. Hann sagöi einnig áberandi viri aö þeirsemstunduöu kyrrsetu- vinnu æfðu íþróttina mest. „Þaö er mikið um aö hjón spili en þó ekki endilega saman því mikil- vægt er aö velja sér meöspilara meö svipaöa getu. Þannig að konumar velja sér oft aðrar konur sem með- ogmótspilara.” Þá kvað Sigfús það færast í vöxt að fyrirtæki borguðu badmintontímana fyrir starfsfólkiö og leyfðu því að spila á fullu kaupi. Ástæöan væri væntanlega sú að þaö kæmi fyrirtæk- inu vel að starfsfólkið væri frískt og hressilegt í vinnunni. Að lokum sagöi Sigfús aöspurður aö langflestir semspiluðu badminton væru áhugamenn. „Viö emm eitt- hvað rétt innan viö fimm hundruð, keppnisfólkið.” Badminton Texti: Jón G. Hauksson Myndir: Gunnar V. Andrésson og Sveinn Þormóðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.