Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Page 32
40 DV. MANUDAGUR 29. NOVEMBER1982. Um hdgina ALLT SAMKVÆMT VENJU Föstudagskvöldið var virkilega gott í sjónvarpinu. Fyrir utan Prúöu leikarana, sem alltaf standa fyrir sínu, var Kastljós og kvikmynd kvöldsins mjög boðlegt. Aö vísu var gestur Prúðu leikaranna meö þeim leiðinlegri sem þar hafa verið, einhver kúrekasöngvari af súkku- laöigerðinni. Að þessu sinni var fjallað um eitur- lyfjavandamálið í Kastljósi og fléttuðu þær Sigrún Stefánsdóttir og Margrét Heinreksdóttir saman inn- lendu og erlendu og mætti gera það oftar. Kvikmyndin Dýragarðsbörnin hefur verið mikið til umræðu að undanförnu og var gerð að einu um- fjöllunarefni í Kastljósi, einnig var upplýst hvaðan eiturlyfin koma og hvernig þeim er smyglað til vest- rænnaríkja. I þættinum var einnig talað viö ungan áfengissjúkling og eiturlyfja- neytanda sem hefur verið þurr í nokkurn tíma en haföi verið við grafarbakkann af völdum ofnotkunar. Var áhrifamikið að hlusta á hann segja ævisögu sína sem svo sannar- lega hefur ekki veriö neinn dans á rósum. Var það vel til falliö hjá Sigrúnu að láta nokkra unglinga vera viðsiadda viðtalið. Hlýtur þáttur sem þessi að hafa áhrif og flestir ef ekki allir unglingar ættu að sjá kvik- myndina um Kristínu F. A giapstigum (Badlands) er mjög góð kvikmynd er markaði tímamót fyrir leikstjórann Terrence Malick og aðalleikarana Martin Sheen og Sissy Spacek, varð myndin til þess að þau hlutu öll verðskuldaða frægð fyrir. Myndin er mjög áhrifamikil og vel gerð og þrátt fyrir að ofbeldi er nokkurt í myndinni verður hún aldrei sóðaleg á að horfa, eins og svo margar myndir af þessari gerð., Sjónvarpiö á laugardaginn fór alveg fram hjá mér en ég hlustaði á eftirmiðdagsútvarpið í staðinn. Fannst mér ég ekki missa af miklu er ég leit yfir dagskrána í sjón- varpinu. Þaö var helst að kvik- myndin Regnfólkið eftir Francis Ford Coppola vekti áhuga. Helgarvaktin er fyrirferðarmesta efnið í útvarpinu á laugardagseftir- miðdögum en einhvem veginn hefur hún ekki vakið áhuga hjá mér. Finnst mér á stundum hún vera nokkuð líflaus. Að vísu hressti Vilmundur Gylfason nokkuð upp á þáttinn á laugardaginn en þáð nægir ekkiíheildina. Svavar Gests er manna fróðastur um þá tónlist sem hann f jallar um í þáttum sínum í dægurlandi, en það er dægurtónlist áranna frá 1930— 1960. Og ekki sakar að hann er frá- bær kynnir og gerir þessa þætti sína áhuga verða og skemmtilega. Sunnudagsdagskrá sjónvarpsins hefur verið í þyngra lagi að undan- förnu en vonandi stendur það til bóta, nýr framhaldsmyndaflokkurer byrjaöur, sem ég að vísu missti af í gærkvöldi en aftur á móti er Glugg- inn virkilega vel gerður þáttur um menningu og listir en bágt átti ég með að skilja hversvegna var verið að fjalla um námskeið í skipu- lagningu á eigin tíma í þessum þætti. Hilmar Karlsson. Andlát Sigmar Björnsson prentari, Hátúni lOb Reykjavík, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, mánudaginn 29. nóvember, kl. 13.30. Rudolf Theil Hansen klæðskera- meistari, Garðaflöt 7 Garðabæ, verður jarösunginn frá Hafnarfjarðarkirkju, þriðjudaginn 30. nóvemberkl. 15. Sigríður Guðbjartsdóttir, Hátúni lOb, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. nóv. kl. 15. Steinunn Guömundsdóttir frá Núpi, Fljótshlíð, Álfheimum 13 Reykjavík, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. nóvember kl. 15. Beffa t fyrsta lagi þá hef ég ekki slúðraö i hálftíma, heldur í 20 mínútur, og í öðru lagi er þetta ekki einkasam- Prófkjör Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík: Um5 þúsund hafa greitt atkvæði — úrslit munu liggja fyrirupp úr miðnætti Tæplega 5 þúsund hafa greitt atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Þar af eru utankjörstaöaatkvæði um 700. Kjörstaðir voru opnir frá fjórum stöðum í gær frá kl. 10 til 20. I dag verður hins vegar aðeins hægt aö greiða atkvæði í Valhöll. Þar verður opiö frá kl. 15.30 tU 20. Talning atkvæöa hefst klukkan 18. Endanlegra úrslita er aö vænta nokkru eftir mið- nætti. JBH Tilkynningar Tónleikar í Bústaðakirkju staðakirkju mánudaginn 29.11. kl. 20.30. Á efnisskrá eru verk eftir J.C. Bach, Förster, Nielsen og frumflutningur á verki eftir Snorra Sigfús Birgisson sem hann samdi sérstaklega fyrir sveitina. Einleikarar eru Helga Þðrarinsdóttir víólu- leikari og Joseph Ognibene hornleikari. Nýja strengjasveitin var stofnuð haustið 1980 og fyrstu tónleikarnir. voru haldnir í desember sama ár undir stjórn Guðmundar Emilssonar. I ágúst 1981 fékk sveitin til liðs við sig Josef Vlach fiðiuleikara og stjórnanda frá Tékkóslóvakíu og hélt tvenna tónleika undir leiðsögn hans. Að þessu sinni leikúr sveitin án stjórnanda en konsertmeistari er Michael Scheiton. Frá Kattavinafélaginu Kattavinir um land allt, kettir eru kulvís dýr sem ekki þola útigang. Gætiö þess að allir kettír hafi húsaskjól og mat. íbúar Þingholtanna Munið eftir fundi íbúasamtakanna mánudag- inn 29. nóv. kl. 20.30 í Sóknarsalnum Freyju- götu 27. Dagskrá fundarins: Deildarskipulag einstakra reita, nýbyggingar (Öðinsgata 16), umferðarmál og ýmislegt fleira. Mætið stund- víslega. Bridgefélag Breiðholts Síðastliðinn þriðjudag lauk 2 kvölda hraðsveitakeppni með sigri sveitar Rafns Kristjánssonar sem hlaut 950 stig. I sveitinni eru eftirtaldir auk Rafns: Þorsteinn Kristjánsson, Björn Björnsson, Sigurbjörn Ármannsson. Eftirtaldar sveitir komu næst: stig. 2. sveit Baldurs Bjartmarssonar 882 3. sveit Leifs Karlssonar 880 4. sveit Kjartans Kristóferssonar 870 meðalskor 864 Næstkomandi þriðjudag hefst baró- Samskonar gildra og um er rætt. GUdr- an sjálf og vængirnir eru úr finriðnu hvítu neti. Leiðarinn er úr svörtu neti Hefur einhver séð álagildru? Fyrir tæpum mánuði, eða föstudaginn 29. okt. iiígðu menn frá líffræðistofnun Háskólans ála- gildru í Vífilsstaðavatn vegna rannsðkna- verkefnis nemenda. Gildran var lögð um kl. 18 og var horfin á hádegi næsta dag þegar menn fóru að vitja hennar. Töluvert fyrirtæki hefur verið að ná gildr- meterkeppni félagsins og hefst kl. 19.30. Stundvíslega. Allir velkomnir. SpUað er í húsi Kjöts og fisks v/Selja- braut. Sýningar Yfirlitssýning á verkum Jóns Þorleifssonar í Listasafni íslands Vegna ágætrar aðsóknar að yfirlitssýning- unni á verkum Jóns Þorleifssonar í Listasafni íslands hefur verið ákveöiö að framlengja hana um eina viku. Á sýningunni eru alls 107 listaverk, olíumál- verk, steinprent og vatnslitamyndir og er elsta myndin frá 1914. Yfirlitssýningunni lýkur sunnudaginn 28. nóvember og er því hver síöastur að nota þetta einstæða tækifæri til að kynnast verkum Jóns Þorleifssonar, en flest verkanna eru í einkaeign. Sýningin verður opin daglega, virka daga kl. 13.30—16 enumhelgarkl. 13.30—22. Sýning Sigrúnar Jónsdóttur stendur í anddyri Háskólabíós fram til mánaðamóta og er opin daglega frá 16—22. A sýningunni eru bæði batikverk og vefnaður og eru þau um þrjátíu að tölu. Aðgangur er ókeypis. Mokka-kaffi Ulfur Ragnarsson á Akureyri sýnir um þessar mundir myndir sínar á Mokka-kaffi í Reykja- vík. A sýningunni eru 26 myndir, sem allar eru unnar í akrýl og vatnsliti. Sýning Ulfs verður opin næstu þrjár vikur. Styrktarsýning á vegum T orf usamtakanna 1 sýningarsal Langbrókar, veitingahúsunum Torfunni og Lækjarbrekku, stendur yfir með flothoítum og blýlóðum. Bogiun og hringirnir eru úr málmi. unni upp því nauðsynlegt var að vaða ískalt vatnið upp í mitti. Benda má á að gildra þessi er líklega sú eina sinnar tegundar hér á landi. Málið hefur verið kært til Rannsóknarlög- reglu ríkisins. Allar ábendingar um hvar gildran er niðurkomin eru vel þegnar því aö missir hennar er mikið fjárhagslegt tjón fyrir stofnunina. Upplýsingum má koma til líffræðistofnunar Háskólans í sima 85395. styrktarsýning á vegum Torf usamtakanna og hafa þau fengið listaverk frá ca 100 lista- mönnum og fá Torfusamtökin 50% af andvirði hverrar myndar til uppbyggingar á Bern- höftstorfunni. Skruggubúð, Suðurgötu 3a „Sjónhverfingar á skurðarborðinu”. Sýning á teikningum og smáhlutum eftir Sjón. Sjón er íslenskur súrrealisti sem hefur starfað með súrrealistahópnum Medúsu síðustu ár. Hann hefur áður sýntá samsýningumMedúsu oger höfundur nokkurra ljóðabóka. Sýningin mun standa til 29. nóvember og verður Skruggubúð opin kl. 15—21 um helgar en kl. 17—21 virka daga. Áhugamenn um flug- dreka og grafhýsi eru sérstaklega boðnir vel- komnir, en sýningin er hugsuð sem hálfgild- ings ættarmót afkomenda alþjóðlega glæpa- mannsins Fantómasar. Afmæli 70 ára er í dag 29.11, Guðmundur Pétursson, fyrrverau'di yfirvélstjóri, Grænuhlíð 16 í Reykjavík. Hann vann lengst af sínum starfstíma hjá Skipa- útgerð ríkisins. Guðmundur tók mikinn þátt í félagsstarfi stéttar sinn- ar. Var hann meöal annars forseti Farmanna- og fiskimannasambands Islands í f jögur ár. Eiginkona hans er Rerdís Friðriksdóttir. Afmælisbarnið er að heiman. 80 óra er mánudag (29 þ.m.) Rannveig Jónsdóttir ljósmóðir í Súöavík, nú bú- sett hér í Reykjavík að Barónstíg 43. Hún verður að heiman á afmælis- daginn. 90 ára afmæli á í dag, 29. nóvember, Kristján Jóhannesson bóndi frá Klambraseli í Aðaldal, nú til heimilis í Illíð á Húsavik. Nýja strengjasveitin heldur tónleika í Bú- TOmSTUflDAHUSID HP Laugauegi lSVReutiauil: »31901

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.