Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1982, Page 34
42 DV. MÁNUDAGUR 29. NOVEMBER 1982. RYKSUGUR Haukur og Ólafur Ármúia 32 - Sími 37700. Rakarastofan Klapparstig Sími 12725 Hárgreiðslustofan Klapparstíg Tímapantanir 13010 wmmmammmmmmtmmmmmmmmmm VÉLRITUN - SÍMA VARSLA Öskum að ráða strax starfskraft til vélritunar og símavörslu. Æskilegt að umsækjandi hafi einhverja þekkingu á tölvuvinnslu. Skriflegar umsóknir sendist á skrifstofu okkar sem fyrst. Laugavegi 178 — 105 Reykjavik — £1 + S NYJUNG - NYJUNG Nú geta allir, sem þurfa og vilja, farið að grenna sig fyrir hátíðarnar Hér er um fljótvirka og áhrifaríka aöferö að ræöa, sem skaðar ekki likamann. Aðgerðin byggir á dufti og töflum, sem innihalda öll steinefni og vítamín, sem líkaminn þarfnast. Þaö er mjög auövelt aö lifa á dufti og töflum sjö daga samfleytt og léttast um fimm kíló. Duftiö, sem heitir „Létt & Mett" er blandaö út í te, kaffi, svaladrykk, buljong — eða þaö sem hver og einn telur best (súrmjólk, léttmjólk eöa saft). Milli mála er töflurnar notaöar, en þær eru mjög próteinríkar. Þessa megrunaraðferö má einnig nota á rólegri hátt — t.d. meö því aö sleppa einni máltíö á dag. Fyrir þá, sem vilja losna viö allt aö 10 kíló, er þetta mjög þægileg aöferö og kemur í veg fyrir hörgulsjúkdóma. Dr. Jan Engelsson hefur sjálfur reynt „Létt & Mett” og misst 9 kíló á einum mánuði. Sendum gegn póstkröfu. Eldri pantanir óskast endurnýjaðar f"Oska hér meö eftir aö mér veröi send- | ar . .. .stk. dósir af duftinu „Létt & ■ Mett”. Nafn . . Heimilistanc Klippið út augl. w.. til Kirkjumunir, Kirkjustræti 10 Reykja- Allar upplýsingar veittar í símum 15483 og 15030. Nýjar bækur Nýjar bækur Rauðu ástar- sögurnar Skógarvörðurinn eftir Sigge Stark Hver er ég? eftir Else-Marie Nohr Hvítklædda brúðurin eftii [Erik Nerlöe ' Rauðu ástarsögurnar eru spennandi og ’vél skrifaöar skemmtisögur eftir kunna og vinsæla höfunda. Ut eru komnar hjá Skuggsjá þrjár nýjar bækur í þessu safni: Skógarvörö- urinn eftir Sigge Stark, Hver er ég? eftir EIse-Marie Nohr og Hvítklædda brúöurin eftir Erik Nerlöe. Skógarvöröurinn eftir Sigge Stark er rómantísk ástarsaga Onnu frá Hlíð. Anna er sautján ára og mjög þögul og fáskiptin. Hún tjáöi engum hug sinn heldur hélt sig út af fyrir sig, rölti ein um skóginn meö hundinn sinn, gamlan gulbrúnan veiöihund, sem í raun var hennar einasti vinur. En einn indælan sumardag, þegar sólin hellti geislum sínum yfir skóginn, f jöllin og mýramar, hitti hún skógarvörðinn. Þessi sumardagur festist henni í minni sem einn mesti hamingjudagurinn í lífi hennar, enda þótt hann bæri í senn meö sér sorg, biturleika og tár . . . Hver er ég? eftir Else Marie Nohr fjallar um unga hjúkrun- arkonu sem fær þær óvæntu upplýsingar þegar hún ætlar aö fara að ganga í hjónaband aö vígslan geti ekki fariö fram þar sem hún sé þegar gift. Hún haföi lent í bílslysi og misst minnið um tíma og kemst nú aö því aö hún er gift manni sem hún hvorki man eftir eða getur fellt sig við, — og meö þessum manni á hún þriggja ára gamla dóttur.. . Hvítklædda brúðurin eftir Erik Nerlöe er spennandi saga ungrar stúlku, Karlottu, og Jespers, unnusta hennar. Karlottu er rænt þegar hún er í brúðarvagninum á leið til kirkj- unnar þar sem unnustinn og veislu- gestirnir bíða hennar. Enginn þeirra vissi um mennina tvo sem í brúöar- vagninum sátu — tvo illskeytta menn, sem alls mátti af vænta. Og þar með fékk Benedikta, fyrrum unnusta Jespers, tækifæri til aö vinna ást hans á ný. . . Nína I krafti og birtu Draumabók Endurútgefin hefur veriö drauma- ráðningabók, Draumabók, drauma- ráöningar ásamt draummerkingum nafna og leiðarvísir til að spá í spil og kaffibolla. Er þetta þriöja útgáfa bókarinnar, enda mikill áhugi hjá mörgum að reyna að skyggnast í fram- tiöina gegnum drauma eða spilaspár. í krafti og birtu Glaðheimar eftir Margit Ravn Endurútgefin hefur veriö ein af bókum hinnar vinsælu norsku skáld- konu Margit Ravn, Glaðheimar. Þetta er 23. bókin, en þessar sögur virðast í engu hafa misst vinsældir sínar frá því að þær komu út hér á landi fyrir um 30 árum. Bók um Nínu Tryggvadóttur Nína Tryggvadóttir telst í hópi fremstu myndlistarmanna landsins fyrr og síöar og er nú komin út bók um líf hennar og list. Þar er aö finna lit- prentanir af málverkum frá öllum skeiöum listferils Nínu. Iceland Review gefur bókina út og er frumútgáfan á ensku og nefnist N. Tryggvadóttir — Serenity and Power. Samtímis kemur bókin út á íslensku meö titilinn: Nína — I krafti og birtu. Er íslenska útgáfan í dreifingu hjá Bókaklúbbi Almenna bókafélagsins. Samstarf Iceland Review og Almenna bókafélagsins um þessa útgáfu er hlið- stætt því sem var um Kjarvalsbókina í fyrra. Bókin umNínuer í sama broti — og eru þessar tvær bækur vísir aö stærri flokki um íslenska listamenn. Verk Nínu Tryggvadóttur eru þekkt bæði hérlendis og víöa í útlöndum — og til að nefna dæmi, sem flestir Islend- ingar þekkja, er mósaik-altaristaflan í Skálholtskirkju eitt af verkum hennar. Verk Nínu þykja þróttmikil og gædd sérstakri birtu. Er hún jafnan talin meðal merkustu myndlistarmanna íslenskra. I bókinni um Nínu er inngangur eftir Halldór Laxness, en Hrafnhildur Schram listfræöingur skrifar megin- texta bókarinnar og hún hafði og um- sjón meö myndvali. Hefur bókin að geyma 58 litmyndir af málverkum, glermyndum og mósaikverkum lista- konunnar. Auk þess er þar að finna svarthvítarmyndir: teikningar, grafik og myndir af listakonunni s jálfri. Hönnuöur bókarinnar er Guöjón Eggertsson, sem einnig hannaði bókina um Kjarval,sem sömu útgef- endur sendu f rá sér í fyrra. Aldarsaga Kaupfélags Þingeyinga eftir Andrés Kristjánsson Aldarsaga Kaupfélags Þingeyinga eftir Andrés Kristjánsson er komin út. Þetta er stórt rit, um 480 blaösíöur, meö nær 300 myndum. Otgefandi er Kaupfélag Þingeyinga. I fyrstu köflum bókarinnar er getiö í stórum dráttum helstu félagshreyf- inga í Þingeyjarsýslu fyrir daga kaupfélagsins, einkum verslunar- og búnaöarsamtaka og pöntunarfélaga. Því næst er sagt frá sauöasölu til útlanda og öörum aðdraganda aö stofnun kaupfélagsins. Saga Kaupfélags Þingeyinga er síöan sögö eins greinilega og kostur er á fyrstu árum, gerö grein fyrir myndun og þróun félagsskipulagsins og viöskiptareglna félagsins og allri mótun þessa fyrsta félagsbundna samvinnustarfs hér á landi. Sagt er frá mörgum atvikum úr hinni tvísýnu baráttu fyrstu starfsáranna. I síöari hluta aldarsögunnar er einkum fjallað um starf og stefnu Kaupfélags Þingeyinga á síðustu ára- tugum, fjölþætt verkefni þess og mikl- ar framkvæmdir og umbætur í versl- unarþjónustu og framleiðslu, svo og þátttöku í atvinnulífi og stuðning viö almenn menningar- og f ramfaramál. Síöasti kafli bókarinnar er um hátíöahöldin i tilefni aldarafmælisins fyrr á þessu ári. Teitur Björnsson, formaður Kaup- félags Þingeyinga, ritar formála. Bókin er prentuö og bundin í Prent- smiðjunni Eddu. Hjarta læknir Mafíunnar eftir Konsalik Ut er komin hjá IÐUNNI skáldsagan Hjartalæknir Mafíunnar eftir þýska höfundinn Heinz G. Konsalik. Andrés Kristjánsson þýddi. Konsalik hefur samið fjölda skáldsagna og er einn sá höfundur sem nú er uppi sem víðkunn- astur er. Bækur hans hafa verið þýddar á f jölmörg tungumál og eru nú komnar í meira en tuttugu og sjö milljónum eintaka. Hjartalæknir Mafíunnar er 246 blaösíöur. Oddi prentaöi. HEÍNZ G. KONSAUK HJARTA LÆKNIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.