Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1983, Síða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR1983.
11
Áramótaskaupið var á sínum stað í sjónvarpsdagskránni á gamlárskvöld. í sam-
kvæmum var algengt að spurt væri hvernig mönnum hefði iíkað skaupið. Eflaust
hefur hverjum sýnst sitt í þeim efnum eins og gengur og vísast munum við heyra
meira um það í fjöimiðium næstu vikurnar. Myndin er tekin í sjónvarpssal og vissu-
lega sýnist umhverfið bærilega gamlárskvöldslegt. D V-mynd G VA
Lionsklúbbur Bolungarvíkur:
Gefur fullkomna
aðgerðasmásjá
Linonsklúbbur Bolungarvíkur af-
henti heilsugæslustöðinni í Bolungar-
vík fyrir skömmu fullkomna aðgerð-
asmásjá. Er hún fyrsta tækið sinnar
tegundar sem tekið er í notkun á ís-
lenskri heilsugæslustöð. Tæki af þess-
ari gerð hafa mjög rutt sér til rúms á
heilsugæslustöövum erlendis og er
enginn vafi talinn á að sú mun einnig
verða raunin hér á landi.
Aðgerðasmásja þessi er einkum
notuð við eyrnaskoöanir og mun, að
sögn héraðslæknis Bolungarvíkurum-
dæmis, Péturs Péturssonar, gjör-
breyta öllum möguleikum við grein-
ingu og meðferð eymasjúkdóma. Auk
þess að koma að notum við eyrnasjúk-
dóma er hægt að nota hina nýju smásjá
við augnslys og húðsjúkdóma.
Eins og kunnugt er, er það ekki
sjaldgæft að sjúklingar utan af lands-
byggðinni hafi orðið að leita til Reykja-
víkur vegna eyrnakvilla áundanförn-
um árum. Er Bolungarvík þar engin
undantekning. En með nýju aðgerða -
smásjánni má búast við að unnt verði
að fækka þeim ferðum verulega þar
sem hið nýja tæki mun gera sjúkdóms-
greiningu nákvæmari.
Fjár til kaupa á hinu nýja tæki aflaði
Lionsklúbburinn með ýmsu móti. Fé-
lagar klúbbsins gengust fyrir sölu jóla-
dagatala, flugelda o.fl. En drýgstar
tekjur fengust með því að Lionsmenn
fóru sjóróðra, bæði á línubát og á
rækjubát. Gáfu sjóróðramir drjúgt í
aðra hönd, þar sem bátarnir voru lán-
aðir klúbbnum endurgjaldslaust og
Lionsfélagamir gáfu alla vinnu sína.
Vilja Lionsmenn nota tækifæriö hér og
nú til þess að færa eigendum þessara
báta og öömm þeim er nærri komu
bestu þakkir fyrir þá aðstoö sem þeir
veittu og gerði klúbbnum kleift að afla
fjár til kaupa á hinni nýju aðgerða -
smásjá.
-óm.
Verkamannabústaðir
afhentir í Kópavogi
I síðustu viku var formlega afhent
annað tveggja fjölbýlishúsa sem byggð
eru á vegum Stjórnar verkamannabú-
staða í Kópavogi. Samtals er í þessum
tveim húsum um 36 íbúöir að ræöa en
seinni átján íbúðirnar verða afhentar í
febrúar. Húsin standa við Astún 12—
14.
Verð á íbúðunum telst vera lágt því
tveggja herbergja íbúð mun kosta 761
þúsund króna, þriggja herbergja íbúð
997 þúsund og f jögurra herbergja íbúð
1253 þúsund króna. Þetta svarar til um
79% af staðalverði íbúða nú.
I viðtali við DV sagði Kristján Guð-
mundsson, bæjarstjóri í Kópavogi, að
nú þegar væri verið að byrja á svipuðu
verkefni, auk þess sem búið væri að út-
hluta lóðum undir fleiri bústaði.
óbg.
Innbrot
— í húsgagnaverslun
Kristjáns
Siggeirssonar
Brotist var inn í húsgagna-
verslun Kristjáns Siggeirssonar,
Laugavegi 13, í fyrrinótt. Engu
virðist hafa verið stolið, en talsvert
varrótaðískúffum.
Innbrotið uppgötvaðist í gær-
morgun þegar starfsfólk kom til
vinnu. Búið var að brjóta rúðu og
þannig fariö inn.
Þá var brotist inn í skiptistöð
strætisvagna Kópavogs við Digra-
nesveg aöfaranótt nýársdags. Ein-
hverju af vindlingum var stolið en
það mun þó ekki hafa verið mikið.
Bæði málin eru óupplýst.
-JGH
Fré afhendingu ibúðanna. fyrir miðju er Kristján Guðmundsson bæjarstjóri
og fyrir aftan hann stendur Björn Óiafsson, forseti bæjarráðs Kópavogs.
VÖRUBÍLL ÓSKAST
TIL KAUPS
Æskilegt aö Peugeot 504 árg. ’80 sé tekinn upp í
hluta kaupverös.
Uppl. hjá auglþj. DV í síma 27022 eftir kl. 12.
H—6001.
VERKAMANNAFÉLAGK)
DAGSBRÚN
Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaöarráðs
um stjórn og aðra trúnaðarmenn félagsins fyrir
áriö 1983 liggja frammi í skrifstofu félagsins frá
og með fimmtudeginum 6. janúar.
Öðrum tillögum ber að skila í skrifstofu Dags-
brúnar fyrir kl. 17 föstudaginn 7. janúar 1983.
Kjörstjórn Dagsbrúnar
HAUSTHÆPPDRÆTTI
HEYRNARLAUSRA '82
Dregið var í happdrættinu 20. des. sl. Vinnings-
Félag heyrnarlausra
Klappastíg 28
sími 13560.
númer eru þessi:
1. 960 5.12961
2.18999 6. 1164
3. 3997 7.10459
4. 7265
AUGLÝSING
um innheimtu gjalda
til Búnaðarmálasjóðs og
Stofnlánadeildar landbúnaðarins
Hinn 11. nóvember 1982 gaf landbúnaðarráðherra út tvær
reglugerðir, aðra um innheimtu gjalda til Stofnlánadeildar
landbúnaðarins af búvöruframleiðslu o.fl. nr. 627/1982 og hina
um innheimtu gjalda til Búnaðarmálasjóðs nr. 631/1982.
Framleiðsluráð landbúnaðarins, sem annast innheimtu gjaid-
anna,vekur athygli á því að samkvæmt reglugerðunum skal
nú innheimta umrædd gjöld af fleiri vörutegundumen áður og
er gjaldið mishátt eftir verðflokkum. Eftirtaldar vörutegundir
og þjónusta urðu fyrst gjaldskyldar 1. júní 1982:
Eldisfiskur frá fiskeldis- og hafbeitarstöðvum (þ.m.t. eldis-
seiði), leiga á landi lögbýla skv. skilgreiningu 1. gr. ábúðar-
laga nr. 64/1976 til annarra nota en búrekstrar svo sem leiga
sumarbústaðalóða, leiga tjaldstæða og hagabeitar fyrir hross,
hestaleiga, skógarafurðir hvers konar, trjáplöntur til skrúð-
garðyrkju og skógræktar og reki. Gjald til Bjargráðasjóðs
leggst einnig á þessar vörutegundir og þjónustu skv. 5. gr.
laga nr. 51/1972 skv. 6. gr. reglugerðar nr. 631/1982 og er 0,6%
eins og af öðrum gjaldskyldum vörum til sjóðsins.
Þá er gjalddögum gjaldanna breytt og eru þeir nú f jórir á
ári, 1. september, 1. desember, 1. mars og 1. júní. Skal uppgjör
og skil á skrám um gjaldskylda vöru- og leigusölu vegna hvers
þriggja mánaða tímabils fara fram innan 20 daga frá gjald-
daga.
Þeir aðilar sem selja framleiðslu sina eða annað gjaldskylt
beint tU neytenda skulu standa skil á gjöldum þessum, þ.m.t.
neytenda- og jöfnunargjaldi tU StofnlánadeUdar landbúnað-
arins. Framleiðendum er skylt að veita Framleiðsluráði
upplýsingar um hverjum þeir selja afurðir eða gjaldskylda
þjónustu. Verslanir, heUdsöluaðUar og aðrir þeir þjónustu-
aðUar sem taka á móti vörum frá framleiðendum skulu hins
vegar sjá um skU gjalda af þeim vönun sem þeir taka á móti.
Sérstök athygli er vakin á ákvæðum reglugerðanna tU
bráöabirgða en samkvæmt þeim ber gjaldskyldum aðilumað
skUa fyrir 20. janúar 1983 skrám og uppgjöri fyrir gjaldskylda
vöru- og leigusölu, sem þeir hafa þegar innheimt eða vorú að
innheimta fram tU 1. desember 1982 og ekki var þegar gjald-
fallið skv. ákvæðum áðurgildandi reglugerða. Gjöld skv. þess-
um skrám falla í gjalddaga 20. janúar 1983. Fyrsti reglulegi
gjalddagi skv. nýju reglugerðunum verður 1. mars 1983 og ber
því að skila skrám og uppgjöri fyrir tímabilið frá 1. desember
1982 tU 28. febrúar 1983 fyrir 20. mars 1983.
Framleiðendur og heUdsöIu- og smásöluaðilar sem versla
með búvörur eða gjaldskylda þjónustu eru hvattir tU að kynna
sér hinar nýju reglugerðir.
Reykjavik, í desember 1982.
Framleiðsluráð landbúnaðarins.