Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1983, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1983, Blaðsíða 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR1983. 17 Lesendur Lesendur Lesendur ÁR MEÐALMENNSKUNNAR LIÐIÐ í ALDANNA SKAUT — segir bréfrítari, sem vill taka st jómmálamenn á kné sér Bréfritari telur engan eiga skilið nafnbótina maóur ársins en stingur upp á að Geir Hallgrimssyni hlotnist sá heióur aó vera varamaður árs- ins. 7536-9460 skrifar: Dagblaðið-Vísir; og forverar þess hafa jafnan valið mann ársins um hver áramót. Oft hefur valið ekki verið erfitt, og ákveðnir einstakling- ar verið svo gott sem sjálfkjömir. En á dögunum þegar ég sá í blaðinu að lesendur voru beðnir að skila inn til- lögum aö manni ársins hugsaöi ég með mér að nú væri úr vöndu að ráða fyrir rítstjórana því 1982 er sann- kallað ár meðalmennskunnar. Á árinu hefur verið áberandi nánast á öllum vígstöðvum að meðal- mennskan hefur verið ríkjandi. Að vísu ekki með öllu í neikvæðum skiln- ingi því á sumum sviðum, til dæmis í íþróttum, hefur breiddin aukist á sama tíma. En stjómmálin hafa verið þannig á árinu að réttast væri að flengja stjómmálamennina. Framsóknarmönnum er alveg sama hvað gerist í efnahagslífinu á meðan SlS étur litlu fyrirtækin og flokkur- inn kemur gæðingum sínum í stjórn. Ekki nokkur maöur sér lengur mun á krötum og íhaldi, nema hvað þeir fyrmefndu em svo máttlausir að enginn man hvað þeir segja mínútu eftir að þeir loka þverrifum sínum (sem þó er lofsvert þá sjaldan það gerist.) Alþýðubandalagsmennirnir vinna mikið, semja skýrslur um allt milli himins og jaröar og skipa hópefli til lausnar vanda, og auðvitaö löngu búnir að pakka sósíalismanum niður og hlamma ofan á merkinu „varnarbarátta fyrir lífskjörum”. Og Vilmundur fer í fýlu af því að hann fær ekki varaformannsstööu hjá krötunum! Rétt eins og lítill frekur fimm ára pattaralegur strák- hvolpur! Og enda þótt hann segist vera varaformannstýpa gerist hann skipstjóri, vélstjóri, háseti og stýri- maður á togaranum Bandalagi. Hræddur er ég um aö fleytan sú sé jafn-hriplek og allar hinar. Beinar útsendingar... islendingur sem lengi hefur verið bú- settur í Danmörku hringdi: Eg hef búið lengi í Danmörku en flutti nýlega til íslands. Hélt ég ekki að sá búferlaflutningur myndi hafa mikil áhrif á líf mitt, en nú er komin upp sú staða að ég get ekki lengur orða bundist. Þar á ég við beinar út- sendingar á leikjum í ensku knatt- spymunni. I Danmörku eru sýndir um þaö bil 20 leikir beint á laugar- dögum yfir háveturinn. Gleðjast þá hjörtu knattspyrnuunnenda og er oft geysileg stemmning þar sem áhuga- menn um ensku knattspyrnuna hafa hópast saman. Einnig nást í Kaup- mannahöfn, þar sem ég var, beinar útsendingar á enskum knattspymu- leikjum frá sænska sjónvarpinu. Því miður næst ekki útsending frá norska sjónvarpinu nema á Norður- Jótlandi. Finnst mér ákaflega furðulegt (og er þá vægt tekið til orða) að Islendingar skuli ekki geta orðið þeirrar ánægju aðnjótandi að sjá leiki úr ensku knattspyrnunni beint. Hefi ég þó heyrt að áhugi Islendinga sé slíkur á þessari íþrótt að um það bil sjö hundruð þúsund getraunaseðl- ar með leikjum úr ensku knattspym- unni seljist í viku hverri. Einnig sagði vinur minn einn, sem reyndar er sama sinnis og ég um beinar út- sendingar á leikjum í ensku knatt- spyrnunni, að nokkrir stórleikir, svo sem bikarúrslitaleikir, heföu verið sýndir beint og heföi áhuginn þá verið s vo mikill að allar mannaferðir heföu lagst niður utan dyra þá dag- ana. Svo skilst mér líka að Ríkisútvarp- ið-Sjónvarp græði einhver ósköp á auglýsingum sem sýndar eru í hléi. Þaö er staðreynd að beinar útsend- ingar sem þessar kosta sitt, en einnig liggur ljóst fyrir að hægt er að vera með í sérstökum „pakka” sem sjónvarpsstöðvar víða um heim gera kaup á hjá enska knattspyrnusam- bandinu. Væri því ekki tilvalið fyrir ráðamenn Sjónvarpsins að slá tvær Bréfritari er einlægur aódáandl ensku knattspyrnunnar. flugur í einu höggi með því aö auka hundmð prósent og fá peninga í kass- vinsældir dagskrárinnar um nokkur annumleið? Skrifstofustarf Oskum eftir starfsfólki til starfa á aöalskrifstofu félagsins í Armúla 3, nú þegar. Um er að ræða almenn skrifstofustörf og starf sendimanns. Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð hjá starfsmanna- haldi. SAMVINNU TRYGGINGAR ARMÚLA3 StMl 6l4U STEYPUSÖGUIM vegg- og gólfsögun VÖKVAPRESSA / múrbrot og fleygun KJARIMABORUN fyrir öllum lögnum Tökum að okkur verkefni um allt land. — Fljót og góö þjónusta. — Þrifaleg umgengni. BORTÆKN/ SF. Símar: 72469 — 72460 Verkpantanir frá kl. 8—23. FLENSBORG ARSKÓLI - ÖLDUNGADEILD Endanleg innritun í öldungadeild fer fram í skól- anum 5.-7. janúar kl. 16—18 alla daga. Gert er ráð fyrir því að eftirtaldir námsáfangar verði kenndir: Bókfærsla 203, danska 203, efnafræði 103, enska 203, franska 103, hagfræöi 103, heil- brigðisfræði 102, íslenska 103 og 203, jarðfræði 103, líffræði 103, saga 112 og 122, stærðfræði 103“og 203, tölvufræði 103, vélritun 202, þýska 203. Athygli skal vakin á því að nemendum er heim- ilt að leggja stund á einstakar greinar, jafnvel aðeins eina grein. Skólameis.ari. AUGLÝSING FRÁ RÍKISSKATTSTJÓRA Vísitala jöfnunarh/utabréfa Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað út vísitölu almennrar verðhækkunar í sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1983 og er þá miðað við að vísitala 1. janúar 1979 sé 100. 1. janúar 1980 vísitala 156 1. janúar 1981 vísitala 247 1. janúar 1982 vísitala 351 1. janúar 1983 vísitala 557 Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða innborgun hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar við vísitölu 1. janúar þess árs sem útgáfa jöfnun- arhlutabréfa er ákveðin. Reykjavík 2. janúar 1983 Ríkisskattstjóri Alfa Romeo — Audi — Austin — Autobianchi — BMW — Citroen — Datsun — Fiat — Ford — Honda — Isuzu — Lada — Land Rover — Mazda — Mercedes — Morris — Opel — Peugeot — Renault — Saab — Skoda — Subaru — Talbot Chrysler — Talbot Simca — Toyota — Vauxhall — Volvo — Volkswagen. Eigum til og getum útvegað mikið úrval bílahluta með stuttum fyrirvara í flestar gerðir evrópskra og japanskra fólksbila. E.ÖSKARSSON Skeifunni 5 — Simar 33510 og 34504 Rvík. BILLINN Bretti — húdd — sllsar oa marot fleira

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.