Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1983, Blaðsíða 21
DV. ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR1983.
21
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Á meðan alft lék ilyndi. Ali og Steve McQueen voru saman isjö ár. Og það
duldist engum að þar fór hamingjusamt fólk.
Það blæs um
Ali MacGraw
— í nýja myndaf lokknum
Ali MacGraw var gift leikaranum
Steve McQueen í sjö ár. Þaö duldist
engum að þar fór hamingjusamt fólk.
Ástin blómstraöi þó ekki til æviloka hjá
þeim og þau skildu.
Sagt er aö þetta hafi fengið mjög á
Ali og að hún hafi veriö lengi aö ná sér.
Nú leikur hún með Robert Mitchum í
sjónvarpsmyndaflokki í Bandaríkjun-
um. Myndaflokkurinn nefnist „Winds
of War” sem við nefnum Stríösgust,
hvort sem ykkur líkar betur eöa verr.
Myndaflokkur þessi þykir dýr í fram-
leiöslu, en þaö gerir litið til, hann selst
lika vel.
Nýlega sleit Ali sambandi sínu viö
tónlistarmanninn Mickey Raphael, en
þau höföu veriö saman í ár. Þau unnu
bæði mikiö og hvort á sínum staö í
Bandaríkjunum. Já, fjarlægöin getur
stundumveriðtil trafala.
Ali MacGraw er ein aftur. Hún ernú
orðin 43 ára og hefur sjaldan verið
eins falleg. Sagt er að skilnaðurinn
við Steve McQueen hafi fengið
mjög á hana. „Steve var frábær
maður og stálheiðarlegur. Hann var
mér mikils virði," segir Ali.
Gamli Bondarinn Roger Moore við komuna tH London fyrir skömmu. Með
honum á myndinni er eiginkonan Luisa og sonurinn Geoffrey, sem er átján
ára.
Roger Moore
fjölskyldan
Roger Moore, sem við þekkjum flest
betur sem njósnarann 007, var nýlega
á ferð í London meö eiginkonunni
Luisu og syninum Geoffrey, sem er
átján ára.
Þar hittu þau franska leikarann
Louis Jordan og konu hans Freder-
ique. Þeir Moore og Louis leika um
þessar mundir saman í myndinni Octo-
pussy.
Þeir kumpánar fóru meö konurnar
út að boröa og þeir ættu aö hafa efni á
því þar sem Bond-myndirnar gefa
leikurum mikiö í aöra hönd.
Annars vakti Moore-fjölskyldan
mikla athygli fyrir friskleika. Þau
voru öii sólbrennd og útitekin og
greinilegt aö þau láta fara vel um sig á
ströndinni jafnt sem á matsölustöðun-
um.
í brekkunum þar ástin blómstrar. Ingemar ogAnn hafa aldrei verið eins
hamingjusöm og einmitt þessa dagana.
INGEMAR
OGANN
— hjá þeim blómstrar ástin
íbrekkunum
Skötuhjúin Ingemar Stenmark og
Ann Uvhagen, sem búa í Monaco, eru
sögð sérlega hamingjusöm þessa
dagana.
Ann var nýlega spurð að þvi
hvemig henni líkaöi aö búa í Monaco.
Hún svaraöi um hæl aö þar væri gott
að búa. „Mér líöur mjög vel þar og
það sama er að segja um Ingemar.
Þetta er raunverulega heimili okkar.
I Monaco lifum við hæglátu lífi og
erum mest út af fyrir okkur,” sagði
hún.
Ingemar fór þó í haust til Austur-
ríkis til að æfa sig fyrir skíöakeppnir
vetrarins. Og Ann fylgir honum eftir
og er honum til halds og trausts viö
æfingamar. Ann hefur reyndar veriö
gagnrýnd fyrir þetta og sagt er aö
þaö sé truflandi fyrir Ingemar aö
hún sé alitaf í fylgd meö honum. Hún
er á ööm máli.
Ann segir aö þaö hafi aldrei verið
eins gott á milli þeirra Ingemars og
einmitt nú. Ástin blómstri, en þau
ætli aö bíða meö þaö að eignast börn.
Nú er heimsbikarkeppnin á
skíðum hafin og Ingemar hefur
vegnaö vel. Það er því ljóst að spár
um aö Ann hafi slæm áhrif á skíða-
manninn Ingemar Stenmark eiga
ekki við rök að styðjast. Enn keyrir
hann jafn léttilega niður brekkumar
og beygir framhjá hliöunum af fimi,
lika þegar hann skiöar meö Ann.
Mark
og Anna
Breskir fjölmiðlar hafa lengi rætt
um að hjónaband þeirra Önnu og
Mark Phillips só að fara út um
þúfur. Nú virðist þó annað hljóð
vera komið i strokkinn þvi þau hafa
látið taka mikið af myndum af sér
þar sem þau eru mjög ánægð. Er
sagt að þau ætli ekki að slita hjóna-
bandinu og só það mest vegna
barna þeirra. Á myndinni, sem var
tekin i nóvember, sjáum við fjöl-
skylduna og auðvitað eru allir
ánægðir.
Snurða á
þráðinn?
— íþessum hjónaböndum
Margrét
ogHinrik
Eru þau Margrót Danadrottning og
Hinrik prins að skilja? í Danmörku
gengur það fjöllunum hærra að
sjaldan hafi verið eins slæmt á milli
þeirra og segir sagan að þau sofi nú
sitt i hvoru herberginu.
Blómleg og brosandi, Ingemar Stenmark og Ann Uvhagan kunna sór-
deilis vel við sig i Monaco. .
Christian
og Barbara
Hjónakornin Christían Barnard og
Barbara hafa verið ósátt að undan-
förnu. Nú er þó allt sagt komið i
gott lag hjá þeim. Það heyrir þvi
fortiðinni tíl að „knúsarinn"
skreppi tíl Ítalíu og annarra landa
og hittí ítalskar blómarósir og leik-
konur eins og hann gerði svo oft
eftír að þau slitu samvistum um
tima á siðasta ári. Þau hafa verið
gift í ellefu ár.