Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1983, Síða 11
DV. LAUGARDAGUR15. JANUAR1983.
11
25%, í svokallaðan sérverkefnasjóð.
Þeir peningar eru í eigu deildanna
en í vörslu okkar hér. Deildirnar geta
sótt um fé til sjóösins. Fjárhagsnefnd
tekur umsóknirnar til athugunar og
gerir tillögur um úthlutun til stjórnar.
Loks fara þau 25% sem eftir eru beint í
sjóð deildanna sem eru 50.
Af þessum 8 milljóna tekjum í fyrra
fóru því 2 milljónir til deildanna. Skipt-
ingin milli þeirra fer eftir íbúatölu á
hverjum stað fyrir sig. 1 sérverkefna-
sjóðinnfóru 2 milljónir.
Sjúkrabílar og
öldrunarverkefni
1 hvaðfara þessir peningar?
„Þeir fara fyrst og fremst til að
kaupa og reka sjúkrabíla. I fyrra og nú
í ár hefur líka mikið fjármagn farið í
öldrunarverkefni. Öldrunarmálin hafa
verið eitt af forgangsmálum Rauða
krossins að undanförnu. Arið 1981 fór
um 1 milljón króna úr sérverkefna-
sjóðnum til öldrunarmálanna og fram-
lagið úr deildunum sjálfum til viðbót-
ar. Með fullum rétti má segja að hvort
tveggja sé komiö til vegna peninga-
kassanna. Af tekjum þeirra fara 75%
til kaupa á sjúkrabílum og í öldrunar-
verkefni. Rauöi krossinn á nú lang-
flesta sjúkrabíla á landinu. Verö á nýj-
um bíl í dag er 300—700 þúsund krónur.
Á því sést að við spörum ríkinu stórfé
meðþessu.
Fólk kannski áttar sig ekki á þessu.
Það tekur frekar eftir því þegar við er-
um með einstakar stórsafnanir í sér-
stök verkefni. Margir hafa gagnrýnt
okkur og sagt að ekki eigi að einblína
svona mikið á útlönd. Staðreyndin er
þó sú aö aöeins 10% af veltunni fer í
erlenda hjálp, neyðar- og þróunar-
hjálp, auk sérstakra safnana, t.d.
Afríkusöfnunina.”
Vinningshlutfallið er 82,5%
Hafiö þiö einhvem tíma hugsað út í
hversu margir spila í þessu að stað-
aldri?
„Já það höfum við oft gert. En í
fyrsta lagi er erfitt aö fylgjast með því
og í öðru lagi höfum við komist aö því
að það er ekki mjög margt fólk. Þannig
aö við höfum engar verulegar áhyggj-
uraf því.”
Eru kassamir þannig útbúnir að þeir
gefa ákveðið vinningshlutfall?
„Já, vinningshlutfallið er82,5%, plús
eða mínus eitthvaö svolítið. Þetta er
hæsta vinningshlutfall sém tii er í land-
inu í happdrætti. Kassamir eru stilltir
inn á þetta og gefa þaö. Annað er það
aö þeir eru háðir leyfi dómsmálaráðu-
neytis. Ef okkur dytti í hug að breyta
þeim þá gerum við það ekki nema aö
fengnu leyfi ráöuneytis. Svo má undir-
strika að allir kassar okkar eru merkt-
ir.”
Em ekki erfiöleikar vegna verðbólg-
unnar þegar alltaf er notuð sama
myntin?
„Jú, hún þýöir i rauninni aö ráð-
stöfunartekjur okkar minnka um 60%
á ári. Við höfum verið að velta fyrir
okkur breytingu. Þaö em komnir nýjar
tegundir af kössum á markaðinn. Eng-
ar ákvarðanir hafa samt verið teknar
enn.”
Ætla ekki að
fjölga kössunum
En eru einhverjar áætianir um
fjölgun?
„Nei. Við emm búin að vera með
þennan sama fjölda og viljum ekki
fjölga. Okkur firtnst þetta nóg og vilj-
um að fólk geti haft friö fyrir þessu.
Þetta er komiö í fastan farveg og við
viljum ekki að fólk verði fyrir skakka-
föllum. Það er líka yfirlýst stefna
Rauða kross Islands aö fara ekki út í
rekstur vídeókassa. Við gerum skarp-
an greinarmun á leiktækjum og happ-
drætti.”
Fáiö þið ekki kvartanir frá fólki, til
dæmis ef þaö fær ekki þá peninga sem
það telur sig eiga að f á?
„Nei, það er nánast ekkert um slíkt. í
slíkum tilfellum snýr viðkomandi sér
til húsráðanda sem leysir úr málinu.
Svo höfum viö þjónustu okkar sem er
opin nánast allan sóiarhringinn. Það er
maður á vakt meðan einhvers staðar
er opið þar sem kassi er.”
Hvað fá húsráðendur í sinn snúö
fyriraðhafakassa?
„Viö borgum þeim 15% af veltu
Jón Björnsson fisksali við kassana þrjá í Kaffivagninum. Jón er drjúgur við spOamennskuna. Hann kemur bæði á kvöldin og morgnana og ailtaf
í samráði við eiginkonuna.
SPILA MEÐ LEYFI
EIGINKOMIMAR
— segir Jén
Björnsson
fisksali
„Ég spila fyrir tikall i morgun-
kaffinu og annan tíkall á kvöldin,”
sagöi Jón Björnsson fisksali en
hann hittum við í Kaffivagninum.
Jón er einn af þessum fastagestum
og „manísku” spilurum sem varla
sleppa degi úr. Hann var auövitað
spurður aö því hvort þetta stæðist
hjá honum og svarið lét ekki á sér
standa: „Ég má ekki fara með
meira, konan leyfir það ekki. Þetta
er allt samkvæmt leyfum.” (Hann
sagði þetta eilítið kiminn).
— Hvemig heldurðu að þú farir
út úrþessupeningalega?
„Ef ég kem út með gróða á
kvöldin þá fer hann að morgni. Ætli
ég komi ekki nokkuð sléttur út.
Annars er þetta bara viss þáttur í
að koma á Grandann að fara í kass-
ann.”
— Ertu nokkuð búinn að læra á
hann?
„Nei. Ég reikna ekki með að það
sé hægt að læra á kassana. Þeir eru
ábyggilega stilltir þannig að þeir
gefi ekki meira en þeir eiga að
gera.”
hvers kassa í húsaleigu. Það er sjálf-
sagt aö húsráöendur fái umbun fyrir
þjónustu sína. Auövitað fylgir þessu
svona ýmislegt stúss.”
Reksturinn þarf að
vera í lagi
Verða kassamir ekki oft fyrir
hnjaski og skemmdum?
„Það er mjög lítið um að kassarnir
séu skemmdir. Þá helst ef brotist er
inn. Þeir verða þá fyrir baröinu á inn-
brotsþjófunum eins og annaö.”
Er hægt að læra á kassana?
„Nei, það er ekki hægt. Þetta er ekk-
ert „gambling”.
Hvað finnst þér um viðhorf almenn-
ings til svona f járöflunar Rauða kross-
ins?
„Ég held að fólk hafi yfirleitt ekkert
á móti þessu. Það er eins með þennan
rekstur og annan, hann verður að vera
í lagi og það verður að hugsa vel um
þetta.”
En er ekki möguleiki á að svindla
meö því að búa til peninga ?
„Við höfum ekkert orðið vör viö að
búnir séu til sérstakir peningar og ég
held að ekki sé hægt aö nota erlenda
mynd.”
Spilarður s jálfur, Jón?
„Nei, það geri ég ekki.”
/ biðskýlinu við Lækjartorg. Ungir, miðaidra og eldri una sér við ávaxtakassana. Þessir yngstu þarna á
myndinni mega víst ekki ennþá spila en ekki sakar að fylgjast með hvernig mamma gerir. Það getur kom-
ið sór vel síðar.