Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1983, Blaðsíða 19
DV. LAUGARDAGUR15. JANUAR1983.
19
akamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál
hjá lögreglunni. „Ég gerði allt sem
mér hugkvæmdist en náðist aldrei.
Þess vegna hélt ég að ég kæmist í gegn-
um allt lífið á sama hátt. ”
Eftir aö Welch hætti skólanámi, 16
ára gamall, vann hann fyrir sér með
því að leggja gildrur fyrir refi og selja
af þeim skinnin. Árið 1958 fór hann aö
vinna við pípulagnir en jafnframt var
hann farinn að stunda innbrot að
næturþeli.
Innbrotin urðu
fjölskylduiðja
Eftir að hann gifti sig fjórum árum
síðar uröu innbrotin aö fjölskylduiðju.
Kona hans, Anne Marie, var vön að
aka honum að því húsi sem hann hafði
kjöriö sér aö vettvangi í hvert sinn og
bíða eftir honum á meðan hann athug-
aði aðstæöur eða athafnaði sig. I tvö ár
komst hann upp meö þetta óáreittur.
En 1964 var hann yfirheyrður vegna
gruns um innbrot. Þá pakkaði hann
saman eigum f jölskyldunnar og fluttist
til Berkley Springs þar sem hann opn-
aði fomgripaverslun og verslaði með
ránsfeng sinn.
„Hann haföi aldrei neinn í vinnu.
Hann var vanur að hafa verslunina
opna á venjulegum tíma, en ég sá
hann eitt sinn afferma bíl sinn viö
verslunina um miðja nótt,” sagði
James Batt lögreglustjóri síöar við
yfirheyrslur. Þetta vakti grunsemdir
lögreglunnar og við nánari athugun
kom í ljéfs að hann var eftirlýstur af
lögreglunni í fyrri heimabæ sínum.
Hann var dreginn fyrir rétt og dæmdur
til fimm ára fangelsisvistar. Hann sat
inni í þrjú ár og notaöi tímann til að
fræðast um fomgripi.
Svo viröist sem fangelsisdvölin hafi
aðeins hert Welch í þeim ásetningi aö
lifa af innbrotum. Eftir að hann var
látinn laus hóf hann vinnu hjá Kodak-
verksmiðjunum í New York-fylki, en
tók aftur upp fyrri iöju við innbrot
samhliöa því. Hann seldi verðmæta
málma í málmbræðslur og ók fullum
flutningavögnum af fomgripum til
Delaware þar sem hann seldi þá fom-
gripasölum. Þetta gekk þar tii einn
kaupandinn gerði lögreglunni viðvart
og Welch lenti aftur í fangelsi árið 1971.
Dómurinn hljóðaði í fyrstu upp á tíu
ára fangelsisvist, en hann var þyngdur
um önnur tíu ár þegar upp komst að
Welch var sekur um 50 önnur innbrot.
En Welch slapp þremur árum síðar
með því að klifra yfir sjö metra háan
fangelsisvegg ásamt samfanga sínum,
Paul David Maturano. Þeim tókst
síðan að sleppa út úr borginni með því
að aka í gegnum vegatálma lög-
reglunnar og komust til Richmond.
Þar stóöu þeir saman að innbrotum
um nokkurt skeið þar til misklíð kom
upp og leiöir þeinra skildu.
Ein af þeim töskum sem fundust i
kjallaranum, fuiiarafmynt.
Þar var líka að finna pelsa sem sett-
ir höföu verið i hreinsun og öll
merki tekin af.
IMágrannarnir voru
grunlausir
Welch skildi við konu sína, Anne
Marie, eftir að hann var dæmdur í
fangelsi í annaö sinn. Hann bjó síöan
með stúlku, barnaskólakennara í Rich-
mond, í eitt og hálft ár án þess að iðja
hans vekti nokkurn grun hjá henni.
Hann fluttist síðan áriö 1976 til
Washington. Þar kynntist hann Lindu
Susan Hamilton sem var ritari
hjá opinberri stofnun. Hann sagöi henni
að hann gæti ekki gifst henni vegna
þess aö fyrri kona hans vildi ekki gefa
honum eftir skilnað. Hann fór samt
fram á að fá að taka upp eftirnafnið
Hamilton til aö reyna aö komast hjá
meðlagsgreiðslum.
Um voriö tóku þau á leigu þriggja
herbergja hús í Falls Church. Þau bár-
ust mikið á og í eitt skipti greiddu þau
unglingi full mánaðarlaun fyrir að
gefa köttunum á meðan þau skruppu í
tveggja vikna leyfi til Karabíska hafs-
ins. „Viö hlógum oft að því hvernig þau
dreifðu peningunum í allar áttir,” sagði
einn nágranni þeirra, Liz Tomlinson.
Maðurinn hennar William starfaði hjá
dómsmálaráðuneytinu og hann lét at-
huga hvort nágranni hans væri grun-
aður um eiturlyfjasölu. Svo reyndist
ekki vera.
I janúar 1978 keyptu þau skötuhjúin
fyrsta hús sitt og var það í heimabæ
Lindu í Duluth í Minnesota. Þar dvöldu
þau að sumri til í þrjú ár og komu þar
upp rándýru þjófavarnakerfi. Það fór
hins vegar lengst af fram hjá nágrönn-
um þeirra að Welch, eða Hamilton,
eins og hann nefndi sig þegar hér var
komið, var í fullu starfi í þessum fríum
sínum viö að koma ránsfengnum í
verö.
Ránsfengurinn var
13 þúsund munir
Linda tók í fyrsfu að sér að koma
öskjum með gamalli mynt til Stan
Sunde myntkaupmanns og sækja til
hans ávísun nokkrum dögum síöar. En
eftir aö þessi viðskipti höföu gengið
áfallalaust um nokkum tíma fór Welch
að sjá um þau sjálfur. „Hann var vel
klæddur, kom vel fyrir og vissi greini-
lega hvað hann var að gera,” sagði
Sunde síöar við yfirheyrslur. „Eitt
sinn spurði ég hann hvar hann kæmist
yfir þetta allt og þá sagöist hann kaupa
það af ýmsu fólki. Eg sagöist þá gjarn-
an vilja komast í aðra eins námu en
hann svaraði aö til þess yrði ég að
þekkja réttu mennina.”
Síðar keyptu þau sér rándýrt ein-
býlishús í Great Falls og hófu þegar að
gera á því endurbætur. Þau létu
byggja sundlaug við húsiö, setja upp
öryggismyndavélar og flóðljós og jafn-
vel rafmótor till að fyrirbyggja að raf-
magnið færi af húsinu í neyðartil-
um. En nágrannamir tóku eftir því aö
það var ekki mikið um húsgögn í hús-
inu og það litla sem var bar ekki vitni
umgóðansmekk.
En staðreyndin var að öll verðmæti
vom geymd í kjallara hússins, ásamt
tveimur bræösluofnum til að bræöa
gull og silfur. Þegar Welch var hand-
tekinn eftir morðið á dr. Halberstam
geröi lögreglan húsleit. Þá fann hún
þýfi geymt í 51 kassa í kjailaranum.
Lögreglan var heila viku aö skrá um 13
þúsundhluti sem þarfundust. Umf jög-
ur þúsund fórnarlömb innbrotsþjófa
gáfu sig fram við lögregluna í leit aö
eigum sínum.
Aö kröfu lögfræðings síns mun Welch
nú gangast undir rannsókn á geðheil-
brigði. En hver sem útkoman verður
mun goðsagan um þennan innbrotsþjóf
seint gleymast. „Eg sé fram á margra
mánaða pappírsvinnu,” sagði King
rannsóknarlögreglumaöur. „En jafn-
vel þótt hann yröi settur í nauðungar-
vinnu næstu hálfa öldina er ekki nokk-
ur von til þess að hann geti greitt fyrir
það sem hann hefur gert.”
MagniO afgull- og silfurmunum sem ekki haföi náöst aö bræða var grfuriegt.
Skipti á hlutabréfum
A síðasta aðalfundi Undirbúningsfélags saltverksmiðju á
Reykjanesi hf. var ákveðið að félagið sameinaðist Sjóefna-
vinnslunni hf. Viö sameininguna fá hluthafar í undirbúnings-
félaginu hlutabréf í Sjóefnavinnslunni hf„ sem nemur
þreföldu nafnverði hlutabréfa þeirra í undirbúningsfélaginu.
Hlutabréf í Undirbúningsfélagi saltverksmiðju á Reykja-
nesi h/f eru hér með innkölluð og fá eigendur þeirra hlutabréf í
Sjóefnavinnslunni hf. í þeirra stað aö viðbættri framan-
greindri jöfnun. Skiptin fara fram á skrifstofu Sjóefnavinnsl-
unnar hf., Vatnsnesvegi 14 Keflavík, sími 92-3885 frá og með 5.
janúar ’83.
Stjórn Sjóefnavinnslunnar hf.
Þú hringir - við birtum
þaðber árangur
Smáauglýsingadeildin er
í ÞverhoHi 11
ogsíminnþarer
27022
Opiö tlla virht daga frá kl. 9—22
Lægnnhga tri kl. 9—14
Sunnudagafrákl.18-22
HUSBYGGJENDUR
Að halda að ykkur hita
er sérgrein okkar:
Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið
frá mánudegi til föstudags. Afhendum vöruna á bygging-
arstað viðskiptamönnum að kostnaðarlausu.
Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi.
I
Aðrar söluvörur:
Glerull — Steinull — Múrhúðunarnet — Útloftunar-
pappi — Þakpappi — Plastfolía — Álpappír — Spóna-
plötur: venjulegar/rakaþolnar — Pjpueinangrun: frauð-
plast/glerull.
BORGARPLAST HF lf
Kyöjdsími og helgarslmi 93—7355.
Sérstæð sakamál
Sérstæð sakamál
vmiv
er ekki sérrit
heldur fjölbreytt
og víðlesið heimilisblað
býður ódýrasta auglýsingaverð allra íslenskra tímarita. —
Nú býður VIKAN nýja þjónustu fyrir auglýsendur: samn-
inga um birtingu heil- eða hálfsíðu í lit eða svarthvítu, — í
hverri VIKU eða annarri hverri VIKU. Hér eru rökin fyrir
birtingu auglýsinga í VIKUNNI.
i mm nœr til allra stétta og allra aldursstiga. Auglýsing í
I \i Vikunni nær því til fjöldans en ekki aðeins
íZöl takmarkaðra starfs- eða áhugahópa.
I M hefur komið út í hverri viku í meira en 40 ár og
fcjJj jafnan tekið breytingum í takt við tímann, bæði
hvað snertir efni og útlit. Þess vegna er VIKAN
svona fjölbreytt og þess vegna er lesendahópurinn
svona stór og fjölbreyttur.
i «1 selst jafnt og þétt, bœði í þéttbýli og dreifbýli. Þess
vegna geta auglýsendur treyst því, að auglýsing í
um VIKUNNI skilar sér.
LS
HHV
L5
HKW
er ekki sérrit. Enginn efnisflokkur er henni óvið-
komandi. Þess vegna er VIKAN svo vinsæl og
víðlesin sem raun ber vitni.
veitir auglýsendum góða þjónustu á skynsamlegu
verði og hver auglýsing nœr til allra lesenda
VIKUNNAR.
[ W hefur sína eigin verðskrá yfir auglýsingar.
Upplýsingar um auglýsingaverð VIKUNNAR eiga
við hana eina og þær fást hjá
A UGLÝSINGADEILD VIKUNNAR í síma
85320 (beinn sími) eða 27022