Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1983, Side 13
___ DV. LAUGARDAGUR15. JANUAR1983.
^ttBBBBBBBBBBÍi
.11» GAIXIHllS
Candice Bergen og Ben Kingsiey i hlutverkum sinum. Hún
leikur blaðakonu frá Live og er þarna i viðtali.
Gandhi kominn tH ára sinna. Hann var myrtur árið 1947 af
ofstækisfullum hindúa.
Gandhi vaktí fyrst athygli í Suður-Afriku, þegar hann
barðist fyrir borgaraiegum réttíndum minnihlutahópa.
málamanns, sem leiddi Indland til
sjálfstæðis undan yfirráðum Breta.
Söguþráður myndarinnar er í réttri
tímaröð. Við kynnumst Gandhi fyrst
um 1890 sem þá er óþekktur hæstarétt-
arlögmaður og' starfandi í Suður-
Afríku. Og myndinni lýkur árið 1948
þegar Gandhi er orðinn heimsfrægur,
þekktur undir nafninu Mahatma, eða
Sálin stóra.
En saga Gandhis er lika saga Ind-
lands í hálfa öld — í senn hins róstu-
sama og óhreina, dýrlega og lokkandi
Indlands.
Þessi saga er hluti heimssögunnar,
meira að segja verulegur hluti hennar.
Aldrei hefur kvikmyndaframleiðandi
af indversku bergi brotinn reynt að
segja þessa sögu. Og margir Indverjar
voru þeirrar skoðunar að enginn út-
lendingur ætti að fá stuðning og hvatn-
ingu indverskrar ríkisstjómar til að
gera slíkt, eins og raunin varð meö
Attenborough. „Enginn maður getur
nokkru sinni skrifað eða lýst sögu
Gandhis, eins og hún raunverulega
var,” sagði Nehru, forsætisráðherra
Indlands, einhverju sinni. „Nema sá
hinn sami sé jafn mikill maöur og
Gandhi.”
„Vinn eins
og leikari"
.Auðvitað er fífldirfska að ráðast í
verkefni sem þetta,” er haft eftir
Attenborough fyrir skömmu, „því það
gefur augaleiö að það er ekki hægt að
segja 60—70 ára sögu á þremur klukku-
tímum. En það var þess virði að reyna.
Eg reyni að segja sögu persónunnar
Gandhis. Auðvitað spila stjórnmál þar
stóra rullu, Gandhi var jú einhver
mesti stjómmálaskörungur þessarar
aldar, en myndin er laus við alla sál-
fræði. Og það er ekki reynt að útskýra
af hverju hann gerði þetta eða hitt,
heldur hvernig hann fór að því.
Ég vinn eins og leikari. Ég reyni að
fanga áhorfandann og spila á tilfinn-
ingar hans til að vekja áhuga hans á
myndinni. I raun er myndin afskap-
lega gamaldags, hvað tökur snertir.
Hún er fyrst og fremst frásagnar-
mynd. Mig langar ekkert til að komast
á spjöld sögunnar sem einhver skap-
andi kvikmyndagerðarmaður heldur.
fyrst og fremst sem sögumaður.
Auövitað er erfitt að gera mynd á
borð við þessa. Og það sem er erfiðast
er að gæta óhlutdrægni. Ég gerði mér
grein fyrir því aö ég þurfti að sleppa
ýmsu, atburðum og persónum sem við
sögu Indlands komu á þessum ámm.
Ég Veit að ég á eftir að verða gagn-
rýndur fyrir það af Indverjum. Hins
vegar verður maður aö hafa hugfast
við gerð myndar á borö við þessa að
aðalatriðiö er að aðalpersónan verði
trúverðug og sannfærandi, hún verður
að grípa áhorfandann. Og þetta þarf
oft að gera á kostnað, ja, í minu tilfelli,
annarra persóna. Myndin er fyrst og
síðastumGandhi.”
Tuttugu ár síðan
Attenborough ákvað
að gera mynd
um Gandhi
Gandhi hefur haldið Attenborough í
greipum sér, ef svo má aö orði komast,
síðustu tuttugu árin, og kannski bestu
ár Attenborough. Það var að vetrar-
lagi árið 1962 að hann settist niður að
heimili sínu í St. Moritz til aö lesa Ævi-
sögu Gandhis eftir Louis Fischer.
Raunar hafði bókinni verið þröngvað
inn á hann af Indverja nokkrum, Motil-
al Kothari, en sá hafði sett sér það
markmið í lífinu aö fá einhvern til að
gera kvikmynd um Gandhi.
Attenborough hreifst af sögu
Gandhis og ákvað að gera kvikmynd
um hann. En mörg ljón voru á vegin-
um. Þegar hann impraði á þessu við
menn innan kvikmyndaiðnaðarins
sögðu þeir: Blessaöur góði, hver held-
urðu að hafi áhuga á þessari laka-
klæddu persónu! Og ekki tóku indversk
stjórnvöld betur í þessar hugmyndir
Attenboroughs. Þeim fannst frekja af
þessum Vesturlandabúa að ætla að
fara að gera kvikmynd um þjóðsagna-
persónu þeirra. I þeirra augum var
Gandhi dýrlingur og þeir vildu ekki að
þeirri ímynd y rði hnikað.
En fljótlega kom annað hljóð í
strokkinn. 1963 hittust þeir í fyrsta sinn
Attenborough og Nehru, forsætisráð-
herra. Það var í fyrsta sinn sem Atten-
borough kom til Indlands, en heim-
sóknimar áttu eftir að verða fleiri
þessi tuttugu ár sem kvikmyndin var í
smíðum.
,,Ég held ég hafi aö öllu samanlögðu
dvalið um tveggja ára skeið í Ind-
landi,” segir Attenborough, „en ég hef
farið þangað svona þrjátíu sinnum á
þessum tíma. Það tókst góöur vin-
skapur með okkur Nehru. Og svo fór að
hann hvatti mig til aö takast á við
verkefnið. Það var líka hann sem sagði
mér að ég skyldi einbeita mér að per-
sónuleikanum Gandhi. Nehru varð
mér mjög hjálplegur, enda var hann
einhver nánasti vinur Gandhis.”
En það var ekki fyrr en árið 1980 að
tökur hófust. Og svo miklum tökum
náöi Gandhi á Attenborough aö hann
skrifaði einnig bók, Leitin að Gandhi
heitir hún, og kemur út í næsta mánuði
íBandaríkjunum.
Strax og Attenborough var ákveðinn
í að gera mynd um Gandhi reyndi hann
að komast yfir allt sem til er um
Gandhi og eftir hann.
„Eg las hundruð og aftur hundruð
bóka,” segir hann. „En einhvem veg-
inn var það nú svo að ’63 eða ’64 var ég
búinn að setja niður fyrir mér sögu-
þráð í handrit og hann breyttist sára-
lítið frá þeim tíma og þar til ég hófst
handa.”
„Það var þess virði
að bíða eftir
Ben Kingsley"
— En hvers vegna tók undirbúning-
ur myndarinnar svona langan tíma ?
„Einfaldlega vegna þess að ég vildi
alls ekki slaka á þeim kröfum sem ég
gerði um gerð myndarinnar. Ég hefði
getað byrjað miklu fyrr ef ég hefði
notað tæknibrellur eða fallist á að fá
Ameríkana til að leika hlutverk Gand-
his. Og ég segi það núna að bara það
eitt að bíða tvo áratugi eftir Ben Kings-
ley var biðarinnar virði. ”
Kingsley þessi leikur Gandhi. Hann
er af ensk-indverskum ættum. Atten-
borough kynntist honum fyrst árið
1970, en það var ekki fyrr en hann sá
hann í Hamlet aö hann sannfærðist um
Shakespeare eða Gandlii?
— Ben Kingsley, leikari a€ guðs náð
Margir héldu Attenborough kolvit-
lausan að ætla algerlega óþekktum
leikara að takast á við hlutverk
Gandhis. Einn þeirra var náinn sam-
starfsmaður Attenboroughs, John
Briley:
„Mér fannst alveg skilyrðislaust
þurfa þekktan leikara til að takast á
við hlutverkið, þótt ekki væri fyrir
annaö en auglýsingagildi kvikmynd-
arinnar. En þegar ég fór að sjá til
Kingsley komst ég á aðra skoðun.
Hann er leikari af guðs náð. Hann
hefur náö svo góðum árangri að
maður gæti haldið að þarna væri
sjálfur Gandhi ljóslifandi kominn.”
Og þeir eru fleiri sem svo álíta,
einkum Indverjar. Það var ein-
hverju sinni á fyrstu dögunum, þeg-
ar veriö var að taka k vikmyndina, aö
Kingsley kom í kvikmyndaverið í
gervi Gandhis. Þá allt í einu henti sér
fyrir fætur hans innfæddur Indverji,
Kingsley með ungum syni sinum.
Hann þykir hafa unnið stórkost-
legan leiksigur i Gandhi.
nokkuð við aldur. „Nei, nei,” sagði
Kinsley, „ég er ekki Gandhi, ég er
bara leikari.” „Veit ég vel,” svaraði
sá gamli. „En með þér mun hann hfa
áfram. Þú munt gera hann ódauöleg-
an.”
Faðir Kingsleys er Indverji og fjöl-
skylda hans á ættir að rekja til Guj-
arat ríkis í Indlandi, sama ríkis og
Gandhi fæddist og ólst upp í.
MóðirKinsley er hins vegar af
breskubergibrotin.
Síðastliðin fimmtán ár hefur
Kingsley verið fastráðinn leikari við
konunglega breska Shakespeare
leikhúsið. Hann hefur þótt standa sig
vel á fjölum þess, en þar uppgtövaði
Attenborough hann einmitt. Enn er
Kingsley fastráðinn þar, en hversu
lengi það verður er óvist, því eftir
leiksigurinn í Gandhi rignir kvik-
myndatilboðumyfirhann.. .
-KÞ þýddi
að þetta væri maðurinn sem hann leit-
aði að. Þá höfðu Anthony Hopkins og
John Hurt báðir sóst eftir hlutverkinu,
en Attenborough var ekki nógu
ánægöur með þá. Hann vildi mann sem
Indverjar gætu sætt sig við í hlutverki
Gandhis.
„Þegar Kingsley er kominn í
sandala og hefðbundinn indverskan
fatnað er hann ótrúlega líkur Gandhi.
Á velli s vipar þeim saman. Hæðin er sú
sama, beinabyggingin lík og andlits-
falliö. Kingsley lagði mikið á sig.
Gandhi var grænmetisæta alla tíö og
sex vikum áður en tökur hófust borðaði
Kingsley ekkert nema grænmeti og
léttist við það um 9 kíló. Gandhi
fastaði oft og þegar slíkar föstur voru
teknar upp setti Kingsley ekkert inn
fyrir sínar varir, því hann sagðist ekki
geta leikið fastandi mann með matar-
bragð í munninum!
Gamall mjaðmaáverki Kingsleys.
hindraði hann í að geta setið lengi í
hinni frægu Gandhi-stellingu. Og til að
vinna bug á því æfði hann yoga þrjá
tíma á dag mörgum vikum áöur en
tökurhófust.
Margar þekktar stjörnur
með hlutverk
Fleiri leikarar lögöu á sig mikla
vinnu til að ná sem bestum tökum á
hlutverkum sínum. Til dæmis leikur
Candice Bergen hina frægu blaöakonu
og ljósmyndara Life, Margaret
Bourke-White. Og Bergen dvaldi lang-
tímum saman á ritstjórninni til aö
kynnasérstarfið.
Af öðrum frægum leikurum í Gandhi
má nefna Trevor Howard, John Giel-
gud, Ian Bannen, John Mills, Bernard
Hepton, Edward Fox, og Ian Charle-
son. Auk þess koma til sögunnar marg-
ir aðrir amerískir og breskir leikarar
svo og f jöldi Indverja. Til dæmis koma
fram um þrjú hundruð þúsund manns
þegar jaröarför Gandhis er sett á sviö.
Önnur kvikmynd
á leiðinni?
— En hvaö er nú á döfinni hjá Atten-
borough?
„Eg er bara venjuleg vitsmunavera
og ég er leikari. Eg læt tilfinningar
mínar ráða hverju sinni. Núna er ég aö
lesa um ameríska uppreisnarmanninn
og föðurlandsvininn Tom Paine. Mér
liggur ekkert á. Það tekur mig svona
eitt, tvö ár að athuga hvort þama er
efni í kvikmynd. Á þessari stundu er ég
aövinnaaöþví.”
-KÞ tók saman ór The New York
Times, Newsweek, Films og Movies &
Video.