Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1983, Page 18
18
DV. LAUGARDAGUR15. JANUAR1983.
Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál — Sérstæð
Gagnvart nágrönnum sínum í auö-
mannahverfinu Great Falls, úthverfi
Washingtonborgar, var Norm Hamil-
ton mesti fyrirmyndarborgari. Garö-
flötin hans var vel slegin, nýi Merced-
es-Benzinn var samviskusamlega
þveginn og í háttemi var Hamilton
sjálfur óaöfinnanlegur.
Fyrir kom aö Hamilton stóö í fram-
kvæmdum eða fjárfestingum sem
vöktu athygli nágranna hans og þá gaf
hann jafnan þá skýringu aö hann heföi
hagnast um smáupphæö á hlutabréf-
um eöa á veröbréfamarkaönum. Á
sumrin var hann vanur aö fara meö
konu sinni, Lindu.og þremur börnum
þeirra í sumarhúsiö í Duluth í Minne-
sota-fylkL Hann var sagöur óaöfinnan-
auðmannahverfinu, en þaö sama var
varla sagt um lífsstarf hans. Það varö
nágrönnum hans þó ekki ljóst fyrr en
eftir aö lögreglan komst aö því aö
Norm Hamilton hét réttu nafni Bern-
ard C. Welch yngri. Welch þessi var
fertugur aö aldri og frægur fyrir sér-
þekkingu á handverki sínu, sem var
innbrotsþjófnaður.
Welch haföi. stoliö forngripum,
gamalli mynt, skartgripum, eöalstein-
um, pelsum og silfri aö verömæti um
sjömilljónir dollara á síöustu fimm ár-
um. Lögreglan var nánast búin aö gef-
ast upp viö aö reyna aö hafa hendur í
hári þessa manns og þaö var mest fyr-
ir tilviljun aö hann náöist.
Notaði
ráns-
fengiim
Þessimynd var tekin af Welch eftir handtöku hans. Sjálfsagt hefur hann einhvern tíma verið glaðlegri ð svipinn.
til fjárfestinga
legur fjölskyldufaðir. Einn nágranna
hans lýsti honum meö þessum oröum:
„Hann geislaöi af persónutöfrum og af
framkomu hans mátti ráöa aö hann
féll afar vel inn i þaö umhverfi sem
hann bjó viö.”
Framkoma hans átti sem sagt viö í
Innbrotsþjófur ekinn niður
Þaö var aö kvöldi hins 5. desember
í fyrra aö Michael Halberstam
prófessor, bróöir rithöfundarins David
Halberstam, kom aö innbrotsþjóf að
störfum í íbúö sinni í Washington er
hann var aö koma heim úr hanastéls-
veislu. Halberstam réöst aö innbrots-
þjófnum en var þá skotinn tveimur
skammbyssuskotum í brjóstiö. Hann
komst þó viö illan leik aftur út úr hús-
inu og út í bíl sinn.
Innbrotsþjófurinn flúöi út úr húsinu á
eftir honum og tók til fótanna. Halber-
stam ætlaði aö aka beinustu leiö á
sjúkrahúsiö en þegar hann ók út á göt-
una sá hann innbrotsþjófinn á hlaup-
um eftir gangstéttinni. Halberstam ók
á eftir honum og keyrði hann niöur.
Um klukkustund síöar lést Halberstam
á skurðarborði s júkrahússins.
Innbrotsþjófurinn og morðinginn var
hins vegar ekki alvarlega slasaöur.
Lögreglumenn fundu hann skömmu
síðar í hnipri bak viö runna við veg-
kantinn. Hver var maöurinn? „Þiö
veröiö undrandi þegar þiö komist aö
því,” svaraði hann lögreglumönnun-
um.
En lögregluyfirvöld uröu meira en
undrandi. Frá árinu 1975 haföi sveit 30
rannsóknarlögreglumanna frá tíu lög-
sagnarumdæmum leitaö aö þessum
manni sem gekk undir nafninu „vetr-
arþjófurinn”, vegna þess aö hann
framdi aðeins innbrot sín á tímabilinu
frá nóvember til apríl, þegar skamm-
degiö er svartast. Hann var grunaöur
um ekki færri en 3300 innbrot og auk
þess að hafa nauðgað þremur konum
og ógnaö fjölda manns með skotvopn-
um er komið var aö honum viö iðju
hans.
Svo vonsvikin voru lögregluyfirvöld
á því hve illa gekk aö hafa hendur í
hári Welch aö einn þeirra rannsóknar-
lögreglumanna sem hvaö lengst haföi
starfað að málinu, James King frá
Maryland, var látinn gerast sér-
fræöingur í forngripum. Hann heim-
sótti antik-verslanir, sótti sýningar og
pældi í gegnum heilu bókasöfnin um
þetta efni. „Viö vorum komnir á þá
skoðun aö viö myndum aldrei góma
Welch meö áður þekktum rannsóknar-
aðferöum,” sagöi hann.
Var lygilegri
en nokkur
skáldsagnapersóna
En enginn varð þó eins undrandi á
handtöku Welch og eiginkona hans,
Linda Hamilton, sem hann haföi verið
giftur undanfarin fjögur ár. „Þetta
verkaði á hana eins og dauöi fjöl-
skyldumeölims,” sagöi King rann-
sóknarlögreglumaöur. „Hún haföi aö-
eins þekkt hann sem Norm Hamilton,
vingjarnlegan náunga og góðan
heimilisföður.” Linda sagöi lögregl-
unni að hún heföi talið aö eiginmaöur-
inn verslaði meö gamla mynt og forn-
gripi — og lögreglan trúir sögu hennar.
„Þessi maöur var lygilegri en nokkur
skáldsagnapersóna,” sagöi King.
„Hann braust inn í þrjú til fjögur hús á
hverri nóttu á þeim tíma sem hann var
aö störfum. En sérstaða hans fólst ekki
í því hve mikið hann haföi upp úr krafs-
inu, heldur vegna þess hvernig hann
ráöstafaöi ránsfengnum. Hann var
ekki þessi venjulegi eiturlyf janeytandi
sem lögreglan þarf aö fást viö í sam-
bandi viö flest innbrot sem framin eru.
Hann notaöi peningana til þess aö fjár-
festa. Þessi náungi haföi mikiö ímynd-
unarafl.”
Jafnvel sem barn haföi Welch mik-
inn metnaö á því sviöi sem hann síðar
lagöi fyrir sig. Hann ólst upp í Spencer-
port viö kanadísku landamærin ásamt
25 köttum í heldur hrörlegu húsi. Faöir
hans, sem vann í Kodak-verksmiöjun-
um, er sagður hafa eytt meirihlutá
tekna sinna í fjárhættuspilum og
drykkjuskap. Móöir hans eyddi hins
vegar tíma sínum í aö skrifast á viö
ótrúlegan f jölda af pennavinum.
,^Eg komst upp meö morö strax i
æsku,” sagöi Welch síöar í yfirheyrslu
Úrin sem fundust íkjallaranum hjá Welch skiptu hundruðum. . .
. . .oghringarnirogskartgripirnirskiptuþúsundum.
Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál
í