Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Blaðsíða 9
DV. FIMMTUDAGUR27. JANUAR1983. 9 Útlönd Útlönd Útlönd . Útlönd Alain Delon: Einn ai líívörðum hans var myrtur 1968 og er talið að það hafi verið verk Marcantonis. Glæpamaður í framboði Eitt af því sem kemur mest á óvart í væntanlegum bæjar- og sveitar- stjórnarkosningum i Frakklandi er framboð Francois Marcantoni til borgarstjóraembættis í heimaborg sinni Alzi á Korsíku. Marcantoni er eitt af þekktustu nöfnunum í undirheimum Korsíku. Hann segir að skoöanakann- anir sýni aö hann nái kosningu með miklummeirihluta. Marcantoni hefur verið bendlaður við f jöldann allan af glæpamálum. Eitt það þekktasta af þessum málum er morðiö á lífverði kvikmyndaleikarans Alain Delon. Stefan Markovic hét sá og var myrtur í október 1968. I janúar 1969 var Marcantoni handtekinn vegna morðsins en látinn laus aftur vegna ónógra sönnunargagna. Marcantoni hefur ekki reynt að leyna tengslum sínum við glæpahópa og sagði nýlega í útvarpsviðtali: — Þótt ég tilheyri undirheimum, eins og menn kjósa að nefna það, sé ég ekki neinn hæng á því aö ég verði borgarstjóri i fæðingarbæ mínum. Sovéskur ráðherra rekinn Samkvæmt upplýsingum í málgagni sovétstjórnarinnar Prövdu hefur aðstoðarráðherra þeim er ábyrgð bar á léttum iönaði og neysluvörum í Sovétríkjunum, Valentin Makeyev, verið vikið úr starfi. Blaðiö gat ekki ástæðunnar fyrir brottrekstri Makeyevs en almennt er vitaö að hann var í miklu uppáhaldi hjá hinum látna forseta, Leonid Bresnjef , og komst til virðingar undir vemdarvæng hans. Stefnuræðu vel tekið Starfsmenn Hvíta hússins spá því aö áætlanir Reagans forseta í sambandi við umbætur í efnahagsmálum lands- ins mæti lítilli mótspyrnu á þinginu en hins vegar eigi hann eftir að mæta þar töluverðum erfiðleikum með áætluð hernaðarútgjöld. Starfsmenn forsetans lýstu yfir ánægju sinni meö skoöanakönnun sem ABC sjónvarpsstöðin stóö fyrir á meðal 415 sjónvarpsáhorfenda eftir að Reagan lauk stefnuræðu sinni sl. þriðjudag. Sýndi hún aö 58% þeirra töldu að hann væri nú á réttri leið miöað við 43% sem voru honum fylgjandi áður en ræöan var haldin. Ólafur E. Friðriksson Jóhanna Þráinsdóttir Utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands segir: Þjóöverjar taka ekki einir við flugskeytum Hans-Dietrich Gencher, utanrikis- ráðherra Vestur-Þýskalands, sagði við fréttamenn í Washington í gær aö Vestur-Þjóðverjar myndu ekki taka við nýjum bandarískum meðaldræg- um kjarnorkuflugskeytum nema að minnsta kosti eitt annað ríki Vestur- Evrópu myndi gera þaö einnig. Gencher, sem hélt heim úr opin- berri heimsókn sinni til Bandaríkj- anna í gær, lýsti yfir stuðningi við stefnu Reagans í samningaviðræðun- um um takmörkun meðaldrægra kjamorkuvopna sem nú fara fram í Genf. Hann bar til baka þær fréttir að stjórn hans hefði samþykkt að taka við nýjum kjarnorkuflugskeyt- um, jafnvel þótt öll önnur ríki Atlantshafsbandalagsins myndu hafna þeim. „Ríkisstjórn Vestur- Þýskalands hefur aldrei lýst því yfir að hún muni verða ein til að taka við nýjum flugskeytum, en ég efast ekki um aö Italía mun halda loforö sitt um að taka við vopnunum,” sagði Gencher. Gencher sagöi að hann væri fylli- lega sammála stefnu Reagans um núll-lausn sem æskilegasta kostinn, en lét jafnframt í ljós ánægju með þá yfirlýsingu forsetans sem fram kom í stefnuræöu hans síöastliðinn þriöju- dag, að hann væri reiðubúinn tii að skoöa öll raunhæf tilboð sem kæmu frá Moskvu. Hans-Dietrich Gencher, utanríkisráöherra Vestur-Þýskalands. Heilbrigðis- kerfíð er of dýrtíKína Kínverjar vinna nú að endurbót- um á heilbrigðiskerfi sínu, þar sem ríkið stendur ekki lengur undir kostnaðinum. Á að ráða bót á þessu meðþvíað opna fleiri einkamóttökur eða mottökur sem einkalæknar slá sérsamanum. — I fimm ára áætluninni, 1981— 1985, hefur stjórnin aukið framlag sitt til heilbrigðismála um 68%. Hærra er ekki hægt aö spenna bogann, segir aðstoðarheilbrigðis- ráðherrann, Wang Wei. Vmsar stofnanir og fyrirtæki verða nú sjálf aö sjá um heilsugæslu sína. Stjómin hyggst styðja við bakið á einkalæknum og jafnvelljósmæöur og hjúkrunarfræðingar fá að opna eigin móttökur. Er talið að almenn- ingur muni fagna þessum breyt- ingum, þar sem fólkið þarf aö bíða langtímum saman eftir að fá tíma á Páfínn ætti ekki að hitta forseta Haiti Jóhannes Páll páfi er væntanlegur til Haiti í mars og hafa andstæðingar einræðisherrans Jean-Claude Duvaliers hvatt páfa til að neita öllum fundum viö forsetann. Hópur andófsmanna sem hefst viö á Miami segir að stjórn Haitis beri ábyrgð á sprengju sem drap 3 menn í nágrenni viö höll Duvaliers á nýárs- dag. Segir í bréfi sem hópurinn sendi til rómversk-kaþólskra kirkjuyfir- valda á Haiti að páfinn ætti ekki að „semja viö djöfulinn”. Hefur afriti af bréfi þessu verið dreift á meðal blaða- manna. t bréfinu býðst hópurinn jafnframt til að gæta öryggis páfa á meðan hann dvelst á Haiti, en Haiti er einn af 8 áfangastöðum páfa á ferð hans um Mið-Ameríku og Karabísku eyjarnar í mars. Talsmenn sendiráða Mexíkana og Venezúela hafa þó boriö þá frétt til baka að leiðtogi kristilegra demó- krata, Sylvio Claude, njóti ásamt dóttur sinni dimplómatískrar verndar. Kristilegir demókratar er fámennur flokkur í stjórnarandstöðu á Haiti. Jean-Claude Duvalier: Stjórnar Haiti með harðri hendi. HQMTA STRÍÐSGLÆPAMANN FRAMSELDAN AF BOUVÍU Klaus Altmann, fyrrum nasista- foringi, sem verið hefur á flótta undan stríðsglæpadómstólum í 38 ár, var handtekinn á götu í höfuðborg Bolivíu núna í vikunni. Bolivísk yfir- völd munu að líkindum þurfa að taka afstöðu til þess hvort hann skuli framseldur Frökkum eða V— Þjóðverjum, þar sem réttvísin á ýmislegt vantalað við hann. Altmann, sem öðru nafni hefur veriö kallaður Klaus Barbie, var uppnefndur "Böðullinn í Dyon”, þar sem hann var yfirmaður gestapó á hernámsárunum. Hann situr nú í fangelsi meðal ótíndra afbrota- manna á meöan Bólivíustjórn af- greiöir mál hans. Hann flúði til Suður-Ameríku eftir stríð en var dæmdur fjarverandi af frönskum dómstóli fyrir sinn þátt í morðum hundruöu gyðinga og franskra andspyrnuhreyfingar- manna. Frakkland hefur nokkrum sinnum reynt að fá hann framseldan en Bólivía hefur skotið sér á bak við að engir sbkir framsalsamningar' séu milli Bóliviu og Frakklands. Handtaka hans að þessu sinni stendur í sambandi viö einhverja skuldaóreiöu við ríkissjóö Bólivíu. Hið opinbera mun hafa lánað 10 þúsund dollara til flutnings á málm- um til Evrópu 1973, en þá var Klaus Altmann framkvæmdastjóri skipa- félags sem kallaöist Transmaritima Boliviana. Sagt er að flutningurinnn hafi aldrei átt sér stað og lánið hafi aldrei veriö endurgreitt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.