Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Page 10
10 DV. FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR1983. FORVAL ALÞÝÐUBANDALAGSINS í REYKJAVÍK Seinni umferð forvals Alþýðubandalagsins í Reykjavík hefst á föstudaginn 28. janúar og stendur til sunnudagsins 30. janúar. í framboði í seinni umferðinni eru þingmenn flokksins í Reykjavík ásamt tólf öðrum frambjóðendum, sem tilnefningu hlutu í fyrri umferð for- valsins. Kosningarétt bafa allir félagsmenn í Alþýðubandalagsfélaginu í Reykjavík, þeir sem skuldlausir eru við félagið fyrir áriö 1981. Af þeim sextán manna lista, sem hér er kynntur, skal velja sex menn í röð til að skipa sex efstu sæti á lista flokksins. Niðurstaða forvalsins er ekki bindandi fyrir kjörnefnd. ARNÓR PÉTURSSON: Megináhersla á jafnréttismálin TRYGGVI JAKOBSSON: Efla umræðu um umhverfis- verndarmál „Sem sósíalisti legg ég meg-1 ináhersluna á jafnréttismál,” sagði Amór Pétursson. „Þaðergrundvallar- lífsskoðun mín að allir þegnamir eigi að hafa sömu tækifæri og möguleika til aö lifa sómasamlegu lífi. Auka þarf f jölbreytni atvinnulifsins og sérstaklega að leggja áherslu á upp- byggingu iönaöar, því hann einn er fær um að taka við auknu vinnuafli í kom- andi framtíð. Fækka þarf fiskiskipum um 15 til 20% og koma á skipulegri yfirstjórn á löndun aflans. Þó fiski- skipum fækki nokkuö hefur sá floti sem eftir er það mikia afkastagetu að hann getur skilaö sama aflamagni. Með fækkun fiskiskipa hættir hallarekstur útgerðarinnar og skipuleg löndun kemur í veg fyrir atvinnuleysi af þess völdum. Efla þarf til muna Húsnæðismála- stofnun og „verkamannabú- staðakerfið”. Það er alisendis ófært að fólk þurfi nánast að drepa sig á 5 til 10 bestu árum ævinnar, við það að koma þaki yfir höfuðið á sér. Lán þyrftu að vera a.m.k. 80% og til 40 til 60ára. Auka þarf lýðræði í landinu með þjóðaratkvæðagreiðslum og jafnari at- kvæðisrétti. Herða þarf skattaeftirlit og koma á fyrirframgreiðslu skatta hiðfyrsta. Viðvíkjandi Alþýðubandalaginu og auknu lýðræði í því, eru það einu raunhæfu möguleikamir sem félags- hyggjufólk á til að foröa Islendingum frá atvinnuleysi og myrkviöi því sem nú plagar hinn vestræna heim. Það er líka eini möguleiki Alþýöubanda- lagsins til aö halda stöðu sinni sem sósíalískur félagshyggjuflokkur.” Arnór Pétursson fæddist 14. nóvember 1949, hann tók gagnfræðapróf og síðan stýrimanns- próf frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Hann slasaðist og hefur síðan verið bundinn við hjólastól. Hann hefur starfað hjá Tryggingastofnun frá 1974, sem fulltrúi hin síðari ár. Hann hefur verið formaður Iþróttafél- ags fatlaðra frá stofnun þess 1974. Hann hefur einnig starfað mikið innan Sjálfsbjargar. SVAVAR GESTSSON: Þjóðleg fram- farastefna gegn atvinnu- leysinu .Kapitalisminn hefur búið til kreppu og atvinnuleysi. Islendingar hafa til þessa að mestu komist hjá því að finna fyrir þessumvágestum,” sagðiSvavar Gestsson. „Þó er skerðing þjóöarframleiðslu og þjóðartekna að nokkru leyti af- leiðing hinnar alþjóölegu kreppu. Hins vegar höfum við nú kynnst því að auð- lindum okkar eru takmörk sett. Af þeim ástæðum þarf að skapa víötæka samstöðu um stefnu sem byggist á félagslegri nýtingu auðlindanna og á sókn til betra atvinnulífs og þar með traustari undirstööu sjálfstæðis þjóðarinnar. Alþýðubandalagið hefur sett fram tillögu um framkvæmd þessarar stefnu. Alþýðubandalagið er reiðubúið til að beita sér fyrir henni í samstarfi við verkalýðshreyfinguna og önnur stjórnmálaöfl. Þetta er mér efstíhuga.” Svavar Gestsson er fasddur 1944. Var ritstjóri Þjóðviljans 1971—1978. Kosinn á alþingi 1978. Viðskipta- ráðherra ’78-’79, félags-, heilbrigðis- ráðherra í núverandi ríkisstjóm. .dVlitt hjartans mál er umhverfis- verndarmálin,” sagði Tryggvi Jakobs- son., ,Ég kom inn í þetta forval á þeirri forsendu og held áfram á þeirri for- sendu. Ég tel að umhverfisverndarmál hafi ekki notið þeirrar athygli sem skyldi í stjómmálaumræöu hér á liön- um ámm. Eg er þeirrar skoðunar að efla eigi umræðu um umhverfis- vemdarmál og þátt umhverfismála í pólitískri ákvarðanatöku, auk þess sem ég tel að efla þurfi fræöslu um um- hverfisverndarmál og efla virðingu manna fyrir náttúralegu umhverfi sem manngerðu. Það er skoðun min að umhverfis- verndarmenn hafi með afstöðu sinni og vistfræðilegum skilningi öðlast visst sjónarhom á vandamálum þjóð- félagsins. Stjómmálaflokkarnir hafa gengið út frá tæknilegum og hag- rænum forsendum við stefnumótun sína en ég legg áherslu á að meira tillit verði tekið til umhverfismálanna.” Tryggvi Jakobsson er fæddur 19. apríl 1950. Hann lauk BS prófi í landa- fræði frá Háskóla Islands 1975 og starfaði sem kennari viö Flensborg í Hafnarfirði og Hrafnagilsskóla í Eyja- firði á áranum 1974 til 1981. Hann starf- ar nú í Skólarannsóknardeild mennta- málaráöuneytisins. Á sumrin hefur hann starfað sem landvörður á vegum Náttúruverndarráðs. Hann var í stjóm Alþýöubandalagsins á Akureyri 1981 og hefur nú setið rúmlega ár í stjóm Landverndar. GUNNAR H. GUNNARSSON: Allir lands- menn hafi jafnan kosn- ingarétt „1 kjördæmamáiinu er krafa mín og fjöldamargra annarra: „Allir lands- menn hafi jafnan kosningarétt,” sagði G unnar H. Gunnarsson. Eg tel að Alþýðubandalagiö eigi að setja það sem skilyrði fyrir setu í næstu ríkisstjórn að a.m.k. áfanga- sigur vinnist í hermálinu og að sú stjórn skerði ekki umsamin kjör launa- fólks. , ,1 efnahagsmálum álít ég mikilvæg- ast að vanda betur til fjárfesting- arinnar. Ég vil nefna eitt frægt dæmi af því tagi, þ.e.a.s. of stóran fiski- skipaflota, látum slíkt og þvílíkt verða okkur víti til varnaðar. I atvinnulífinu þarf aö efla mjög þátt samvinnurekstrar. Anægjulegur vaxtabroddur á þessu sviði eru fram- leiðslusamvinnufélögin, þar sem RAFAFLergott dæmi. Ég mun beita mér fyrir því að þing- menn flokksins í Reykjavík hafi mun nánara samráð við flokksmenn en verið hefur. I því skyni verði m.a. komið á fót þingmálaráöi, sem starfi á svipaðan hátt og borgarmálaráö Alþýðubandalagsins í Reykjavík.” Gunnar H. Gunnarsson er fæddur 1942. Hann lauk prófi í bygginga- verkfræði 1967 og lengst af síðan hefur hann starfað hjá gatnamálastjóranum í Reykjavík sem deildarverk- fræðingur. Hann hefur haft víötæk af- skipti af félagsmálum verkfræðinga og verið virkur félagi í Alþýöubanda- laginu í Reykjavík og aöallega sinnt þar borgarmálum. GUDRÚN HELGADÓTTIR: Vandinn felst í röngu þjóð- félagskerfi „Ég tel mig hingaö til hafa unnið að bættum hag þeirra þjóðfélagsþegna, sem skarðastan hlut hafa borið frá borði, þ.e. þeirra sem ekki geta tekið þátt í kapphlaupinu um lífsgæðin, svo sem kvenna, bama, hinna öldraöu, hinna sjúku, hinna þroskaheftu,” sagði Guörún Helgadóttir. „Ég tel að nokkuð hafi þegar áunnist, þó að gerð þjóð- félagsins sé í eðli sínu andsnúin þess- um hópum, og ég mun áfram vinna að þessum málum. Það ætti að vera höfuðskylda allra alþingismanna að standa vörð um íslenska menningu, auðlindir þjóðar- innar og efnahagslegt og pólitískt sjálf- stæði hennar. Vígbúnaðarkapphlaup stórveldanna ógnar nú öllu lífi á jörð- inni og við tökum þátt í því með því að vera í hernaðarbandalagi og lána land okkar undir herstöð. Gegn þessu höfum viö alþýðubandalagsmenn á- vallt barist og munum gera áfram, jafnt hér heima sem og á alþjóðavett- vangi. Alþingi Islendinga — og ekki síöur verkalýðshreyfingin, sem er megin- styrkur okkar — verða að taka hönd- um saman og greina fjárhagsvanda þjóðarinnar, í stað þess að berjast innbyrðis. Vandinn er löngu innbyggður í rangt þjóðfélagskerfi og þess vegna þurfa að koma til ný vinnu- brögö og heiðarlegri. Bankamál, lána- mál og skattamál — allt þetta verður að taka til endurskoðunar, ef viö eigum ekkiaðveröa kreppunniaðbráð.” Guðrún Helgadóttir er fædd 1935, varð stúdent frá MR 1955 og starfaði sem ritari MR í tíu ár og var deildar- stjóri í Tryggingastofnun ríkisins 1973—80. Hún var borgarfulltrúi 1978— 82, alþingismaöur frá 1979. Sat um skeið í stjórn BSRB. Hefur skrifað 7 bækurumbörn. MARGRÉTS. BJÖRNSDÓTTIR: I Aukin sam- vinna og sam- staða verka- lýðssinna „Það sem ég tel brýnt eins og stendur er að auka samvinnu og sam- stöðu verkalýðssinna á Alþingi, en þar sitja þeir nú tví- eða þríklofnir,” sagði Margrét S. Björnsdóttir. „Og veitast oft harðar hver að öörum en íhaldinu, höfuðfjanda launafólks. Samvinna þeirra nú er mikilvæg vegna þess aug- ijósa efnahagsvanda er við stöndum frammi fyrir og bitnar fyrst og fremst á launafólki. Stjómvöld hvers tíma ráða hér töluverðu og nauðsynlegt að þar sitji hagsmunir launafólks í fyrir- rúmi. Friðar- og afvopnunarmál era mér einnig mikið hjartans mál og tel ég nauösynlegt að Island sýni aukna reisn, sjálfstæði og frumkvæði í þeim málum á alþjóðavettvangi. Auk þess sem okkur er lísnauðsynlegt að losa landið og þjóðina úr morðtólakerfi Nató og Bandaríkjanna. Og sem sósíalista eru mér að sjálf- sögðu mikilvæg langtímamarkmiö eins og sameign og sjálfstjórn fólksins á atvinnutækjunum og sem jöfnust skipting andlegra sem efnislegra gæða, svo eitthvað sé nefnt.” Margrét S. Björnsdóttir er fædd árið 1948, lauk prófi í þjóðfélags- fræðum frá háskólanum í Frankfurt í Þýskalandi árið 1976 og hefur starfað síðan sem kennari og deildarstjóri við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Hún hefur gegnt ýmsum störfum fyrir Al- þýðubandaiagið og á nú sæti í miðstjóm og framkvæmdastjórn þess. GUÐRÚN HALLGRÍMS DÓTTIR: Barátta fyrir friði og afvopnun „Baráttan fyrir friði og afvopnun og þar með fyrir herstöövarlausu Islandi er mér efst í huga,” sagði Guðrún Hall- grímsdóttir. „Nátengt þessu er sjálf- stæði þjóðarinnar og kröfur um leið- réttingu samninga viö Alusuisse. Kvenréttindakonum er fátt brýnna en að vinna að bættri stöðu kvenna og auka þátt þeirra í okkar síbreytilega þjóöfélagi, en jafnframt veröur að rétta hlut barnanna, sem hafa orðið út- undan í velmeguninni og neyslukapp- hiaupinu. Ég vil hagnýta reynslu mína í ýms- um greinum framleiöslunnar og stuöla að öflugri uppbyggingu atvinnulifs um allt land, á þann hátt að útvegur, land- búnaður og iönaöur haldist í hendur og hver grein styrki aðra.” Guörún Hallgrímsdóttir er fædd í Reykjavík 1941 og er matvælaverk- fræðingur að mennt. Hún starfaði sem forstöðumaður Rannsóknarstofu bú- vöradeildar SlS í níu ár, gerðist full- trúi hjá Iðnþróunarstofnun Samein- uðu þjóðanna í Vín 1977 og er nú deild- arstjóri í iðnaðarráðuneytinu. Hún hefur setið í miðstjórn og fram- kvæmdanefnd Alþýðubandalagsins og hefur verið varaþingmaður flokksins síðan 1979. VILBORG HARDARDÓTTIR: Stuóla að jafnri skipt- ingu þjóðar- tekna „Mín þátttaka í póiitík ákvarðast fyrst og fremst af því aö ég er sósíalisti og vil stuðla að jafnri skiptingu þjóðar- teknanna, samneyslu og fegurra mannlífi, þjóðfrelsi og friöi,” sagði Vilborg Haröardóttir. „Jafnræði kynjanna er mér baráttumál og með þvíaðbregöast jákvætt við því aðtaka þátt íþessuforvaliviléghvetjaaðrar konur til félagslegrar virkni. Af þeim málum sem fram undan era hef ég áhyggjur af samdrætti í efna- hagslífinu og ekki síst vegna stöðu kvenna af því tilefni, því reynslan sýnir að slíkur samdráttur bitnar oft fyrst á þeim. Ég hef áhuga á þeirri tækniþróun, sem nú stendur yfir og vildi gjarna hafa áhrif, ef ég gæti, til þess að á- batinn af henni verði ekki til að safna meiri auöi á færri hendur, heldur nýt- ist almenningi, og renni ekki til þess að spara laun og skapa atvinnuleysi, heldur til þess að stytta vinnutímann og létta erfiðustu, hættulegustu og óþrifaiegustu störfin. Mér þykir vænt um Island og íslensku þjóðina, með öllum hennar gölium, og ég vil að hún fái að búa í friði í þessu landi. Þess vegna vil ég leggja mitt á vogarskálarnar í bar- áttunni fyrir friði og ég tel að Islendingar sýni best friðarvilja sinn með því að afneita þátttöku í hemaðar- bandalögum.” Vilborg Harðardóttir fæddist árið 1935. Hún lauk BA prófi í ensku og norsku frá Háskóla Islands, en hóf störf við blaðamennsku á námsáran- um og hefur starfað við blaðamennsku lengst af síðan, aðallega á Þjóðviljanum. Hún er nú útgáfustjóri Iðntæknistofnunar Islands. ÓLAFURRAGNAR GRÍMSSON: Vinna aó öflugri atvinnustefnu „Mörg verkefni bíða úrlausnar og ég mun leitast við að vinna að þeim á svipaðan hátt og ég hef gert á undan- förnum árum,” sagöi Olafur Ragnar Grímsson. ,Það era þrír málaflokkar sem ég tel sérstaklega brýna á næstunni.” „I fyrsta lagi að vinna að öflugri at- vinnustefnu, sem megnar að verja Is- lendinga gegn því atvinnuleysi sem nú hrjáir öll önnur lönd í Evrópu. Ný sókn í útflutningsgreinum þarf aö vera ríkur þáttur slíkrar atvinnustefnu. Jafnhliða verður að veita launafólki aukinn íhlutunarrétt um málefni fyrir- tækja og tryggja þannig veralegan á- fanga í átt að virku lýðræöi á vinnustöðum. I öðra iagi verður að efla fylgi við málstað friðar og afvopnunar. Þegar ég hóf að túlka stefnu evrópsku friðar- hreyfinganna hér á Islandi haustið 1981 voru margir sem lögðust gegn þessum boöskap. Þessar andstæöinga- fylkingar friöarhreyfingarinnar hafa nú riölast. Hins vegar veröur að fylgja þessu betur eftir á Alþingi og á þeim alþjóðavettvangi, sem Island á fulltrúa á. Árið 1983 veröur afdrifaríkt fyrir þróun afvopnunar í Evrópu. Ég mun leitast við að gera friðarbar- áttuna að öflugum þætti í íslensku stjórnmálaiífi á næstu misserum. 1 þriðja lagi bíða mörg óleyst verkefni á sviði félagslegs réttlætis og í umræðunni um aukna einingu vinstri manna á Islandi og breytta starfsháttu og nýtískulegra skipulag Alþýðubandalagsins. Ég mun reyna að tryggja að sú umræöa veröi árangurs- rík.” Olafur Ragnar Grímsson er 39 ára gamall, þingmaður og formaður þing- flokks Alþýöubandalagsins. Hann var áöur prófessor í stjórnmálafræðum við Háskóía Islands. ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR: Sjálfstæði þjóóarinnar helsta málió „Mitt helsta baráttumál er sjálf- stæði þjóðarinnar, friðarvilji hennar og verndun náttúru landsins,” sagöi Alfheiður Ingadóttir. „Ef leiftur- sóknarliöið fær yfirhöndina í stjórn landsins munu bresta hér upp allar gáttir fyrir stóriðju og aukin hern- aðarumsvif á hafinu umhverfis landiö. Það hefur sjaldan veriö mikil- vægara að berjast gegn her í landi og ásókn erlendra auðhringa í auðlindir okkar. Þar er Alþýðubandalagið eitt til vamar. I vor verður fyrst og fremst barist um það hvemig mæta skal samdrætti í þjóöarframleiðslu. Á að velta byrðun- um yfir á launafólk, skera niður féiags- lega þjónustu, hafna félagsiegri ábyrgð í húsnæðismálum og atvinnu- málum? Á aö leiöa atvinnuleysi yfir þjóðina? Hér er Alþýðubandalagið einnig eitt til vamar fyrir atvinnu og auknum jöfnuðu fyrir landsmenn.” Álfheiður Ingadóttir fæddist í Reykjavík 1951, hún er líffræðingur að mennt og hefur starfað um fimm ára skeið sem blaöamaður á Þjóð- viljanum. Hún er varaborgarfulltrúi Alþýðubandalagsins í Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.