Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1983, Side 40
KLETTA kjúklingur í KVÖLDMATINN HEILDSÖLUSÍMI 21194 Skákmótið í Hollandi: Kortsnoj vann Friðrik glæsilega — sjá skákina íheildábls. 32 Friörik Olafsson fór halloka fyrir "varaheimsmeistaranum” Viktor Kortsnoj í 10. umferð, sem tefld var í gær. Haföi Kortsnoj hvítt og tefldi vasklega, fórnaöi manni þegar í 13. leik og gjörsigraði Friörik í 24 leikjum. Hulak vann Scheeren, jafntefli geröu Nunn og Seirawan, Hort og Van der Wiel, Ribli og Andersson, Ree og Kuli- kowski en skák Speelmans og Browns fór í biö. Staðan eftir 10 umferöir er þá þessi: 1. Andersson meö 7v., 2. Nunn 6v., 3. Ribli 5v. og biö, 4.-5: Hort og Hulak 5,5 v., 6. Brown 5v. og biö, 7.-9. Friörik, Seirawan og Kortsnoj 5v. Þrjár umferðir eru eftir og teflir Frið- rik gegn Hort, Ribli og Hulak. BH. Prófkjör haldið 25. og26. — hjá sjálfstæðis- mönnum á Reykjanesi Prófkjör Sjálfstæöisflokksins í Reykjaneskjördæmi fer fram dagana 26. og 27. f ebrúar næstkomandi. Þátttökurétt í prófkjörinu hafa allir stuöningsmenn flokksins sem kosningarétt hafa í næstu alþingis- kosningum svo og félagsbundnir sjálf- stæöismenn á aldrinum 16—20 ára. Kjör fer þannig fram aö hver þátttak- andi merkir fyrir framan nöfn frambjóðenda með tölustöfunum 1—5. Urslit prófkjörsins verða bindandi fyrir þá frambjóöendur sem fá yfir 50% atkvæöa og ef þátttaka verður þriðjungur af fylgi flokksins í síöustu kosningum eða meira. Framboðs- frestur í prófkjöriö rennur út á hádegi laugardaginn 5. febrúar. -ás. Aðalframkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna í opin- bera heimsókn Javier Perez de Cuellar, aðalfram- kvæmdastjóri Sameinuöu þjóöanna, kemur í opinbera heimsókn til Islands í vor; dagana8.tilll. apríl. Aöalframkvæmdastjórinn mun heimsækja Noröurlöndin fimm og er Island fyrsti áfangastaöurinn. —FG. LOKI Nú ætti Davíð að taka í notkun rafmagnsstrætóa. 27022 AUGLÝSINGAR SÍDUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 Frjálst,óhá5 dagblaö FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 1983. Hundrað manns verdur sagt upp — Corgolux hefurtapad 75% afhlutafé tvö hundruð starfsmönnum Cargo- inn var um áramót, var ákveðiö aö lux sagt upp störfum. minnka verömæti hlutabréfa félags- Undanfarná mánuöi hefur veriö ins um 75% vegna mikils tap- mikill skortur á verkefnum fyrir rekstrar. Var hlutaféð minnkaö úr vélar félagsins, en þaö á nú tvær 400 milljónum franka í 100 milljónir, Boeing 747 og tvær DC 8 þotur. Fram en síöan verður það aftur aukið í 700 til þessa hafa allar vélarnar verið í milljónir franka og mun þá ríkis- notkun í tilfailandi verkefnum og bankinn í Luxembourg í samvinnu reglubundnu flugi til Hong Kong og við aöra banka gerast hluthafi í Bandaríkjanna. En ákveðið hefur félaginu. Þegar og ef sú hlutafjár- veriö aö leggja þremur vélum á breyting er endanlega frágengin næstunni þannig að aðeins ein mun eignahlutur Flugleiða í Cargo- Boeing 747 verðiáfram í rekstri. lux verða um 4%. Fyrir þessa breyt- Á aðalfundi félagsins, sem hald- inguáttuFlugleiöir25%hlutafjár. ÖEF Um eitt hundrað starfsmenn Cargolux 1 Luxembourg geta átt von á uppsögnum um næstu mánaðamót. Hér er um að ræða skrifstofufólk, flugvirkja og flugmenn og er ljóst aö margir Islendingar veröa í þeim hópi. Samkvæmt heimildum DV verður endanleg ákvöröun um upp- sagnir tekin á föstudag. I flestum tilfellum hafa flug- virkjar og flugmenn 4 til 6 mánaöa uppsagnarfrest þannig að upp- sagnirnar taka ekki gildi fyrr en 1 sumar. Síöastliöiö haust var hátt í íþróttafélögin í Eyjum í pólitískum slag vegna húsakaupa: TýrogÞór takastá í bæjarstjórn Stuöningsmenn íþróttafélaganna tveggja í Vestmannaeyjum, Týs og Þórs, takast nú á utan íþróttavallarins — á pólitíska sviðinu. Deilt er um kaup á húsi sem bærinn á. Upphaf málsins er þaö aö íþrótta- félagiö Þór gerir bæjarstjórn tilboð í svokallað Steinker-hús. Tilboöiö hljóö- ar upp á 300 þúsund krónur sem greið- ist meö þriggja ára skuldabréfi meö 20 prósent ársvöxtum. Gjalddagi einu sinni á ári, sá fyrsti eftir eitt ár. Tveimur dögum eftir aö tilboö Þórs er komið fram skrifar Týr bæjarstjóra og lýsir yfir áhuga á að leigja eða kaupa þetta sama hús. Hiö umdeilda hús er gjöf frá Dönum eftir gosið 1973. Þar til í vetur var þaö notaö sem skóli. Þór hyggst nota þaö sem félagsheimili. Týr á hins vegar fyrir húsnæöi sem þaö hefur notaö sem félagsheimili. Eftir að bæjarráö samþykkti á siðasta fundi sínum aö fela bæjarstjóra að ganga til samninga viö Þór á grund- velli tilboðsins blossuðu upp deilur í Eyjum. Stuðningsmenn Týs geta meö engu móti sætt sig við aö Þór fái húsiö á hinum góðu kjörum. Þeir hafa einnig bent á þá staðreynd aö meirihluti þæjarráðs er skipaður dyggum stuðningsmönnum Þórs. Málið veröur tekiö fýrir á fundi bæjarstjómar í kvöld. Stuöningsmenn Þórs eru einnig i meirihluta í bæjar- stjóminni, eru fimm talsins en stuöningsmenn Týs eru bara tveir. Tveir bæjarfulltrúar eru taldir standa utan við íþróttafélögin. -KMU/FÓV, Vestmannaeyjum. ísafjörður: Snjómokstur íHoltahverfi Snjóflóðahætta var talsverð i Holtahverfinu nýja á ísafirði um helgina og fólk jafnvel flutt úr húsum sínum. Snjórinn hefur nú minnkað og ástandið batnað en nóg var að moka um tima. DV-mynd:Valur Jónatansson, Ísafirði. Ágreiningur íforystuliði Framsóknarf lokksins vegna kjördæmamálsins: Tómas og Steingrímur ósam- mála um meðaltalsaðferðina „Nei, ég hef ekki gagnrýnt störf Steingríms í formannanefndinni. Hann hefur haldiö fram sjónar- miðum Framsóknarflokksins, til dæmis gagnrýnt þaö fyrirkomulag sem formenn hinna flokkanna hafa stofnaö til og óskaö eftir meiri breidd. í viðræðunum.” Þetta sagði Tómas Arnason í samtali við DV í morgun. Samkvæmt blaðaviðtölum undan- farna daga virðist kominn upp ágreiningur í forystuliði framsókn- armanna um leiðir í kjördæmamál- inu. Tómas er óánægður meö svo- kallaöa meöaltalsaðferð til að reikna út hvaða þingmenn næðu kjöri. Stein- grímur Hermannsson segir þá sem fordæma aðferðina ekki skilja hana. , jEg er fylgjandi því að reynt verði að ná heildarsamkomulagi í kjör- dæmamálinu,” sagði Tómas. „Það þarf að leggja til grundvallar ákveðnar forsendur. Haga þarf laga- setningunni þannig að leiði til skil- virkrar stjórnar á málefnum lands- ins. Þjóðinni verði þjappað meira saman í stað þess að stía henni í sundur. I ööru lagi aö landsbyggðin hafi tiltölulega fleiri þingmenn. Hafa ber í huga að Reykjavik eru tryggð ákveðin réttindi, staðsetning ríkis- stjómar, Alþingis og margra ann- arra mikilvægra stofnana. I þriöja lagi er nokkur hætta á því að lands- byggðin dragist of mikiö saman. I stjórnarskrárlögum þarf frekar að styrkja hana en hitt. Eg er þeirrar skoðunar að ef menn viðurkenna þær forsendur að lands- byggöin eigi að hafa hlutfallslega meira vægi atkvæöa þá sé eölilegt aö flokkur, Framsóknarflokkurinn eða annar, fái tiltölulega fleiri þing- menn.” En hafa ekki þær forsendur veriö lagöar til hliðar? „Eg tel þaö ranga skoðun og á vissan hátt hættu- lega.” Ertu tilbúinn til aö fallast á einhverja breytingu? „Þetta hlutfall hefur veriö ákveöið. Flokksþing Framsóknarflokksins hefur sam- þykkt aö það eigi að haldast.” Ætl- arðu þá að greiöa atkvæði gegn þess- um tillögum? „Ég tjái mig ekki um það á þessu stigi. Eg vil bara koma fram sjónarmiðum sem ég tel að eigi réttásér.” JBH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.