Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1983, Síða 1
DAGBLAÐIO—VÍSIR
36. TBL. —73. og 9. ÁRG. — LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1983.
ITSTJÓRN SIMI 8661
, óháð dagblað
Par dvelja stórmennin
ryhfaiHn og gleymd
Á Þjóðminjasafni, í litlu
gluggalausu herbergi fyrir
ofan Bogasal, er hópur
manna saman kominn.
Þetta eru rúmlega þrjátíu
manns, allt karlar utan ein
kona. Einn stendur tíguleg-
ur fremst, næst sitja sex
menn báðum megin við
hann í einfaldri röð. Hinir
standa í hnapp fyrir aftan.
Það er vandlega búið um
fólkið. Það er hulið plasti
frá toppi til táar,eða öðrum
hlífðarábreiðum. Samt hef-
ur þaö látið á sjá og er ryk-
fallið og upplitað, þar sem
það starir tómum augum út
í bláinn.
Þetta er ekki „alvöru
fólk”. Þetta eru brúðumar
í vaxmyndasafninu svo-
kallaða sem Öskar Hall-
dórsson útgerðarmaður og
börn hans stofnuðu og
gáfu ríkinu árið 1951. Þá
var safninu komið fyrir í
Þjóðminjasafni til sýnis og
þar stóðu brúðumar uppi
um 15 ára skeið. En þá voru
þær teknar niður og komið
fyrir uppi í fyrmefndu her-
bergi.
Og þar eru þær enn. Og
svo virðist sem enginn viti
hvað eigi að gera við þær.
Forráðamenn Þjóðminja-
safnsins segja brúðumar
ekki eiga heima á safninu
því að ekki séu þær lista-'
verk, ekki fomgripir og því
síður gamlar þjóðminjar.
Helst ættu þær heima á
náttúrugripasafni, bæta
þeir við.
En hvað á að gera við
vaxmyndasafnið og hvað
verður um þaö? Við rifjum
upp tilurð safnsins og sögu
þess. Og leitum til mennta-
málaráðuneytis sem vax-
myndasafnið heyrir undir.
— sjii bls. 2 ojí 3