Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Síða 1
Festi Grindavík:
„Bœjarstjóri að klóra yfir eigin mistök’’
— sjá bls. 3
— sjánánarábls.4
SNATI, BESTI
VINUR MANNSINS
Það eru ekki allir sem reiða með sér snyrtimennskuna i þverpokum.
Svo verður að minnsta kosti seint sagt um þann sem skutlaði hund-
skepnunni sinni ipoka eftir að hún yfirgaf hérvistina, væntanlega södd
lífdaga, og henti henni siðan i brotajárnshaug Sindra-stáls i Sundahöfn.
Að sögn starfsmanna þar er oft ógeðsleg aðkoma á vinnusvæðið eftir
helgar þegar byrja þarf að hreinsa burt ruslapoka með matarleifum,
fatnaði og öðru drasli sem fólk hefur ekki nennt að fara með alla leið á
öskuhaugana. Þó keyrði viðskilnaðurinn á Snata um þverbak. Lögregl-
an kom starfsmönnum til hjálpar og fjarlægði hræið.
ÓEF/DV-mynd Bjarnleifur.
7
Kvöldvorrósarolía:
Er hún svarið við
menni nga rsj úkdómum?
— fólk jafnvel læknast afkrabbameini með notkun olfunnar
Sala á kvöldvorrósarolíu hefur
aukist mjög mikið hér á landi síöustu
mánuðina og telja margir sig hafa
fengið bót á ýmsum sjúkdómum með
því að taka hana inn. Olían er unnin
úrblóminukvöldvorrós semvex
villt víða um heim. I fræjum hennar
er sjaldgæf fjölómettuö fitusýra,
gamma-linólensýra. Hún er talin
lykilefni viö framleiöslu á efnaflokki
í likamanum sem nefnist
prostaglandin. Ojafnvægi í prosta-
glandin-framleiðslu líkamans er tal-
ið geta valdið mörgum sjúkdómum,
þetta ójafnvægi megi leiðrétta með
notkun á kvöldvorrósarolíu.
Ekki er ljóst hversu margir hér á
landi nota kvöldvorrósarolíuna aö
staöaldri en miðað við sölumagn á
síöasta ári hlýtur að vera um mikinn
fjölda að ræða. Fólk hefur talið sig fá
lækningu við liðagigt, offitu, asma og
jafnvel krabbameini. Æðahnútar
hafa lika horfiö vegna notkunar á olí-
unni, að áliti viðkomandi. Einnig tel-
ur fólk sig yfirleitt styrkjast mikið,
andlega og líkamiega, ef það notar
kvöldvorrósaroh'u.
Sjúkdómar sem olían hefur verið
notuð til að lækna eru meðal annars
hár blóöþrýstingur, kransæðasjúk-
dómar, blóðtappar, ofnæmissjúk-
dómar og margir fleiri. Jafnvel þyk-
ir sannað að notkun kvöldvorrósar-
ohu eyði eöa dragi úr timburmönn-
JBH
um.
sja nanar
á bls. 24-25
FURDUFISKUR
VIÐ ÍSLAND
Surtlusystir heitir furðufiskurinn á
myndinni. Talið er að innan við tíu
slíkir hafi veiðst í heiminum. Skip-
verjar á íslenskum togara fengu
hann í vörpuna um síðustu helgi.
Fyrir framan vel tennt ginið er ljós-
færi sem fiskurinn notar til að gabba
aðra fiska upp í sig. Myndin er af
hrygnu en hængurinn þykir ekki
merkilegur. Hann er örlítill og lifir
fastur við hrygnuna á næringu úr
æðum hennar.
-KMU/DV-mynd: Bjarnleifur.