Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Side 2
2
DV. FIMMTUDAGUR10. MARS1983.
Davíð A. Gunnarsson, f ramkvæmdast jóri Ríkisspítalanna:
„Þörfin leyfir ekki
að fækkað verði”
„Fyrir hendi er ákveöinn fjöldi af
plássum og þau eru sífellt full. Þaö
er skoðun okkar aö þaö sem til þarf
aö koma séu fleiri starfsmenn. Þaö
er því kannski fulleinfalt aö segja að
fjárskortur Kópavogshælis sé eina
ástæöan fyrir því aö drengurinn fær
ekki aögang,” sagöi Davíö Á.
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Ríkisspítalanna, í viðtali viö DV. Til-
efniö var viðtalið sem birtist hér í
blaöinu þann 2. mars síðastliöinn viö
foreldra ungs, þroskahefts drengs
sem fengið hefur heimild fyrir aö
verða tekinn inn á Kópavogshæli en
kemst ekki aö vegna þrengsla og
skorts á starfsfólki.
„Undanfarin ár má segja að stefn-
an hafi veriö sú að fækka vistmönn-
um á stóru stofnununum, eins og
Kópavogshæli,” sagði Davíð. „I stað-
inn hefur veriö lögö meiri áhersla á
aö byggja sambýli og minni stofnan-
ir.
Taliö haföi verið aö aösóknin aö
stofnunum myndi minnka en raunin
hefur orðið sú aö síöasta hálft annað
áriö hefur aðsóknin aukist um allan
helming og ekki hefur veriö hægt aö
anna henni. Þörfin leyfir því ekki aö
fækkaö verði. Dæmiö hefur þannig
snúist nokkuöviö.
Fyrir lá aö bæta viö 24 nýjum
stööugildum á Kópavogshælinu.
Þeim hefur ekki verið úthlutað enn,
sennilega vegna fjárskorts. Fjár-
hagserfiöleikar hafa líka valdið því
aö vinna viö deild 2 á Kópavogshæli,
eina elstu deild þess, hefur gengið
hægar en þurft heföi að vera. Þó er
áætlaö aö henni veröi lokið á árinu.
Auövitaö myndi maöur helst vilja
aö ein manneskja gæti veriö meö
hverjum vistmanni allan sólarhring-
inn og sinnt öllum hans þörfum. En
eins og stendur er ekki nægjanlegt
starfsfólktilþess.
Vandinn er náttúrulega ekki bara
þessa eina drengs, heldur eru fleiri
sem líkt er háttaö um,” sagöi Davíð
Á. Gunnarsson. -pá
Björn Gestsson, forst jóri Kópavogshælis:
„Engin ein lausn
til á vandanum”
„Hér er um aö ræöa miklu lengra
og flóknara mál en svo aö hægt sé aö
gera því skil í stuttu blaöaviðtali. Á
Kópavogshæli eru þegar orðnir fleiri
en húsnæöiö er upprunalega gert fyr-
ir. Aösóknin hefur veriö töluverö
undanfarið og í raun meiri en hægt er
meö góöu móti aö taka viö. Þeir eru
því miöur margir sem fyrirsjáan-
lega munu þurfa aö bíða enn um
sinn.” Þaö er Björn Gestsson, for-
stöðumaður Kópavogshælis, sem svo
mælir, en til hans var leitaö til nán-
ari útskýringa á vanda Kópavogs-
hælis, í tengslum við viötaliö viö for-
eldra þroskahefta drengsins, Isaks
Ölafssonar.
„Hér eru alltaf einhverjir á biö-
lista án þess hægt sé aö segja til um
þann fjölda í fljótu bragði. Biðlisti er
flókiö mál og oft vitum viö ekki um
isak Ólafsson, þroskaheftur drengur, sem ekki kemst að á Kópavogs-
hæli vegna þrengsla og skorts á starfsfólki. Rætt var við foreldra ísaks
litla iDV2. mars sl.
einstaklinga fyrr en neyöarástand er
orðið á heimilinu. Ástandiö er e.t.v.
ekki verra nú en oft áöur en úrræðin
eru ekki eins mörg og maður hefði
kosið. Oft er aðeins hægt aö leysa
vanda einstaklinga meö skamm-
tímavistun.
Nú er verið aö endurbæta eina
elstu deildina hér, svo aö hún svari
kröfum tímans. Til þess þurfti aö
rýma hana svo aö þrengslin annars
staöar eru e.t.v. meira áberandi en
ella. Og svo eitthvaö jákvætt komi
fram líka þá er hér verið að byggja
vinnustofu fyrir vistmenn og sund-
laugin er nú uppsteypt og komin und-
irþak.”
— En eru ekki fleiri stofnanir á
borö viöKópavogshæli starfandi?
,,Skálatún er að nokkru leyti sams
konar stofnun og einnig Sólborg og
Tjaldanes. Munur er þó á einstakl-
ingum og getustigi þeirra eftir stöö-
um. Meirihluti þeirra sem mesta
þjónustu og umönnun þurfa er á
Kópavogshæli.”
— Og hver er fjöldi starfsmanna á
hælinu?
„Heildarfjöldi fastra starfsmanna
er 182 en þar viö bætist síðan afleys-
ingafólk og aörir lausráönir. Viö höf-
um óskaö eftir fleiri starfsmönnum
og þurfum fleiri til aö geta sinnt
þeim vistmönnum sem hér eru á full-
nægjandi hátt,” sagöi Björn Gests-
son. -PÁ
Mezzoforte:
Hagstæðustu
Jkaupin
Viltu spara?
Komdu bara
Afsláttur
á smjöri, smjörlíki, smjörva, ostum, kjöti, kjúklingum, sviöum, emmess ís, kjörís, flatkök-
um, kleinum, pizzum, rækjum, ýsuflökum, nýjum ávöxtum, nýju grænmeti, niöursoðnum
ávöxtum, niöursoönu grænmeti, kaffi, kexi, sultu, hveiti, strásykri, sælgæti, súpum, hrein-
lætisvöru, toilettpappír, eldhúsrúllum, tóbaki, öli og ölgerðarefni
Sem sagt
AFSLÁTTUR
af öllum vörum
SPARIMARKAÐURINIM
AUSTURVERI
fiiýí neðra bílastæði — sunnan hússins.
Mun betri árangur
en vonir stóðu til
— segir Kristinn Svavarsson,
saxófónleikari Mezzoforte
„Viö erum að sjálfsögöu mjög
hressir meö þaö aö komast á topp 40.
Þetta er mun betra en viö þorðum aö
vona,” sagði Kristinn Svavarsson,
iinn meðlima hljómsveitarinnar
dezzoforte, en DV náöi tali af honum í
^undúnum í gær.
„Þaö veröur ákveöiö á næstunni
ivort viö eigum aö koma fram í Top of
the Pops í næstu viku, þaö fer eftir
söluhorfum í þessari viku,” sagöi
Kristinn. „Þaö heföi aö sjálfsögðu
gífurlega auglýsingu í för meö sér því
þessi þáttur er sýndur um allar Bret-
landseyjar,” bætti hann viö.
Kristinn sagði aö annars væru þeir
félagar mjög þreyttir eftir aö hafa
veriö á stöðugum þeytingi um allar
jarðir í Bretlandi síöustu daga, í
viðtölum og öörum kynningum.
„Samt hefur þetta veriö mjög
gaman þó maöur viti í raun ekki enn
hvernig maöur á aö taka þessu,” sagöi
Kristinn Svavarsson.
Mezzoforet er væntanleg heim í dag.
-SþS.
í versluninni
Kúnígúnd
gjafavöruverslun,
Hafnarstræti 11 —sími 13469.
V