Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Síða 10
10 DV. FIMMTUDAGUR10. MARS1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Trúarvakningí Guatemala Páfínn er útsendarí andskotans Smm Þaö gengur nú trúarvakning yfir Mið-Ameríku. Kirkjudeildir mót- mælenda eiga vaxandi fylgi að fagna og ógna nú hinni hefðbundnu stöðu kaþólsku kirkjunnar þar. I Guatemala hefur þessi hreyfing risið hæst, þegar Rios Montt hershöfðingi varð forseti ríkisins eftir valdatöku hersins. — Guö hefur lagt hendur sínar yf ir Guatemala. Hann viil gera land okkar að lýsandi dæmi. Rios Montt gerði ekkert til þess að veröa forseti, það er þess vegna kraftaverk að hann varð það.- Þetta segir einkarit- ari forsetans, Francisco Bianci. Þaö voru ungir herforingjar sem komu Montt til valda með byltingu. Þessir ungu herforingjar voru verkfæri Guðs, segir Bianci. Það orð fer af stjóm Montts að hún hafi staðið fyrir f jöldamorðum á indíánum og ógnarstjóm. Þetta telja stuðningsmenn hans fráleitt og Montt sjálfur þvertekur fyrir það. Hann segir, að hann færi Guatemala- búum boöskapinn um kærleikann. Hann hafi beitt sér fyrir herferð á hendur spillingunni í landinu sem var hroðaleg. Þannig hefur hver embættismaður í landinu orðið að sverja þess eið aö ljúga ekki, stela ekki né beita ofbeldi. En þótt enginn haldi því fram að Montt sjálfur eigi hlut að spill- ingunni, er þaö samt staðreynd að á næsta valdaþrepi fyrir neðan hann sitja feitir embættismenn og heimta mútur. — Það er ekki kerfið sem er rangt, það em einstaklingamir sem em vondir. — Þetta segir Bianci. Og þar er rótin að ágreiningi milli mótmæl- endakirknanna og þeirrar kaþólsku. Kaþólskir byltingaprestar Valdamiklir aöiiar innan káþólsku kirkjunnar i Guatemala vinna að því að breyta þjóðfélaginu. Þeir hafa snúist gegn stuöningi mót- mælendakirknanna við kúgun og einræði stjórnvalda. Róttækir prestar í E1 Salvador hafa ásakað CIA um aö styrkja mótmælenda- kirkjur í Mið-Ameríku og aðrir hafa haldið því fram að Rockefellerstofn- unin styrki þær einnig. Og það er ljóst að hinar ýmsu mótmælenda- kirkjur í Guatemala fá styrk frá systurkirkjum í Bandaríkjunum. En enginn veit hve mikiö. Stærsta kirkjudeild mótmælenda í Mið-Ameríku, Asamblea de Diós, fær ekki styrk frá Bandaríkjunum, aö sögn talsmanna hennar. Bandaríski trúboðinn Jerry Smith í E1 Salvador segir að fyrir mörgum árum hafi baptistar fengið fjárstuðning frá Rockefellerstofnuninni, en ekkert síðan. Hann segir einnig að hans kirkja sé alveg ópólitísk og skipti sér ekki af pólitískum vandamálum, svo sem varöandi mannréttindi. Hann segir einnig að kaþólska kirkjan hafi tekið pólitíska afstöðu og þannig fælt burtu milli- og yfirstéttirnar. Ein önnur ástæða fyrir velgengni mótmælendakirknanna í Guate- mala, en þar er talið að milli 30 og 40 prósent íbúanna hafi gengið þeim á hönd, er öryggisleysið í landinu, bæði ógnarstjóm yfirvalda og stríðið innanlands. — Þegar manneskjan er hrædd leitar hún skjóls hjá Guði. Og Jesús huggar þá sem eiga erfitt. Þess vegna er auðvelt að boða nýja trú nú. — Þetta segir séra Sergio Solorzano mótmælendaprestur. Páfinn Antikristur I að minnsta kosti einni mótmæl- endakirknanna, Elimkirkjunni, ráö- ast prestamir með offorsi gegn páf- anum vegna heimsóknar hans og kalla hann Antikrist. Þetta er nánast stríð milli kirkna, milli kaþólskra og mótmælenda um sálirnar. Og í því stríði reyna margir presta mótmælenda aö leiöa hina trúuðu frá hugleiöingum um þjóð- félagsástandið, til trausts á forsjá Guðs og vonar um endurkomu Jesú. — í Guatemala hafa mótmælenda- kirkjurnar tekið við hlutverki kaþólsku kirkjunnar sem verjendur hins ríkjandi ástands. Meöan kaþólska kirkjan varði einræðisherr- ana í Guatemala fyrr, leitaði fólkið til mótmælendakirknanna, en nú eru það mótmælendumir sem styðja ríkisvaldið, segir Guatemalabúi. Rios Montt hershöfðingi og af Guðs náð forseti Guatemala. Kosningarnar í Ástralíu: EFTIRLEIKURINN ERFIÐARI Nú, þegar Verkamannaflokkurinn hefur náð völdum að nýju í Ástralíu, eftir sjö ár í stjórnarandstöðu, verða þingmenn hans að takast á við mörg alvarleg vandamál varðandi efna- hagslífið, vamarmál og samkomu-' lag aðila vinnumarkaðarins. Það er álit fréttaskýrenda að það verði á þessum þrem vígstöðvum sem örlög hinnar nýju ríkisstjómar verði ráðin. Enn hefur ekki verið gengið frá skipan ríkisstjórnarinnar, utan hvað Bob Hawke hefur gefiö í skyn að for- veri hans í stóli formanns Verka- mannaflokksins, Bill Hayden, verði utanríkisráðherra. En flokkurinn mun búa við þægilegan meirihluta í fulltrúadeildinni sem gerir líf Hawke auöveldara til að byrja með. En það mun reyna fljótt á það, hvort orðstír hans fyrir samningslipurð og raun- sæi er réttur. Efnahagsmálin Erfiðustu ákvarðanir sem hin nýja ríkisstjórn verður að taka er um efnahagsmál. Ritari Verka- mannaflokksins, Bob McMullen, hef-, ur sagt að höfuðástæðurnar fyrir sigri Hawke hafi verið ótti Ástralíu-1 búa við aukiðatvinnuleysi, sem er nú 10 prósent og verðbólgu sem nú er 11 prósent, en menn óttast mjög aö þetta verðbólgustig leiði til versn- andilífskjara. Efnahagsráðstafanir Hawkes verða að falla í geðalþjóðlegum fjár- festingaraðilum sem hafa fjár- magnað stórframkvæmdir í Ástralíu og tryggja þeim góðan hagnað. Þessar aðgerðir veröa einnig að f alla að hugmyndafræði félaga hans í Verkamannaflokknum. Fjárfestingaraðilar óttuðust einnig að Hawke léti það verða sitt fyrsta verk að fella gengið til þess að efla útflutning og draga úr innflutningi. Þetta var líka fyrsta verk Hawke, sem felldi gengi ástralska dollarsins um 10 prósent í vikunni. Ottinn við þessa gengisfell- ingu varð til þess að fjármagnseig- endur drógu um 1,5 milljarða banda- rískra dollara burt frá Ástralíu á síðustu vikum fyrir kosningar. Þá óttast fjármagnseigendumir einnig að fyrirætlanir Verkamanna- flokksins um fjölgun starfa og efl- ingu almannatrygginga muni auka halla á áströlsku fjárlögunum enn frekar. Hallinn á þessu ári er ætlaður að muni verða um fjórir milljarðar dollara og það sé ætlun stjórnvalda að verða sér úti um þetta f jármagn heimafyrir og muni það leiða til vaxtahækkunar. Kjarasamningar Hvað varðar ástandiö á vinnu- markaðnum munu nokkrar deilur, sem lítið hefur borið á síðustu vik- urnar fyrir kosningar, verða teknar upp að nýju og reyna á þolrifin í hinni -fyrirBob Hawke nýju stjórn. Þar mun sérstaklega reyna á það, hversu langt Verka- mannaflokkurinn er tilbúinn að ganga til að halda niðri launahækk- unum, sem er mikilvægt stefnumál flokksins. I miðri kosningabaráttunni gerði Hawke samkomulag við Alþýðusam- band Ástralíu um aðhaldsstefnu í kaupgjalds- og verðlagsmálum. Þetta samkomulag átti eflaust mikinn þátt í sigri hans og var áhrifamikið svar við þeirri stefnu Malcolms Frasers að eina leiðin til að ráöa niðurlögum efnahagsörðug- leikanna væri að frysta laun, ásamt öðrum harkaiegum pólitískum að- gerðum. Hawke hefur skorað á alla Ástra- líubúa að sameinast að baki sér, eftir áralanga reynslu af harkalegri stefnu Frasers, sem varð til þess að í odda skarst milli verkalýðshreyfing- ar og vinnuveitenda, svo að lítill friður hefur verið á vinnumarkaðn- um í mörg ár. Þaö er aftur annað mál, hvort verkalýðsfélögin í oliu- hreinsiiönaði og félög flutninga- verkamanna munu sætta sig við hóflegar launahækkanir nú, þegar Verkamannaflokkurinn hefur náð stjómartaumunum. Það veit enginn fyrr en Hawke kallar saman fyrir- hugaða ráðstefnu um efnahagsmál, þar sem aðilar vinnumarkaðarins ásamt embættismönnum munu þinga um framtíðarráöstafanir. Varnarmál Hvað varðar varnarmál mun Hawke fljótlega veröa aö taka erfiða ákvörðun, þegar hann fjallar um framtíðarhlutverk sjóhersins. Fraser og stjóm hans höfðu fyrir nokkru ákveðið að kaupa nýtt flug- móöurskip, en talsmenn Verka- mannaflokksins sögðu að flokkurinn myndi ekki eiga þátt í því aö eyða peningum í svo mikil kaup á erfið- leikatímum. Flugmóðurskip mun kosta hundruö milljóna dollara. Það verður ekki fýrr en Hawke hefur tekist á við þessi mál, að ljóst verður hvort hann mun standa undir þeim fyrirheitum, sem starf hans innan ástralska Alþýðusambandsins gaf. Bob Hawke, Dýkjörinn for- sætisráðherra Astralíu. Að unnum sigri verður að tak- ast á við vandamálin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.