Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Page 17
DV. FIMMTUDAGUR10. MARS1983.
17
Lesendur
Lesendur
Ósanngirni í vaxta-
reikningi orlofsf jár
utan af landi?
5499-3366, launþegi úti á landi, spyr:
Fyrirspum til Póstgíróstofunnar.
Getur það veriö að orlofsfé sem
greitt er, t.d. pósthúsi úti á landi, sé
ekki vaxtareiknað frá þeim degi sem
pósthúsið tekur á móti upphæöinni
heldur þegar hún berst Póstgíró-
stofunni í hendur?
Ef þetta reynist rétt, því á fólk
sem býr við stopular samgöngur viö
Reykjavík ekki sama rétt til vaxta af
sínu orlofsfé og þeir sem þar eru?
Gunnar Valdimarsson, forstöðu-
maður Póstgiróstofunnar, svarar:
Það er rétt sem í bréfinu kemur
fram að orlofsfé sem greitt er póst-
húsum úti á landi er ekki vaxta-
reiknað fyrr en Póstgíróstofan bókar
upphæöina. Um þessar mundir standa
yfir miklar breytingar á bókhalds-
kerfi Póstgíróstofunnar. Það mun
meðal annars leiða til þess að þetta
verður lagfært. Þar að auki er unniö
aö því aö beintengja pósthús úti á
landi við tölvu Póstgíróstofunnar
þannig að allar greiðslur bókfærast
samdægurs.
Þingmenn yfirlands-
meðaltali að greind?
4371-6379 hringdi vegna Þingsjár-
þáttar sem var á dagskrá sjónvarps-
ins þriöjudaginn 1. mars síöastliðinn.
Þar gaf Stefán Jónsson í skyn að
þingmenn væru yfir landsmeðaltali
að greind að því er manni sýndist.
Meirihluti þessa greinda hóps á þingi
er á þeirri skoðun að hér eigi að vera
erlendur her. Öttast hann það ekki ef
til þjóöaratkvæðagreiöslu kæmi aö
þjóðin, vegna greindarskorts, myndi
kjósa herinn út úr landinu?
Stefán Jónsson alþingismaður.
Edda Andrésdóttir.
Þakkir
fyrir
Skonrokk
3639-8248 skrifar:
Eg vildi gjarnan koma á
framfæri innilegum þökkum
minum til Eddu Andrésdóttur og
Þorgeirs Ástvaldssonar fyrir góða
Skonrokkþætti með von um að þau
sjái sér fært að endursýna lagið
Time með Culture Club, ennfremur
væri gaman að sjá eitthvað með
Yazoo.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Hjólið mitt
er horfið
Auður Haraldsdóttir, Stórholti 29,
hringdi:
Hjólið mitt hvarf frá heimili mínu
aöfaranótt sunnudagsins 20. febrúar
síðastliðins.
Þetta er silfurgrátt Bianci kven-
reiðhjól, 10 gíra. Þætti mér vænt um ef
einhver gæti gefið upplýsingar um
hjólið. Eg myndi þekkja það rétta.
Týndi veski
5232-4688 hringdi:
Ég týndi veskinu minu laugar-
daginn 26. febrúar síðastliðinn í
Sigtúni, annaðhvort úti eöa inni. Það er
seðla veski, lítið og rauðbrúnt á lit.
Mér þætti vænt um að finnandi
mundi skila þvi. 1 því var fullt af
myndum og einnig voru í því innleggs-
nótur úr verslunum.
Fötum stolið
á LMF balli
4532-1290 hringdi:
Á föstudaginn 4. mars var grásvartri
kápu og nýjum svörtum leðurstígvél-
um (nr. 38) ásamt gráu sjali, bláum
trefli, bláum hönskum, nemenda-
skírteini og lykli stolið úr Sigtúni á
LMF balli sem var þar.
Við biðjum alla sem hafa orðið varir
við skyndilega búbót hjá börnum
sínum að athuga það nánar. Við ætlum
aö vona að fólk sjái sóma sinn í að skila
okkur þessu til kvennanna í fatahengi
Sigtúns.
Gömlu timburhúsin, þau sem eru
falleg og einhvers virði í dag,
voru tilhöggvin eða tilsniðin og
merkt saman og síðan byggð á
Við bjóðum ykkur timburhús eft-
ir þessari gömlu og margreyndu
aðferð með aðstoð nýjustu
tækni.
staðnum.
\/m*i AVh
SÖLUAÐILI í RVÍK: FASTEIGNASALAN HÁTÚN
NOATUNI 17
vogum - SIMI 21870 OG 20998.
SÍMI 92-6670 OG 53125.
TRAUSTIR HLEKKIR í
SVEIGJANLEGRI KEÐJU
Afgreiðslur okkar og umboðs-
menn eru sem hlekkir í keðju.
Samband við einn þeirra gefur
möguleika á tengingu við alla
hina og þar með geturðu notfært
þér sveigjanlega þjónustu, bæði
hér á landi og erlendis.
Við bjóðum bílaleigubíla til lengri
eða skemmri tíma og fjöldi
afgreiðslustaða gerir viðskipta-
vinum mögulegt að fá bíl
afhentan á einum stað og skila
honum á öðrum.
Borgarnes: 93- 7618 Húsavík: 96-41260/41851
Blönduós: 95- 4136 Vopnafjörður: 97- 3145/ 3121
Sauðárkrókur: 95- 5223 Egilsstaðir: 97- 1550
Siglufjörður: 96-71489 Höfn Hornafirði: 97- 8303/ 8503
interRent
Reykjavík: Skeifan9 91-86915/31615
Akureyri: Tryggvabraut 14 96-23515/21715