Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Qupperneq 21
DV. FIMMTUDAGUR10. MARS1983. 21 . Fæðingarorlof 1982:76,5 mill jónir vegna 4.266 fæðinga Tillaga um að jafna rétt til fæðingarotiofs Þrír þingmenn Framsóknarflokks- ins hafa lagt til á Alþingi að réttur til fæöingarorlofs veröi jafnaöur. Þeir leggja til aö lífeyrisdeild Trygginga- stofnunar ríkisins greiði hér eftir þriggja mánaöa fæðingarorlof allra foreldra, hvort sem þeir eru í laun- uöum störfum á vinnumarkaöi eöa ekki. Samkvæmt gildandi lögum er þessi réttur bundinn atvinnuþátttöku. Er henni skipt í þrjá flokka og eftir því kerfi eru greiddar fullar bætur, 2/3 og 1/3.1 lægsta flokki eru meöal ann- ars heimavinnandi foreldrar. Foreldrar þurfa aö leggja fram læknisvottorö og vottorð um atvinnu- þátttöku síðustu 12 mánuði í hverju tilviki. Er því mikil skriffinnska samfarakerfinu. I greinargerö meö frumvarpi framsóknarmannanna er skýrt frá því aö 1982 hafi greiðslur vegna fæð- ingarorlofs frá Tryggingastofnun- inni numið 76,5 milljónum króna. Ur sömu upplýsingum má lesa aö ef all- ir foreldrar heföu fengið fullar orlofsgreiðslur á því ári hefði það hækkaö greiðslur trygginganna um nærri 22 milljónir króna. Flutningsmenn frumvarpsins eru Alexander Stefánsson, Ölafur Þ. Þórðarson og Stefán Valgeirsson. HERB Brynja Tomer viö tvö verk á sýningunni. Listahátíð verslinga I Verslunarskólanum var í síðustu viku listahátíö. Var öll kvöld vikunnar boðið upp á fjölbreytta dagskrá, svo sem tónleika, kynningu á islenskum kvikmyndum o.fl. o.fl. Þaö sem þó vakti mesta athygli og hrifningu var flutningur á söngleik sem saminn er af 2 nemendum skólans, þeim Brynju Tomer og Einari Sigurðssyni ásamt 2 drengjum sem ekki stunda nám í skólanum. Söngleikurinn, sem nefnist „Illgresiö víöförla”, f jallar um hræsni, vald og afleiðingar hvors tveggja fyrir einstaklinginn. Undirtektir voru slíkar að líklegt er að haldin veröi a jn.k. ein opinber sýning á „nigresinu” síðar í vetur, og hefur Hafnarbíó komiö til tals sem sýningarstaður. I tilefni listahátíöar var efnt til myndasamkeppni og stendur nú yfir sýning á innsendum myndum á kaffi- húsinu Mokka. Samtals eru 40 myndir á sýningunni eftir 9 höfunda og eru sumar þeirra til sölu. Verð myndanna er miöaö við aö um ólærða listamenn er aö ræða. Sýningin er fersk vegna hinnar miklu fjölbreytni, en á henni eru ljósmyndir, teiknaðar myndir og málaöar myndir í lit og í s vart-hvítu. Fjölmiðlakönnunin: Löður var vinsælast —táningar og eldri konur í dreifbýli áhugasömust um Dallas Stærsti hópurinn sem liorfði á" Lööur var á aldrinum 13 til 19 ára og voru hlutfallslega fleiri í þéttbýli en dreifbýli. Stærsti hópurinn sem horföi á Dallas var á aldrinum 13 til 15 ára en næst kom aldurshópurinn 50 ára og eldri. Konur voru í meirihluta áhorf- enda þessa þáttar og einnig var mun meiri áhugi fyrir honum í dreifbýli en þéttbýli. Á ensku knattspymuna á laugardög- um horfðu 22,16% þeirra sem spurðir voru, eöa helmingi færri en horfðu á auglýsingar aö loknum fréttum þann dag. Áhugi fyrir ensku knattspymunni virtist fara minnkandi meö auknum aldri áhorfenda og vera mun meiri í þéttbýli en dreifbýli. Þá má geta þess aö helmingur að- spuröra á aldrinum 50 ára og eldri horföi á Stundina okkar. ÖEF 66,02%.; Sunnudagshugvekjan er það efni sem fæstir horfa á af sunnudagsdag- skrá sjónvarpsins, aö því er fram kem- ur í fjölmiölakönnun sambands auglýs- ingastofa. Könnunin náöi til allra dag- skrárliða vikuna 31. október til 6. nóvember síöastliðinn. Af þeim sem spurðir vom horf öu 25 % á sunnudagshugvekjuna, en rúmlega 47% horföu á Stundina okkar sem var næst á dagskránni. Þegar kom aö frétt- um og veðurfregnum voru 70,96% aöspurðra sestir viö sjónvarpið. Vinsælasti þátturinn í sjónvarpinu þessa vikuna var Löður sáluga sem 74,10% horfðu á, síðan komu fréttir á sunnudegi, Tommi og Jenni komu i þriðja sæti með 70,83%, Dallas í fjórða meö 69,01% og síðan Félagsheimiliö meö 67,66%. Þar á eftir kom þátturinn Sjónvarp næstu viku meö FRÁBÆRGÆÐI FRÁBÆRT VERÐ Ótrúlegt tilboðsverð C-60 mín £7^.- 165.- á SONY METALL kasettum. C-46 mín 2J&.- 145.- SONY METALL færðu á kynningarverði hjá: REYKJAVÍK Japís Brautarholti 2, Hljóðfærahús Reykjavlkur Laugavegi 96, Grammið Hverfisgötu 50. Stuö Laugavegi 20, Sterió v/Tryggvagötu. HAFNARFJÖRÐUR Kaupfélag Hafnarfjarðar Strandgötu. AKRANES Stúdióval Skólabraut 12, Bókaverslun Andrésar. KEFLAVÍK Studeo HÚSAVÍK Bókaverslun Þórarins Stefánssonar ÍSAFJÖRÐUR Epliö. BOLUNGARVÍK Verslun Einars Guðfinnssonar. SEYÐISFJÖRÐUR Kaupfélag Héraösbúa. AKUREYRI Radiovinnustofan Kaupvangi. Tónabúðin. BENIDORM LONDON AMSTERDAM Páskaferð 30. mars — 2 vikur. Beint dagflug í sólina á Benidorm. Verð frá 11.900,- Kynnið ykkur FM-greiðslu- kjörin. Pantiðtimanlega. Páskaferð 29. mars — 7 dagar. Góð gisting á ýmsum stöðum í borginni. Verð frá 8.787,- Innifalið flug — gist- ing m/morgunverði. Auk páskaferð- ar bjóðum við vikuferðir alla þriðju- daga og helgarferðir alla fimmtu- daga. Páskaferð 29. mars — vikuferð. Góð gisting. Verð frá 8.494,- Innifalið flug — gisting m/morgunverði. Auk páskaferðar bjóðum við vikuferðir alla þriðjudaga og helgar- og viku- ferðirallaföstudaga. BJARNI D JÓNSSON AUGL TElKNlSTOFA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.