Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Blaðsíða 35
DV. FIMMTUDAGUR10. MARS1983.
35
Sandkom___________ Sandkorn _______________Sandkorn
Velkomin,
velkomin ...
Nýjasta og vitlausasta
auglýsing innheimtudeildar
Ríkisútvarpsins hefur valdið
mörgum hellabrotum. Eftir
að hafa séð nefnda auglýs-
ingu þrjú kvöld í röð ákvað
húsmóðir ein í Reykjavik að
fara nú að borga afnotagjöld-
in, sem eru auðvitað gleðileg
tiðindi. En, hún ætlar að fara
í banka og f á upphæðina alla
í tiköllum, fara síðan upp á
innheimtudeild og standa þar
á þröskuldinum, fleygja
seðlunum upp í loftið og væla:
„Velkomin, velkomin...”
Útlendinga?
Til hvers?
Sinfóníuhljómsveitin ætlaði
norður til Akureyrar með
hljómleikauppfærsluna á
Tosca en eitthvað mun hafa
gengið ilia að ná samkomu-
lagi um leigu fyrir íþrótta-
höUina nýju, og fannst stjórn
Sinfóníuhljómsveitarinnar
hún fuUhá. Frá þessu sagði í
Degi, því ágæta blaði KEA,
og i greininni sagði m.a.: „
... er flytja átti Tosca og
Kristján Jóhannsson meðal
flytjenda”.
Sagt er að Akureyringur
nokkur hafi lesið þessa frá-
sögn og lýst gieði sinni yfir
því að Kristján ætlaði að
koma heim, en það væri alveg
ástæðulaust að flytja ein-
hverja söngvara norður með
honum sem enginn þekkti,
eins og þennan Tosca.
Eftir
útborgun
Það er ekki ofsögum sagt af
Hafnfirðingum. í Morgun-
blaðinu var nýlega auglýst
Hafnarfjörðuri
Til sölu m.a. I
Hæðarbyggö, Garöabæ H
Glæsilegt, nýlegt 200 fm elnbýl-H
ishús. Tvöfaldur bílskúr.
Sléttahraun
2ja herb. endaíbúö á 1. hæö íH
tjölbýlishúsi. Bilskúr fylgir. VeröH
900—1950 þús.
Suöurgata
3ja herb. falleg íbúö á 1. hæö ífl
fjölbýlishúsi. Verö kr.H
1100—1200 þús.
Álfaskoiö
tveggja herbergja U)úð við
Sléttahraun ásamt með-
fylgjandi bflskúr. Og verðiö á
íbúðinni átti að vera 900 tU
1950 þúsund krónur. Ætli það
eigi ekki að ráðast dálítið af
útborguninni, hvert end-
anlega verðið verður.
Flugleiðir
vara við ...
Það hefur vakið athygli að
Flugleiðir hafa birt heUsíðu-
auglýsingar í Morgunblaðinu
upp á síðkastið þar sem veist
er að ýmsum fyrirtækjum.
Þannig var nú fyrr í vik-
unni bent á það, að sjálfsögðu
með fyUstu hógværð og al-
gerrar hlutlægni gætt, að í
rauninni væri það stórfeUt
hættuspU að taka sér far með
bUaferjum, svo sem Eddu,
nýja skipinu sem Eimskip og
Hafskip reka í sameiningu.
Og í gær birtist önnur aug-
lýsing þar sem Flugleiðir
vara við því hversu léleg
varahlutaþjónusta Saab sé í
Evrópu, þó sérstaklega
hversu erfitt sé að fá efri
kúplingsdælu í Saab 99 í
Suður-Evrópu.
Einhvern veginn finnst
manni eftir lestur þessara
auglýsinga að það sé ekkert
öruggt nema Flugleiðir.
Skrýtið, ekki satt?
Tímaskekkja
í Tímanum birtist miðviku-
daginn níunda mars þessi
auglýsing um fund fulltrúa-
ráðs Framsóknarflokksins í
Reykjavík. Á fundinum átti
að skipa framboðslista
Framsóknar í Reykjavik. En
skv. auglýsingunni átti fund-
urinn að fara fram kvöldið
áður en hún birtist. Er það
kannski hugsanlegt að Fram-
sókn bjóði ekki fram í næstu
kosningum?
Umsjón:
Ólafur B.
Guðnason
Kvikmyndír Kvikmyndir
Kvikmyndir Kvikmyndir
Stjörnubíó: — Maðurinn með banvænu linsuna
Hinn eini sanni sjón-
varpsmaður, eða...
Heiti: Maðurinn með banvænu linsuna (Wrong
Is Right)
Leikstjórn og handrit: Richard Brooks.
Kvikmyndun: Fred J. Koenekamp.
Tónlist: Artie Kane.
Aðalleikendur: Sean Connery, George
Grizzard, Robert Conrad, Katharine Ross,
John Saxon, Leslie Nielsen og Hardy Kruger.
Það er ekki fráleitt að láta sér
detta í hug tvær vél þekktar myndir
sem hugmynd að Manninum með
banvænu linsuna. Eru þaö
myndirnar Dr. Strangelove og
Network, báðar mjög góðar myndir,
þótt ólíkar séu og að vísu miklu betri
en Maöurinn með banvænu linsuna.
Við skyggnumst inn í heim banda-
ríska sjónvarpsins þar sem fréttir
eru fréttir ef nógu mikill óhugnaður
er sýndur og einnig er litið inn í
Hvíta húsið í Washington þar sem
ákvaröanir eru teknar eingöngu í
þágu þeirra sem stjórna í það
skiptiö.
Myndin segir frá Patrick Hale
(Sean Connery) sem er vinsælasti
fréttaskýrandi bandaríska sjón-
varpsins, maöur sem ekki vílar fyrir
sér aö leggja sig í alls konar hættu til
aö afla frétta.
Þessa stundina er hann staddur í
ónafngreindu arabaríki þar sem
hatur er mikiö í garö Bandaríkja-
manna en olían er mikil og veröa
Kanamir aö halda aö sér höndum.
En ýmsir atburðir veröa til þess aö
hætta á kjamorkustríöi vofir yfir og
forseti Bandaríkjanna er neyddur til
að fyrirskipa morö á arabahöföingj-
anum og eftir þaö snýst myndin í
gamni og alvöru um leit aö tveimur
feröatöskum sem innihalda tvær
kjarnorkusprengjur. Og hjóiin fara
virkilega aö snúast þegar tilboð-
unum rignir yfir vopnasalann.
Það er oft spurning hvort á aö
taka Manninum meö banvænu
linsuna alvarlega eða hvort um
gamanmynd sé að ræöa þar sem
svörtum húmor er beitt heföi hún aö
mínum dómi heppnast betur. Gallinn
viö myndina er aö hún hefur hetju í
gervi Sean Connery. Þaö er stundum
sem manni dettur í hug James Bond
þegar hann á í hlut, slík er yfirferöin
á honum.
Miklu betri eru senurnar í Hvíta
húsinu þar sem greinilega er verið
aö leika í gamanmynd. Koma þar
fyrir margar kunnuglegar persónur.
Hershöfðinginn, sem ekkert vill
annaö en eyöa öllum aröbum af yfir-
borði jaröar á fimm klukkutímum,
blaöafulltrúinn, sem játar hvaöa
vitleysu sem forsetinn segir,
yfirmaöur CIA, sem ætlar ekki aö
láta forsetann negla sig á einhverju
sem hann hefur skipaö fyrir en
neitar svo aö hafa sagt, og svo for-
setinn sjálfur, sem mestalla
myndina er í æfingagalla viö trimm-
æfingar á hjóli og býöur mönnum
upp á gulrótardjús.
Heföi myndin öll veriö í þessum
dúr heföi veriö hægt aö líkja henni
viö Dr. Strangelove en því miður er
jafnmiklum tíma eytt í aö lýsa
baráttu sjónvarpsmannsins við aö
ná fréttum og virðist hann alltaf vera
á réttum staö og ekki þurfa kvik-
myndatöku- eöa hljóðmann sér til
aðstoðar, gerir þetta allt einn og fer
léttmeöþað.
Það er þessi hetjudýrkun sem ekki
passar viö þessa mynd og fyrir
bragöiö veröur hún nokkuð ruglings-
leg. Þrátt fyrir þetta stórvægilega
misræmi í handriti myndarinnar er
hún sjaldan leiðinleg á aö horfa.
Atburöarásin er mjög hröö og oft á
tíöum spennandi. Það er bara þaö aö
maður hefur alltaf á tilfinningunni
aö myndin heföi getað oröiö miklu
’betri.
j Leikstjórinn og handrits-
höfundurinn Richard Brooks er
gamalkunnur kappi en virðist'
eitthvaö vera aö gefa sig ef miðað er
við hans bestu myndir er flestar voru
geröar á sjöunda áratugnum.
Myndir eins og Cat on a Hot Tin
Roof, Sweet Bird of Youth, Elmar
Gantry og In Cold Blood munu
'sjálfsagt halda nafni hans á lofti
meðal kvikmyndaáhugamanna en
Maðurinn meö banvænu linsuna er
nokkuð frá því besta sem hann hefur
áöur gert og er í heild í besta lagi
ágæt afþreying. -Hilmar Karlsson.
Sean Connery — Maöurinn meö banvænu linsuna.
Landburður þorsks í Færeyjum?
„Alger misskilningur”
— segirJón Jónsson
„Þær fregnir aö landburöur af
þorski hafi verið í Færeyjum eru
alrangar og byggðar á misskiln-
ingi,” sagöi Jón Jónsson, forstööu-
maöur Hafrannsóknastofnunar, í
viðtali við DV í gær. Orðrómur
þessa efnis hefur veriö á kreiki aö
undanförnu og var sagt aö hér væri
á ferðinni ’76-árgangurinn.
„Þaö birtust fréttir í færeyskum
blöðum um sæmilegt ufsafiskirí og
þaö hefur greinilega skolast eitt-
hvað til. Þorskveiöar í Færeyjum
hafa hins vegar ekki veriö neitt
meiri en gerist og gengur á þessum
árstíma, aö því er mér er sagt
þaðan.
Yngri fiskur, svo sem þessi um-
ræddi árgangur, kemur yfirleitt
ekki fyrr en seinna á vertíðinni og
hér er alls ekki um hann aö ræöa. ”
Hér er því sýnilega á ferö dæmið
um fjöörina sem varö aö fimm
hænum, eöa réttara sagt ufsana
sem uröu aö heilum þorskárgangi.
-PÁ
Kattavinafélagið:
Merktum köttum
er aldrei lógað
„Okkur hjá Kattavinafélaginu er
ekki kunnugt um aö ómannúðlegt
kattadráp viögangist í Kópavogi.
Viö höfum góö samskipti viö heil-
brigðisfulltrúa Kópavogs og vitum aö
hann er mjög samviskusamur maður,
svo og þeir menn sem annast aflífun
villtra katta.
Ef kattaeigendur eru hræddir um aö
köttum þeirra veröi lógað í misgripum
fyrir villta ketti skal þeim ráölagt að
merkja þá. Merktum köttum er aldrei
lógaö. Lendi slíkur köttur í búri er hon-
um ævinlega sleppt.”
Þannig hljóðar yfirlýsing sem Svan-
hildur Löve, formaöur Kattavina-
félags íslands, kom á framfæri viö DV
í gær vegna frétta um ómannúðleg
kattadráp í Kópavogi.
JGH
PANTANIR
Sími
13010
HÁRGREIÐSLU-
STOFAIM
KLAPPARSTÍG 29
Nauðungaruppboð
veröur á neðangreindum eignum Helluprents hf. fimmtudaginn 17.
mars 1983 kl. 14 að kröfu Hafsteins Sigurðssonar hrl. og innhcimtu-
manns ríkissjóðs að aðsetri Helluprents hf. við Suðurlandsveg, Hellu,
og eignirnar eru:
4 prentvélar, tvær af gerðinni Heidelberg og tvær af gerðinni Ábast og
skurðhnífur, tegund Ábast, setjaravél, tegund Monotype, og ljós-
myndatæki frá Optima, tegund Duplomat, C9 Compugrapic Compu
Editwriter 7700 töivusetjari, Recpoplan Duplomat plötukassi og Ádast
Domina 714 offsetprentvél.
Sýslumaðurinn í Rangárvallasýslu.