Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Qupperneq 36
36
DV. FIMMTUDAGUR10. MARS1983.1
Guörún Guöjónsdóttir lést 3. mars.
Hún fæddist 19. ágúst 1905 í Framnesi í
Vestmannaeyjum, dóttir hjónanna
Guöjóns Jónssonar og Nikólínu Guöna-
dóttur. Eftirlifandi eiginmaöur hennar
er Þóröur Guöbrandsson. Þeim varö 6
barna auöiö. Bálför Guðrúnar veröur
gerö frá Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Árni Magnússon verkstjóri, Goða-
byggö 7 Akureyri, andaöist 7. mars.
Eiríkur Kr. Gíslason lést í hjúkrunar-
deild Hrafnistu þann 9. mars sl.
Björgvin Jónsson, Blönduhlíö 29, lést í
Landspítalanum 9. mars.
Hersilía Sveinsdóttir frá Mælifellsá
verður jarösungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 11. mars kl. 15.
Baidrún Laufey Árnadóttir frá Hrísey
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 11. mars kl. 13.30.
Guörún Pálsdóttir, Rauöholti 11 Sel-
fossi, verður jarösungin frá Selfoss-
kirkju laugardaginn 12. mars kl. 14.
Helgi T.K. Þorvaldsson skósmíöa-
meistari, Langageröi 54, veröur jarö-
sunginn frá Bústaöakirkju föstudaginn
ll.mars kl. 15.
Messur
Neskirkja
Föstuguösþjónusta í kvöld kl. 20. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Fundir
Digranesprestakall
Kirkjufélagiö heidur fund i safnaöarheimilinu
viö Bjarnhólastíg fimmtudaginn 10. mars ki.
20.30. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson veröur gestur
fundarins. Kaffiveitingar.
Fproyingafélagið í Reykjavík
heldur kvöldvöku vis rast kjut og súpan og
hangikjöti ieygarkvuldiö 12. mars kl. 21 í húsi
Kjöts og fisks aö Seljabraut 54. Upplýsingar
mált. 24825 og 73897.
FR félagar
muniö eftir spilakvöldinu í kvöld kl. 20.30 aö
Síðumúla 2.
Skemmtinefndin.
Skaftfellingar
Spilakvöld veröur í Skaftfellingabúð, Lauga-
vegi 178, laugardaginn 12. mars og hefst kl.
21. Tríó Þorvaldar leikur fyrir dansi.
Vinningar í
Goðahappdrætti
Nr. 561
Nr. 1741
Nr. 1824
Nr. 663
Nr. 175
Nr. 2179
Nr. 441
Nr. 1641
Nr. 363
Nr. 1173
Upplýsingar í síma 86366.
Ráðstefna
á vegum verkfræði- og raunvísindadeildar
Háskóla Islands. Dagana 11.-12. mars 1983
verður haldin á vegum verkfræöi- og raun-
vísindadeildar Háskóla Islands ráöstefna um
menntun og rannsóknir í sjávarútvegi. Þátt-
takendur á ráðstefnunni veröa um 70 talsins
og er stefnt aö því að þeir veröi frá sem flest-
um sviðum sjávarútvegs og er þeim sérstak-
lega boðiö.
Norðmenn hafa haft háskólakennsiu í
sjávarútvegsfræðum síðan 1972 og
rannsóknarstofnanir þeirra eru á meðal
fremstu á þessu sviði.
Til þess að gera grein fyrir hvernig þessum
málum er háttaö í Noregi hefur ráöstefnan
fengiö hingaö til lands tvo Norömenn, þá
Arne M. Bredesen prófessor og dr. Torbjorn
Digernes.
Ráðstefnan hefst í Norræna húsinu föstu-
daginn 11. mars kl. 09 með ávörpum
Guðmundar K. Magnússonar háskólarektors
og Steingríms Hermannssonar sjávarútvegs-
ráöherra.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Helgarferð 11.—13. mars. Föstudag 11. mars
kl. 20 verður farin skíöa- og gönguferð í
Borgarfjörð. Gist í Munaðarnesi. Farið á
skíðum á Holtavörðuheiöi. Farmiöasala og
allar upplýsingar á skrifstofunni.
Dagsferðir sunnudaginn 13. mars:
1. kl. 10 Norðurhlíöar Esju — gönguferð. Verö
kr. 150.
2. kl. 13 Hvalfjarðareyri — fjöruganga. Verö
kr. 150. Fariö frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiöar viö bíl. Frítt fyrir
börn í fylgd fulloröinna.
Aðalfundur
Ferðafélags íslands
veröur haldinn þriöjud.15. mars kl. 20.30,
stundvíslega, á Hótel Heklu, Rauðarárstíg 18.
Venjuleg aöalfundarstörf. Félagar þurfa aö
sýna ársskírteini 1982 viö innganginn. Aö
fundi loknum sýnir Björn Rúriksson myndir
frá Islandi.
Árshátíðir
Breiðfirðingafélagið
heldur sína árlegu árshátíö í félagsheimili
Seltjamarness laugardaginn 12. mars kl. 19.
Veislustjóri er Árni Björnsson þjóöháttafræö-
ingur. Heiöursgestir veröa hjónin Siguröur
Markússon framkvæmdastjóri og Inga Árna*
dóttir. Dagskrá hátíöarinnar: Ávarp for-
manns, Eggerts Kristmundssonar, ræöa, Sig-
urður Markússon. Söngur Karlakórs Reykja-
víkur. Gamanmál, Dóra Valdimarsdóttir.
Lúdó og Stefán leika fyrir dansi. Breiöfiröing-
ar f jölmenniö.
Árshátíð Útivistar
Útivistarferðir, Lækjargötu 6, sími 14606,
símsvari utan skrifstofutima. Árshátíö Oti-
vistar verður haldin í Garðaholti 12. mars kl.
19.30. Takið nú fram spariskapið, látið ekkert
aftra ykkur og munið eftir dansskónum, rútu--
ferð frá BSl kl. 18.30. Takið miða sem fyrst á
skrifstofunni.
Sunnudagur 13. mars kl. 13. Innsti dalur —
heiti lækurinn (bað). Þeir sem hafa ekki
komið á Hengilssvæðið ættu að nota tækifærið
núna. Verð kr. 150. Brottför frá BSt, bensín-
sölu, stoppað hjá barnaskólanum neðra
Breiðholti og Shell bensínstöðinni Árbæjar-
hverfi. Sjáumst.
85 ára er í dag, 10. mars, frú Þuríöur
Magnúsdóttir frá Isafiröi. Hún bjó þar
til ársins 1934, en mann sinn, Baldvin
Sigurðsson frá Bolungarvík, missti
hún áriö 1928. Síöar bjó hún á Selfossi
með síðari eiginmanni sínum, Þorgils
Tryggva Péturssyni. Þuríöur er nú
vistmaður á Hrafnistu, en verður í
dag, á afmælisdegi sínum, hjá syni sín-
um, Magnúsi Baldvinssyni, og tengda-
dóttur, í Ásenda 9 í Rvík.
Áttræð varð sunnudaginn 13. febrúar
frú Bjarney Helgadóttir frá Múla í
Aðaldal, nú til heimilis að Ágarðsvegi 3
á Húsavík. Eiginmaöur Bjarneyjar
var Kristinn Bjarnason, múrarameist-
ari, sem lést fyrir mörgum árum. Þau
eignuðust 5 böm og eru 4 þeirra á lífi.
Rolf Johacsen stórkaupmaður er
fimmtugur í dag. Hann er sonur
Thulins Johansen og Þorgerðar Þór-
hallsdóttur. Rolf nam við Samvinnu-
skólann en hefur í mörg ár fengist við
hvers konar innflutning. Hann er
kvæntur Kristínu Ásgeirsdóttur og
eiga þau 6 böm.
Bruninn í Hlíðarf jalli:
Efri lyftan af
stað í gærkvöldi
Skíðalyfturnar í Hlíðarfjalli viö
Akureyri eru aftur komnar á fulla
ferð eftir brunann sem varð í stjórn-
stöðinni þar í síöustu viku. Hef ur ver-
ið unnið að bráðabirgðaviðgerð síðan
og komst efri lyftan af stað í gær-
kvöldi.
Neðri lyftunni var komið í gang
strax daginn eftir brunann svo starf-
semin í Hlíðarfjalli stöðvaðist aldrei
alveg. Er búiö að panta nýja stjórn-
stöð og er hún væntanleg til landsins
einhvern næstu daga.
Mjög góður skíðasnjór er í Hlíöar-
fjalli og er búist við að þar veröi
margt um manninn um helgina nú
þegar lyfturnar em aftur komnar í
gang.
-klp-
Skákmótið í Tallin:
JÓN L SÍGUR Á
Jón L. Árnason gerði jafntefli við
ungverska, alþjóölega meistarann
Szekely í 12. umferð skákmótsins í
Tallin í gærkvöldi. Hafði Jón hvítt en
Ungverjinn tefldi Najdorf afbrigði
Sikileyjarvamar og hélt uppi svo
þéttri vörn að Jón varö aö taka jafn-
tefli eftir góða viðleitni. Biðskák
Jóns viö Ehlvest úr 9. umferð lauk
meðjafntefli.
Eftir em 3 umferöir og mun Jón þá
tefla við Abramovitsj frá Júgóslavíu,
heimsmeistarann fyrrverandi,
Petrosjan, og Kamer frá Eistlandi.
Efstur er nú Vaganjan með 9 v., 2.
Tal með 8,5 v., 3. Ehlvest, sem er
Evrópumeistari unglinga, með 7,5
v., 4. Oll meö 7,0 v. OIl þessi er 16 ára
gamall Eistlendingur og hefur
frammistaöa hans vakið mikla at-
hygli. Þykir sýnt aö þar sé fram
komið mikið meistaraefni. Jón er í 9.
sæti ásmt öðmm með 5 v.
-BH
Konsert á Borginni
I kvöld, fimmtudagskvöld, verður konsert á
veitingahúsinu Borg frá kl. 21—01. Þar koma
fram hljómsveitirnar Hazk, Iss! og
HAUGUR. Hazk hefur komið fram einu sinni
áður, á rokkhátíð í M.S. Iss! er ný hljómsveit
sem Einar öm fyrrum forsprakki Purrks
Pilniks stofnaði. Loks er það HAUGUR.
Meðlimir HAUGS eru Einar Pálsson (Jonee
Jonec, Spilafifl) Helgi Pétursson, okkar maður
á Húsavík, Heimir og Bergsteinn, sem sá um
bassa og trommur í Jonee Jonee. Hér er á
ferðinni stórviðburður. Aldurstakmark 18 ár.
Forsala miða í Stuðbúðinni.
Mál og menning kynnir
nýjung í skólaútgáfum
Mái og menning hefur hafið útgáfu á hand-
hægum bókmenntakverum handa skólafólki
og áhugasömum almenningi. Hvert kver tek-
ur eitt skáldverk til umfjöllunar, gefur upp-
lýsingar um höfund þess, bakgrunn verksins
og annað sem forvitni vekur í sambandi við
tilurð þess eða gerð. Texti skáldverksins fylg-
ir ekki með heldur er gert ráð fyrir að lesend-
Frá Leikfélagi Hveragerðis
A morgun, föstudaginn 11. mars nk., frum-
sýnir Leikfélag Hveragerðis hinn sívinsæla
gamanleik „Deleríum Búbónis” eftir þá
bræður Jónas og Jón Múla Árnasyni í Hótel
Hveragerði kl. 21.00. Leikstjóri er Ragnhildur
Steingrímsdóttir, sem einnig gerði leikmynd.
Alls taka um 20 manns þátt í sýningunni en
hlutverk eru níu talsins. Með helstu hlutverk
fara: Hjörtur Már Benediktsson, Kristín
Jóhannesdóttir, Margrét Ásgeirsdóttir,
Garðar Gíslason og Magnús Stefánsson.
Þetta er í annað sinn sem L.H. sýnir
Deleríum Búbónis, í fyrra skiptið leikárið
1966—1967 og var þá frumsýnt 24. nóv. 1966.
Leikstjóri þá var Gísli Halldórsson.
Til gamans má geta þess að í þessari
sýningu er 2 félagar með sem einnig tóku þátt
í hinni fyrri, Aðalbjörg M. Jóhannsdóttir, sem
fer nú með hlutverk Siggu vinnukonu en fór
áður með hlutverk frúarinnar, og svo undir-
leikarinn, Theodór Kristjánsson, sem er nú
með í annað skipti.
L.H. vill hvetja alla til að sjá þessa sýningu,
en áformað er að sýna næst sunnud. 13/3,
þriðjud. 15/3 og fimmtud. 17/3, að venju verða
svo dagsýningar fyrir böm og svo hin hefð-
bundna sýning fyrir ellilífeyrisþega búsetta í
Hveragerði.
Einnig vill L.H. koma því á framfæri þvílíkt
ófremdarástand ríkir í húsnæðismálum fyrir
svona félagsstarfsemi þar sem Hótel Hvera-
gerði er lokað og eingöngu með því að taka
hótelið á leigu um tveggja mánaöa tímabil
var gerlegt að koma þessari sýningu á f jalim-
ar. Má segja að það sé í mikið ráðist af svo
litlu félagi. Það er eindregin von Leikfélags
Hveragerðis að úr þessum málum rætist sem
fyrst.
ur nálgist hann á bókasöfnum eöa í heimahús-
um.
Tvö kver eru komin út, annað með skáld-
sögu Guðlaugs Arasonar, Pelastikk, en hitt
með hinu mikla verki Halldórs Laxness, Sjálf-
stætt fólk.
Gunnlaugur Ástgeirsson skrifar kverið með
Pelastikk og leggur áherslu á að skýra fyrir
lesendum það í sögunni sem lýtur að sjó og
fiskveiðum. Stór teikning er í opnu kversins af
70 tonna eikarbát með nákvæmum skýringum
og auk þess eru þar teikningar af veiðarfær-
um og veiðiaðferðum.
Dr. Vésteinn Olason skrifar kverið meö
Sjálfstæðu fólki og leggur áherslu á að veita
lesendum nauðsynlegan fróðleik til að gera þá
færari um að skilja og túlka verkið í sögulegu
samhengi og benda á athugunarefni í textan-
um. I formála segir höfundur m.a.: „Eg held
að lestur skáldsagna eins og Sjálfstæðs fólks
og fjölda annarra geti verið afar mikilvæg
dýpkun að sögulegum skilningi skólanem-
enda, en ef hann á að koma að fullum notum
þarf hvort tveggja að koma til, bókmenntaleg
túlkun, sem leiðbeinir mönnum að skilja rétti-
lega þær samfélagsmyndir sem sagan bregð-
ur upp, og sögulegar skýringar og gagnrýni."
I báöum kverunum eru verkefni til leiðbein-
ingar fyrir kennara og lesendur og ritaskrár.
Kverin eru unnin að öllu leyti í Prentsmiðj-
unniHólum.
I undirbúningi eru bókmenntakver um verk
Jakobinu Sigurðardóttur, Gunnars Gunnars-
sonar, Svövu Jakobsdóttur og Halldórs Lax-
ness.
BELLA
Geymdu allar stjörnuspárnar, svo
að ég geti séð hvað hefur komið
fyrir á meðan ég var í burtu.