Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1983, Side 44
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
Tillaga á aðalfundi
Kópavogsdeildar
KRON:
KRON segi
sig úr SIS
Á aðalfundi Kópavogsdeildar
KRON á þriðjudagskvöld var borin
fram tillaga um að félagið segði sig
úr Sambandi íslénskra samvinnufé-
laga.
I tillögunni, sem borin var fram af
Ottari Yngvasyni, var óskaö eftir því
að stjóm KRON léti kanna hvort rétt
væri að félagið segði sig úr SIS og
stofnaði til sjálfstæðs samvinnusam-
bands neytenda á Islandi. Segir enn-
fremur aö hagsmunir hins almenna
neytanda fari ekki saman við hags-
muni ýmiss konar atvinnurekenda
og framleiðenda, sem séu innan SIS
og hafi atkvæðisrétt langt umfram
höfðatölu.
Öttar Yngvason sagði í samtali við
DV að hann hefði lagt fram tillöguna
af þeirri ástæðu að SIS væri atvinnu-
rekendafélagsskapur, þar sem uppi-
staðan væri bændur og væri í flestu
tekið miö af hagsmunum þeirra. En
hagsmunir framleiöenda og neyt-
enda færu ekki saman í þessum fé-
lagsskap. „Það hefur auk þess tíðk-
ast um langt skeið að rýra tölu neyt-
endasamvinnufélaganna á aöalfund-
um SlS. KEA og KRON hafa bæði 16
fulltrúa á aðalfundi en samkvæmt
höföatölu ætti KRON að hafa helm-
ingifleiri fulltrúa,” sagði Öttar.
Þessi stefnumarkandi tillaga var
felld á aðaifundinum með tíu at-
kvæðum gegn tveimur, en helmingur
f undarmanna sat hjá. ÓEF
EinarBen.
Máliö dómtekið
Meintar ólöglegar veiðar togskips-
ins Einars Benediktssonar voru
dómteknar í Vestmannaeyjum í gær-
kvöldi. Þá lauk rannsókn máisins.
Jón Ragnar Þorsteinsson héraös-
dómari er dómsforseti og mun hann
kveöa upp dóm næstu daga um það
hvort Einar telst fremur bátur eða
togari. DS
Þríríhaldi
Þrír menn eru nú í haldi hjá lög-
reglunni í Reykjavík vegna gruns
um aðild að innbrotum á undanförn-
umdögum.
Að sögn Rannsóknarlögreglu
ríkisins hefur verið nokkuð um inn-
brot að undanförnu. Mennirnir þrír
sem eru í haldi verða yfirheyrðir
frekarídag. -JGH
LOKI
Páll þingflokksformaður
er ekki á því að koma
kollegum sínum í hinum
flokkunum til hjálpar.
Útboð í nýbyggingu Seðlabankans opnuð:
Lægsta tilboð
72,7% afáætlun
— ber vitni um undirboð í verktakabransanum
Lægsta tilboð í næsta áfanga ný-
byggingar Seölabankans viö Arnar-
hól var aðeins 72,7% af áætluöum
kostnaði. Um er aö ræða uppsteypu
og jarðhæð byggingarinnar. Kostn-
aöurinn var áætlaður rúmar 36
milljónir króna en lægsta tilboðiö,
sem var frá Byggðaverki hf., hljóð-
aði upp á 26 milljónir og 200 þúsund.
Hæsta tilboðið var frá Istak hf. aö
upphæð 34,5 milljónir, tilboö Ár-
mannsfells var 31,9 milljónir og til-
boð Steintaks hf. var 31,7 milljónir.
Tilboð þessi þykja bera vitni um
þau undirboð sem nú gerast á verk-
takamarkaðnum vegna verkefna-
skorts. Einn viömælenda blaðsins
sagði að byggingaverktaki sem færi
undir 80% af áætluöum kostnaði væri
að stefna sjálfum sér í gjaldþrot. I
byggingaverkum væri það mikið af
föstum kostnaöarliöum sem ekki
væri hægt aö bjóða niður.
Tilboö í jarðvinnu hafa einnig ver-
ið óvenju lág í vetur vegna verkefna-
skorts á því sviði. Dæmi eru um að
tilboð hafi þar numið aðeins 60% af
áætluðum kostnaði. Utboð í jarð-
vinnu vegna gatnagerðar í Setbergs-
hverfi í Hafnarfirði voru opnuð fyrir
hálfum mánuði og var lægsta tilboðið
frá Hagvirki hf. að upphæð 8,6 millj-
ónir en áætlun bæjarverkfræðings
hljóðaði upp á 13,8 milljónir.
Stefnt er að því að byggingu Seðla-
bankahússins verði lokið á árinu 1986
og hefur byggingartími þá verið
framlengdur um tvö ár.
ÓEF
Þessir geðþekku félagar urðu á vegi Ijósmyndara DV i kjallara Gamla biós i gærkvöld en þá var verið að
reka smiðshöggið á hina skrautlegu sýningu.
DV-mynd: Bj. Bj.
Óperan frumsýnir Míkadó
Islenska óperan frumsýnir annað
kvöld óperettiuia Míkadó eftir Giibert
og Suilivan. Ragnheiður Vigfúsdóttir
hefur þýtt verkið sem gerist í Japan og
eraftagiævintýra.
Leikstjóri erFrancesca Zambello og
leikmynd og ljós eru í höndum Michael
Deegan og Sarah Conly. Þau koma öll
frá Bandaríkjunum. Garðar Cortes
stjórnar tónlistinni.
Með helstu hlutverk í sýningu Is-
lensku óperunnar fara Júlíus Vífili
Ingvarsson, Katrín Sigurðardótt-
ir, Bessi Bjarnason, Kristinn Hallsson,
Hrönn Hafliðadóttir, Soffía Bjarnleifs-
dóttir og Steinþór Þráinsson. Auk
þeirra er kór óperunnar þátttakandi í
sýningunni. pá
Páll Pétursson,
formaður þingflokks
framsóknarmanna:
„Tökum ekki
ábyrgð á
öðrum
kosningum”
— „sem aðallega yrðu
fyrir fallista í
nýafstöðnum
prófkjörum”
„Þótt tillögur hinna þriggja flokk-
anna um samkomudag Alþingis 18
dögum eftir kosningar sé í sjáifu sér
marklaust kjaftæði sýna þó þessir
tilburðir, í samhengi við afstöðu
sömu flokka til stjórnarskrármáls-
ins, að þeir stefna að öðrum kosning-
um strax í sumar,” sagði Páll Pét-
ursson, formaður þingfiokks Fram-
sóknarflokksins, í samtali við DV í
morgun.
„Vald til þess að boða aukaþing er
í höndum forsætisráðherra, en vilji
flokkanna er sá hinn sami þar fyrir.
Við höfum margsagt það og það
stendur að í okkar hópi þykir það
miklu mikilvægara að mynda nýja
ríkisstjórn strax eftir kosningar, ef
það verður þá hægt, til þess aö gera
strax ráðstafanir í efnahagsmálum.
Viö erum ráðnir í að taka ekki
ábyrgð á öðrum kosningum strax í
sumar, sem aðallega yrðu fyrir fall-
ista í prófkjörum og aprílkosningun-
um.”
Þýðir þetta að þingflokkurinn hafi
ákveðið afsögn ráðherra flokksins ef
tillagan um samkomudag næsta
þings 18 dögum eftir kosningar
verður samþykkt?
„Eg vil ekki úttala mig um það,
ekki skýra frá því, en afstaðan er ljós
í þingflokknum, ef tii kemur.”
Það er haft eftir Steingrími Her-
mannssyni, flokksformanni ykkar,
að ykkur hafi lengi langað tii að
losna úrþessaristjórn.
„Eg get ekki tekið undir það, ég
hef ekki unað mér sérstaklega ilia í
stjómarsamstarfinu. Eg hefði þó
viljað að stjómin væri betri og dug-
meiri. Það var ekki ætlunin að horf-
ast í augu við 70% verðbólgu en ég
geri ráö fyrir að orö Steingríms
byggist á því aö árangurinn hefur
látiðásérstanda.”
Tilefiii viötalsins er tillaga Sjálf-
stæðisflokks, Alþýðubandalags og
Alþýðuflokks í báðum þingdeildum
um að ályktað verði um samkomu-
dag næsta þings eftir kosningar.
HERB
Spennubreytingar undir Suðurlandi
„Hægfara spennubreytingar, hæg-
fara hræringar, sem koma reyndar
ekki fram á jarðskjáiftamælumheld-
ur á ákveðnum tegundum af þenslu-
mælum í borholum, bergþenslumæl-
um, hafa komið fram tíu sinnum frá
því í júní í sumar. Upptökin eru
skammt frá Saurbæ í Holtum,” sagði
Ragnar Stefánsson jaröskjálftafræð-
ingur í samtali viö DV um hræringar
undir Suöurlandi.
„Þaö hvarflaði að okkur að þessar
hræringar gætu hugsanlega verið
valdar að vatnsleysi í borholunni að
Laugalandi í Holtum, sem er
skammt frá. Það varð talsverð hrær-
ing sama daginn og seinni dælan bil-
aði í borholunni. Jafnvel tímabundið
vatnsleysi samfara breytingu á hita-
stigi gæti hafa valdið bilun í dælu. En
þetta er hrein ágiskun,” sagði Ragn-
ar.
„Það er ekki hægt að kalla þetta
jarðskjálftakippi. Þetta er mjög hæg
hreyfing, samt mikil. Menn hafa ver-
ið að uppgötva það í seinni tíð að viss
hreyfing jarðskorpunnar fer fram
með hægari hættien jarðskjálftar.”
— Er hægt að tengja þessar berg-
þensluhræringar hugsanlegum
Suðurlandsskjálfta?
„Eg spái ekki Suðurlandsskjálfta.
Maöur getur bara sagt að skjálfti
komi þarna einhvem tímann. Það
geturhvermaður sagt sér. Við vitum
bara ekkert hvenær hann kemur.
Þaö hefur enginn hugmynd um það.
Við vitum bara að hann hefur orðið í
gamla daga. Það hefur engin regla
sýnt sig í því að finna einhvern tíma
fyrir næsta skjálfta. Það hefur engin
regla komið fram,” sagöi Ragnar
Stefánsson.
„Hins vegar má líta á þessa
þenslumæla, sem við höfum sett nið-
ur í borholur á Suðurlandi, sem til-
raunastarfsemi, sem miðar að því aö
geta sagt fyrir um jarðskjálfta í
framtíðinni,” sagöiRagnar.
-KMU