Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Page 2
2 DV. MIÐVIKUDAGUR18. MAl 1983. Krístna heimsþingið um líf ogfrið: Skorar á kirkjudeild- ir að vinna að f riði Kristna heimsþingiö um líf og friö var haldið í Uppsölum, Svíþjóð, dag- ana 20.—23. apríl sl. Þingið sóttu nær 160 manns, kirkjuleiðtogar og sérfræðingar í af- vopnunarmálum, frá öllumkristnum kirkjudeildum. Frumkvæði að ráðstefnunni átti Olav Sundby, erkibiskup Svía, en aðrir höfuðbiskupar Norðurlanda boðuðu til fundarins meö honum, þar á meðal hérra Pétur Sigurgeirsson semsóttiþingiö. I fundarlok var samþykkt ályktun. Segir þar m.a. „Tilkoma kjarnorku- vopnabúnaöar hefur innleitt nýtt ógnartímabil. Hingað til hafa menn aðeins haft takmarkaða getu til eyði- leggingar þess sem fyrir er, en nú getum við í fyrsta sinn í sögunni þurrkaö út siðmenninguna sem þró- uðhefur veriðumliönaraldir.. I lok ályktunarinnar er áskorun til kirkjudeilda í tólf liðum um að boða frið og efla líf. M.a. eru kristnir menn þar hvattir til að taka ekki þátt í samstarfi sem miðar að undir- búningi kjamorkustyrjaldar, að efla uppeldi til friðar, að boða Jesú Krist í orði og verki sem líf og friö heimsins, að styðja við bakið á einstaklingum, stjórnmálamönnum og hópum sem vinna að friðarstörfum. Að styðja stjórnmálamenn í friðarviðleitni, styðja rétt þeirra sem losna við her- þjónustu af samviskuástæðum, vinna fylgi almennings við málstaö friðar og réttlætis, að hvetja til stöð- ugrar bænar fyrir friði og að hvetja kristna menn til að kanna möguleika á að mótmæla kjamorkuvopnabún- aði á friðsamlegan hátt með því að óhlýðnast borgaralegum fyrir- skipunum. Ályktuninni lýkur ó eftirfarandi: „örlög mannkynsins hanga á blá- þræði. Viö stöndum frammi fyrir val- inu milli lífs og dauða. Við missum samt ekki vonina. Hún felst í hinum upprisna Frelsara, konungi lífsins, sem sigraði dauðann með sínum eigin dauða. Afl hinna öfiugu mun ekki skelfa okkur. Stórbrotin verk- efni efla okkur til dáða. Við örvænt- um hvergi. Við munum biðja og starfa í trú, von og kærleika.” ás Einn hinna mörgu báta sem stunda úthafsrœkjuveiðar i sumar heldur á miöin. Þetta er hinn margumtaiaOi Einar Benediktsson BA sem mikið hefur verið i fráttum á undanförnum mánuðum. DV-mynd VJ isafirði. SÝNINGARFERÐ MEÐ SÍÐUSTU LAPPANA Síðustu Lapplanderbílarnir frá Volvo verða seldir næstu daga á sérstöku verði, aðeins 198.496.00 krónur (gengi 6/5 '83, óyfirbyggðir). Kristján Tryggvason, þjónustustjóri Veltis hf. verður meðtvo glæsilega Volvo Lappa í ferð sinni til umboðsmanna víðsvegar um landið. Aldrei annar eins fjöldi á úthafsrækju j Um tuttugu bátar verða gerðir út | á úthafsrækju frá Isafirði nú í sumar, er það mesti fjöldi sem í áður hefur stundaö þessar veiðar. Veiöisvæðið er aðallega norður af Homi og á Sporðagrunni,alveg úti við miðlínu, og eru bátamir um 12 tímaámiðin. Aflinn hefur verið góður, þetta 15—20 tonn eftir fjögurra daga veiðiferö. Núerkominnísyfiraðal- veiðisvæðið og því hefur afli verið tregari síöustu daga. Rækjan sem veiðist þama er mjög stór og góð, það eru um 150 stykki í kílóinu sem þykirmjöggott. VJ. ísaf. Mezzoforte: Hljómleikaför um Bretland haf in „Ef einhver heldur að þetta sé ein- ar til fjórum sinnum í Hollandi og hver dans á rósum þá er það mikill Belgíu en síöan verður haldið til misskilningur. Við ætlum að reyna Bretlands og leikið þar næsta hálfa þennan hlut í sex mánuði og sjá svo árið. hvemig gengur,” sagðiSteinar Berg Steinar sagði að feröin væri stórt um hljómleikaferö Mezzoforte um og mikið dæmi fjárhagslega og Bretland sem hófst með utanför margir væm um kökuna á mörkuö- þeirra félaga i gærmorgun. umerlendis. Mezzoforte byrjar á að leika þrisv- -SGV Kristján sýnir Lapplander Turbo meö vökvastýri, læstu drifi og innbyggðu spili. Hann kynnir líka möguleika á stálhúsi auk blæjuhúss. Þetta er einstakt tækifæri fyrir bændur og aðra fram- kvæmdamenn, hjálparsveitir og fjallamenn - og alla þá sem vilja notfæra sér þetta einstæða tækifæri. Kristján sýnir Lappana: 18. maí Akureyri 19. maí Sauðárkrókur 20. maí Blönduós Hughes-þyrlan getur iyft allt að eínu tonni ikrók. Hún lyftir þvi venjulegum fólksbil. Albína fær nýja þyrlu Ný þyrla, TF-FIM, hefur bæst i flug- flota landsmanna. Þyrluþjónusta Albínu Thordarson flytur þyrluna, sem er af gerðinni Hughes 500D, inn nýja frá Bandarík junum. Þyrlan er búin 375 hestafla þotu- hreyfli. Hún getur flutt fimm menn, flugmann og fjóra farþega. Farflug- hraði hennar er um 240 kílómetrar á klukkustund, meö flotholtum, en nokkm meiri án þeirra. Albína ótti áður litla þyrlu af Hughes-gerð en hún eyðilagðist, sem kunnugt er, í brotlendingu við sjón- varpshúsið við Laugaveg i fyrra. -KMU. VELTIR HF Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.