Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Page 4
4
DV. MIÐVIKUDAGUR18. MAl 1983.
Um lokunargjöldin hjá Raf magnsveitunni:
Hissa á ósvífni ríkisstarfs-
manna Rafmagnsveitunnar
—segir Áslaug Pétursdóttir í Grundarf irði
„Ég er alveg hissa á ósvífninni hjá
ríkisstarfsmönnum hjá Rafmagnsveit-
unni,” sagöi Áslaug Pétursdóttir í
Grundarfirði í samtali við DV. „Þeir
búa til gjöld á fólkiö eins og lokunar-
gjald upp á 450 krónur. Ef menn eru
með múður við að greiða þá f járhæð er
bara lokað fyrir rafmagnið.
Hér varð maður fyrir þessu hinn 11.
maí. Hann var búinn að borga raf-
magnsreikninginn á eindaga, 19. apríl,
en neitaði að borga lokunargjaldið þar
sem þeir höfðu aldrei lokað. Þá komu
þeir 2 eða 3 og lokuöu umsvifalaust 11.
maí vegna gjaldsins. Ekki nóg með
það heldur var líka lokað hjá nokkrum
sem búnir voru að borga löngu fyrir
eindaga. Þeir opnuðu með semingi
eftir að þeim hafði verið sýnt f ram á að
reikningamir vora löngu greiddir.
Þeir lokuðu líka hjá fólki sem var
með nýfædd böm og sjúklinga og á
manneskju í ljósalampa með raf-
magnsloka,” sagðiÁslaug. JBH.
Lokunargjald án þess að til lokunar komi:
Ergjald fyrir lokunaraðgerðir
— segir Sigríður Ólaf sdóttir, innheimtust jóri Raf magnsveitna ríkisins
„Þetta er gjald fyrir lokunaraðgerð-
ir,” sagði Sigríður Olafsdóttir, inn-
heimtustjóri hjá Rafmagnsveitum
ríkisins, þegar hún var innt skýringa á
lokunargjaldi því sem nokkrir aðilar í
Grundarfirði hafa fengið og sagt var
frá í DV í gær. Þar kom fram aö fólk
hefur fengið 450 króna lokunargjald á
reikninga sem ekki hafa verið greiddir
á eindaga. Hefur engu skipt hvort til
lokunar hefur komið. „Viö túlkum
þetta þannig,” sagði Sigríður, „að við
teljum okkur hafa kostnað af þessum
reikningum vegna þess að þeir eru
greiddir löngu eftir eindaga.” Hún
sagði einnig að þessu hefði verið beitt
meira vegna erfiðleika í innheimtu.
Rafmagnsveiturnar hefðu ekki
dráttarvexti en reyndu að bæta sér það
upp á þennan hátt. „Við túlkum þetta
sem lokunaraðgerðir í víðum skiln-
ingi.”
Talsvert mun hafa verið um þessi
lokunarg jöld víðar en í Grundarfirði en
Sigríður sagði engar kærur hafa borist
vegna þeirra. Fólk hafi þó látið í sér
heyra. Enn hafi ekki til þess komið aö
neitað væri aö greiða lokunargjöldin.
JBH
r
17. maí
Þjódhátídardagur Nord-
manna var í gær, / 7. maí.
Af því tilefni fóru Norð-
menn á íslandi í skrúð-
göngu urn vesturbœinn i
Reykjavík og umhverfis
Tjörnina. Á myndinni má
sjá göngufólk á leið frarn-
hjá Háskólanum, medal
annars sendiherra Noregs
á íslandi, Annemarie
Lorentzen, með barnavagn
á undan sér.
DV-mynd GVA.
HELSTU
TJALD-
STÆÐUM
LOKAÐ
Nú mun orðið ljóst að öllum
helstu tjaldstæðum á Suðurlandi
verður lokað um hvítasunnuhelg-
ina. Land er víðast hvar nýkomið
undan snjó og illa undir þaö búið að
taka við fjölda manna.
Þórsmörk veröur lokuö fyrir
öðrum en þeim sem eru á vegum
ferðafélaga og mun lögregla sjá til
þess að því banni verði framfylgt.
Að sögn lögreglunnar í Ámes-
sýslu er með öllu óhugsandi aö
tjalda á ÞingvÖllum og hjá Laugar-
vatni vegna bleytu og hefur því
verið ákveðið að loka tjaldstæðum
þar.
Mikil óregla var í Húsafelli um
hvítasunnuna í fyrra og mun lög-
reglan í Borgarnesi fylgjast vel
með því að þar tjaldi enginn sem
ekki hefur fengið til þess leyfi hjá
sýslumanni.
Einnig hefur verið ákveðið að
loka tjaldstæðum í Þjórsárdal og
Árnesi.
EA
ÚTIVIST:
Sexferðir
um hvíta-
sunnuna
Ferðafélagiö Utivist efnir til
fjögurra helgarferða og tveggja
dagsferða um hvítasunnuhelgina.
Lagt verður í lengri feröirnar
föstudagskvöldið 20.maíog verður
farið í Þórsmörk og Mýrdal svo og
á Fimmvörðuháls og Snæfellsnes
þar sem jafnframt verður gengið ó
Snæfellsjökul.
Á hvítasunnudag verður farið í
göngu um hraunið fyrir sunnan
Hafnarfjörð. A annan dag hvíta-
sunnu verður gengið á Skarðsmýr-
arfjalláHellisheiði.
Nánari upplýsingar fást á skrif-
stofu Utivistar.
EA
Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði
Maður sem hef ur nógan tíma
Þegar forystumaður fyrir tíu
manna þingflokki Alþýðubanda-
lagsins fær heimild til myndunar
meirihlutastjórnar, liggur alveg
ljóst fyrir, að ekki er verið að fela
honum þetta til að hann myndi
ríkisstjóm því það getur hann ekki.
Hins vegar er það orðin venja, búin
til af forsetaembættinu, að fela
kommúnistum stjómarmyndanir,
þvert ofan í venju annarra lýðræðis-
landa, þar sem kommúnistar hafa þó
verið að ná meirihluta á þjóðþingi
eins og ó ítalíu. Hér þykir henta, af
æðsta valdi landsins, að gefa Svavari
Gestssyni og Alþýöubandalaginu
nokkurt tækifæri til fjölmiðlasnakks
flokknum til framdráttar, því annað
verður þetta ekki. Það stendur nefni-
lega enn óhaggað, að þótt lýöræðis-
ríki verði að umbera kommúnisma,
telja þau ekki fært að veita þeim for-
sjá fyrir lýðræðinu. Til þess era þeir
of yfirlýstir andstæðingar þjóðskipu-
lags sem veitir þeim, sjálfu sér sam-
kvæmt, leyfi til að naga rætur þess.
Forsetaembættið á íslandi er eina
embættið á Vesturlöndum, sem
veitir sér þann munaö aö fela komm-
únistum tilraunir til myndunar ríkis-
stjórna, samkvæmt kenningunni að
allir þingflokkar eigi að fá að reyna.
Það þýðir í raun, að engum er ætl-
andi að mynda ríkisstjórn í fyrstu
umferð. Annars staðar er yfirleitt
hafður sá hóttur á, að þeim sem
taldir era líklegastir til að geta
myndað stjórn er falið að gera til-
raunina. Við einir þjóða höfum efni á
einskonar hringferðum í þessu efni.
Sú regla á meðal annars þátt í þeim
erfiðleikum, sem nú er við að etja, og
hófust með myndun rikisstjórnar dr.
Gunnars Thoroddsens fyrir þremur
áram, en tilraun tO stjórnarmyndun-
ar var einmitt ekki í hans höndum,
þegar öðrum tókst að fleyga Sjólf-
stæðisflokkinn.
SérkennUeg er sú yfirlýsing
Svavars Gestssonar, að hann ætli sér
góðan tíma í viðræður. Steingrímur
Hermannsson lýsti yfir að hann tæki
sér f jóra daga og fékk þó hringingar,
þar sem spurt var hvemig gengi. Ef-
laust hefur Geir HaUgrimsson fengið
hringingar lika, þótt hann værí ekki
nema rúma viku að þreifa fyrir sér.
Hinn góði timi Svavars Gestssonar
gæti þess vegna staðið alveg fram að
1. júní. Hann er sá fyrsti sem reynir
stjómarmyndun, sem tekur sér allan
þann tima, sem hann telur sig þurfa,
frir og frjáls undan oki timasetninga
Steingríms og Geirs, sem eflaust
hafa einblint á dagsetninguna 22.
maí, en þá þurfa ákvarðanir varð-
andi vísitöluna að liggja fyrir skeUi
ekki tuttugu prósent bylgja yfir með
verðhækkunum og gengisfeUingu og
öðra því, sem viö höfum verið vön að
fá í hausinn á þriggja mánaða fresti
aðundanförau.
Það er alveg augljóst hvert stefnir
með þcssum hætti. Vitað er að Al-
þýðubandalagið hefur verið á móti
skerðingu vísitölunnar. Fram-
sóknarmenn fengu að vita af þessari
áráttu í stjómarsamstarfinu og hún
ríkir enn í Alþýðubandalaginu eins
og böl alkóhólistans. Svavar Gests-
son er nú kominn á vettvang sam-
kvæmt ósk forseta. Hann mun að
sjálf sögðu tala við forystumenn allra
flokka og það verður mikið japl og
jaml og fuður. Það er spá Svart-
höfða, að þegar Svavar verður kom-
inn vel fram yfir þau tímamörk, sem
augljós eru, eigi að bjarga einhverju
1. júní, muni hann lýsa yfir að tUraun
hans hafi „mistekist”.
Yfirlýsing hans um að fá frestun á
holskeflunni er ekki trúverðug. Hún
hefði áreiðanlega verið reynd af
þeim Steingrími eða Geir, hefði hún
verið talin fær. Aftur á móti er þetta
góður f jölmiðlamatur í stöðunni. Nú
verður á það látið reyna hvort
Svavar Gestsson einn getur það sem
hann neitaði að gera í ríkisstjóra dr.
Gunnars. Hlýði launþegahreyfingin
herra sinum í einu og öUu, þá þarf
auðvitað ekki að vera að mynda
rikisstjórair. Svavar Gestsson getur
þá orðið sá Stalín, sem launþega-
hreyfingin setur aUt sitt traust á. Og
þá verða frestirnir ekki einn
mánuður heldur hundrað þúsund
mánuðir og aUir með öfugum for-
merkjum.
Svarthöfði.