Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Blaðsíða 8
8
DV. MIÐVIKUDAGUR18. MAI1983.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Sautján
þúsund
börn
blindast
árlega í
Bangla-
desh
Að minnsta kosti 17 þúsund börn
missa árlega sjónina í Bangladesh
vegna þess að þau fá ekki nóg A-víta-
mín, samkvæmt því sem heilbrigðis-
ráðherra Bangladesh segir.
„Hér verður strax að grípa til rót-
tækra ráöa áður en meiri vandræöi
hljótast af,” sagði Shamsul Huq hers-
höfðingi á heilbrigðisráðstefnu sem
stendur yfir þessa dagana í Dhaka.
Hann sagði aö næringarskortur væri
valdur að því aö 285 þúsund börn á
aldrinum eins til fimmtán ára bættust í
hóp þeirra sem náttblindir kallast.
Byggist þessi fullyrðing á skýrslu sem
Helen Keller-stofnunin í New York
vann fyrir Bangladesh um blindu hjá
'ÍWÍ.í
.
Ur síðustu heimsókn páfa til heimalands sins. Hann kemur að þessu sinni ekki til Gdansk og fær ekki tækifæri til að messa á Sigurtorginu í Varsjá en engu að siður
má búast við að milljónir manna fyigi honum á ferðum hans.
börnum.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
hefur látið málið til sín taka og tekið
höndum saman við stjórn Bangladesh
til þess að vinna bug á þessu vanda-
máli.
Beltin
bjarga
Ný löggjöf í Bretaveldi, sem skyldar
ökumenn og farþega í bifreiðum til að
festa um sig öryggisbelti, hefur fækkað
dauðaslysum í umferðinni um
helming. Lög þessi voru sett fyrr á
þessu ári og voru mjög umdeild. Einn
sérfræðingur í umferðarmálum segir
aö lögin bjargi að minnsta kosti einu
mannslífiá dag.
Samkvæmt lögum ber ökumönnum
og farþegum í framsæti að festa
öryggisbeltin frá og meö áramótum og
liggur viö 50 punda sekt að öörum
kosti. Um leið og lögin voru sett breytt-
ist mynstur umferðarslysa stórlega. A
svæðinu kringum borgimar
Birmingham og Coventry fækkaði
slysatilfellum vegna umferðarslysa
um 22% á fyrsta mánuðinum. Tveir
létu lífið og 68 meiddust illa en á sama
tíma í fyrra létust fjórir og 90 slösuðust
illa. Um það bil þrjár milljónir manna
búa á svæðinu.
1 Edinborg, höfuðborg Skotlands,
létust tveir í umferðarslysum í febrúar
en níu í sama mánuði í fyrra.
Ferð páfa um Pólland
Pólsk yfirvöld hafa nú gert opin-
berar ferðaáætlanir fyrir heimsókn
Jóhanns Páls páfa til Póllands í næsta
mánuöi. Samkvæmt hinum opinbera
áróðri mun heimsóknin sýna í verki hið
góða samband og samvinnu sem ríkir
milli kirkju og ríkis. En undir niðri er
töluverð spenna milli kirkjunnar og
kommúnistaflokksins, bæði vegna þess
aö ekki hefur gengið of vel með sam-
vinnuna undanfarið, og vegna þess
hversu gjörn yfirvöld eru til þess að
grípa til ofbeldis.
Samkvæmt hinni opinberu áætlun
mun páfinn koma til átta borga í Pól-
landi og búist er við að milljón manns
komi til að heyra hann syngja messu
Hvað lítur páfi slíkum hornaugum?
Það er víst að honum líst ekki á ástand-
iðí Póliandinú.
Breski njósnarlnn Prime. Nú segir
bresk kona að breska öryggis-
þjónustan ætli að hafa bana að
blóraböggli í því máli.
undir beru lofti. En í Varsjá fer
messan fram á íþróttavelli, en ekki á
Sigurtorginu þar sem hann messaði í
sinni síðustu heimsókn. Þar urðu síðan
uppþot þegar lögregla reyndi að stöðva
sífellda endurbyggingu blómakrossins
sem upphaflega var til minnis um
Wyszinski kardinála, en varð að tákni
hinnar óvirku andstöðu gegn her-
lögunum.
Það kemur ekki fram í ferðaáætlun
páfa eins og hún hefur verið kynnt
blaðamönnum hvort hann muni hitta þá
tvo Pólverja sem umheimurinn sér
sem tákn hinna andstæðu afla í Pól-
landi, þá Jaruzelski hershöföingja og
Walesa. Páfinn mun ekki fara til
Gdansk þar sem hin óháðu verkalýðs-
samtök Eining urðu til, en hann mun
koma til tveggja staða þar sem uppþot
hafa orðið oft eftir að herlög voru sett,
Wroclaw í Vestur-Póllandi og í
iðnaðarútborg Kraká, Nowa Huta.
Vinkona
njósnara
Dorothea Barsby, kona frá London
sem verið hefur í felum síðustu viku,
hélt blaðamannafund í gær og neitaði
alfarið að hafa hylmt yf ir með sovéska
njósnaranum Geffrey Prime. Prime
hafði gefið nafn Barsby sem með-
mælanda þegar öryggislögreglan
rannsakaði feril hans.
Upp komst um njósnir Primes af
slysni á síðasta ári þegar hann var
undir lögreglurannsókn vegna meintra
kynferðisafbrota. Hann hefur verið
dæmdur til 35 ára fangelsis fyrir afbrot
sín.
Barsby, sem er 34 ára gömul, var í
framboði fyrir Ihaldsflokkinn í sveitar-
stjómarkosningum fyrir nokkrum dög-
um. Hún sagði blaðamönnum að hún
væri aðeins valin blóraböggull öryggis-
þjónustunnar, sem vildi nú kenna öðr-
um um njósnir Prime og komst undan
ámæli fyrir það að hafa ekki gripið
hann fyrr. „Það eina sem þeir hafa
fram að færa er að þetta sé mér að
kenna, ekki þeim,” sagði hún. „Eg á að
taka að mér hlutverk fórnariambsins.
Bresk yfirvöld segja að ekkert frekar
verði gert í málinu.
Ingmar Bergman leikstjóri leggur Ewu Fröling lífsreglurnar við töku eins
atriðis í myndinni Fanny og Alexander.
BERGMAN
HAMPAÐ í
KVÖLDSTUND
í SÆNSKA
SJÓNVARPINU
Sænski leikstjórinn Ingmar Berg- myndina Fanny og Alexandér. Sú
man hefur sagt að kvikmyndin kvikmynd er sögð sameina öll hans
Fanny og Alexander veröi hans síð- stílbrögð, hugrenningar og til-
asta mynd. Leggja ekki allir trúnað finningar sem birst hafa í myndum
á það en sænska sjónvarpið gerði sér hans. Sýndar voru svipmyndir úr
það að tilefni til þess aö helga Berg- ýmsum atriöum myndarinnar og
man og myndum hans drýgstum eins fréttamynd af töku hennar og
hluta dagskrárinnar eitt kvöldiö í vinnslu.
vikunni. Sleginn var botninn í kvöldiö meö
Fyrst var klukkustundarlangt því að sýna Bergman-myndina
viötal viö Bergman sjálfan um Andlitið frá því 1958.