Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Side 9
DV. MIÐVIKUDAGUR18. MAl 1983. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Loft lævi bland- /ð i Líbanon eft- ir samkomulagiö Sýrlendingar loka vegum og rjúfa símalínur en 5 manns létu lífið í skærum ígær Fimm létu lífið í tvennum aðskildum átökum sem urðu í Líbanon í gær þar sem spenna hefur magnast að nýju eft- ir undirritun samkomulags Israela og Líbanon um brottflutning Israelshers. Samvisku- fangarí Pakistan Mannréttindasamtökin í Pakistan segja að ekki færri en níu fangar hafi verið píndir til dauða í pakistönskum fangeisum frá því Z5a U1 Haq hershöfð- ingi rændi þar völdum fyrir sex árum. Ennfremur segir í skýrslu frá samtök- unum að ekki færri en 375 manns væru nú í haldi, sem yröu að teljast sam- viskufangar og er þeim gefiö ýmislegt að sök, allt frá hermdarverkum til nautgripaþjófnaðar. Talsmaður stjórnvalda sagði aö ekki væri rétt sagt frá staðreyndum í skýrslunni. I mars síöastliönum sögðu stjórnvöld að samviskufangar í land- inu væru aðeins átta eöa níu talsins og að enginn þeirra hefði verið pyntaður. Vestrænir sendimenn í Pakistan telja sumir að fjöldi samviskufanga sé mun meiri en segir í skýrslu Mannréttinda- samtakanna. Landamæravörður í varðturni fylgist með mannaferðum yfir Berlínarmúr- inn. Samkomulagið kemur ekki til fram- kvæmda á meðan Sýrlendingar hafa enn milli 40 og 50 þúsund manna herlið í Líbanon, en Sýrlendingar hafa neitaö að ganga inn í samkomulagið þar sem það fullnægi ekki skilmálum þeirra og Palestínuaraba. Það sló í brýnu í Trípólí milli PLO- skæruliða og herskárra múslima en ekki hefur frést hvað olli. Fjórir lágu þar eftir í valnum. Trípólí er á því svæði sem sýrlenska herliðið hefur á valdi sínu. Fyrr í gær hafði einn fallið og tíu særst í skærum sem urðu milli Líban- onhers og shiite-múslima sem höföu uppi mótmæli við undirritun sam- komulagsins. Sýrlendingar létu ekki lengi standa á viðbrögðum sínum við undirritun sam- komulagsins og stöðvuðu alla umferð um þjóðveginn milli Beirút og Damaskus. Sums staðar voru skornar niður símalinur, og leikur grunur á því, að Sýrlendingar eða PLO-skæru- liðarhafigertþað. I höfuðborginni sjálfri ríkti annars meiri kyrrð en vant er, en brynvarðir vagnar voru á þönum um götur borg- arinnar í eftirliti því að almennt hafði verið búist við mótmælaaðgerðum. — I Líbanon einskoröastmótmælaaðgerðir ekki við kröfugöngur og slagorðaspjöld heldur einkennast þær meir af skothríð og sprengjum. Flugræningi gríp- ur til fallhlífar Korpóráll úr íranska flughernum stökk í fallhlíf út úr flugvél yfir flugvellinum í Muscat, höfuðborg Oman, í fyrradag. Hann hafði rænt íranskri herflugvél en ekki fengiö leyfi til lendingar þegar kom aö flugvellinum. Yfirvöld í Oman sögöu aö maðurinn, sem heitir Mohammed Hassan Arjomandi, hefði þegar gefið sig á vald yfir- valda þegar hann kom niöur. Hann var handtekinn fyrir aö hafa komið til landsins ólöglega. Brasilíumenn skuldugir upp fyrirhaus Brasilia greiddi 12,6 milljarða doll- ara í vexti af erlendum skuldum sínum árið 1982. Samkvæmt skýrslu seðla- banka Brasilíu jafnar það sig með næstum35 milljónir doUara á dag. Ein- vörðunguívexti. Greiðslujöfnuður BrasiUu gagnvart útlöndum hefur verið með miklum halla sem komst upp í 16,3 mUljarða dollara í fyrra úr 10,6 miUjörðum árið 1981. BrasiUubanka reiknast svo tU að er- lendar skuldir þeirra hafi komist upp í 83,3 mUljarða doUara árið 1982. — Af því eru 69,6 miUjarðar meðaUöng eða lengritíma lán en 13,6 miUjarðar skammtímalán tU verslunar og sér- stakra framkvæmda. Brasilíubanki tekur ekki aUar er- lendar skuldir landsmanna inn í út- reikning sinn og reUcnast sérfræðing- um svotU að erlendar skuldir Brasilíu- manna séu alls um 90 mUljarðar doll- ara. DÆMDUR FJAR- VERANDITIL DAIIÐA NÍTJÁN ÁRA Austur-þýskur landamæravörður, tjaldímaíífyrra.hefurveriðdæmdur sem skaut einn starfsbróður sinn tU tU dauöa í fjarveru sinni af dómstóli í bana þegar hann flúði vestur yfir jám- Austur-Beriín. Klifraði upp hús og stökk niður Grímuklæddui maður, með bláa hárkollu og í bláum búningi, klifr- aði upp eftir 71 hæðar húsi í Houston í Texas í fyrradag. Þegar hann var kominn upp undir þak- brún stökk hann niður en hafði þá áöur fest á sig fallhlíf. Hann kom niður á þaki bílageymslu þar sem lögregluþjónar handtóku hann fyr- ir að hafa verið á ferð um einkaeign annarra án leyfis. Maðurinn neitaöi aö segja blaða- mönnum til nafns, en kallaði sig „Blue bandit”. Hann sagði aö sér liði stórkostlega eftir stökkið. Klaus Decker, þá nítján ára gamaU, var að strjúka yfir landamærin við þorpið Sommersdorf þegar Eberhard Knospe ætlaði að stöðva hann. Decker hæfði hann fjórum skotum með vél- byssu. Um mál hans var f jaUað af austur- þýskum herrétti og gagnrýndi sak- sóknarinn vestur-þýska réttvísi harka- lega fjrir alltof vægan dóm. DómstóU, sem fjaUar um mál afbrotaunglinga, dæmdi Decker í fimm ára f angelsi. Jafnframt var vestur-þýska stjóniin gagnrýndi fyrir að neita að framselja manninn austur yfir aftur sem sagt var að stríddi gegn alþjóðalögum og gæti orðið öðrum hvatning tU eftir- breytni. Yfir„ Olf Man River" Kanadíski œvintýramaðurinn Jay Cochrane varð að gefast upp við að ganga yfir Miss- issippi-fljótið á línu sem strengd var yfir fljótið. Þegar línan fór að sveiflast til missti hann fyrst jafnvœgisstöngina og hékk síðan eins og letidýr í línunni þegar lögreglubátur kom að og bjarg- aði honum. íbúar New Orleans urðu því af þeirri ánœgju að sjá Cochrane Ijúka gönguferð sinni. Umsjón: Guðmundur Pétursson og Ólaf ur B. Guðnason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.