Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Qupperneq 17
DV. MIÐVIKUDAGUR18. MAI1983. 17 Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Kvenréttindakona er ekki sérlega hrifin af fegurðarsamkeppnum. „Fegurðarsamkeppnir oggripasýningar” —af svipuðum toga Kvenréttindakona bringdi: Eina feröina enn láta ungar og huggulegar stúlkur plata sig til þess að þiggja fé fyrir að sýna líkama sinn. Eg hef lengi verið þeirrar skoð- unar að fegurðarsamkeppni sé af sama toga og gripasýningar. Að mínu mati samrýmist það ekki mannlegri reisn að spranga um á sviði og láta siðan aðrar manneskjur dæma likama sinn. Sumir halda því fram að skömm- inni skárra sé það framtak frammá- manns hér í bæ að hafa fegurðar- samkeppni fyrir bæði kynin. Eg stend á því föstum fótum að þetta sé til vanvirðu bæði fyrir karla og konur aö taka þátt í svona. Að lokum vil ég hvetja til þess að fegurðarsamkeppnir verði lagðar niður. „7 vagninn var týndur” —kvartað yfir strætisvagnaf erðum íHafnarfirði Sigurbjörg Sveinsdóttir skrifar: Eg vil bæta lítils háttar við þá gagn- rýni sem kom fram á Landleiðir hér í Dagblaðinu-Vísi fyrir nokkru, en áður hef ég gagnrýnt Landleiðir í einu Hafnarf jarðarblaðanna, Vegamótum. Þegar ég fer með vögnunum í vinnu á morgnana fer ég með 7 vagni sem er fyrsti vagn að morgni. Eg ætla aö benda Ágústi Hafberg, framkvæmda- stjóra Landleiða, á það að kynna sér hvað vagnamir eru missnemma á ferð og þar er ekki miöaö við þegar færð er misjöfn heldur í venjulegri færð. Eg tek vagninn á Reykjavíkurvegi við verslunina Málm, þar er vagninn á tímanum frá kl. 7.04 til 7.14 og jafnvel seinna. Það fer eftir því hver ekur vagninum hverju sinni. Einn morgun í vetur kom enginn vagn kl. 7 og þegar Vífilsstaðavagninn kom kl. 7.20 var spurt um 7 vagninn og svarið var: hann er týndur og þegar nánar var' spurt svaraði vagnstjórinn að sá sem aka átti hefði ekki mætt. Ber Landleiðum ekki skylda til að hafa fólk til taks ef forföll verða, svo það fólk sem notar vagnana komist á réttum tíma til vinnu? Um bilanir á vögnunum og aðrar tafir ætla ég ekki að ræða að sinni. Eg skora á það fólk sem notar vagn- ana að staðaldri að láta til sín heyra og knýja fram úrbætur á þessum málum hið snarasta. Hafa ekki fengið bikarínn sinn Lárus skrifar: Hið unga félag IK í Kópavogi hefur lagt mikla áherslu á uppbyggingu yngri flokkanna í knattspyrnu hjá sér og ætlar sér stóra hluta þar á komandi árum. Strákarnir í ö.flokki sýndu t.d. hvað þeir kunna og geta á eftirminni- legan hátt í héraðsmóti UMSK í innanhússknattspyrnu í vor. Þar sigruðu þeir í S.flokki A, B og C og þeir sigruðu einnig í 4.flokki B og í 6.flokki A. Helsti keppinautur þeirra í Kópa- voginum, Breiðablik.sigraði aftur á móti í 6.flokki B og 6.flokki C en ekki í 6.flokki A eins og þó segir í frétta- bréfi UMSK af þessu móti. Strákarnir ísjötta flokki í ÍK eru ekki ofhressir yfirþviað erkifjendurnir i Þeir litlu úr IK voru allt annaö en Biikunum skuii enn hafa bikarinn undir höndum. ánægðir með þá frétt og líka hitt að Hann er í umsjá Blikanna en þar þeir hafa enn ekki fengið bikarinn viija þeir síst af öllu að hann sé sem um var keppt í þessum flokki. geymdur. VIKAN er komin út næsta b/aðsölustaö BLAÐSÖLUBÖRW! Komið á afgreiðsluna Þverholtí 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.