Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Side 32
32
DV. MIÐVIKUDAGUR18. MAl 1983.
Andlát
Oddur Kristjánsson frá Hjarðarbóli
lést 8. maí 1983. Hann fæddist 15. júli
1903. Foreldrar hans voru hjónin Ragn-
heiður Benediktsdóttir og Kristján
Þorleifsson. Oddur kvæntist Kristínu
Ölafsdóttur en hún lést fyrir tveim ár-
um. Þeim hjónum varð þriggja sona
auðið. Oddur starfaði lengst af hjá
Sambandinu, fyrst í frystihúsinu
Herðubreiö og síðan sem forstöðumað-
ur skinna- og húðamóttöku og dún-
hreinsunarstöðvar á Kirkjusandi. Út-
för Odds verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 13.30.
Guðrún Helgadóttir andaðist í sjúkra-
húsi Vestmannaeyja 17. maí.
Þuríður Ingibjörg Guðjónsdóttir
Ljungblad frá Ingjaldssandi, andaðist
í sjúkrahúsi í Dayton, Tennessee, 13.
apríi. Útförin hefur farið fram.
Gyða Tómasdóttir, Drafnarstíg 2, sem
andaðist 7. maí, verður jarösungin frá
Fossvogskirkju á morgun, 19. maí, kl.
13.30.
Ellert Kjartan Arnfinnsson frá Brekku
í Langadal, sem lést í Hjúkrunardeild
Hrafnistu í Hafnarfirði 12. maí, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju, föstu-
daginn 20. maí kl. 15.
Júlíus Helgason rafvirkjameistari,
Engjavegi 19 Isafiröi, er andaöist 11.
maí, verður jarðsunginn frá tsa-
fjarðarkirkju fimmtudaginn 19. maí
kl. 14.
Olga Biering, sem lést 10. maí, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtu-
daginn 19. maí kl. 13.30.
Ólafur Jónsson, fyrrverandi sima-
maður, Háagerði 55, sem andaðist að
heimili sínu 10. þ.m., veröur jarðsung-
inn frá Bústaöakirkju fimmtudaginn
19. maikl. 13.30.
Golf
Þrjú mót hjá GR
Á fimmtudaginn fer fram keppni um
Ameson-skjöldinn hjá Golfklúbbi Reykja-
vikur og hefst keppnin kl. 17.
Undirbúningskeppni um hvítasunnubikar-
inn verður háð á Grafarholtsvellinum 21. maí
og hefst keppnin kl. 9. Sunnudaginn 22. mai
fer fram opið öldungamðt sem hefst kl. 13.
Tilkynningar
Námskeið að Laugarvagni
Trimm í frrtíma — Trimm á
vinnustað
Eitt af meginverkefnum Iþróttasambands
Islands er að örva alla landsmenn til auk-
innar líkamsræktar og útivistar. Trimmnefnd
ISI vinnur að þessum málum og hefur gert sl.
10 ár.
Meðal verkefna núverandi Trimmnefndar
er að ná samstarfi við stjórnendur og starfs-
mannafélög stofnana og fyrirtækja um að
hvetja starfsfólk til að stunda trimm í frítím-
anum og þar sem aðstaða er til, að starfsfólki
verði gefinn kostur á léttum örvunaræfingum
á vinnustað í stuttum hléum.
Sem lið í þessu verkefni hefur nefndin í
hyggju að efna til námskeiðs fyrir væntanlega
leiðbeinendur í almennings íþróttum —
trimmi.
Námskeiðið verður í Iþróttamiðstöð ISt að
Laugarvatni dagana 24. júní—1. júlí nk., þar
sem öll aðstaða er mjög ákjósanleg. Aætlaður
kostnaður er kr. 3.000.- pr. mann.
Markmiö námskeiðsins er að veita þátttak-
endum undirstöðu þekkingu til þess aö leið-
beina og stjórna örvunaræfingum á vinnustað
og/eða í frítímum.
Hugmyndin er sú að fyrirtæki og/eða
stofnanir hvetji áhugasamt starfsfólk sitt til
þess að sækja námskeiðið og jafnvel greiða
kostnað þess, með þaðí huga aö sá hinn sami
stjórni svo örvunaræfingum á vinnustað,
endurgjaldslaust, öllum til ánægju og hags-
bóta.
Vegna undirbúnings er nauðsynlegt að skrá
þátttakendur sem fyrst, og eigi siðar en 1. júní
nk. Trimmnefndin vonast til að fulltrúar eða
stjórnendur fyrirtækja stofnana eða starfs-
mannafélaga hafi samband við skrifstofu ISI í
síma 83377, en þar eru veittar allar nauðsyn-
legar upplýsingar.
Vinningshafar á
Sólarkvöldum
Samvinnuferða — Landsýnar
Sólarkvöldum Samvinnuferða-Landsýnar er
nú lokið i bili. Voru kvöldin að venju hin
líflegustu, sambland af ferðakynningu,
skemmtiatriðum, dansi og ódýrum veislu-
mat. Sólarkvöldin voru haldin víða um land
auk hinna vikulegu skemmtana á Súlnasal
Hótel Sögu. Alls fékk Samvinnuferðir—
Landsýn um 4.500 gesti til kvöldverðar á
Sólarkvöldunum og gilti hver aðgöngumiði
jafnframt sem happdrættismiði.
Nú hefur verið dregið í aðgöngumiðahapp-
drættinu og kom ferðavinningurinn upp á
miða nr. 5.115. Handhafi miðans getur vitjaö
vinnings síns á skrifstofunni í Reykjavík eða
hjá viðkomandi umboðsmanni og bíður hans
ferðavinningur í leiguflugi Samvinnuferöa-
Landsýnar 1983 að verðmæti kr. 36.000.00.
Kennarar frá Grindavík sigruðu í spum-
ingakeppni aðildarfélaganna. Fékk hver þátt-
takandi í sigurliðinu tvo farmiða til sumar-
húsanna í Hollandi.
Gabriel Tacchino
einleikari hjá
Sinfóníunni
A tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Islands,
sem Jean-Pierre Jacquillat mun stjóma í Há-
skólabíói nk. fimmtudagskvöld, verður
Choralis, hljómsveitarverk eftir Jón Nordal,
flutt í fyrsta sinn á tslandi. Verk þetta var á
sínum tima pantað af hljómsveitarstjóranum
og seilósnillingnum Rostropovits og frumflutt
undir hans stjórn í Washington í vetur sem
leið. Vakti það mikla hrifningu og fóru gagn-
rýnendur amerískir um það slíkum lofs-
orðum, að fá íslensk tónverk hafa fengið jafn-
góðar viðtökur erlendis.
A þessum tónleikum S.I., sem eru næstsíð-
ustu áskrifendatónleikar þessa starfsárs,
kemur fram einn glæsilegasti pianóleikari
Evrópu í dag Frakkinn Gabriel Tacchino og
mun hann leika píanókonsert nr. 2 eftir landa
sinn Camille Saint-Saéns.
Síðast á efnisskránni er svo Sheheresade,
sinfónísk svíta um efni úr Þúsund og einni
nótt eftir Rimsky-Korsakoff, en hún er eitt
þekktasta og vinsælasta verk þess meistara
og mikið eymayndi þeim, sem unna litríkum
hlj ómsveitartónsmíðum.
Dagur án ofbeldis —
næsta skref
1 framhaldi af undirskriftasöfnun um Dag án
ofbeldis 4. maí sl. verða haldnir á vegum
Samhygðar rabbfundir næstu daga. Efni
fundanna verður: Friðarstefna og afnám
ofbeldis, næsta skrif í átt til þjóðféiags án
ofbeldis.
Næstu fundir verða haldnir fimmtudag og
föstudag næstkomandi kl. 8.30 báða dagana,
að Laugavegi 29 (bakvið Brynju).
Samhygö.
Erindi um ísrael
Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður flytur
erindi og svarar fyrirspumum um nýafstaðna
för sína til tsraels á opnum fundi, sem félagið
Island-tsrael, gengst fyrir í Safnaðarheimili
Langholtskirkju (uppi) fimmtudaginn 19. maí
kl. 20.30. Jóhanna var í hópi blaðamanna,
víðsvegar að úr heiminum, sem ísraelska
utanríkisráðuneytiö bauð til landsins til að
kynna sér ástand og horfur, eftir stríðið í
Líbanon. Síðar á fundinum verða veittar
upplýsingar um dvöl á samyrkjubúum í
Israel. Aðalfundur félagsins Isiand-Israel var
haldinn nýlega og var Eirika A. Friðriksdóttir
kjörin formaður.
Island-Israel.
Kvikmyndaklúbbur
Alliance Francaise
í Reykjavík
Endursýnir, vegna mikilla vinsælda, mynd-,
ina: Lily, elskaðu mig („Lily, aime-moi”)
sem gerð var árið 1974 af Maurice Dugowson.
Leikarar em þau Patrick Dewaere, Rufus,
Jean-Michel Folon og Zouzou. Myndin verður
sýnd í E-sal Regnbogans þann 18. og 19. maí
kl. 20.30.
Allar myndir kvikmyndaklúbbsins eru sýnd-
ar með enskum skýringartextum.
Nánari upplýsingar í síma 23870 og 17621/2.
Páfagaukur tapaðist
Hvítur páfagaukur fannst við Elliðaárnar
fyrir tæpum hálfum mánuði. Upplýsingar í
síma 83682.
í gærkvöldi - í gærkvöldi
Náttúrulífið blívur
Veöur er oröið svo gott, a.m.k.
sunnan heiöa, aö erfitt eraösitja yfir
sjónvarpinu í kvöldsólinni. Þaö er til
muna hollara aö bregöa sér út meö
skóflu og flikka upp á garðinn, eigi
menn garö á annað borö. Ef ekki, þá
má spaösera meö heimilishundinn.
En standi þannig á, aö menn kom-
ist ekki út, má nokkuð treysta því aö
náttúrulífsmynd er aö finna á dag-
skrá sjónvarpsins. Þaö er næstbesti
kosturinn. I gærkvöldi var þaö bresk
heimildarmynd frá smáeyjum í
Karabíahafi. Þar er menningin að
eyöa því sem eytt veröur eins og víöa
annars staðar.
Fíllinn Blámann hefur nú runnið
sitt skeiö. Mín börn hafa haft gaman
af ævintýrum fílsins og vonandi
muna forráöamenn sjónvarpsins eft-
ir yngstu áhorfendunum.
Rétt er aö geta tveggja þátta í út-
varpinu á þriöjudögum, þótt fluttir
séu síödegis en ekki á kvöldin. Þetta
eru þættirþeirra dr. Þórs Jakobsson-
ar og Olafs Torfasonar. Dr. Þór fer á
undan meö Spútnik sinn og fjallar
um ýmis vísindi. Þátturinn er ávallt
fróðlegur og var þátturinn í gær eng-
in undantekning. Rætt var viö Ragn-
ar Stefánsson jaröskjálftafræðing og
var sá fróöleikur góö viöbót viö frá-
sagnir DV af skjálftarannsóknum aö
undanförnu. Sjóndeildarhringur
Olafs Torfasonar á Akureyri kemur
næstur á eftir spútniknum. Olafur er
þægilegur útvarpsmaður og hefur
gott lag á að finna óvenjuleg efni við
útvarpstækin síödegis á þriðjudög-
um.
Þýska löggan Derrick var góö að
vanda. Sakamálaþættir eru gott efni
og tilbreyting aö fá þátt frá ööru
landi en engilsaxnesku
-Jónas Haraldsson.
Fyrirlestur hjá Geðhjálp
Geðhjálp, félag geðsjúkra, aðstandenda
þeirra og velunnara, gengst fyrir mánaðar-
legum fyrirlestrum um geðheilbrigðismál og
skyld efni. Fyrirlestramir eru haldnir á
geðdeild Landsspítalans í kennslustofu á III.
hæð.
Næsti fyrir lestur verður fimmtudaginn 19.
maí 1983 kl. 20. Ingólfur Sveinsson, geðlæknir
talar um streitu í daglegu lífi. Fyrirlestramir
em bæöi fyrir félagsmenn svo og alla aðra,
sem áhuga kynnu að hafa. Aðgangur er
ókeypis. Fyrirspumir um umræður verða
eftirfyrirlestrana.
Úrslit kosninga-
getraunar FRI
Úrslit úr kosningagetraun Frjálsiþróttasam-
bands tslands liggja nú fyrir, en sambandið
efndi til hennar, sem kunnugt er, fyrir
alþingiskosningaraar í april. Eftirtalin fimm
númer höfðu þingmannatölu ailra flokka
rétta og em því sigurvegarar getraunar-
innar:
43262
62159
83888
92029
92977
Kærufrestur vegna getraunarínnar er til 25.
mai næstkomandi.
Fyrirlestrar í sal Austurbæjar-
skólans.
Hér á landi er nú staddur Bertil Ekström,
en hann hefur mörg undanfarin ár haldið fyr-
irlestra víða á Norðurlöndunum, Kosmík vís-
indi Martinusar. Martínus þessi var danskur
maður, sem ritaði fjölda bóka þar sem hann
skilgreinir eðli tilverunnar og þau grandvall-
arlögmál sem allt líf byggist á. Af skiljanleg-
um ástæðum snerta þessar kenningar því öll
svið okkar meðvituðu jafnt sem hinnar ómeð-
vituðu tilvera. Einlægum sannleiksleitendum
og öðram þeim sem leita vitsmunalegra út-
skýringa á grandvallarþáttum tilverunnar
þykir eflaust forvitnilegt að kynna sér þessar
hugmyndir nánar. Bertil mun halda níu fyrir-
lestra hér á landi og verður þriðji fyrirlestur-
inn haldinn á morgun, miðvikudag, kl. 20 í
Austurbæjarskólanum. Nefnist hann „Det
evige livs opretholdelse — Spiralkredslöbet —
det kosmiske dögn — reinkarnation.”
Samhygð — rabbfundur í
Kópavogi
um friðarstefnu Samhygðar og afnám ofbeld-
is verður í kvöld kl. 20.30 í samskiptamiðstöð
Samhygðar, Kársnesbraut 2, á móti Blóma-
skálanum.
Aðalfundur
Aðalfundur Félags islenskra rithöfunda
verður haldinn að Hótel Esju fimmtudaginn
19. maí 1983 kl. 20 (kl. 8 síðdegis).
Dagskrá:
1. Fundarsetning (skipun fundarstjóra).
2. Lesin fundargerð síðasta aðalfundar.
3. Minnst látinna félaga.
4. Inntaka nýrra félaga.
5. Skýrsla formanns.
6. Reikningarfélagsins.
7. Stjórnarkjör og kosning endurskoðenda.
8. önnurmál.
Félagsmönnum er bent á að mjög nauðsyn-
legt er að þeir mæti á aöalfundi til að ræða um
og ákvarða hagsmunamál sín í framtíðinni.
Stjórnin.
Símaþjónusta
AA-samtakanna
AA-samtökin hafa byrjað starfrækslu síma-
þjónustu. Þangað geta þeir hringt, sem eiga
við áfengisvandamál að stríða og leitað ráða.
Sömuleiðis aðstandendur þeirra. Símanúmer
þessarar þjónustu er 16373 og er símaþjón-
ustan opin alla daga frá kl. 17—20.
HULL/Goole:
Jan.................. 16,5,30/5, 13/6,27/6.
ROTTERDAM:
Jan..................17/5,31/5,14/6,28/6.
ANTWERPEN:
Jan................18/5,1/6,15/6,29/6.
HAMBURG:
Jan.................20/5,3/6,17/6,1/7.
Helsinki:
HelgafeU....................11/5,10/6.
LARVIK:
HvassafeU...........24/5,6/6,20/6,4/7.
GAUTABORG:
HvassafeU...........25/5,7/6,21/6,5/7.
KAUPMANNAHÖFN:
HvassafeU...........26/5,8/6,22/6,6/7.
SVENDBORG:
Pacific LUy.......................10/5
HelgafeU....................17/5,16/6.
HvassafeU....................27/5,9/6.
DísarfeU..........................2/6.
AARHUS:
HvassafeU...............12/5,27/5,9/6.
HelgafeU.........................17/5.
DísarfeU..........................2/6.
CLOUCESTER, MASS.:
SkaftafeU...................21/5,21/6.
HALIFAX, KANADA:
SkaftafeU...................23/5,23/6.
Happdrætti HSÍ
Vinningsnúmer í happdrætti HSteruþessi:
002,078,192,207,316,380,521,923,942,986.
Vinningarnir eru sólarlandaferð með Sam-
vinnuferðum-Landsýn (í leiguflugi) að verð-_
mœti kr. 20.000,00 hver. Vinninga má vitja á
skrif stofu HSÍ, íþróttamiðstöðinni Laugardal.
ÍK 3. flokkur heldur
kökubasar
að Hamraborg 9, föstudaginn 20. maí kl. 14.
Komið og kaupið kökur með hvítasunnu-
kaffinu. Velunnarar félagsins, sem vUdu gefa
kökur, hafi samband í síma 40646 Anna, 40010
Vigdís og 40756 Rannveig.
Lýríkur týndur
Kötturinn Lýríkur er týndur frá heimili sínu í
Drápuhlíð 30. Fressinn er svartur með hvíta
snoppu, bringu og loppur. Þá er hann með
svarta ól um háls sér. Finnandi vinsamlega
hafi samband við eigendur í sima 22692 eða
komi honum i ofangreint húsnúmer.
Hallgrímskirkja
Náttsöngur í kvöld kl. 22. Mótettukór Hall-
grímskirkju syngur undir stjórn Harðar As-
kelssonar organista.
Hjól tapaðist
A föstudaginn sl. var ungur piltur fyrir því
óláni að tapa hjólinu sínu fyrir utan íþrotta-
húsið Ásgarð í Garðabæ. Þetta er svart og
silfurlitað drengjahjól. Þeir, sem einhverjar
upplýsingar geta veitt, eru vinsamlegast
beðnir að hringja í síma 42518.
Málfreyjudeildin
Björkin
Næsti fundur verður haldinn miðvikudaginn
18. maí að Hótel Heklu og hefst hann kl. 20.30.
Gestir velkomnir.
Ferðalög
Útivist
Kvöldganga 18. maí kl. 20. Hengill — Valaból.
Létt fjallganga. Verð kr. 120. Farið frá BSI
(benzínsölu), í Hafnarfirði v. Kirkjugötu. Sjá-
umst. Ferðafélagið Utivist.
Útivist
Hvítasunna 20.—23. maí.
1. Snæfellsnes-Snæfellsjökull.
Gönguferðir við allra hæfi. Margt að skoða,
t.d. Dritvík, Arnarstapi, Lóndrangar. Kvöld-
vökur. Góð gisting á Lýsuhóli. Sundlaug.
Hitapottur.
2. Þórsmörk.
Engum leiðist með Utivist í Þórsmörk. Góð
gisting í nýja skálanum í Básum. Kvöldvökur.
3. Mýrdalur.
Skoðunar- og gönguferðir við ailra hæfi.
Góð gisting.
4. Fimmvörðuháls.
Jökla- og skíðaferð. Gist í fjallaskála,
ágætir fararstjórar í öllum ferðum. Upplýs-
ingar á skrifstofu Utivistar, Lækjargötu 6a,
sími 14606 (símsvari). Sjáumst.
Útivist
Á hvítasunnudag verður farin skemmtileg
leið í hrauninu fyrir sunnan Hafnarfjörð,
skoðaðir Hvassahraunskatlar, sem era sér-
kennilegir litlir gervigígar eða hraundrýli.
Gengið austan Afstapahrauns að Lamba-
felli og í gegnum Lambafellsgjá, sem er stór-
kostleg hraunspranga er klýfur fjallið að
endilöngu. Létt og þægileg ganga.
Annan dag hvítasunnu verður gengið á
Skarðsmýrarfjall á Hellisheiði. Stóra Skarðs-
mýrarfjall (530m) tilheyrir Henglasvæðinu,
sem Utivist kynnir sérstaklega í ár. Þar er
víða f jölbreytt og áhugavert landslag, hér við
bæjardyr Reykvíkinga.
Lagt er af stað í báðar þessar ferðir frá
Umferðamiðstöðinni að vestanverðu. Allar
nánari upplýsingar á skrifstofu Utivistar,
Lækjargötu 6a, sími 14606, (simsvari utan
skrifstofutíma).
Ferðafélag íslands
Ferðir um hvitasunnu, 20.—23. maí (4 dag-
ar):
1. Þórsmörk: Gönguferðir með fararstjóra
daglega. Gist í Skagfjörðsskála.
2. Þórsmörk—Fimmvörðuháls—Skógar. Gist
í Skagfjörðsskála.
3. Gengið á öræfajökul (2119 m). Gist í tjöld-
um.
4. Skaftafell. Gönguferðir með fararstjóra í
þjóðgarðinum. Gist í tjöldum.
5. Snæfellsnes—Snæfellsjökull. Gengið á
jökulinn og tíminn notaður til skoðunar-
ferða um nesið. Gist í Arnarfelli á Arnar-
stapa.
Farmiðasala og aUar upplýsingar á skrif-
stofunni, öldugötu 3. Takmarkaður fjöldi í
sumar ferðirnar. Tryggið ykkur farmiða
tímanlega.
Ferðafélag Islands.
Afmæli
80 ára er í dag, 18. maí, Guðni
Brynjólfsson, Tjarnargötu 6 í Keflavík.
Hann ætlar að taka á móti gestum.
sínum á heimili sinu og eiginkonu
sinnar, Þórhildar Sölvadóttur, eftir kl.
löídag.
Leiðrétting
Þegar Jónas heitinn frá Hriflu valdi
blaði sínu nafnið „Ofeig” var víst
hverjum manni ljóst hvað honum bjó í
hug — að minnsta kosti öllum þeim
sem eitthvað þekktu til Ljósvetninga-
sögu hinnar fornu. Því miöur varð sú
misritun í kjallaragrein gærdagsins'
um þetta efni, að þar var sagt að
engum manni hefði verið þetta ljóst,
sem vitanlega er hin mesta firra og
skal það hér með leiðrétt og beðist
velvirðingar á mistökunum.
-BH.