Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1983, Side 35
DV. MIÐVIKUDAGUR18. MAI1983'
35
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
ára og var ein meö hundi sem gelti aö
henni. Hún öskraði: „Þegiöu” en
ekkert gekk. Skyndilega sagði hún
„Shut up” og hann steinþagnaði.
Kröftug byrjun. „Það hefur hún lært
hér heima, líklega af sjónvarpinu,”
segir móðir hennar.
Var ekki erfitt að byrja í skólanum
úti?
„Mér fannst kennarinn minn fyrsti
ekki alveg skilja þaö aö ég skildi ekki
það sem hann var að segja. Svo kom
þetta náttúrlega.”
Hvað meö íslenskuna? Hefurðu ekki
lært mikið í íslensku á því aö vera í
sveit?
„Jú, orðaforðinn þar er öðruvísi og
þaö eru mörg orð og orðtök sem ég
nota bara þegar ég er í sveitinni.”
Hvaða tungumáli eru spenntust
fyrir?
„Eg er eiginlega hrifnust af frönsku.
Annars er ég ekki búin að hugsa svo
mikiöumþað.”
Amerískir krakkar
Talið berst að amerískum krökkum
og andanumþar.
Þóttirðu ekki svakalega amerísk
þegar þú komst heim f rá Flórída ?
„Þaö fannst öllum ég vera svo
væmin,” segir Berglind og hlær. „Eg
var svo hneyksluö á stelpunum þegar
ég kom út. Þær voru svo væmnar. Þær
gengu með veski og langar neglur,
naglalakkaðar og málaðar 10—11 ára.
Mér fannst það svo asnalegt. Síðasta
irið var ég oröin dálítið væmin í mér.
Eg var ekki svona slæm: (Berglind
leikur ameríska stelpu sem segir)
Ahai!
Eg heyrði það svona utan aö mér að
ég þætti dálitið væmin. ”
Það hefur þótt minnka?
,»Já”
Við kveðjum Berglindi sem hefur
jassballet, orgelnám, skíði og hesta-
mennsku sem áhugamál, fyrir utan
tungumálanámið.
góöan framburð og málið hljómi ekki
nógu vel. En aöalatriðið er að geta tjáð
sig. Mér finnst gaman að tala við fólk,
heyra annarra álit og kynnast menn-
ingu framandi þjóða. Eg met það
meira en hvort framburðurinn er
alveg fullkominn. Eg hef líklega lagt
meiri áherslu á að skrifa mál rétt
heldur en að tala þau.”
Hefurðu dvalist langdvölum erlendis
annars staðar en í Frakklandi?
„Já, í Kanada. Svo hef ég farið í
ferðalög. Farið land úr landi. Heimsótt
öll lönd Evrópu vestan járntjalds allt
norður á Svalbarða.”
Finnst þér þú hafa náð dálitlu af
tungumálunumá þessumferðalögum?
„Það er ágæt æfing. Það er gott að
æfa sig í tungumálum á ferðalögum
með því að hlýða á tal fólks í heimlandi
þess þá er maður ósjálfrátt að hugsa á
málinu og er þá kominn nokkuö áleiðis.
Swahili
Sigrún safnar kennslubókum í tungu-
málum. Þar má finna kennslubækur í
japönsku, persnesku, tékknesku,
grísku, arabisku, rússnesku, gaeh'sku,
tyrknesku, kínversku og swahili. Þá er
hún með orðabók yfir 26 tungumál sem
hún hefur gaman af að skoða og bera
saman.
Blandarðu aldrei saman til dæmis
frönsku og spænsku?
„Nei, ég kann þaö mikið í frönsku.
Það er heldur að ég taki til láns úr
frönskunni þegar ég tala spænsku. Eg
hef alltaf forðast það þó að ég kunni
eitthvað í erlendum tungumálum að
nota erlend orð þegar ég tala íslensku.
Mér finnst ekki fara vel á því að nota
mikið af erlendum slettum þó að ég sé
ekki á móti málþróun. Málið verður aö
vera bam síns tíma til að geta þrifist.
Ég er á móti allt of mikilli málvönd-
unarstefnu sem kemur í veg fyrir að
máhð þróist á eölileganhátt.”
Hvað segiröu um íslenskuna eftir allt
þetta tungumálanám ?
„Mér finnst íslenskan fegursta
máhð. Hún má jafnvel kallast sígilt
tungumál þar sem hún er fomtunga
norrænna manna.”
Hvaöa tungumál ætlarðu að læra
næst?
„Næst langar mig til að læra
swahiU.”
„Eins og að hlusta á
músík að heyra ítölsku”
Hver var kveikjan að því að þú
hófst ítölskunám?
„Það er kannski ekki neitt eitt.
Italska er faUegt mál. Eg fór til
ItaUu í sumarfrí og mér fannst ég
ekki komast í samband við landið og
þjóðina eða menninguna. Eg ákvað
eiginlega, þegar ég kom tU baka úr
þeirri ferð, að fara að læra ítölsku,”
sagði B jami Zophoníasson.
Hvað ertu búinn að vera að læra
lengi?
„Eg er búinn að vera að dunda við
þetta liklega síöan 75 meðhléum. Ég
byrjaði að læra héma í námsflokkun-
um og málaskólum. Síöan fór ég til
Flórens og var þar í skóla. Var þar
partúr sumri.”
Þú hefur orðið hrifinn af landinu?
„Já, þaö er kannski ekki bara
máUð sem ég hef áhuga á heldur
bara ítölsk menning og ítalskt
þjóðUf. Mér finnst gaman aö horfa á
ItaU, hvernig þeir hegöa sér. Það er
eins og að fara i leikhús og horfa á
Dario Fo. Það kemur aUt út. Þeir
byrgja ekki hlutina inni. Maður
verður var við að þama er fóik. Hvað
það hugsar og gerir.”
Ert þú ekki eins og ísjaki innan um
ItaU, hávaxinn og ljóshærður?
„Þeir em nú nokkuð hávaxnir í
Flórens. En maður varð átakanlega
var við þaö að maður hugsaöi öðru-
vísi. Maður hegðaði sér öðmvísi en
þeir.”
Hefur þú ekki lært ýmislegt fleira
en ítölsku í gegnum námið?
„Jú. Á þessum skóla sem ég var á
úti í Flórens tók ég til dæmis kúrsus í
matargerð. Fólkiö hérna heima hjá
mér naut þess þegar ég kom heim.
Svo lærði ég listasögu og fleira.
Meirihluti þeirra sem stunduðu
nám við skólann var ungt fólk.
Annars var það á aldrinum frá 17 ára
og upp í sjötugt. Þetta var yfirleitt
fólk sem var að læra sér til
skemmtunar. Fannst ItaUa og
ítalska vera áhugaverð. Italir náðu
því ekki að fólk væri að þessu sér til
skemmtunar. Ef fólk vill komast að
þeim verður það að læra tungumáUð.
Þeir kunna Utið annað en eigið
tungumál. Þó að kennaramir væm
með doktorsgráðu í ítölskunni þá
töluöu þeir lítið annað.
Itölum fannst það skrýtið að vera
að læra mál og sérstaklega það að
eyða sumarfrunu sínu í tungumála-
nám.
Sérfræðingur
í pizzu
Hvað lestu á itölsku?
„Eg kaupi stundum ítölsk blöð og
les. En ég myndi nú ekki segja aö
það séu bókmenntir.
Við fórum til ItaUu í sumar, fjöl-
skyldan og ég held að fólkið hafi
fengið meira út úr þeirri ferð heldur
en ef ég hefði ekki kunnaö ítölsku.”
Við komum aftur að mat-
reiðslunáminu.
: „Já, þarna er matur sem maður
fær ekki á venjulegum veitingastað.
Maður bjó til spaghetti í höndunum.
Og fleiri rétti. Til dæmis pizzu. Eg
var sérfræðingur í henni þegar ég
kom til baka,” segir Bjami og
brosir.
Hvemig tök hefurðu á máUnu
núna?
„Eg get talað við ItaU. Eg held
Tungumálanám
Umsjón:
Sigurður G. Valgeirsson
náttúrlega ekki uppi samræöum um
póUtik eða menningarmál á itölsku.”
Hver var aðdragandinn að því að
þú fórst út á námskeið?
Mér fannst ég vera farinn að
staöna hér heima og auk þess hafði
ég bara áhuga á að fara til Italíu og
skoða mannlífið og þetta var kjörin
leiö til þess.”
Heilaleikfimi
Italir eru miklu opnari en við?
„Að horfa á Itaia þegar hann er að
horfa á sjónvarp, ég tala nú ekki um
kappleiki. Það er miklu skemmti-
legra að horfa á fólkið í kringum sig
á ItaUu heldur en nokkum tíma
kappleikinn. Maður verður miklu
meira var við mannlifið á ItaUu. Það
er vafalaust veðursins vegna og svo
hafa þeir bara aðra skapgerð.”
Ertu í ítölskunámi núna?
„Það má segja að ég hafi verið í
hléi undanfarin tvö og hálft ár. Eg
átti ekki samleiö meö mínum hópi
hér. En ég á vafalaust eftir að fara
aftur til Italíu til aö læra. Mér þætti
annaðósennilegt.”
Hvað um önnur tungumál?
„Eg get ekki státað af öðru en
þessari hefðbundnu kunnáttu í ensku
og dönsku. Þýskunni hins vegar hef
ég keppst við að gleyma. Hún er
alveg sérlega leiðinlegt tungumál.
Áður en ég byrjaöi að læra itölsku þá
var einhver italskur framhaldsþátt-
ur í íslenska sjónvarpinu. Ekki sér-
lega skemmtilegur þáttur. En ég
hlustaði á hann fremur en horfa á
hann. Mér fannst þetta bara eins og
aö hlusta á músík að heyra ítölskuna.
Eg hugsa aö þátturinn og þessi
upphaflega ferð mín til Italíu hafi
orðið kveikjan að því að ég fór að
læra ítölsku.”
Hún hefur höfðað til þín?
„Já‘, einhvem veginn. Ég hef oft
velt því fyrir mér hvort ég hafi
kannski verið Itali í fyrra lífi. Það er
stór spurning.
Svo er gaman að læra. Þetta er
heilaleikfimi.”
Hvað hefur námið tekiö mikinn
tíma?
„Eg held að ég hafi komist upp í
mest 4—5 tíma í viku. Svona
beinlínis.”
Bjami Zophonfasson:
Bjarni meó Davið son sinn i fanginu. Davið er lika hrifinn af ítaliu og
getur beðið um is og talið upp að fimmtán á itöisku, svo eitthvað sé
nefnt. DV-mynd Bj.Bj.