Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1983, Page 8
DV. FOSTUDAGUR 3. JUNI 1983.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Grikkland:
RÍKISSTJÓRN ÞRENGIR
VERKFALLSRÉTT
Gríska þingiö samþykkti í nótt um-
deilt lagafrumvarp, sem gerir verka-
lýösfélögum erfiðara fyrir aö koma á
verkföllum. Samkvæmt hinum nýju
lögum verður aö halda almenna at-
kvæðagreiðslu í hverju verkalýösfé-
lagi og þarf meirihluti félagsmanna aö
samþykkja verkfallsboðun áöur en hún
öölast gildi. Taliö er aö um milljón fé-
lagar í verkalýöshreyfingunni hafi í
gær tekið þátt í sólarhringsverkfalli til
aö mótmæla lagafrumvarpinu. Stjóm
sósíalista segir aö lögin muni gera
verkalýösfélögin lýðræöislegri en áöur
var.
Þegar kom til atkvæöagreiöslu í
þinginu, greiddi meirihluti sósíalista
(Pasok) atkvæði meö frumvarpinu en
hinn íhaldssami Nýi lýðræðisflokkur
gegn því. Hinir þrettán þingmenn
kommúnista gengu af þingfundi áöur
en kom til atkvæðagreiðslunnar og
sögöust ekki reiðubúnir að taka þátt í
lagasetningu sem hefti rétt verka-
manna til verkfalla. Þeir segja aö
ákvæði um almenna atkvæðagreiðslu
innan félaganna fyrir verkfallsboðun
muni gera verkföll svo erfið í skipu-
lagningu og dýr aö menn veigri sér viö
þeim.
Til þessa hafa kommúnistar veigraö
sér viö aö gagnrýna ríkisstjórn sósíal-
ista því þeir hafa óttast aö það myndi
aðeins þjóna hagsmunum íhaldsafl-
anna. Þetta er í fyrsta sinn sem slær í
alvarlega brýnu milli vinstriflokkanna
tveggja á stjórnartíma Papandreou.
Frumvarpiö kemur til síðustu umræðu
á mánudaginn en ekki er búist viö að
aðstæður breytist fyrir þann tíma.
—hörð
mótmæli
á þingi
og utan
«C
Andreas Papandreou, forsætisráð-
herra Grikkja. Hann hefur nú fengiö
samþykkt lög sem þrengja mjög rétt
verkalýðsfélaga til verkfalla.
Fyrr í vikunni geröu skæru-
liðar í Perú árásir í höfuð-
borginni sjálfri, Lima, sem
aldrei hefur áður gerst. Lýst
hefur verið yfir neyðar-
ástandi þar i 60 daga og sett á
útgöngubann í borgum eftir
sólarlag. Eins og sést er ekki
tekið með vettlingatökum á
þeim sem brjóta útgöngu-
bannið.
ELSalvador:
Bandarfskir her-
læknar sendir til
að þjálfa innfædda
Reaganstjómin í Washington hefur
samþykkt aö senda 25 lækna til E1
Salvador, til þess aö þjálfa herlækna í
stjórnarher E1 Salvador og til þess að
skipuleggja umbætur á heilsugæslu-
kerfi landsins. Talsmenn stjórnvalda í
Washington segja aö tilkoma lækn-
anna muni ekki breyta neinu um þau
takmörk sem sett heföu veriö á f jölda
hemaðarráðgjafa frá Bandaríkjunum
í E1 Salvador en því hefur verið lýst
yfir aö þeir muni ekki veröa fleiri en 55
talsins. Segja talsmenn stjórnvalda í
Washington, að hlutverk læknanna
veröi aö gegna mannúðarstörfum.
Nú þegar mun hluti læknahópsins
hafa fariö til E1 Salvador í bandarísk-
um herflugvélum til þess aö meta aö-
stæður og leggja á ráöin um þjálfun
lækna í E1 Salvador.
Utgöngu-
banníPerú
Bretland:
Hagur kosningabandalags vænkast
Hagur kosningabandalags jáfnaö-
armanna og f rjálslyndra í Bretlandi
vænkast nú óöuni ef marka má skoö-
anakannanir og veldur þaö andstæö-
ingum þeirra nú áhyggjum. Verka-
mannaflokkurinn á nú i miklum örö-
ugleikum og fréttaskýrendur telja aö
kosningabandalagið kunni að fara
fram úr Verkamannaflokknum fýrir
kosningadaginn sem er 9. júní nk.
Ihaldsflokkur forsætisráðherrans
Margrétar Thatcher hefur enn for-
skot samkvæmt skoðanakönnunum
en engu aö síður gætir þar nokkurs
spennings. Sir Keith Joseph mennta-
málaráðherra sagði að „þessir síö-
ustu dagar færu illa með taugarnar.
Þetta gæti enn hruniö. Allt getur
gerst. . .oggerirþaölíklega”.
Verkamannaflokkurinn lítur nú á
kosningabandalagið sem helstu ógn-
unina og Michael Foot formaöur
flokksins, sem einbeitt hefur sér aö
Ihaldsflokknum til þessa, úthúöaöi í
gær formanni Frjálslynda flokksins,
David Steel, sem hann kallaöi „popp-
stjðrnu”. Samkvæmt nýjustu tölum
úr skoöanakönnunum nýtur Verka-
mannaflokkurinn nú 28% fylgis og
hefur fylgi hans ekki verið minna í
kosningabaráttunni tii þessa. Ihalds-
flokkurinn nýtur samkvæmt sömu
könnun 47% fylgis sem er 2% minna
en í síðustu viku, meðan kosninga-
bandalagiö hefur bætt við sig 5% og
hefurnú23%fylgi.
Skömmu áöur en kosningabarátt-
an hófst haföi Ihaldsflokkurinn 49%
fylgi, Verkamannaflokkurinn 31,5%
og kosningabandaiagiö 17,5%.
Umsjón:
Ólafur Bjarni Guðnason og
Sigurður Þór Salvarsson
Bandaríkin:
Alelda flugvél nauðlendir
—23 farþegar farast
Flugvél af gerðinni DC-9 varð að
nauðlenda á flugvelli við borgina
Cincinnati í Ohio ríki í Bandaríkjun-
um í nótt. þegar eldur kom upp í
flugvélinni. 23 farþeganna munu
hafa látist. Flugvélin var í áætlunar-
flugi milli Toronto í Kanada og Dall-
as í Texas þegar eldur kom upp í aft-
urhluta hennar.
Talsmaöur flugumferöarstjórnar í
Cincinnati sagöi aö flugvélin hefði
haft 41 farþega og 5 manna áhöfn. 18
manns voru fluttir á spítala strax
eftir nauölendinguna. Vitni viö flug-
völlinn í Cincinnati sögðu aö flugvél-
in heföi veriö alelda þegar hún lenti
og tók klukkutíma aö slökkva eldinn
en flugvöllurinn var lokaöur fyrir
allri flugumferð í tvo tíma eftir slys-
ið.
Fyrst eftir aö eldurinn kom upp í
flugvélinni sendi flugstjórinn út
neyðarkall tii flugvallarins í Indiana-
polis en síðan reyndist styttra að
fljúga til Cincinnati, en flugstjórinn
haföi samband við flugvöllinn þar
þrettán mínútum áöur en flugvélin
lenti. Ekki er vitaö af hverju kvikn-
aöi í vélinni.