Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Síða 9
DV. MANUDAGUR18. JULI1983.
9
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
CIAogFBI
íþjónustu
Reagans
Fyrrum starfsmenn bandarísku
leyniþjónustunnar, CIA, og banda-
risku alríkislögreglunnar, FBI,
voru í þjónustu Reagans núverandi
Bandaríkjaforseta er hann háði
kosníngabaráttu sína áriö 1980.
Þetta er staðfest í bandariska
vikuritinu Time. Þar segir að
William Casey, forstjóri CIA og
kosningastjóri Reagans, hafi ráðið
þessa menn til að safna upplýsíng-
um er að gagni mættu koma frá
þeim f élögum sinum sem enn voru í
starfl. Að sögn Time voru starfs-
menn Reagans ánægðir með að fá
slíkar upplýsingar og nota þær, en
heimildir blaðsins segja ekki um
hvers konar upplýsingar var að
ræöa. Þessar upplýsingar Time
koma fram á sama tíma og rætt er
um hvemig starfsmenn Reagans
komust yfir mínnisblöð Carters
sem ætluð voru til nota í kosninga-
baráttuhans.
William Casey hefur neitað
þessum staðhæfingum.
Japan:
Rangarfréttir
af byltingu
Ritstjóri og blaðamaður við jap-
anska dagblaðið Tokyo Shimbun
hafa verið leystir frá störfum, eftir
að blaðið bar til baka fyrri fréttir af
því að árið 1980 hafi liðsforingjar úr
japanska hemum undirbúið bylt-
ingu. Þessar fréttir, sem birtust í
mars, voru byggðar á viðtölum viö
óneflidan mann sem sagðist vera
liðsforingi i flughemum.
I yfirlýsingu blaðsins segir að
komið hafi í ljós að heimildarmað-
ur blaösins hafi veriö sami maöur
og fyrr í þessari viku var ákærður
fyrir fjársvik. Hann er Takashi
Iwahashi, 42 ára gamall fyrrum
verksmiðjueigandi, sem ekki hefur
gegnt herþjónustu svo vitað sé.
Danska stjómin
stendur naumlega
— Grænlendingar gætu haft líf hennar í hendi sér
„Nýjar kosningar myndu ekki
leysa neinn vanda og þær væru þvi
hrein tímasóun,” sagöi Poul Schliiter
forsætisráöherra Danmerkur i
blaðaviðtali í gær eftir aö fram haföi
komið að hin borgaralega samstjóm
hans muni mjög sennilega biða lægri
hlut í þýðingarmikilli atkvæða-
greiðslu á þjóðþinginu 9. september
næstkomandi.
Forsætisráðherrann hafði áður
lýst því yfir að hann myndi biöjast
lausnar fyrir stjórn sína ef atkvæða-
greiðslan gengi honum í óhag.
I atkvæðagreiöslu þessari á þingiö
aö taka afstööu til frumvarps rikis-
stjómarinnar um niöurskurð á fjár-
stuðningi rikisins til sveitarfélag-
anna, en niöurskurðurinn nemur 1,35
milljarði danskra króna. Ríkis-
stjómarflokkamir fjórir, Ihalds-
flokkurinn, Vinstri fokkurinn, Kristi-
legi þjóðarflokkurinn og Miðdemó-
kratar styöja frumvarpið svo og Rót-
tækir og 15 af þingmönnum Fram-
faraflokksins.
Gegn frumvarpinu standa hins
vegar sósíaldemókratar, Sósíalski
þjóðarfioKKurinn, vinstri sósialistar
og 2. af þingmönnum Framfara-
flokksins. Ollum á óvart hsfur siðan
Preben Lange, annar þingmanna
Grænlendinga, lýst því yfir að hann
muni taka þátt i atkvæðagreiöslunni
og greiða atkvæði gegn frumvarpinu
nema fjárframlag til Grænlands
veröi aukiö. Atkvæði hans mun að
öllum likindum ráða úrslitum í þessu
máli. Því má segja aö Grænlend-
ingar hafi nú líf dönsku ríkis-
stjórnarinnar i höndum sér.
-GJA/Lundl.
Afiiám herlaga i Póllandi mun
trauðla hafa í för með sér aukið frjáls-
ræði til handa Pólverjum, að sögn vest-
rænna sendiráðsstarfsmanna i
Póllandi.
Búist er við að pólska þingiö, Sejm,
muni tilkynna afnám herlaga næst-
komandi föstudag 22. júlí sem er þjóö-
hátíðardagur Póllands. En vestrænir
stjómarerindrekar segja að ríkis-
stjórn Jaruzelskis hershöfðingja hafi
aö undanfömu undirbúið lagasetningu
sem komi í stað herlaganna.
Reiknað er með að hemaðareftirlit
með verksmiðjum verði fellt niður en
frelsi Pólverja til að ferðast erlendis
verði ekki aukið. Þetta hefur verið
mikið umkvörtunarefni eftir setningu
herlaganna. Þegar þau tóku gildi i
desember 1981 urðu öll áður útgefin
vegabréf ógild. Síðan hafa Ieyfi til
utanlandsferða einungis verið veitt
fólki i viðskiptaerindum og þeim er
þiggja boð náinna skyldmenna
erlendis.
Afnám viðskiptaþvingana Vestur-
landa gagnvart Póllandi, mun ráðast
af því hvernig staðiö verður að sakar-
uppgjöf pólitfskra fanga. Samkvæmt
opinberum tölum eru 202 í fangelsi í
Póllandi af st jórnmálaástæðum, þar af
eru 134 ákærðir fyrir að hafa skipulagt
verkföll og brotið gegn herlögum á
annan hátt. Vestrænir stjórnarerind-
rekar telja þessa tölu þó mun hærri og
nefna aö allt aö 2 þúsund manns sitji i
fangelsi af stjómmálaástæðum.
Þingmenn átaldir
fyrir kynmök
við unglinga
Bandariski þingmaöurinn Daniel
Crane lýsti þvi yfir um helgina að hann
hefði gerst brotlegur við lög drottins er
hann átti mök við eina sendimær
þingsins árið 1980, en hann hygöist ekki
seg ja sæti sinu lausu af þeim sökum.
Siðanefnd þingsins hefur nýlega
lokið rannsókn i máli tveggja þing-
manna sem ásakaðir vom um að hafa
haft samræði við sendimær og sendi-
svein og hefur nefndin lagt til að þeir
verði báðir víttir fyrir þessa hegðun.
Daniel Crane hélt blaðamannafund á
heimili sinu um helgina og las þar upp
tilkynningu með eiginkonu sína sér við
hlið. Crane var klökkur mjög, kvaðst
hafa brotið guös lög og vildi nú biöja
hann fyrirgefningar svo og böm sín og
eiginkonu.
Crane er fulltrúi repúblikana á
þinginu en Cerry Studds, sem víttur'
var fyrir samraéði við 17 ára pilt, er
fuUtrúidemókrata.
Þá var James Howarth, yflrmanni
sendimeyja og sendisveina þingsins,
gefið að sök að hafa haft mök við ungl-
ingana en ásakanir um að hann hefði
haft kókaín um hönd í þinghúsinu
reyndust tiUiæfulausar. Howarth er
ekki þingmaður og kveðst siðanefnd
þingsins munu tyfta hann hæfilega
fyrirvikið.
Upplýsingar
og innritun í
Pólland:
VANTRÚA
AFNÁM
HERLAGA
Poul Schliiter forsætisráðherra Dana gæti lent í minnihluta á danska þínginu
ef hann neitar að auka f járframlagið til Grænlands.
Tilraunir með stýriflaugar
— yfir norðursvæðum Kanada
Kanadiska stjómin hefur sam-
þykkt að leyfa bandariska hemum
að gera tUraunir meö stýriflaugar
yfir norðurhluta Kanada á næsta ári.
TUraunimar munu fara f ram yf ir lítt
byggðum svæðum en þetta svæði er
valið vegna þess að það svipar til
þeirra aöstæðna sem myndu mæta
bandariskum herþotum í árásarflugi
að Sovétrikjum, að því er talsmenn
bandarísku herstjómarinnar segja.
Akvörðun kanadisku r&isstjórnar-
innar hefur verið fagnaö af banda-
rískum stjórnvöldum en talið er að
meirihluti Kanadamanna sé henni
andvígur. I skoðanakönnun sem gerð
var á þessu ári kom fram að naumur
meirihluti Kanadamanna var slíkum
tilraunum andvígur.
Kjarnorkuandstæðingar i Kanada
hafa lýst því yfir að þeir muni leita
eftir ógildingu þessarar ákvörðunar
hjá dómstólum þar sem hún stríði
gegn ákvæðum stjómarskrár. Leið-
togar kirkjunnar og kjamorkuand-
stæðinga hafa skorað á Tmdeau for-
sætisráðherra Kanada að endur-
skoöa þessa ákvörðun.