Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Blaðsíða 44
hverri
viku
270T> AUGLÝSINGAR i SÍÐUMÚLA33 >
SMÁAUGLÝSINGAR — AFGREIÐSLA,
SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 i
86611í RITSTJÓRN |" SÍÐUMÚLA 12—14 j
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 1983
SkákmótiðíBelgrad:
Sahovic vann
Júgóslavneski stórmeistarinn Saho-
vic sigraöi á skákmótinu í Belgrad um
helgina. I síðustu umferöinni, sem
•tefld var í gær, átti hann í höggi við
ítalska meistarann Tatai, fékk erfiöa
stööu og lenti í skelfilegu tímahraki en
með snerpu og harðfylgi tókst honum
að „lemja sig út úr þessu einhvern veg-
inn og eftir ótrúiegan barning kom
hann út með unnið riddaraendatafl,”
eins og Jón L. Arnason orðaði það í
símtali viðDV.
Jón L. gerði jafntefli í 12. umferö við
Tiric og Cvetkovic í þeirri 13. og
síðustu. Jóni gekk afar vel framan af
mótinu, náði 5 v. úr fyrstu 7 umferðun-
um en aðeins 2,5 v. úr þeim6 síðustu.
Efstur varð Sahovic eins og að ofan
getur; 2.-3. Marianovic og Ferenc
Portisch með 8,5 v., en Ferenc þessi er
bróðir stórmeistarans Lajos Portisch;
4.-7. Ivkov, Matulovic, Knezevic, Troi
með 8,0 v., og í 8. sæti er svo Jón L.
ásamt 4 öðrum með 7,5 v.
-BH.
Sauðárkrókur:
Flugdagurinn
gekk erflðlega
Frá Gunnari Guðjónssyni, fréttaritara
DV á Sauðárkróki:
Ekki var unnt aö halda flugdag með
því sniði sem fyrirhugað var á sumar-
sæluvikunni á Sauðárkróki um helg-
ina. Aðeins ein lítil flugvél kom frá
Reykjavík og tvær frá Akureyri vegna
slæms veöurs. A laugardag var haldið
íþróttamót í 3. deild frjálsra íþrótta.
HSÞ og UMSS urðu í tveimur efstu sæt-
unum og leika því í 2. deild að ári. I 5.
flokki í fótboltanum vann TindastóU lið
frá Dalvík með 7 mörkum gegn 2. I
þriðja flokki vann Fram Tindastól meö
5 mörkum gegn engu. Dagskrá sumar-
sæluvikunnar verður fram haldið í
dag.
-ÓM.
Evrópumótið íbridge:
Erfið byrjun
Islenska landsliðið í brídge átti erf-
iða byrjun á Evrópumótinu, sem nú
stendur yfir í Wiesbaden í Þýskalandi.
1 gær keppti liöið við Breta, sem sigr-
uðu 17—3. 1 gærkvöld báru Tyrkir svo
sigurorð af Islendingum og fóru leikar
13-7.
Að sögn Guömundar Péturssonar,
fyrirliða íslenska landsliðsins, hafa
Þjóðverjar staðið höfðinglega að öUum
undirbúningi fyrir Evrópumótið. Það
var sett á laugardagskvöld með glæsi-
legri setningarathöfn, sem lauk með
stórfenglegri flugeldasýningu.
Islenska liöið keppir i dag við hiö
sterka lið Itala. .jgg.
- ..................
Guðbjörg IS mok-
ar upp fiskinum
fyrir vestan
— Páll Pálsson með 165 tonn eftir 2 daga
AfUtogarannaaðundanfömuhefur uðurinn, þá landaöi hún 827 tonnum. stærsta var 60 tonn. Þetta var rétt
verið mjög misjafn en einstaka tog- Aðrir togarar hafa einnig aflað við ísröndina og fiskurinn sem aUur
ari hefur þó aflað mjög vel. Þar er vel það sem af er árinu. Má þar til fór í 1. flokk, var fuUur af loðnu. Þrír
fremstur í flokki, eins og undanfarín nefna Harald Böðvarsson AK og togarar lentu í þessu, PáU, Guðbjörg
ár, Guðbjörg IS en hún er komin með Breka VE. Voru þeir báðir komnir frá Isafirði og Már frá Olafsvik. Þeir
yfir 3000 tonn aö landifrááramótum. meðyfír 2700 tonn nú um helgina. Þá voru þarna tvo daga en þá lokaðist
Guðbjörg landaði 664 tonnum í hafa Vestfjarðatogaramir PáU Páls- svæðið.
júiní og það sem af er þessum mán- son IS og Bessi IS einnig aflað vel.
uði hefur hún komið tvivegis að og Þeirhafabáðirlandaðyfir2000tonn- Togarar Bæjarútgerðar Reykja-
landað um 400 tonnum. Er því útlit um og Runólfur frá Grundarfirði er víkur hafa sömuleiðis veitt vel að
fyriraðjúlíætUaöverðametmánuð- einnig kominn með um 2000 tonn. I undanfömu. Þar er Jón Baldvinsson
ur hjá Guðbjörgu. I júlí í fyrra kom gær landaði Páll Pálsson á Isafirði hæstur með um 2700 tonn og Ottó RE
Guðbjörg með 710 tonn að iandi en 165 tonnum eftir 2 sólarhringa. með um 2600 tonn.
ágústmánuöur var samt besti mán- Aflann fékk hann í 8 hölum, það klp/V.J., Isafirði
^ ................................
ENNISVEGUR OPNAÐUR
Ennisvegur var opnaöur til bráða-
birgða fyrir almenna umferð í gær.
Hér er um að ræða nýjan veg, um 2,2
km að lengd, sem lagður er í fjömnni
framan við Olafsvikurenni.
Verkið var boðið út í mars í vor.
Lægsta tilboðið barst frá Hagvirki
hf. um 36,8 milljónir króna og var
það um 53% af kostnaðaráætlun
Vegagerðarinnar. Að viðbættri vinnu
við grjótvamir var síðan samið um
40,3 milljónir króna fyrir verkið.
I upphaflegum útboðsgögnum var
gert ráö fyrir að vegurinn yrðí akfær
1. desember í ár. Verktaki vildi hins
vegar vinna verkið mun hraðar í
upphafi en taka sér síðan sumarhlé
til að sínna öðm verkefnL Fram-
kvæmdir hafa gengið mjög vel og í
samræmi við áætlanir verktaka.
Næsta sumar veröur lagt slitlag á
veginn og verður þá lauslega
áætlaður kostnaöur orðinn um 80—85
milljónir króna á núverandi
verðlagi.
-EA.
Veðurstofa íslands:
Byrjuð að spá
þrjá daga
fram f tímann
Starfsmenn Veðurstofu Islands hafa
aö undanfömu unniö að því að gera
veðurspá um veðurfar þrjá daga fram
í timann. Spá þessi hefur ekki verið
gefin upp heldur færð á skýrslur á
Veðurstofunni þar sem kannað verður
nánar hversu ábyggileg hún er.
Veðurstofan byrjaði á þessu í maí sl.
Er spáin byggð á tölvuspám sem ber-
ast víðs vegar úr heiminum. Eftir
þeim gögnum er þriggja daga spáin
síðan gerð og hún svo geymd á Veður-
stofunni til nánari rannsókna.
Að sögn veðurfræðings sem við töl-
uðum við í morgun hefur engin
ákvörðun verið tekin um hvort eða
hvenær þessi þriggja daga spá verður
gefin út. Er eftir að rannsaka nánar
hversu ábyggileg slík spá er og kemur
það ekki i ljós fyrr en eftir nokkrun
tíma.
Samkvæmt þriggja daga spánni,
sem gerð var nú um helgina, mun
noröanáttin haldast fram á miðviku-
dag. Þá mun aftur fara að þykkna upp
hér á Suðurlandi, enda bíða lægðimar
nú í röðum fyrir vestan Grænland. -klp-
Hraðfrystihús
Patreksfjarðar:
Vinnsla hafin
„Við reiknum með að f rystihúsið fari
aftur i gang klukkan eitt i dag,” sagði
Jens Valdimarsson, stjómarformaður
Hraðfrystihúss Patreksf jarðar, er DV
ræddi við hann í morgun.
Hraðfrystihúsið hefur, sem kunnugt
er, átt í miklum fjárhagslegum erfið-
leikum. I lok síðustu viku var svo
komið aö ekki reyndist unnt að greiða
verkafólki þar laun og hafði þaö þá
ekki fengið laun sin í tvær vikur. Því
var ákveðið að stöðva rekstur frysti-
hússins og var fólkið sent heim á há-
degi sl. föstudag. -JSS.
Dýraspítalinn:
Ennþá
læknislaust
— vilja fá enskmennt-
aðan dýralækni
Dýralæknar hafa enn ekki verið
ráðnir að Dýraspítalanum og þar er
þvl aðeins dýrageymsla en engar lækn-
ingar.
Að sögn Sigríðar Asgeirsdóttur í
stjórn spítalans hafa staðið yfir við-
ræður milli stjómarinnar og dýra-
lækna en engar niðurstöður fengist.
Sagði hún að stjórnin leggi áherslu á að
gæðastimpli sé haldið. Meiningin með
því er að hér séu stundaöar lækningar
á dýrum en ekki farið eftir hagsýnis-
sjónarmiðL” sagði Sigríður. Taldi hún
að dýralæknamir hefði hagsýnissjón-
armiöin meira að leiðarljósi, þetta
væri spumingin um hvort á að lækna
dýr frekar en svæfa. „Vegna þessa
sjónarmiös langar okkur mikið aö fá
enskmenntaðan dýralækni,” sagði Sig-
ríður. JBH
Sirkusinn borgar söluskatt
„Nei. Ég veit ekki betur en að þessi
sirkus sé fyrirtæki sem útlendingar
reka og ferðast með milli landa til að
sýna. Þetta er allt annar handleggur,”
svaraði Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra er DV spurði hann hvort
söluskattur yrði felldur niður af
sirkusnum við Glæsibæ.
Sú ákvöröun fjármálaráöherra að
fella niður söluskatt af Tívolíinu á
Miklatúni hefur vakið talsverða
athygli, ekki síst fyrir þá sök að í hópi
þeirra sem stóðu að fyrirtækinu er að
finna tengdason Alberts og menn sem
taldir eru eindregnir stuöningsmenn
hans. Ráöherra var spurður hvort
hann hefði orðið var við aukinn þrýst-
ing á niðurfellingu söluskatts að
undanförnu:
„Nei, nei. Enda er þetta ekki
fordæmisskapandi. Söluskatturínn var
aldrei innheimtur þannig að það er
ekki verið að fella niður fyrir þá sem
standa fyrir þessu heldur fyrir þá sem
nota þaö, bömin i bænum. Annars
hefði aðgöngumiðinn orðið um 25 pró-
sent dýrari. Þetta er tilbreyting í
annars tilbreytingarlausu bæjarlífi
fyrir börnin á stuttu sumri,” svaraði
Albert Guðmundsson.
-KMU.