Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Blaðsíða 25
DV. MANUDAGUR18. JOLI1983.
Iþróttir
25
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Skagamönnum naeeði
hálftími á Víkinga
— sigruðu 2-1 í stórskemmtilegum leik í 1. deild á Laugardalsvelli þar sem
tækifærin komu á færibandi
„Ég er mjög ánœgður með sigurinn.
Ég var hrœddur við þennan leik vegna
blkarleikslns við Val sl. miðvlkudag.
Öttaðist að leikmenn mínir yrðu
þreyttir. Við lékum vel í fyrri hálfleik
og hefðum þá átt að gera út um lelkinn.
En eins og leikurinn þróaðist í síðari
hálfleik vorum við kannski heppnir að
hljóta bseði stlgin,” sagðl Hörður
Helgason, þjálfarl Skagamanna, eftir
að Akranes hafði slgrað Víking, 2—1, í
1. deild í stórskemmtilegum lelk á
Fögruvöllum á föstudagskvöld. Skaga-
menn léku mjög vel i fyrri hélfleikn-
um, sköpuðu sér góð færi og skoruðu
tvívegis og ég efa að lið hafi í annan
tima sýnt betri leik á Islandsmótinu í
sumar. Leikurinn í heOd var opinn og
oft glæsileg knattspyrna á islenskan
mælikvarða sem llðin sýndu. t.siðari
hálfleiknum höfðu Viklngar yfirburðl,
léku oft mjög vel upp og lnn í vítatelg
Skagamanna en þar brást flest hjá
þelm. Eins og leikurlnn þróaðist var
hrottalegt fyrlr Víkinga að ná ekkl að
minnsta kosti öðru stiginu. En llð sem
mlsnotar auðveldustu færi, skorar
ekki, verðskuldar auðvitað ekkert. A
það bættist elnnig að Bjarnl Sigurðs-
son, markvörður Skagamanna, átti
frábæran lelk í markinu, varði meðal
annars tvivegls á hreint undraverðan
hátt.
,3kagamenn léku mjög vel í fyrri hálf-
leik og hefðu þá jafnvel getað skorað
fjögur mörk. En samt átti Víkingur að
sigra í leiknum. Eg er mjög ánægður
með baráttu leikmanna liðsins i síðari
hálfleik. Þeir léku mjög vel og sköpuðu
sér frábær tækifæri til aö skora mörg
mörk,” sagði Jean-Paul Colonval, hinn
belgíski þjálfari Víkings.
Kraftur í
Skagamönnum
Skagamenn léku móti sunnangolu í
fyrri hálfleik — merkilegt hvað liðin
léku miklu betur á móti golunni í leikn-
um — og byrjuðu með miklum krafti.
Greinilegt að þeir ætluðu að gera út um
leikinn meðan úthaldið var í lagi og
það tókst. Á fyrstu mín. komst Hörður
Jóhannesson i færi en ögmundur
Kristinsson varöi skalla hans. Rétt á
eftir var Ámi Sveinsson hættulegur
innan vítateigs Vikings. Spymti fram-
hjá. A10. mín. komst Sigþór Omarsson
í færi eftir misskilning í vörn Víkings.
Nýtti það ekki en það kom ekki að sök
fyrir Skagamenn. Þeir náðu knettin-
um strax aftur, léku vöm Víkings
grátt og Hörður skoraði fallegt mark.
Hörður fékk annaö færi um miðjan
hálfleikinn en skaut framhjá úr þröngu
færi og á 30. mín. kom annað mark
leiksins eftir fallegt upphlaup. Sigurð-
ur Jónsson fékk knöttinn við vítateig-
inn, sneri sér og spymti frekar laust í
markhomiö, neðst. ögmundur hefði
átt að verja, jafngóöur markvörður og
hann er. Hörður var bókaður skömmu
síöar og Siggi Jónsson var frá leik um
tíma vegna meiðsla. Víkingar fóru að
koma meira inn í myndina. Fengu
hornspymu á 42. mín. Aðalsteinn tók
spymuna, gaf vel fyrir og Sig. Aðal-
steinsson skallaði knöttinn efst í mark-
hornið. Bjarni varði hreint snilldar-
lega.
Víkingar
sækja sig
Oskar Tómasson kom inn sem vara-
maður hjá Víkingi eftir leikhléið og
leikurinn breyttist mjög til hins betra
hjá leikmönnum liðsins sem mættu
mjög ákveðnir. Fóru strax að sækja af
krafti en Skagamenn lögðu áherslu á
vörnina og treystu á skyndisóknir. Ur
einni varði ögmundur vel frá Svein-
bimi.
A 60. min lék Oskar fallega á Arna
Sveinsson innan vítateigs en Ámi
sparkaöi þá í fætur Oskars sem steinlá.
Vítaspyma, sem Omar Torfason skor-
aði úr, 1—2, og markiö var mjög
hvetjandi fyrir VQringsliöiö. Það sótti
og sótti, tók mikla áhættu, því vamar-
mennimir voru stundum fremstir í
sókninni. Skagamenn oft með 10
manna vöm og hugsuðu ekki alltaf um
'hvert knötturinn fór. Eftir hlaupin
miklu í fyrri hálfleik og erfiða leiki
undanfarið fór þreytan að setjast í þá.
Víkingar fengu færi eftir færi til að
gera út um leikinn. Heimir spymti
framhjá úr þröngu færi um miðjan
hálfleikinn. Síðan stóð Aðalsteinn frír
fyrir miðju marki inni á markteig.
Tókst ekki að skora. Omar Torfason
átti hörkuskalla í hliðarnet Skaga-
marksins og Sigurður átti einnig skalla
rétt framhjá. Heimir komst einn inn-
fyrir vömina en Bjarni varði frábær-
lega frá honum og á lokamínútu leiks-
ins fékk Oskar knöttinn frír næstum
inn á marklínu Skagamanna. Tókst á
óskiljanlegan hátt að spyrna yfir.
Skyndiupphlaup Skagamanna vom oft
skemmtileg enda lögðu Víkingar litla
áherslu á vamarleikinn en beint opin
færi tókst þeim ekki aö skapa sér nema
hvað Siggi Lár. skallaði rétt yfir eftir
homspyrnu. Siöustu 12 mín. vom báðir
varamenn Skagamanna settir inn á.
Skemmtilegur leikur og opinn en
iítið skorað úr öllum þeim færum sem
gáfust. Bjami var hetja Skaga-
manna, Arni lék mjög vel lengi og Sig-
urður Jónsson allan leikinn. Ekki
þreytumerki á þessum yngsta manni í
leiknum. Sigþór skæður í sókninni, svo
og Hörður og Sveinbjöm. Eftir góöan
leik í f.h. var vöm liðsins hins vegar
eins og gatasigti i þeim siðari.
Omar Torfason bar af i Víkingslið-
inu. Átti mjög góðan leik. Heimir í
stöðugri sókn og mörkin hljóta að fara
aö koma hjá þessum markakóng síð-
asta leiktímabils. Aðalsteinn og Gunn-
ar unnu vel og Jóhann Þorvarðarson
mjög sterkur í s.h. Sigurður Aðal-
steinsson mikill baráttumaöur og liðið
styrktist þegar Oskar kom inn á.
Stefán Halldórsson gat ekki leikið
vegna meiðsla. Dómari Sævar Sigurðs-
son og dæmdi mjög vel. Liðin vom
þannig skipuö.
ögmundur, Þórður Marelsson,
Jóhann, Olafur Olafsson, Magnús Þor-
valdsson, Gunnar, Omar, Aðalstelnn,
Heimir, Sigurður og Ómar Björasson
(Oskar45mín).
Akranes. Bjarni, Guðjón Þórðarson,
Sig. Lárasson, Slg. Halldórsson, Jón
Áskelsson, Sig. Jónsson, Árnl, Sveln-
björa, Hörður (Björn Björasson), Guð-
björa Tryggvason, Sigþór (Júlíus
Ingólfsson).
Maður leiksins. Bjarai Slgurðsson,
Akranesi.
hsím.
íþróttir
Stefnir
í fyrsta
sigur
Frakka
— í grand-príx
kappakstrinum
Frakkinn Alaln Prost virðist nú
hafa alla möguleika á þvi að
verða fyrstl Fransmaðurlnn til
að slgra í grand-prix kapp-
akstrinum fræga en þessi keppni
hófst fyrst 1950. Prost, sem er 28
ára, vann slnn þriðja sigur í
keppninni í ár þegar hann varð
fyrstur i breska kappakstrlnum í
Silverstone á laugardag.
Prost ók vegalengdina 316,15
km — 67 hringlr — á 1 klst. og 24
min. og 39,780 sek. Meðalhraði
hans var 224,04 km á klukku-
stund. Næstur varð Nelson
Piquet, Brasiliu, á 1:24.58,941 og
þriðjl Patrick Tambay, Frakk-
landi.
Eftir keppnina í Silverstone er
Prost efstur með 39 stig. Piquet
er annar með 33 stig og Tambay
þriðji með 31 stig. t fjórða sæti er
núverandl heimsmeistari, Finn-
inn Keke Rosberg, með 25 stig.
hsím.
Sovéski dýf-
ingamaður-
inn látinn
Sovéski dýfingamaðurlnn
Sergei Shalibashwili, sem slasað-
ist lifshættulega í dýfingakeppn-
inni á stúdentaleikunum i
Edmonton i Kanada á dögunum,
lést á laugardag í sjúkrahúsi i
Edmonton. Hann var 21 árs og
komst aldrei til meðvitundar
eftir slysið.
hsím.
— þegar Fram vann, 1-0, á Siglufirði
Í2. deild
„Vlð áttum þennan sigur fyllilega
skilinn þar sem við sóttum melra og
tækifæri okkar voru betri en norðan-
manna,” sagði Guðmundur Torfason,
leikmaður Fram, eftir lelklnn á Siglu-
flrðl í 2. deildinni á laugardag. Fram
vann lelklnn, 1—0, og skoraðl
Guðmundur marklð í seinni hálfleikn-
um. Fram fékk aukaspyrau á 53. mín.
leiksins sem Hafþór Svelnjónsson
framkvæmdl. Hann sendi boltann á
Halldór Arason sem framlengdl á Guð-
mund og hann skoraðl af stuttu færi.
Leikurinn var nokkuö harður en leik-
menn Fram voru ivið ákveðnari og
pressan var oft mikil að marki Siglfirð-
inga. Það var ekki laust við að
Siglfirðingarnir bæru nokkra virðingu
fyrir leikmönnum Fram.
I fyrri hálfleiknum áttu Siglfirðingar
tvö sæmileg færi en Mark Duffield
brenndi af í bæði skiptin. Framarar
voru þó meira inni í myndinni og oft
varð markvörður Siglfirðinga, Omai1
Guömundsson, aö taka á honum stóra
sínum.
Framarar komust í þrígang einir í
gegnum vörn Siglfirðinga í seinni hálf-
leiknum en alltaf brást þeim bogalist-
in. Annaðhvort var Omar vel á veröi
eða skotið var framhjá. Undir lokin
voru Siglfiröingar svo nálægt því að
jafna en Björa Ingimarsson átti tvö
góð skot að Frammarkinu. Hið fyrra
fór þó yfir og í seinna skiptið hitti hann
aöeins hliðarnetið.
Framliðið var mjög jafnt í þessum
leik og enginn skaraöi framúr. Hjá
Siglfirðingum ber helst að ne&ia maric-
vörðinn Omar Guömundsson sem
varðioftvel. -AA
Guðmundur Torf.son, Fram.
Guðmundur Torfa
skoraði sigurmarkið
TJALDBORGAR-
FELLITJALDIÐ
TEKUR AÐEiNS
MÍNÚTURAÐ
TJALDA.
TJALDBORGARFELLITJALDIÐ
er sérhannað fyrir íslenska
veðráttu, það kostar aðeins
brot af verði tjaldvagns og er
jafnauðvelt í uppsetningu.
Stœrð 205 x 410 cm. Stærð
svefntjalds er 205 x 200.
TÓmSTUnDfíHÚSIÐ HF
Lougaueqi ISí-Reytiouil: »21901