Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Blaðsíða 17
DV. MANUDAGUR18. JULI1983.
17
Lesendur
Lesendur
DULARFULUR
SÖLUMENN
0919—3421 skrifar:
Eru ekki tií einhverjar reglur sem
kaupmenn og sölumenn verða að fara
eftir þegar þeir eru að bjóða okkur-
almenningi ýmiskonar vöru? Ég spyr
nú að þessu vegna þess að undanfarn-
ar vikur hafa einhverjir menn verið að
auglýsa í blöðunum forrit fyrir
Spectrum heimilistölvur. Þeir gáfu
hvorki upp nafn né símanúmer en
vildu fá peningagreiðslur í póstbox,
sem reyndist tilheyra Alþýðublaðinu,
en þar kannaðist enginn við málið
þegar ég hringdi þangað. Svo var aug-
lýsingunni breytt og nú eiga væntan-
legir kaupendur að skrifa á Poste
Restante og senda þangað peninga en
þetta þýðir að maöur leggur fjármuni
sina í hendur óþekktra manna án þess
að fá nokkra staðfestingu eða kvittun
fyrir.
Eg fór samt sem áður með bréf
niður á pósthús og pantaði nokkur for-
rit í tölvuna mína en þessir dularfullu
sölumenn hringdu heim til min þegar
ég var f jarverandi og kröfðust peninga
í pósti þegar i stað ella fengi ég enga
vöru frá þeim. Hvað á nú svona sölu-
mennska að þýða? spyr ég. Skilja
þessir piltar ekki að kaupendur verða
að fá einhverja staðfestingu þess að
þeir hafi greitt fyrir vöruna fyrirfram
eða er þetta einhvers konar brella til
þess að hafa fé af saklausu fólki? Gott
væri að þeir gerðu grein fyrir sínu máli
á þessum vettvangi hið allra fyrsta því
eflaust hafa fleiri en ég orðið fyrir
barðinuáþeim.
BÓKMENNT A VERÐ-
LAUNJÖRUNDAR
Reykvikingur skrifar:
Þá eru hundadagarnir byrjaðir. I
hvert skipti sem hundadaga ber upp
verður mönnum hugsað um Jörund.
Jörundur ríkti sem kunnugt er hér á
landi á hundadögum 1809.
Satt aö segja hafa Islendingar aldrei
sýnt minningu hans tilhlýðilega virð-
ingu. Hann var að sjálfsögðu ekkert
annað en trúður sem gerði svo misk-
unnarlaust grin að Danaveldi og hálf-
danskri embættismannastétt að önnur
ámóta dæmi finnast alls ekki í Islands-
sögunni, vart í veraldarsögunni.
Valdarán Jörundar varð til þess að
Islendingar sáu betur en áður hve völd
Dana stóöu völtum fótum og sýndi
þeim að stjóm Dana var óþörf. Við
ættum því að rækta minningu hans. Má
ég stinga upp á þvi að stofna Bók-
menntaverðlaun Jörundar hundadaga-
konungs?
„Slæm reynsla
af fræflum
2194—7881 hringdi:
Eg byrjaði að taka inn blómafræfla
fyíir skömmu en þá brá svo við að lík-
ami minn varð allur út í rauðum,
sárum blettum. Kona min og dóttir
taka líka fræflana en allt hefur veriö i
lagihjáþeim.
Hver er eiginlega skýringin á þessu?
Til hvers að vera að þröngva þessu upp
á likamann ef hann hefur ofnæmi fyrir
þvi? I leiðbeiningunum stendur að
minnka eigi skammtinn til að venja
líkamann við pillumar, fara niður i 1/4
úr pillu eða jafnvel 1/8. Hver er skýr-
ingin á þessu? Mér finnst einkennilegt
að eiga að halda áfram að taka þetta ef
Mkaminn bregst svona við.
Hilmar Helgason, hjá Sölusamtökun-
umh/f, svarar:
Eins og fram kemur í bæklingi er hér
um að ræða eitt besta ofnæmislyf sem
hægt er að fá. Það er gott við t.d. hey-
mæði, psoriasis og Qösu. Ef menn fá
útbrot á Mkamann er eitthvað rangt við
likamsstarfsemi þeirra. Þetta er
spurning um aðlögunartima. Það er
sama hvort um er að ræða fæðu, víta-
mín eöa annað, menn verða að taka
þessa hluti reglulega. Hið sama gildir
umfræflana.
Maður nokkur, sem þjáðst hafði af
exemi í hári i mörg ár, haföi samband
við mig. Eftir þrjár vikur var það farið
en hann fékk roða til að byrja með,
fyrstu vikuna. Það eru engar tvær
manneskjur eins en það er talað um að
fólk fari almennt að finna á sér breyt-
ingar eftir 2—3 mánuði.
A/drei meira úrval af kommóðum
Litir:
Fura,
1 . 'X:
hvítar 1 i ; ' \
3 sk.fura 1.688
4 sk.fura 1.998
5 sk.fura 2.396 Breidd 80 cm.
6 sk.fura 2.588 Dýpt 40 cm. Hæð 56 til 101 cm.
3 sk. efst + 252
Jffl 4 sk. 8sk. 1.665 2.680 Breidd 45 cm. Dýpt 40 cm. Hæð 71 og 131 cm.
sunnMBíffi
Háteigsvegi 20 - Sími 12811
Ekta leður-mokkasíur frá ROMANI
Teg.3778
Utur: Vinrauðurog
grár.
Hæll: 5 cm.
Stærð: 36-42.
Verð: 1.623.
Teg. 3823
Utur: Vinmuður
íioðunóiij.
Hmii: 4 cm.
Stœrð: 36—42.
Varð: 1.S67.
Teg. 3846
Utur: biir mað
vinrauðum brydding-
um.
Hæll: 3 cm.
Stærð: 36-42.
Verð: 527.
Teg.3700
Utur: Brúnn, reimaðar.
Hæll: S cm, rifflaðir
sólar.
Stærð: 36-42.
Verð: 1.674.
Teg. 3841
Utur: Ljósbrúnn og
brúnn.
HæH.Scm.
Stærð: 36-42.
Verð: 1.S27.
Teg. 3761
Utur: brúnn m/svört-
um bryddingum.
Hæll: 3 cm.
Stærð: 36-42.
Verð: 1.379.
Teg.3736
Utur: Vlnrauður fhré-
gúmmlsólar).
Hæll: 4 cm.
Stærð: 36-42.
Verð: 1.603.
Domus Medica.
Egilsgötu 3 -
Sími 18519.
—^SKDBDni
VELTUSUNOt 1