Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Blaðsíða 18
18 DV. MÁNUDAGUR18. JtlLl 1983. ©WtHMí PURRKUR PILLNIKK - MASKÍNAN ÓLAFUR RAGNARSSON— BLANDA FYRIR ALLA Lítilfjöríeg lög þegar miðað er við eldrí períur Dr. Hook er hljómsvelt sem má muna tímanna tvenna. Þaö var í byrjun áttunda áratugarins sem þeir komu fyrst fram og þá undir nafninu Dr. Hook And The Medicine Show. Þaö var bandaríski húmoristinn og tón- skáldiö Shel Silverstein sem upp- götvaöi þá og kom þeim á framfœri. Hann var einnig sá sem samdi þau lög sem uröu hvaö vinsælust meö þeim, má þar nefna meðal annarra Sylvia’s Mother og The Cover Of Rolling Stone. Þessi lög og sérstaklega textarnir viö þau uröu til að skapa Dr. Hook nokkra sérstöðu innan poppheimsins. En textar Shel Silverstein eru mjög fyndnir og skemmtilegir og fljótlega varð Dr. Hook mjög vinsæl á hljóm- leikum og er það raunar enn ídag. Eftir aö samstarf Dr. Hook og Shel Silverstein tók enda fóru þeir sjálfir aö semja lög en meö frekar misjöfnum árangri en þrátt fyrir þaö hafa meö- limir Dr. Hook haldið hópinn í gegnum árin og verið lítið um mannabreyt- ingar hjá þeim og enn þann dag í dag flykkjast unglingarnir til að sjá DR. HOOK „gömlu” mennina á sviöi syngja snlö- ugu lögin sem geröu þá fræga. En þaö nægir ekki að flytja alltaf sömu gömlu lögin. Eitthvaö nýtt veröur að bera á borö fyrir hlustendur og reglulega hefur Dr. Hook gefið út plötur og heitir sú nýjasta Let Me Drink From Your Well og það verður aö segjast aö mikill munur er á gömlu Shel Silverstein lögunum og þeim lög- um sem þeir flytja á þessari plötu, eldri lögunumíhag. Let Me Drink From Your Well inni- heldur tíu lög sem eru hvert öðru mis- heppnaöra. Aö vísu eru fýrstu tvö lögin á plötunni, titillagiö Let Me Drink From Your Well og Animal Instinct, nokkuö lífleg og skemmtilega flutt og eftir aö ég haföi hlustað á þau tvö var ég farinn aö halda að Dr. Hook væri farin að rétta úr kútnum en sú von brást því restin af lögunum á plötunni er meðalmennskan uppmáluð, renna í gegnum eyrað og jafnfljótt út um hitt og er ekki annaö að heyra en að Dr. Hook sé enn ein hljómsveitin sem lifir á fomri f rægð peninganna vegna. HK. I,Flashdance — Ýmsirflytjendur: Olafur Ragnarsson nefnist piltur nokkur sem í septembermánuöi árið Nýjar plötur 1981 rölti inn í Stúdíó Stemmu og tók þar upp sex lög eftir sjálfan sig, með aöstoö vina sinna. Loks nú, tæpum, tveimur árum síðar, eru lög þessi komin út, en sannast sagna heföu alveg mátt líöa nokkur ár i viöbót. Platan er sem sé ekki neitt til aö hrópa húrra yfir. Lögin sex eru keimlik, helst að instrúmental lögin tvö skeri sig úr. Fyrsta lagið er jafnframt hiö skásta, en þaö nefnist Hafiö eða f jöllin. Strax i þvi gera tveir átakanlegir gallar vart við sig. Fyrir það fýrsta eru textar Olafs allir slappir, sumir mjög svo, en öllu verra er að Olaf skortir alla söng- hæfileika. Er stundum ægilegt aö hlýöa á piltinn, eins og t.d. í laginu En þá. Hulda, systir Olafs, syngur annars aöalröddina i fyrrnefndu lagi og er skömminni skárri, en söngsnilld er þar engin. En i laginu Söknuöur spennir hún' ÓLAFUR RAGNARSSON bogann of hátt og skýtur langt yfir markiö. Aö nokkrum skyldi detta i hug aö láta hana syngja i þessu lagi. Lagið sjálft er í Sveitin milli sanda-stíl og verður eigi fjölyrt meira um það. Undirspilið á plötunni er misjafnt, oftast litlaust en stundum örlar á skemmtilegum pianóleik og bassinn er ekki slæmur. Þá er Ríkharður oft með flott sánd i gítamum. Á móti koma hinir hræðilegu flaututónar í En þá ..., sem liða hlustandanum seint úr minni. Utsetningar eru venjulegar og lítt grípandi. Hljómurinn i lakara lagi. Þaö er ekki mflriu viö þetta aö bæta. Því minna sem sagt er þvi betra, en vist er þó aö þetta einkaflipp Olafs Ragnarssonar mun mjög fljótlega gleymast. Purrkur Pillnikk In Memoriam Purrkur Pillnikk var ein merkileg- asta hljómsveit landsins meöan hún var og hét. Upphaf hennar má rekja til þess aö fjórir félagar ákváöu að troða uw» meö hljómsveit á tónlistarkvöldi í MH. Þeir æfðu nokkrum sinnum og komu siðan fram við ágætar undirtekt- ir. Orskömmu seinna gáfu þeir út sína fyrstu litlu plötu, „Tilf”. Hljómleikar sigldu í kjölfariö og varð hljómsveitin nær samstundis vinsæL Purrkurinn var einstæð hljómsveit á Islandi. Mottó hljómsveitarinnar var: Þaö sem skiptir ekki máli aö geta heldur aö gera. Purrkamir em ekki PURRKUR PILLNIKK neinir snillingar í hljóöfæraleik eöa söng, enda hafa þeir aldrei reynt aö halda þvi fram. En hins vegar höföu þeir til brunns að bera frjóar hugmyndir og þor til aö koma þeim í framkvæmd. Þeir voru frumherjar i íslensku rokki um margt og blésu lífi í stöönunina. Islensk rokksaga hefur aö geyma mörg dæmi um menn sem hafa búið yfir miklum hæfileikum en aldrei nýtt sér þá heldur fylgt tískubólum en ekki reynt aö fást viö persónulega sköpun. Auðvitað fór Purrkurinn, ærsl og gaman e.t.v. fremur lélegra hljóðfæraleikara Ltaugarnar á hinum ráðsettu. En með því var bjöminn unn- inn. Ahorfendur kunnu vel aö meta Purrkinn því hann var fyrst og fremst hljómsveit augnabliksins og stemmningarinnar. Það er því eölilegt aö hljómplötuútgáfan Gramm sendi frá sér úrval af hljómleikaupptökum með Purrki Pillnikk. Eg verö þó aö segja eins og er aö mér finnst stemmningin sem Einar örn skapaði með sviösframkomu sinni ekki koma nægilega vel i gegn, kannski ómögulegt. Maskinan — en svo heitir hljóm- ’leikaplatan — er þó eigulegur gripur fyrir alla þá sem hlýddu á og höföu gaman af hljómleikum Purrksins. Sér i lagi er mikill fengur í síöustu upptökum Purrksins, — frá Melarokk- inu. Þær sýna og sanna aö Purrkurinn hætti á toppnum. Þeir heföu ekki getaö þróast lengra i þessa átt. Um hljóðfæraleik Piurka er það aö segja aö enginn þeirra getur talist öndvegishljóðfæraleikari. Ásgeir Bragason er mjög skemmtilegur trommuleikari og hefur sérkennilegan stíl. Þó heföi ég gaman af því aö heyra hann leika á bassa á ný. Friðrik Erlingsson getur vart talist frumlegur gitarleikari, en hann skilar sinu þokka- lega á Maskinunni sem endranær. Bragi Olafsson var i stööugri sókn á sitt hljóöfæri, bassagitarinn. Hann var ekki burðugur i bemsku Purrksins en honum fór svo mjög fram aö hann getur nú talist mjög frambærilegur. Og þá á ég eftir aö minnast á Einar örn. Hann er engum likur. Hann er gjörsamlega raddlaus, hefur ekki einu sinni s jarmerandi rödd. En á hinn bóg- inn býr í honum drýsildjöfull, fullur lifskrafts, orku og hugmynda. Og af því veitir ekki i rokki. Besta lag Maskinunnar: I augum úti. és Mættum við fá betra að heyra? Hafi einhverjum dottið í hug aö Flashdance skipi sér á bekk með stórmyndum rokksögunnar er rétt að láta slíkar hugrenningar lönd og leiö strax. Saturday Night Fever og Grease skoluðu f jórum lögum hvor inn á topp tiu í Bandarikjunum; þaö má merki- legt véra ef tvö lög utan titillagsins i þessari mynd ná svo langt i næstu framtið. Sjálf myndin mun einnegin vera giska ómerkilega, þrátt fyrir góöa aðsókn vestan hafs, og þess borin von aö hún hrífi ungmenni með sér einsog fýrrnefndu myndirnar gerðu á sinni tið. Víst skartar Flashdance poppstjörn- um nógum, en ýmist eru þær slappleik- inn alger ellegar „langt frá sínu besta” einsog stundum er sagt um íþrótta- garpa. Titillagið er að sönnu heillandi, eða var það að minnsta kosti fyrst i staö, og Irene Cara er söngkona sem vert er aö gefa gaum. Hennar hlut- verki er hins vegar lokiö þegar siöustu tónunum i Flashdance... What Á Feel- ing sleppir; hér leikur hún ekki aöal- hlutverk myndarinnar eins og í Fame um áriö. Höfundur þessa títtnefnda titillags er Giorgio Moroder, lunkinn lagasmiöur sem samið hefur lög fyrir marga, og hann er skrifaður fyrir þremur öörum lögum á þessari skífu. Þau eru nú ekki sérlega beysin fremur en til dæmis framlag söng- kvenna eins og Donnu Summer, Lauru Branigan og Kim Cames. Helst er þaö þó lag Donnu sem má hafa gaman af. 1 kjölfar vinsælda Flashdance-lags- ins hefur annaö lag plötunnar verið þrykkt á smáskifu og fleytt upp banda-. ríska vinsældalistann. Þetta er lagiö Maniac eftir Michael Sembello og i flutningi hans sjálfs, sem stendur í nitjánda sæti bandariska listans og lík- legt til þess aö fara enn ofar, enda hressilegt lag og í flestu ólikt öörum á plötunni. -Gsal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.