Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Blaðsíða 40
r
40
DV. MÁNUDAGUR18. JULI1983.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Þessi ferðalangur varð á vegi blaða-
manns og ljósmyndara DV á leið til
Þingvalla fyrir skömmu. Hans
Chlechowitz kvaðst hann heita, frá
bænum Neubeckum í Ruhr-héraði i
Vestur-Þýskalandi.
„Eg kom til landsins með flugvél
sunnudaginn 10. júlí og er einn á ferð.
Eg ætla að ferðast um á hjóli, en ég er
ekki búinn að ákveða hvað ég fer
langt,” sagði Hans.
Hann var vel búinn, eins og nær ein-
hlítt er um Þjóðverja. Tjald, svefn-
poka og vistir hafði hann í vagni sínum
og hjólið var greinilega flunkunýtt.
„Eg var á Svalbarða í átta vikur fyrir
fjórum árum. Þar fór ég um á hjóli og
reyndar kajak líka. En þetta er í fyrsta
sinn sem ég kem til Islands. ”
Hans kvaöst hafa mikinn áhuga á
plöntum og gróðri, en annars starfar
hann sem tæknifræðingur hjá raf-
eindafýrirtæki. Við spurðum hann
hvernig honum fyndust islensku veg-
irnir. „Það er allt í lagi með rykið, það
fýkur bara burt. En það er verst hvað
þeir eru hrjúfir og holóttir.” Að kvöldi
dagsins ætlaði Hans aö tjalda á Þing-
völlum en þaðan lá svo leiöin i Húsa-
fell.
Við skulum vona að ekki fari fyrir
Hans Chlechowitz eins og ferðalangn-
um sem gafst upp við Kirkjubæjar-
klaustur á dögunum, skildi þar eftir
hjól sitt og búnað með þeim orðum, að
slyppi hann lifandi úr ferðinni mætti
kirkjan þar eiga allt hafurtaskið. Tók
hann siðan næstu rútu til Reykjavíkur!
-PÁ.
ókum fram á hann. Enga sólina hafði
hann fengið síðan hann kom.
DV-mynd: GVA.
Victoria, í æfingagalla með lítt áberandi Y hálsmáli, nuddar bífurnar.
jm
Pam puöar
Ekki veröur slakað á í umfjöllun
um hinar ýmsu iíkamsræktarað-
ferðir. Víðfrægar leikkonur úti í
hinum stóra heimi sitja sveittar við
að seinja bækur, um hveniig best er
að halda sér í formi. Nú hefur Victor-
ia Prineipal sú sæta og elskulega úr
Dallas gefið út eina slíka. í henni er
lögö aðaláhersla á æfingar sem hægt
er að gera á gólfinu og öðrum stöðum
ótilgreindum. Hér á myndinni sést
Victoria kynna líkamsrækt þessa
fyrir biaðamönnum, en gaman
verður að sjá hvort hún komi til með
aö veita Jane Fonda einhverja sam-
keppni.
Einn á hjóli
Rod svínbeygður
Hjónabandið breytir bestu mönnum,
þar á meðal Rod Stewart. Rod gifti sig
fyrir þó nokkru síöan henni Alönu
sinni. Fram að því að hann batt trúss
sitt hafði Rod reynt að skemmta sér
eins og hver dagur væri hans síðasti,
og það ekki einn, því upp á hvem dag
var hann umkringdur tryggum hópi
svaUbræðra sem gerðu sitt besta tU
þess að sjá tíl að Rod færí ekki i ræsið
einn. Þegar svo Alana kom til sögunn-
ar greip hún kústinn og sópaði út
þessum miður félegu kónum, og Rod
stóð uppi með eiginkonu en vinalaus.
Nú halda innanbúðarmenn þvi fram
að málum sé svo komið að Rod þori
varla að greiða sér nema ráðfæra sig
við Alönu, og fleira er komið tU. Gamla
manninum er harðbannað aö stinga úr
einni sterkrí, heldur gutlar hann í safa
þessa dagana, ennfremur tyggur hann
heilsufæði í staðinn fyrir safaríkar
steikur, sem hann gerði áður i glaðra
vina hópi. Tóbak er algjör bannvara,
og fyrir tilstiUi Alönu varð Rod að
farga tóbaksbirgðum sinum. Er það
nema von aö maöurinn sé veiklulegur
þessa dagana? Meira til. Alana er
mikið fyrir að kiikla í allskonar gervi-
vísindavitleysu, og er „númerafræði”
ein þeirra. Ef einhver skyldi nú ekki
vita hvaða fræði þetta eru þá upplýsist
þaö, að einfaldar sálir trúa þvi að dul-
armáttur feUst i tölum, og Alana trúir
grimmt á þetta. Þvi er nú svo komið
fyrír aumingja Rod að hann má ekki
einu sinni taka sér flugfar án þess aö
kvinnan athugi flugnúmerið áður.
Muhamed Ali eins og menn muna
hannbest.
Ali
minnkar
Vlð Slg
Hnefaleikakappinn hann
Muhamed Ali er ekki horfinn úr
heimspressunni þó boxhanskarnir
safni nú ryki. Ali var frægur á
sínum tíma, meðal annars, fyrir
mikla kjaftagleði, auk þess sem
hann var skítsæmilegur hnefa-
leikamaður. AU lýsti meðal annars
tækni sinni i hringnum þannig:
„Ég flýg eins og fiðrildi og sting
eins og býfluga”. En hvaö um það,
þessa dagana hengir AU haus og
barmar sér, ekki vegna fátæktar,
heldur vegna þess að hann er að
sökkva í seölum. Hann sagöi í viö-
taU fyrir skömmu að hann væri að
gefast upp á því að lifa í lúxus, og
heföi í bígerð að selja stóru viUuna
sina í Chicago. „Eg hef i hyggju,”
sagði hann, „að fara burt frá þessu
öUu saman og kaupa mér bara lítiö
hús, með einungis þrem svefnher-
bergjum. Ég á nú sjö börn, en viö
erum bara fjögur í heimUi þessa
dagana ef maður telur konuna
mína meö.” Ef hann sparkaöi
henni gæti hann minnkað enn
meira viðsig.
„Elskan, má ég bora í
nefiðámér?”
Skyrveöur
á Húsavík
Frá Ingibjörgu Magnúsdóttur, frétta-
ritara DV á Húsavík:
Sólin skein á Húsavík á laugardag-
inn var, fuglarnir sungu og engan lang-
aði í heitan mat, sem sagt skyrveður.
Fjölskylda fréttarítara fór upp að
Botnsvatni, rétt ofan við bæinn, en þar
er baðströnd Húsvíkinga. Þar voru þó
nokkrar fjölskyldur að njóta veðurbUö-
unnar.
A leið okkar mættum við manni, sem
hafði þá skoðun að heimiUslif hjá fólki
sem ekki tylldi heima hjá sér hlyti að
vera ömurlegt. Þó mun ekki vera svo
almennt um Húsvíkinga, því fjöldi
fóiks var heima við hús aö fegra garða
sína.
-JBH.