Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Qupperneq 12
12 DV. MANUDAGUR18. JULI1983. DAGBLAÐIÐ-VÍSiR Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIDLUN HF. Stjómarformaflurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖROUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoóarritstjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjóm: SÍÐUMÚLA12—14. SÍMI 86A11. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla, áskriftir.smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI27022. Sími ritstjómar: 84611. Setning, umbrot, mynda-og plölugerö: HILMIR HF„ SÍDUMÚLA 12. P rentun: ÁRVAKUR HF„ SKEIFUNNI19. Áskriftarverð á mánuði 230 kr. Verð í lausasölu 20 kr. Helgarblað22 kr. Enn ranglát millifærsla Núverandi ríkisstjórn ætlar illu heilli að viðhalda þeirri ranglátu millifærslu, sem hefur falizt í ráðstöfun fjár úr svokölluðum gengismunarsjóðum. Eins og oft vill verða um „fyrirgreiðslupólitík” hins opinbera, kemur úthlutunin ranglátlega niður. Dr. Bjöm Dagbjartsson gerði grein fyrir málinu í kjallaragrein í DV á föstudaginn. Hann nefndi, að ýmsum útgerðarmönnum gremdist mest, að upp á síðkastið hafa gengismunarsjóðirnir í æ ríkari mæli verið notaðir til að greiða niður olíukostnað og nú síðast „fjármagnskostnað óábyrgra togaraútgerða.” Þeim finnist, eins og leiða má rök að, sem verið sé að gera upptækar eignir, sem þeir hafa aflað, og færa þær til togaranna, sem svo aftur keppa vægðarlaust við þá um síminnkandi þorskafla. 1 meira en 20 ár hefur við velflestar formlegar gengis- fellingar verið stofnaður gengismunarsjóður í nafni ríkis- sjóðs í Seðlabankanum. Lögin byrja yfirleitt þannig: „Þegar skilað er til banka gjaldeyri fyrir útfluttar sjávarafurðir framleiddar fyrir gengisfellingardag, skal hann greiddur útflytjanda á gamla genginu, en mis- munur andvirðisins samkvæmt nýja genginu lagður í gengismunarsjóð. ” Nokkur rök hafa legið til slíkrar ráðstöfunar. Rætt hefur verið um, að menn gætu jafnvel „spáð í” væntan- legar gengisfellingar og safnað birgðum og hagnazt á því. Nauðsynlegt hafi verið að bæta gengistap, sem hver gengisfelling veldur útgerðarfyrirtækjum með gengis- tryggð lán á skipum. Björn Dagbjartsson bendir á, hve vandræðalega hafi verið að staðið og hvílík mismunun hafi falizt í úthlutun þessa fjár. Dr. Björn segir: „Þrátt fyrir þau rök, sem áður voru talin, er mæla með myndun gengismunarsjóða, er það í rauninni óumdeilt, að þetta er eignaupptaka. Þetta er millifærsla á fjármunum, þar sem ríkisvaldið er oft á tíð- um að reyna að bæta úr fyrri mistökum, eins og til dæmis að greiða niður fjármagnskostnað fiskiskipa, sem aldrei hefði átt að leyfa kaup á. ” „Gengismunarsjóðir eru eitt „sósíalistískasta” fyrir- bæri íslenzks efnahagslífs. Þeir eru ranglátir gagnvart meginþorra fyrirtækja í sjávarútvegi og skapa í það minnsta mikla óánægju og tortryggni um misnotkim (mismunun).” DV birti einnig á föstudag viðtal við Olaf Bjömsson, stjómarformann Samlags skreiðarframleiðenda, um sama efni. Olafur er jafnvel hvassari en Björn Dagbjarts- son. Hann segir: „Þessi ráðstöfun gengismunar í stofnfjársjóði fiski- skipa rennur fyrst og fremst til að bjarga afglöpum, sem hafa keypt skip, sem þeir hafa aldrei ætlað að borga, en það eru þeir, sem hafa fjárfest í nýjum skipum á síðustu þrem til fjórum árum. ” Að því leyti, sem gengismunur verður til við gengisfell- ingar, er ranglátt, að hann gangi til ákveðinna „gæðinga” ríkisstjómar eða sjávarútvegsráðherra. Ganga verður gegn þeim aðferðum, sem sjávarútvegsráðherrar hafa lengi notað við úthlutun „dúsa” til aðila í sjávarútvegi. Reglur um stuðning við sjávarútveg verða að vera al- mennar, þannig að hagnaður skili sér, þangað sem hann er verðskuldaður, en ekki til illa rekinna fyrirtækja. Þetta gildir þeim mun fremur sem við búum við of stóran fiskiskipastól. Sem sjávarútvegsráðherra í síðustu ríkis- stjóm gekkst Steingrímur Hermannsson fyrir bráða- birgðalögum til að hjálpa ákveönum fyrirtækjum í vand- ræðum með fjárframlagi, í stað almenns stuðnings. Nú- verandi sjávarútvegsráðherra heldur slíku áfram. Það kann ekki góðri lukku að stýra. Haukur Helgason. STAÐA Ál IMIIMP BrkLBlr mMrWw011 Verö á áli var fallandi frá miðju ári 1980 fram á siöasta ársfjóröung 1962. Þótt úr f ramleiöslu áls væri dregið juk- ust birgöir, einkum 1981. Frá árslokum 1982 hefur verö á áli á markaöi i London hins vegar hækkaö um 50% en fregnir berast af undirboðum. I Á markaði í London hafa miklar sveiflur oröiö á álveröi síðustu 10 ár. Frá miðju ári 1974 til miös árs 1975 lækkaöi tonn af áli í veröi úr $ 1.100 i tæplega $ 700. Síðan fór þaö hækkandi uns þaö komst upp í $ 1.900 á miöju ári 1980. Þá féll ál snögglega i veröi og stóð áltonniö í $ 950 í lok þriöja ársf jóröungs 1982. Um leið var viðast hvar dregið úr vinnslu þess, i mismiklum mæli þó, og rekstrarhalli varð hjá öllum stærstu álhringunum, til dæmis hjá Alusuisse $ 25,5 milljónir 1981 og enn meiri 1982; hjá Ardal 500 milljónir norskra króna 1982; hjá EFIM $ 177 milljónir 1981 og hjáQndasa $67milljónir 1982. Afturkippur þessi í áliðnaði 1980— 1982 er hinn fyrsti sem varaö hefur lengur en eitt ár og hafa álhringir og stjórnvöld brugöist viö honum á ýmsa vegu. 1 Vestur-Evrópu hafa ríkis- stjórnir hlutast til um að vinnslu væri Kjallarinn HaraldurJóhannsson uppi haldið i álverum svo að hún nam 1982 að meöaltali 75% af vinnslugetu þeirra, gagnstætt 42 % i Bandarikjun- um. Viðbrögö þeirra hafa þó umfram allt farið eftir veröi á rafmagni sem er stærsti kostnaðarliður vinnslu áls úr álsýringi, jafnvel um eöa liölega helmingur hans. Rafstöövar, sem leggja álverum til rafmagn, vinna þaö viö orku, ýmist úr oliu, kolum, jarðgasi, fallvötnum eöa kjamorku, en fyrstnefndi orkugjafinn hefur hækkað mjög i verði frá 1972 og lyft upp veröi annarra, beinlínis og óbeinlínis, eins og alkunna er. Aö jafnaöi hafa álver gert samninga um rafmagnskaup til langs tima. En um leið og þeir hafa runniö út hefur raf- magnsverð til þeirra veriö hækkaö. Og samningum til mjög langs tima hafa seljendur rafmagns reynt að rifta eða aðfá endurskoðaða. II 1 Vestur-Evrópu hefur frá 1980 hvað sist þrengt að áliðnaði í Noregi þar sem hann fær rafmagn frá vatnsafls- stöðvum á tiltölulega lágu veröi. Engu að síður hefur oröiö rekstrarhalli hjá álféiögum þarlendis. Á Bretlandi færöi áliönaöur út kvíar á áliönum sjöunda áratugnum. Þrjú ný álver, sem þá tóku til starfa, sömdu um rafmagnskaup við lágu verði til langs tíma og hafa notið þess. Hins vegar lokaöi Tl-hringurinn nýlegu og fullkomnu álveri sinu i Invergordon á Skotlandi í desember 1981 eftir langt þóf um rafmagnsverð. Þaö mun vera eina stóra álverið í Vestur-Evrópu sem lokað hefur veriö á síðustu þremur Hvernig má bæta verkalýðshreyf inguna? Konur - hora- rekur hreyf- ingarínnar Staöa konunnar innan verkalýðs- hreyfingarinnar er mál sem ég kýs aö fjalla sérstaklega um þótt svo aö hún snerti flest önnur svið. Það er t.d. argasta tvöfeldni að tala um aö tryggja lýöræði ef ekki er um lciö reynt aö tryggja áhrif kvenna í hreyfingunni á ákvaröanatoku til jafns viö karla. Þaö er til lítils að berjast fyrir bættum kjörum hinna láglaunuöu ef því er gleymt að stærsti láglaunahópurinn er konur. En þar sem þessar staöreyndir og fleiri slíkar hvila á sama grunni, eiga sér sömu ástæðumar, verður aö reyna aö gera sér grein fyrir þeim i heild í staö þess aö fljúgast á viö ein- stakar birtingarmyndir. Jafnróttissinni? Þessi grein á ekki aö fjalla um kvennakúgun almennt þótt auövitaö tengist ástandiö á þessu sviöi í verkalýöshreyfingunni ástandinu í þjóðfélaginu öllu. Til þess er einfald- lega ekki rúm í stuttri blaöagrein sem þessari. Allir þykjast vera orön- Guðmundur Sæmundsson ir jafnréttissinnar og þreytast ekki á aö tala um ást sína á jafnréttinu. Ast þeirra á því gengur jafnvel svo langt aö i nafni þess eru kvennaframboð i kosningum kærö f yrir brot á j af nrétti af því aö þau telja sig geta verið án karla. 1 hverju felst þessi jafnréttisstefna sem nú er sem ákafast boöuö? Hún felst aö mínu mati í þvi aö konur skuli á öllum sviöum hafa formlegan rétt til aö gera eins og karlar. Vinna í pólitík eins og karlar. Taka þátt í prófkjörum eins og karlar. Nota sömu aðferöirnar og karlar. Gleypa í sig sama verömætamat og karlar. Með því skal þaö enn og aftur staö- fest að það sem karlar álíti gagnlegt og gott sé gagnlegt og gott. Konur megi vera með — „Verið velkomnar í okkar hóp” — svo framarlega sem þær hlíti leikreglum karla. Viðhorf kvenna einhvers vlrfli? Að mínu áliti hafa reglur karla, viðhorf þeirra, starfsaöferðir og stefna sýnt aö þær duga ekki. Þær hafa leitt okkur í ógöngur. Ég álit aö konur hafl á öllum þessum sviöum margt fram að færa sem betur dugar en ráösnilli karlpeningsins. En jafn- -W -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.