Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1983, Side 16
16 DV. MANUDAGUR18. JULI1983. Spurningin i Hvaða áhrif hefur stöðugt regn og dumbungur á þig? Halldór Ormsson, stm. Þjóðleikhúss-I ins: Ekkert slæm áhrif, maður barai fer ekki neitt. Erlendur Þórðarson bifreiðarstjóri:! Eg veit nú ekki um áhrifin, en þegar' allt er grátt í kringum mann þá verður j maöur sjálfur grár. Ólöf Einarsdóttir húsmóöir: Hefurj mjög slæm áhrif. Maður kemst í vontj skap og verður leiður á lífinu vegna þess að ég er einmitt í sumarfríi. Bjarni Sigurðsson, verkstj. hjá Vega-I gerðinni: Maður verður heldur þung-j lyndari. Ólafur Jakobsson leigubílstjóri: Hefurj engin áhrif á mig, yfirleitt er ég það léttur, það er ekkert sem hefur slæmj áhrif á mig. Tónlistarsmekkur bréfritara og þulanna Jóns Múla Arnasonar og Ragnheióar Astu Pétursdóttur vlrðist ekki falla vel saman. Sígild tónlist á morgnana H.Sn. skrifar: Á hverjum morgni streymir fólk til vinnu í þúsundatali. Um allt landiö hefja karlar og konur mismunandi skemmtileg störf. Sumir í frysti- húsum, aðrir í hinum ýmsu iðnaðar- fyrirtækjum, við stjóm vinnuvéla, verslunarstörf, o.s.frv. Mismunandi skemmtileg störf en eiga það sam- eiginlegt að vera sá þáttur þjóðlífsins sem heldur því þó gangandi þrátt fyrir allt. Eitt af því fáa sem þetta fólk hefur sér til ánægju við störfin er að hlusta á útvarp. Sérstaklega hefur þetta létt fólki morgundrungann, ekki síst sl. vetur þegar Stefán Jón og hans fólk sá um ágæta dagskrá í morgunsáriö. li En nú hefur heldur betur skipt um. Jón Múli, meö jassinn sinn og lúðra- sveitirnar, og Ragnheiður Ásta, með ættjarðarlögin og karlakórana, hafa nú tekið völdin á morgnana. Látum það nú vera, ennþá slekkur enginn á útvarpinu þess vegna. En þá tekur steininn úr þegar dembt er yfir alsak- laust fólk þætti, sem nefnist „Tón- bilið”. Klukkan rúmlega hálfníu á morgnana skal nú þröngvað upp á okkur einhverjum klassískum verkum, ókynntum, svo frystihúsa- kerlingar og hafnarverkakarlar um land allt megi nú spreyta sig á því að kanna þekkingu sína á klassískri músfk. Mér er spurn: Hvaða tónlistar- legum vanvita hjá þessari stófnun okkar, ríkisútvarpinu, hefur eiginlega dottið þessi endemis vitleysa í hug? Ætla forráðamenn útvarpsins virki- lega að ganga endanlega frá þvi aö al- menningur hafi gaman af þvi að hlusta' á klassík? Skilja þessir menn ekki enn,' eftir rúmlega 50 ár, aö fólk vDl fá að hlusta á létta og skemmtilega tónlist f vinnutíma sínum á morgnana en er svo jafnvel tilbúið að meðtaka klassikina þegar það hefur hreiðrað um sig heima á kvöldin? Ef tónlistardeildin hefur i raun og sannleika nokkurn minnsta áhuga á að þroska tónlistarsmekk þjóðarinnar þurfa þeir að læra þann sannleika fyrst að hver athöfn hefur sinn tima og tími klassískrar tónlistar er alls ekki klukkan hálfníu á morgn- ana. Fyrir alla muni, fellið samstundis niður þennan endemis dagskrárlið, lifgið í guðanna bænum svolitið upp á lagavalið hjá þeim Ástu og Jóni Múla og þá mun fólkið, sem vinnur fyrir kaupinu ykkar, — (ég á við þá, sem vinna fyrir raunverulegum þjóðar- tekjum) — sannarlega þakka ykkur hátt og í hljóöi. Og svona í leiðinni. Hefur Jónína Benediktsdóttir þekkingu og leyfi til að gefa læknisfræðilegar ráðleggingar i morgunleikfimi sinni? stundu Að guggna á úrslita- „Sannur lýðræðissinni” skrifar: Enn á ný hefur ný ríkisstjóm sest aö völdum i landinu. Verkefnin sem bíða lausnar eru mörg og vandasöm svo strax í upphafi ferils síns er henni ekki til setunnar boðið. Fyrir þessar vorkosningar fýsti al- menning í eitthvað nýtt og kröftugt sem hönd var á festandi. Tvenn ný stjórnmálasamtök komu fram með nýjar hugmyndir, Bandalag jafnaö- armanna og Kvennalistinn. Þessi nýju samtök höföu „þokukenndar og óraunsæjar tillögur til lausnar efna- hagsvandanum” að því er gömlu flokkamir sögðu. Bandalag jafnað- armanna lýsti strax i upphafi kosn- ingabaráttunnar stríði á hendur gömlu flokkunum og hlaut málflutn- ingur þess góöan hljómgrunn. Gömlu flokkunum tókst þó með samstilltu átaki aö lokum að sá fræi efasemda „Kjósendum heföl átt að vera fullljóst um hvað var kosið: nýjor teiðir gegn gömlum og úroltum leiðum." og vonleysis í hugi kjósenda og þar viðsat. Allir gömlu flokkamir hafa fengið sitt tækifæri til þess að reyna sinar óskaleiðir og þær hafa því miður brugðist. Kjósendum hefði aö þessu gefnu átt að vera fullljóst um hvað var kosið: nýjar leiðir gegn gömlum og úreltumleiöum. Og hver urðu úrslit kosninganna? Jú, gömlu flokkamir með gömlu ráöin fengu alls 75,5% atkvæða eöa minnkuðu fylgi sitt um aðeins 4,5%. Dómur kjósenda var ranglátur og verður ekki til þess að breyting verði á, almenningi i hag. Atvinnurek- endur, stórkaupmenn, bankaráðs- menn, samvinnumenn og milliliða- menn landbúnaðarins hafa nú sest við stjðrnvölinn eftir nokkurra ára fráhvarf. Utrekstri allaballanna verður fylgt kröftuglega eftir enda engin eftirsjá að þeim í sjálfu sér. Að lokum þetta: Kosningamar i vor voru harmleikur sem seint verður skilinn af komandi kyn- slóöum. Áróðursvélar íhaldsflokk- anna þriggja imnu vel og tókst að lokum að fá þorra almennings á sitt band aftur. Menn guggnuðu, annað- hvort við lestur flokksblaða eöa í kjörklefunum. Gömlu flokkarnir sigruöu þrátt fyrir allt, þeir vörðu undanhaldiö kröftuglega og senni- lega snúa þeir næst vöm i sókn! Lesendur Lesendur . Lesendur Lesendur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.