Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1983, Qupperneq 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. JtJLl 1963.
Dýrasti og ódýrasti bíllinn á markaðnum:
12 Trabantar fyrir einn Benz
Mjög lítil sala hefur veriö í nýjum
bílum aö undanfórnu. Samkvæmt
upplýsingum sem viö fengum hjó
hinum ýmsu bifreiöainnflytjendum
er nú nánast engin hreyfing í sölu ó
bilum. Fólk kemur varla lengur til aö
spyrjast fyrir um nýja bíla eöa skoöa
þá eins og áður. Einstaka bilasalar
báru sig samt mannalega og sögöu
aö nóg væri að gera þótt salan væri
ekkieinsgóðogáöur.
Við könnuðum það hvar hægt væri
að fá ódýrasta fólksbílinn í dag — og
könnuöum einnig í leiðinni hvar þann
dýrasta væri aö hafa. Er þarna ótt
viö venjulega fólksbila, en mikið er
til af þeim á markaðnum.
Þann ódýrasta fundum við hjá
Ingvari Helgasyni hf. Er þaö
Trabant og kostar einn slíkur 89 þús-
und krónur. Er þaö langódýrasti bíll-
inn, því næsta verð þar fyrir ofan er
um 160 þúsund krónur. Þá upphæö
þurfa menn aö eiga ef þeir vilja
kaupa sér nýjan Skoda.
Mikiö úrval er til af japönskum
smábílum en verö þeirra er heldur
óhagstætt núna miöað við áöur. Só
ódýrasti sem viö fundum var Suzuki
en fyrir hann þarf aö greiöa 174 þús-
und krónur. Algengt verö á smábíl-
um er núna um 220 til 250 þúsund
krónur.
Dýrari bílarnir eru ekki til á lager
hjá innflytjendum hér. Þjicir of dýrt
aö liggja meö þá, enda salan í þeim
ekki mikil. Hægt er aö sérpanta bíla
eins og Chevrolet Celebrity og
Cadilac, en þá þurfa menn líka aö
Tómas Andrós Tómasson, öðru nafni Tommi i Tommaborgurum. Fyrir
einn svona Benz má fá 12 Trabanta.
eiga vænan skilding i buddunni. Þá
mó einnig sérpanta fleiri tegundir
eins og t.d. Benz 500 SE, en hann
kostar 1,5 milljónir.
Af dýrari bílunum sem einhver
hreyfing er á, er Benz 280 SE ó óska-
listanum hjá mörgum. Kostar hann
1.115 þúsund krónur. Fyrir þá
upphæð má aftur á móti kaupa
heilan flota af Trabant-bílum, eöa 12
bíla, og eiga samt afgang fyrir
bensini á þá alla til margra daga
keyrslu.
-klp-
Trabbinn kostar 89 þúsund krónur. Nýiega var stofnað fálag um
Trabantinn og heitirþað Skynsemin ræður.
Fjölleikahús í Reykjavík
Danskt fjölleikahús, Cirkus Arena,
hefur tekið til starfa í Reykjavík. Hér
er um að ræða 35 manna hóp sýningar-
fólks sem mun skemmta borgarbúum
meö ýmsu móti fram til 7. ágúst.
Hópurinn sýnir i tjaldi á túninu milli
Holtavegar og Álfheima öll kvöld vik-
unnar kl. 20.00. Einnig veröa sýningar
á laugardögum kl. 14 og 17, svo og á
sunnudögum kl. 15. Aögangseyrir er
krónur 180. Þá veröa sérstakar barna-
sýningar ó miðvikudögum kl. 15 og
kostar aögangur þá krónur 100.
Sýningamar eru um tveggja tíma
langar, en miðasala er opin alla daga
frákl. 13.
Cirkus Arena hefur starfaö í 30 ár og
ferðast víða um á þeim tíma. I ár
starfar í honum fólk frá Danmörku,
Rúmeníu, Tékkóslóvakíu og Austur-
ríki, alls 35 manns. Héöan heldur
hópurinn til Akureyrar þar sem hann
mun skemmta dagana 9,—14. ágúst.
-EA.
Bankamenn segja upp samningum
Samband íslenskra bankamanna
hefur sagt upp gildandi kjarasamning-'
um sínum og bankanna frá 24. septem-
ber 1982, miðaðviö31. júlí 1983.
I ályktun stjóma sambandsins,
samninganefndar og formanna
aöildarfélaga þess segir aö afskipti
stjórnvalda af samningum milli aöila
vinnumarkaðarins séu óréttlát, þó sé
það engu að síður viöurkennt að lög-
lega kjörin stjómvöld i landinu hafi
hér beitt aöferðum, sem þeim séu
tiltækar.
1 ljósi þess óréttlætis, sem umrædd
afskipti stjómvalda af samningsrétti
launþega séu, aö dómi Sambands
islenskra bankamanna, svo og þeirrar
óvissu, sem riki um afkomu launþega
ó næstu mánuðum og um árangurinn í
baráttunni viö verðbólguna, telji Sam-
band íslenskra bankamanna rétt aö
segja upp gildandi kjarasamningum
miðaö viö 31. ágúst 1983, eins og
samningarnir geri ráö fyrir, sbr. og 5.
gr. samkomulags um kjarasamninga
félagsmannaSIB.
Viking
bflkranar
Léttir og iiðlegir
kranar fyrir minni
vörubíla og
sendiferðabíla.
Kranarnir aru mefl sjálfstœflu vökvakerfi sem er innbyggt i
kranann og er vökvadnian drifin af 12 eða 24 volta rafmagns-
mótor. Litill kostnaður vifl niflursetningu. Hagstœtt verfl og
góðir greiflsluskilmálar.
Atlas hf
ÁRMÚLA 7 — SÍMI 26755
Trúðar skipa stóran sess í sýningum Cirkus Arena. Einnig or mikið um ioftfímieika og töfrabrögð sem
engan œttu að svíkja. DV-mynd: Bj. Bj.
Flugleiðahátíð í september
Flugleiöir halda upp á tiu óra af-
mæli félagsins meö hátiö á Hótel
Loftleiðum helgina 17. til 18.
september næstkomandi. Þó mun al-
menningi gefast kostur á aö kynnast
starfsemi félagsins. „Viö munum
opna dymar,” sagði Erling Aspe-
lund, sem er formaöur afmæiis-
nefndar.
Þotur félagsins munu Qjúga lágt
yfir höfuðborgina þessa helgi. Þá
veröur reynt að hafa flugvélar til
sýnis almenningi ó Reykjavíkurflug-
velli.
Boöiö verður upp á sérstakt af-
sláttarverð á þjónustu félagsins, far-
seðlum, gistingu og mat í tilefni
hátíöarinnar. A matseöli kaffiterí-
unnar veröur flugvélamatur og i
sölum hótelsins verður ítarleg kynn-
ing á öllum þáttum í rekstri
félagsins. Þá mó búast við ýmsum
uppákomum.
-KMU.