Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1983, Qupperneq 33
DV. MIÐVKUDAGUR 20. JULI1983.
33
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
FOLSUN
Fólk er nú misviðkvæmt fyrir því að
minnst sé á aldur þess, og margir
reyna iöulega aö ljúga til um aldur
sinn séu þeir spurðir. Algrófasta lygin
af þessari sort sem heyrst hefur í
seinni tíð, skall á mönnum nú fyrir
skömmu þegar Nancy Reagan hélt upp
á 60 ára afmæliö sitt með pomp og
pragt. Forsetafrúin bauð í heljarmikið
gildi og mættu um hundrað vinir og
vandamenn á búgarö þeirra í Santa
Barbara í Kalifomíu. En máliö er bara
það, og hér kemur bomban, að kella
hélt upp á 60 ára afmæli sitt á nákvæm-
lega sama stað fynr tveim árum
síðan! Glöggir menn voru ekki lengi að
hafa upp á fæðingarvottorði hennar og
mikið rétt, Nancy hefði átt að halda
upp á 62 ára afmæli sitt á þessu ári, og
hananú.
Slakað 6 eftir að Austfjaröabúar hafa verið toknir i kennslustund. LandsHðskempur frá vinstri: Ema LúOviksdóttir, Magnsa Magnúsdóttir,
GuOriöur Guðjónsdóttir og Katrin Eiriksdóttir.
Knattspymulandslið
kvenna í hvfld
Islenska kvennaiandsliðið i knatt-
spymu brá sér í keppnisferðaustur á
land fyrir skömmu. Var á Eiðum
haldinn Sumarhátíð U.I.A. og léku
stúlkurnar þar tvo leiki. Annar leik-
urinn víð Þrótt, Neskaupstaö,
sem er þriðjudeildarlið karia, og
virðist sem stúlkumar í landsliðinu
hafi eitthvað verið að spara sig í
þeim leik og ekki viljað níðast á
Þrótturunum því leiknum lyktaði að-
eins með jafntefli 2—2. Ekki var
landsliðið neitt að dóla þegar þær
mættu Austurlandsúrvali kvenna i
knattspymu, þar var gengið rösk-
lega til verks og úrvalið hakkað nið-
ur, því leikar foru 4—0. Eftir þessa
keppnishrinu þótti alveg tilvalið að
bregöa sér í sólbað, þvi eins og allir
vita þá skín sól alstaöar annars
staðar en á suðvesturhominu.
Ferð þessi var liður í undirbúningi
fyrir Þmdsleik við Noreg 30. júlí og
er þess að vænta að þær verði í góðu
f ormi er þar að kemur.
SLS
DV-Myndlr J.H.
r
„Eg með
mínum
og þú
með
þinni”
Hin frægu fyrrverandi hjón Burton
og Taylor hafa eins og kunnugt er
leikið saman i leikriti á Broadway
nú um nokkurt skeið. Enn sem
komiO er hefur ekkert borið á sam-
drætti þeim sem slúðurkjamsarar
spáðu svo fjáigiega er sýningar
hófust. Þau gömlu eru ennþá i
sundur og því til staðfestingar
birtum við þessa mynd sem tekin
var baksviðs að aflokinni sýningu
fyrir nokkru síðan. Er þetta ekta
sátta- og samlyndismynd og þrátt
fyrir að kunnugir hafi grannskoðað
hana, þá hefur ekki fundist neitt á
henni sem gœti verið efni i kjafta-
sögu.
lítur undan tiiiiti hennar Hay Sunday sinnar.
Krimmktn sjátfur Issei Sagawa.
Matur er manns-
ins megin
Maður hefur nú heyrt að París sé
uppáhaldsstaöur matmanna og sæl-
kera, en þessi litla saga, sem slæddist
inn á borð, fær mann alveg til að missa
Iystina, í bili. Maður er nefndur Issei
Sagawa og er hann 33 ára Japani.
Hann var til skamms tíma búsettur I
París, og lenti hann I því að vinna
voðaverk, nefnilega að verða vinkonu
sinni að bana. Það eitt sér hefði verið
nógu hroðalegt, en hann Issei bætti
um betur, eða verr, hlutaði líkið í
sundur, borðaði bestu bitana og eins og
hyggin húsmóðir frysti hann hinar leif-
amar til brúks seinna meir. En sem
betur fer var það ein máltið sem Issei
kláraði ekki, þvi hann var blessunar-
lega gómaður og nokkuð skiljanlega
látin gangast undir geðrannsókn. Það
ætti ekki að koma neinum á óvart aö
Issei dvelur, um þessar mundir og von-
andi um alia framtíð, á geðsjúkrahúsi.