Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1983, Blaðsíða 18
lö
DV. MIÐVIKUDAGUR14. SEPTEMBER1983.
DV. MIÐVIKUDAGUR14. SEPTEMBER1983.
19
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Gordon Strachan.
Strachan ekki
með Aberdeen
— gegn Akranesi á Laugardalsvellinum ídag
.. ....i.L! ........
.
‘ -
Skoski landsliðsmaðurinn Gordon
Strachan, lykilmaður Aberdeen, hefur
átt við meiðsli að stríða að undanförnu
og ekki getað leikið með Aberdeen.
Strachan lék ekki með Aberdeen gegn
Jóhannesi Eðvaldssyni og félögum
hans hjá Motherwell sl. iaugardag og
sögðu blöð í Skotlandi að það hefði
munað um minna. Sóknarieikur Aber-
deen hefði ekki verið eins beittur og
þegar Strachan léki með liðinu — leik-
menn liðsins hefðu skapað sér fá mark-
tœkifæri.
Það er tvímælalaust gróði fyrir
Skagamenn að Strachan leikur ekki
með Aberdeen gegn þeim því að þessi
litli rauðhærði miðvallarspilari er sá
sem stjórnar sóknarieik liðsins. -SOS
„Það verður ekkert
gefið eftir”
segir Hörður Helgason, þjálfari Skagamanna,
sem mæta Aberdeen í dag
Margir af snjöllustu knattspyrnu-
mönnum Skotlands verða í sviðsljósinu
á Laugardalsvellinum þegar íslands-
og bikarmeistarar Akraness mæta
Evrópubikarmeisturunum frá Aber-
deen í Evrópukeppni bikarhafa.
Róðurinn verður erfiður fyrir Skaga-
menn en ef þeir ná sér vei á strik þá
eiga þeir að geta velgt Ieikmönnum
Aberdeen undir uggum.
Sveinbjörn Hákonarson, landsliös-
maöur Skagamanna sem meiddist í
hné í leik gegn Þrótti, mun að öllum
líkindum leika meö og þá eru allir leik-
menn Skagamanna klárir í slaginn.
— Strákamir eru ákveönir að gera
sitt besta og það verður ekkert gefið
eftir í leiknum gegn Aberdeen. Við
munum leika þann leik á fullum krafti,
sagði Hörður Helgason, þjálfari
Skagamanna.
Hörður sagði að það mætti búast við
að leikmenn Aberdeen reiknuðu með
Skagamönnum sem auðveldri bráð en
mikiö hefur verið skrifað um það í
skoskum blöðum að Aberdeen ætti aö
fara létt frá leikjunum gegn Akranesi.
— Við erum ákveðnir að sýna þeim að
viö séum ekki auðunnir og það verður
ekkert gefiö eftir í þeirri baráttu, sagði
Hörður.
Evrópubikarmeistarar Aberdeen
komu til landsins í gær með leiguflug--
vél og meö þeim komu hundrað
stuðningsmenn félagsins sem mun
örugglega láta heyra vel í sér.
Aberdeen leikur sinn 50. Evrópuleik
á Laugardalsvellinum. Síðasti Evrópu-
leikur félagsins fór fram í Gautaborg;
Barcelona hefur
forgangsrétt
á Schuster
og getur komið í veg fyrir að hann leiki með
landsliði V-Þjóðverja
Bernd Schuster, knattspymukapp-
inn snjalli frá V-Þýskalandi, sem hefur
leikið með Barcelona undanfarin ár,
hefur skrifað undlr nýjan fimm ára
samning við Barcelona. Nýi samning-
urinn hans getur gert það að verkum
að landsleikjaf erill hans með V-Þýska-
landi sé búinn.
— Eg get ekki leikiö meö v-þýska
Bernd Schuster—f ær góðar tekjur
bjá Barcelona.
landsliðinu nema ég fái leyfi til þess
frá Barcelona, sem hefur forgangsrétt
gagnvart mér. Ef landsleikur og leikur
hjá Barcelona stangast á, þá er það í
höndum forráðamanna félagsins hvort
ég fæ frí til aö fara í landsleikinn eöa
ekki, sagði Schuster í spjalli við v-
þýska blaðamenn.
Schuster sagði að mörg félög í V-
Þýskalandi hefðu haft samband við sig
að undanfömu og boðið sér samning.
— Það sem þau buðu upp á komst ekki í •
hálfkvisti við það sem Barcelona hafði
að bjóða, sagði Schuster.
Það er vitað að knattspyrnumenn
hjá Barcelona eru þeir tekjuhæstu í
Evrópu, enda ekki nema von — félag
sem hefur að meðaltali 103 þús. áhorf-
endur á heimaleikjum sinum eins og'
Barcelona getur borgað leikmönnum
sínumvel.
Schuster fær um 30 milljón íslensk-
ar krónur fyrir hinn nýja samning sinn
og em þá ekki aukagreiðslur og aug-
lýsingatekjur inni í myndinni. -SOS.
Evrópu-
keppni
bikar-
hafa
— þá unnu leikmenn Aberdeen sigur
2:1 yfir Real Madrid í úrslitaleik
Evrópukeppni bikarhafa.
Leikurinn á Laugardalsvellinum
hefst kl. 18 og má búast við f jörugum
og skemmtilegum leik. Mikilla áhugi
er fyrir leiknum á Akranesi og er
reiknaö með að þrjú þúsund Skaga-
menn mæti á Laugardalsvöllinn.
-SOS
■
■A y."\ " ' ” V* ' « 'Tf’ • ,
&& 4* -s * ’ > . y~t ItkMíHÍZrUsk
Tómas Pálsson sést hér sækja að marki Carl Zeiss Jena en HansUlrich Gropentnm marrvorour nær aó goma saouum,
DV-mynd: Eiríkur Jónsson.
Hættulegasti sóknarleikmaður Aberdeen:
Eric Biack—miðherjinn snjalii hjá Aberdeen.
Black er mesti
sl kallj imaði ur Skota
hefur yfir geysilegum stökkkrafti að ráða
Alfredo di Stefano, þjálfari Real
Madrid, var óhress með tap sinna
manna gegn Aberdeen í Gautaborg —
1—2 í úrslitaleik Evrópukeppni bikar-
hafa. — Þaö er aö sjálfsögðu alltaf sárt
að tapa. En það er engin skömm að
tapa fyrir Aberdeen. Leikmenn félags-
ins eru mjög snjallir og leika góða
knattspyrnu, sagði Di Stefano, sem var
mjög hriflnn af táningnum Eric Biack
sem skoraði fyrra mark Aberdeen.
Black hefur yfir mjög miklum stökk-
krafti að ráða og er snillingur að
skaila boltann — og skora mörk með
skalla. Þaö er sagt að enginn leik-
maöur hafi haft yfir þessum
hæfileikum að ráöa síðan Dennis Law,
fyrrum leikmaður Manchester United
og Manchester City, var og hét.
— Eg var mjög hrifinn af hæfileik-
um hans í loftinu. Hann stekkur mjög
hátt og hefur yfir afar sjaldgæfum
hæfileikum að ráða — þegar hann
svífur hærra en aðrir og hangir lengur
i loftinu til aö skalla knöttinn, sagði Di
Stefano.
Erf itt að leika
gegn honum
Paul Hegarty, fyrirliði Skotlands-
meistara Dundee United, hefur þetta
að segja um Black: — Hann hefur yfir
geysilegum stökkkrafti að ráða. Þegar
maður stekkur upp með honum — í
skallaeinvígi, er hann enn á leið upp
þegar maður lendir. Það er mjög erfitt
að leika gegn honum þótt hann sé smár
— skallar hans eru þeir föstustu hér í
Skotlandi og oft er hann svo fljótur að
sjá út marktækifæri þegar boltinn
kemur fyrir markiö að hann er á leið-
inni niður — eftir að hafa skallað
knöttinn þegar mótherjar hans eru að
stökkva upp, sagði Hegarty.
Ámargt
eftir ólært
Margir eru á þeirri skoðun að Black
sé nú þegar orðinn besti miðherji Skot-
i lands. Hvað segir hann sjálfur?: — Ég
hef átt mjög gott keppnistímabil en
þrátt fyrir það á ég margt eftir ólært.
Eg þarf að bæta mig nokkuð áður en
farið er að tala um aö ég sé besti mið-
herji Skotlands, sagði Black.
J — Eg er alltaf að læra og ég hef trú á
J því að ég sé alltaf að læra eitthvað nýtt
og verð að þvi á meðan ég leik knatt-
spyrnu, sagði Black, sem segir að
’ félagi hans Mark McGhee hafi veitt
honum ómetanlega aðstoð — hann
hefur átt margar frábærar sendingar
sem ég hef þakkað fyrir með því að
skora mörk.
— Já, Black á eftir að verða miklu
betri. Hann leggur hart að sér við
æfingar — ákveðinn að verða betri og
betri, segir Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóri Aberdeen.
Tekst Bjama Sigurðssyni, mark-
’ verði Skagamanna, að koma í veg fyrir
að Black skori mark? — Hvernig
gengur Sigurði Halldórssyni í skalla-
einvigum við Black?
Svar við þessum spumingum fáum
við á Laugardalsvellinum í dag. -SOS
Wilkinson verður
áfram á ísafirði
r
Isfirðingar ákveðnir íað endurheimta 1. deildarsæti sitt næsta sumar
Isflrðlngar hafa endurráðið Martin
Wilkinson sem þjáifara ísafjarðar-
liðsins næsta keppnistímabil. — Við
gengum frá ráðningu hans áður en
hann hélt til Englands á sunnudaginn,
sagði Halldór Jónsson, formaður
knattspymuráðs ísafjarðar, í stuttu
spjalli við DV i gær.
Halldór sagði að engin örvænting
væri í herbúðum Isfiröinga þótt þeir
hefðu fallið niður í 2. deild. — Allir
lykilmenn Isafjarðarliðsins eru
ákveðnir i að vera áfram hjá okkur og
berjast fyrir því að endurheimta 1.
deildarsætiö sagði Halldór.
Wilkinson kemur aftur til landsins i
byrjun febrúar. Fram að þeim tíma
starfar hann að knattspymuþjálfun í
Englandi en hann hefur fengið nokkur
boð — t.d. frá Manchester City.
-sos.
Marttn Wilkinson.
Áttum að leggia
Carl Zeiss Jena
að velli”
- sagði ðmar Jóhannsson, eftir að Eyjamenn
höfðu gert jafntefli 0:0 gegn a-þýska liðinu
íUEFA-bikarkeppninni
UEFA-
keppnin
— Auðvitað er maður ánægður með
jafntefli í Evrópuleik en við áttum að
leggja Carl Zeiss Jena að velli —
fengum tækifæri til þess, sagði Ómar
Jóhannsson, miðvallarspilari Vest-
mannaeyinga, eftir að þeir gerðu jafn-
tefli 0:0 gegn Carl Zeiss Jena i UEFA-
bikarkeppninni i Kópavogi.
— Við börðumst vel og áttum ekkert
minna í leiknum heldur en A-Þjóðverj-
ar. Þeir komu mér á óvart fyrir hvað
þeir vom slakir. Á góðum degi hefðum
við unnið öruggan sigur á þeim, sagði
Omar.
Omar sagði að möguleikamir væm
enn fyrir hendi að komast áfram en
hann reiknaöi þó meö að Carl Zeiss
Jena myndi merja sigur í A-Þýska-
landi.
455 áhorfendur sáu leikinn sem var
ekki beint skemmtilegur á að horfa.
Hörð barátta á miðjunni og leikmenn
liðanna fengu fá marktækifæri. Carl
Zeiss Jena fékk fleiri marktækifæri en
aftur á móti fengu Eyjamenn tvö
hættulegustu tækifæri leiksins.
Sveinn Sveinsson átti þrumuskot að
marki A-Þjóðverja á 39. min. —
knötturinn stefndi upp í markhomið en
á síöustu stundu náöi hinn hávaxni
Hans-Ulrich Grapenthin að verja.
Grapenthin varði síðan aftur á síð-
ustu stundu — skot frá Jóhanni
Georgssyni frá markteig á síðustu
mín. leiksins. Jóhann fékk þá sendingu
frá Sigurjóni Kristinssyni. — Ef ég
hefði fengið knöttinn fyrr þá hefði ég
skoraö. Eg náði að spyrna knettinum
aðeins með hælnum þannig að nægileg-
ur kraftur komst ekki í skotið, sagöi
25 voru með
12 rétta
13. leikviku Getrauna komu fram 25
raðir með 12 rétta og var vinningur
fyrir hverja röð kr. 11.065,00 en með 11’
rétta reyndust vera 474 raðir og
vinningar fyrir hverja röð kr. 250.00.
Sala íþróttafélaganna á getrauna-
seölum hefur verið verulega meiri í
haust en var sl. haust og i þremur
fyrstu leikvikunum seldust 21% fleiri
raöir en haustið 1982. -AA.
Jóhann.
Eyjamenn mega vel við una að gera
jafntefli við atvinnumannalið Carl
Zeiss Jena sem sýndi ekki þá skemmti-
legustu knattspyrnu sem erlent félags-
lið hefur sýnt hér á landi.
Tómas Pálsson, Omar Jóhannsson
Vestmannaeyjar
— Carl Zeiss
JenaO—0
og Valþór Sigþórsson vom bestir í j
jöfnu liði Eyjamanna.
-SOS j
— Það kom á daginn sem ég var
búinn að segja. Hinir sterku leik-
menn Eyjaliðsins vom erfiðir
viðfangs hér á Islandi, sagði Hans
Meyer.þjálfariCarlZeiss Jena.
— Þetta varmikillbaráttuleikur
og ég er ánægður með jafnteflið.
Við eigum eftir heimaleikinn og
þar munum viö knýja fram sigur,
sagði Meyer, sem var ánægður
meðjafnteflið.
Það var grelnilegt á leik Carl
Zeiss Jena á Kópavogsvellinum aö
leikmenn liðsins kunnu vel að meta I
aðhalda jöfnu gegn Eyjamönnum. *
Jóhann Georgsson sést hér spyma knettinum með hælnum að marki en
Gropenthin náði að verja á síðustu stundn.
DV-mynd: Eiríkur Jónsson.
Kenneth Brylle.
Bryiletil
Eindhoven
Danski landsliðsmaðurinn
Kenneth Brylle, sem hefur leikið
með Anderlecht, hefur nú að und-
anförau staðið i samninga-
viðræðum við hollenska félagið
Eindhoven. Eins og DV hefur sagt
frá mlssti Brylle stöðu sina til
Araórs Guðjohnsen. -SOS.
Ólöffórholu
íhöggi
íannaðsinn
Ólöf Geirsdóttir, golfari úr
Nesklúbbnum, bætti einni rós í
hnappagatið um síðustu helgi þeg-
ar hún var að leika golf á veili
Keilis i Hafnarfirði. Þar fór hún
holu í höggi á 11. braut og voru
mörg vitni að þeim atburði.
Aðeins fimm islenskar konur
sem leika golf hafa náð því að fara
holu í höggi, sem er draumahögg
allra golfara. Olöf varð fyrst
kvenna til þess hér á landi og hún
er líka sú fyrsta sem leikur þann
leik aftur.
Benedikt
fer til
inga
Enn fækkar stúdentunum í körfu-
knattieiknum. Við sögðum frá því i
gærkvöldi að Gisli Gíslason hefði
gengið í raðir Skagamanna sem
leika i 2. deild en Gísli hefur leikið
með tS undanfarin ár og verið einn
af bestu mönnum liðsins.
Nú fyrir stuttu gekk Benedikt
Ingþórsson, mjög efnilegur bak-
vörður, til liðs við IR en hann lék
með IS í fyrra. Verður ÍR-ingum
örugglega fengur í Binna og verður
fróðlegt að sjá hvemig hann fellur
inníleiklR-liösinsívetur. -SK.
íþróttir íþróttir fþróttir íþrótfir íþróttir fþróttir fþróttir íþróttir íþróttir