Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1983, Page 33
DV. MIÐVHÍUDAGUR14. SEPTEMBER1983
33
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sló sextán þúsund
„tölfræðingum" við
— og er í f immta bekk fornmáladeildar
Menntaskólans í Reykjavík
Melkorka Gunnarsdóttir tekur
við verðlaununuin úr hendi
Magnúsar Tryggvasonar,
framkvæmdastjóra ORA, er
úrslitin voru kynnt. í öðru sæti
varð Sigríður Eyþórsdóttir
með svarið 39876, eða 38 frá
réttri Iausn og í þriðja sæti
varð Einar Páll Tamimi með
svarið 39900 eða 62 frá réttri
lausn sem var 39838 baunir.
Þeir láta ekki að sér hæða í stærð-
fræðinni, nemendumir í fommáladeild
Menntaskólans í Reykjavík. Einn
þeirra, Melkorka Gunnarsdóttir, átján
ára blómarós, sló nefnilega rúmlega
sextán þúsund „tölfræðingum” við í
getraun Niðursuðuverksmiðjunnar
ORA á nýafstaðinni iðnsýningu.
Getraunin var fólgin í því að giska á
hve margar baunir væm í kúlu sem
sett var upp í sýningarbás fyrirtækis-
ins. Hún tók s jensinn, sagði 39861 baun,
en í kúlunni vom 39838. Semsé mis-
munurinn var aðeins 23 baunir.
„Eg fór með f jölskyldu minni á iðn-
sýninguna einn sunnudaginn og við
slógum öll til og tókum þátt í getraun-
inni,” sagði Melkorka er hún tók við
verðlaununum, 6000 króna úttekt á
vömm frá Ora á heildsöluverði.
Við spurðum hvort talan 39861 væri
happatalan hennar eða simanúmerið
heima hjá henni. Ekki reyndist það
vera. ,d2g var nú ekkert voðalega
WOODY ALLEN FJÁRFESTIR
Ameríski húmoristinn Woody Allen hefur grætt vel á þeim bíómynd-
um sem hann hefur gert í gegnum tíðina. Til þess að koma þeim
aurum í lóg keypti hann sér gríðarlega vUlu með flottu útsýni á Long
Island fyrir margar milljónir. Eitthvað virðist hann vera óánægður
með staðinn því hann hefur einungis dvalið þar eina nótt. Reyndar
var hann ekki einn heldur var Mia Farrow með honum. Nú er stað-
hæft að þau hafi í hyggju að gifta sig.
Stefán og Victoria
Þegar hitinn fer upp fyrir fimm stig í Reykjavík og sólargeislar
stinga sér í gegnum skýin þá er það segin saga að bæjarbúar flykkj-
ast niður á Lækjartorg tU að viðra sig og mæna þar á aðra. Heldur
yrði vistin þar daufleg ef ekki kæmi tíl nærvera lífskúnstnerins
Stefáns frá Möðrudal sem þenur þar Victoriu sina bæjarbúum til
yndisauka í blíðunni.
SLS/DV-mynd Helgi.
vísindaleg en gaf mér þó að kúlan væri
um tíu lítra og að fjórar baunir væru á
hvern millilítra. Síðan giskaði ég út frá
því.”
Melkorka var í sumar í Þýskalandi.
Vann þar á bóndabæ og lét sér líða vel í
sólinni. Gleymdum að spyrja hvort
hún hefði komið við hjá „Baunum” á
leiðinni heim en það kom þó fram hjá
henni að hún tíndi lítilsháttar af baun-
um við sveitastörf sín í Þýskalandi.
Við óskum þessari eölisfræðilega
þenkjandi máladeildarstúlku í fimmta
bekk MR til hamingju með vinninginn
og töluna 39838.
-JGH.
Kalli grínarí
Charles Bretaprins er sagður manna
fyndnastur því þegar hann opnar
munninn og segir eitthvað kímið þá
hristast Bretar af hlátri. Ein sagan af
honum er höfö eftir matselju sem
starfar í Buckinghamhöll. Auðvitað
snerist sú saga um mat, I þessu tilviki
um súpu.
Frásögninerþannig: „Tilað
gera Margréti prinsessu til hæfis þá
lagði ég mikla vinnu í aö búa til „klass-
íska” bragðmikla súpu. Eg spurði
Charles hvemig honum líkaði og hann
sagöi aö sér fyndist súpan stór-
skemmtileg.” Við lá að matseljan félli
í öngvit af hlátri.
Hin sagan sem sögð er gerðist við
opinbera gestamóttöku. Breskir póst-
burðarmenn á eftirlaunum stóðu í
langri röö að heilsa upp á prinsinn, og
er hann önnum kafinn við að hrista á
þeim spaöana þegar hann allt í einu
snarstoppar, lítur á fætur þess sem
hann er að heilsa og segir: „Jæja, ég
sé að þú ert í Weliington stígvélum.”
Að sögn féllu póstburðarmennirnir
hver um annan þveran organdi af
hlátrL
Garbo fúl
Kvikmyndaleikkonan fræga,
Greta Garbo, hefur fjralngi forð-
ast ljósmyndara og blaðamenn
elns og pestina. Það er þó ekkl
vegna þess að áðumefndir menn
séu einhverjir pestargemsar
heldur hefur hún kosið sér það
hlutskipti að forðast sviðsljósið
algcrlega. Þaö hcfur ckki gengiö
átakalaust fyrir sig því cins og
með aðrar frægar persónur þá
má hún ekkl stíga út fyrir húss-
ins dyr án þess að vera umkringd
hnýsnu f jölmlðlafólki.
Fyrir skömmu skrapp hún í fri
til Grikklands og fylgdu ljós-
myndarar henni eftir hvert sem
hún fór. Að lokum varð hún svo
leið á því að hún pantaði næsta
far heim til Ameriku og sagði
þetta sina siðustu heimsókn til
Grikklands, ekki á þessu ári,
heldur um alla framtíð.
Málsháttur
dagsins
Fátt óttast ofurhuginn
og fíflid.
Rithöfundur
á felgunni
Hlnn frægi ameríski rit-
höfundur Truman Capote var
fyrir nokkru handsamaður þegar
hann var að rembast við að keyra
dauðadrukkinn. Karlinn var um-
svifalaust dreginn fyrir dómar-
ann og hefði það mál gengið
átakalaust fyrir sig hefði rithöf-
undurinn ekki tekið upp á því að
mæta i réttinn iklæddur stuttbux-
um og það sem verra var þá hafði
honum láðst að fara i sokka áöur
en hann smeygði sér í skóna.
Fyrir þetta siðlausa athæfi fékk
hann stóra sekt fyrir að sýna rétt-
inum titilsvirðingu auk þess
sem hann fékk risastóra sekt fyr-
ir að keyra fullur.