Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1983, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1983, Blaðsíða 14
14 DV. LAUGARDÁGUR15. OKTÖBER1983. Leyndardómar fjörnnnar - Þad þarf ekki ad leita langt yfir skammt til ad kynnast furðum og f jölbreytileika hinnar öspilltu náttúru.Ferð niður ínæstu fjöru gefur skemnitilega innsýn iIieim alla vega kvikinda, jurta og plantna Sjávarsterendur eru einhverjlr merkilegustu staðir í heiminum; sand- arnir, sjórinn, síbreytilegur himinn og svipur allur. Bæði visindamenn, ferða- menn og aðrir sem náttúrunnar vilja njóta eru sammáia um þetta þó að hver líti þær sínum augum. Botn f jarða og víka, dimmur, hljóður, hnepptur undir farg hins sikvika hafs, er ein breiða af undarlega margiitum dýrum og jurtagróðri. Og fjörumar og fjöru- pollarnir þar sem tunglið rikir með lát- lausum sjávarföllum gru kvikar af furðulegum handaverkum náttúrunn- ar og þar safnast og gróa með hverjum degi nýjar lifandi myndir, heimskaut- anna á milli, með hverju aðfalli og út- falii. Menn geta dvaliö dögum saman í tómstundum og skoðað sér til gamans mergð undursamlegra dýra og jurta í síbreytilegum myndum. Og ekki er ólíklegt að margir lifi þar hinar skemmtilegustu stundir ævinnar við unað og algerar nýjungar þessa ný- stárlega heims. I eftirfarandi grein er lesandanum gert kleift að skyggnast um í lífríki fjörunnar. Til þess er valin stórgrýtt fjara, en á slíkum slóðum er einmitt mest um vert að hafa augun opin hvað þetta efni varðar. Niðandi skel/ hrúðurkalla * Um flóð eru engir klettar sýnilegir og engin sker, en eftir stundar bið fer dökkt þang og votur sandur að koma í Ijós í fjöruboröinu. Þá er liggjandinn liðinn hjá og fariö að falla út. Ef maöur klöngrast þá ofan eftir fjörugrjótinu fara framverðir neöansjávarfjörulífs- ins að láta á sér bera. Hrúðurkallar þekja hvem stein, sem sjórinn nær til, þó að ekki flæði yfir þá nema stuttan tíma á hverjum degi. Þeir eru ótelj- andi og því styttri tími sem þeir eru í kafi því rösklegar bera þeir sig eftir matarögnunum sem eru á floti allt í kring um þá. Þessir litlu kastalatumar standa svo þétt að margir þeirra ná ekki réttri lögun en laga sig þá hver eftir öörum eins og krystallar steina- ríkisins. Þeir opna dyrnar og loka þeim á víxl og ef maöur hlustar vel get- ur maður heyrt niðandi hljóð þegar þeir skella iokunum. Þegar síðasta skvetta nær þeim loka þeir fellingar- hurðunum utan um einn eöa tvo dropa af sjó og bíöa lokaðir þangað til þeir verða varir við að aðfallið nær þeim aftur. Þá opna þeir upp á gátt og eru fegnir. En til þess verða þeir að bíða klukkustundum saman og láta sólina baka sig eða glitra jafnlangan tíma i tunglsljósinu. Þjalartunga sverfur skel Lengra úti á fjörunni kemur skel- dýrabeltið. Þar hanga kræklingar í skúfum eins og þeir væru ávextir. Hver þeirra er fastur á bandi úr silki- mjúkum þráðum, svo sterkum að mað- ur gefst stundum upp við að slíta þá og ná skelinni. Þessar skepnur virðast öruggar og þeim vera óhætt við öllum háska og þó eiga þær marga og klóka óvini sem gera mikinn usla í liöi þeirra. Um flæðina koma fiskar og bryðja þær með skel og öllu saman; f jöldi snigla veitist að þeim og sverfa skelina miskunnarlaust í sundur með þjalartungu sinni og bana þeim engu síöur en fiskarnir. Stormar róta undan þeim fótfestunni og öldumar bera þær langt út fyrir fjöruborðið, en um f jör- una koma mávar og aðrir ránfuglar og beita kænsku sinni til þess að fá sér góöan bita. Nýjungar við hvert fótmál Það eru engin maurabú i sjónum, en ef maður veltir við steini skreppur hóp- ur af svörtum marflóm undan honum og þjóta þær í allar áttir, alveg eins og maurar. Þær hrökklast skjótlega burt á hliöinni og hverfa fljótt. Það fellur ört út og ef maður fylgir útfallinu skref fyrir skref, koma nýjungar í ljós við hvert fótmál og við förum að skilja að á þessari mjóu ræmu sem er land og sjór á víxl og yrði á landabréfi ekki meira en hárfint strik er heill heimur af dýralífi sem að fjölda og marg- breytni jafnast á við lífið í hinu léttara umhverfi, loftinu. Við klöngrumst yfir stóra kletta sem eru svo ólíkir þeim sem á landi eru að mann skyldi ekki gruna að þeir væru geröir af sama efni, en brimið hef ur slétt þá og fægt og hrúgaö þeim upp með ýmsu móti og þeir eru alþaktir þykku reyfi af þangi. Þar- inn hangir í strönglum og ef við drög- um þessi neöanjarðartjöld til hliðar, birtast okkur réttnefnd undralönd. I djúpum pollum þar sem sjórinn er tær eins og krystallar og ískaldur búa kvik- indi ýmist herfilega ljót eða yndislega falleg, dimm eða lýsandi, ólöguleg eða fagurlega sköpuð. Skarlatsrauðir sæfíflar Fyrst tekur maöur eftir sæfíflunum. Þeir eru eins og skarlatsrauðar eða laxbleikar slettur innan um grænt þangið eöa þeir þekja allan botninn á pollinum í hundraðatali eins og lit- mjúkur úöi af blaktandi ögnum. Þegar sjór lækkar og þeir eru á þurru í holu- veggjunum, draga þeir inn angafléttur sínar, rýrna allir og limpast niður og eru þá líkastir kjöttægjum í vatninu. En niðri í vatninu eru þeir réttnefnd blómdýr. Fegurðin er vel varin, falin undir þanginu í holunni, tuttugu og fimm fetum undir flæðarmáli eða meira. I þessum fögru holuskútum getum við sett upp dýrabúr og látið þangaö eins mörg blómdýr og við viljum. Hvar sem þau eru látin breiða þau úr fætin- um sem er kjötmikili líkt og á snigli og halda sér föstum. Þar una þau lífinu vel og bíða þess með þolinmæði að for- sjón sjávarins láti æti berast að útrétt- umfingrunum. Lagardýrabúrin niðri í fjörupollun- Það leynist undur við hvert fótmái i fjörunni. Þar er hœgt að dveija svo iangtimum skiptir við skoðun margvíslegra kvikinda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.