Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1983, Blaðsíða 22
22
DV. LAUGARDAGUR15. OKTOBER1983.
Það er víða slátur-
tíð um þessar mundir
Nú er hafin sláturtíö víðar en hér í
Breiðholtinu og í tilefni af þvi að nú
fer verð hækkandi á kindakjöti
minnkaði ég birgðir landsmanna um
þrjá skrokka ekki alls fyrir löngu
enda jókst kaupmáttur ráöstöfunar-
tekna minna dálítið um þetta leyti
þar sem fyrirtæki nokkurt niðri í bæ
hætti þá að vera meðeigandi í frysti-
kistunni minni.
Þegar við bjuggum við þjóðveg 711
töium við ekki síður þátt í sláturgerð
en aðrir og ég hvatti konuna mína
dæmalaust vel til dáða í þessum efn-
um í fyrsta sinn sem hún minntist á aö
taka slátur en dró fremur úr því
þaðan í frá því að konan mín hafði
nefnilega bjargfasta trú á því að ég
gæti saumaö keppi með einhverju
sem hún kallaði stoppunál.
Eg gat að sjálfsögðu ómögulega
skilið hvernig henni gat dottið önnur
eins endemis vitleysa í hug, jafn-
greind kona og hún væri og hefði þar
aö auki séð mig reka nagla í vegg og
þar fyrir utan væri það alls ekki
sæmandi afkomendum víkinganna að
berjast með stoppunál og spotta viö
blóömörskeppi. En ég komst ekki
upp með neitt múður frekar en vant
er því að saumaskapur kemur
víkingum ekki hiö minnsta við, hann
flokkast undir jafnrétti kynjanna
ásamt uppvaski og afþurrkun sem
blessaðar eiginkonurnar okkar hafa
afsalað sér í hendur okkar af hjart-
ans lítillæti.
Eg var því fyrr en varði kominn
með stoppunál af stærstu gerð í
hendumar og byrjaður aö reyna að
þræða seglgarnið í nálaraugað sem
var að sjálfsögðu allt of lítiö og þar
að auki á sífelldri hreyfingu.
Þegar ég hafði dundað við þetta
dágóða stund fór konan mín aö hlæja
að mér og tala um klaufaskap og
annað í þeim dúr og svo mikið þurfti
hún að masa um þetta að ég komst
varla að til að seg ja henni að þaulvön
saumakona eins og hún ætti að vita
að þessar stoppunálar væru gerðar
fyrir tvinna en ekki þennan andskot-
ans kaðal sem ég væri með í höndun-
um.
Fyrir einhverja slembilukku kom
hún þó kaðlinum í gegnum nálar-
augað og ég fór aö sauma.
Ég saumaði hvem einasta kepp og
vandaði mig þessi ósköp og til marks
um hve vinnubrögöin vom samræmd
þá láku þeir allir meö tölu, þegar
búiö að setja gumsið í þá og konan
mín fór að kreista þá til að jafna í
þeim eins og hún kallaöi það, spraut-
aðist þetta í allar áttir rétt eins og
hún væri að skreyta margar rjóma-
tertur í einu. Mér fannst þetta dáh'tið
spaugilegt í fyrstu en ég verð hins
vegar að viðurkenna það að mér var
ekki beint hlátur í hug þegar ég
Háaloftið
Benedikt Axelsson
settist við, ásamt konu minni, að
bjarga því sem bjargaö varð af
sláturgerðinni.
Það gerðist ýmislegt fleira mark-
vert í þessari sláturtíö okkar og þess
vegna var það svo sem ekkert til að
bæta skapið að hundar sveitarinnar
átu um nóttina um það bil öll sviðin
okkar sem viö höfðum sett út á
tröppur til aö halda þeim köldum þar
sem frystikistan var full af slátur-
keppum saumuöum með kontór-i
.sting.
Þaö var þá sem ég lagöi til að
hundahald yrði bannaðí sveitum.
Þjóðlegur siður
Og nú er sem sagt enn ein slátur-
tíöin hafin og menn spjrja hver
annan hvort þeir séu búnir að taka
Sveit Sævars Þarbjörnssoniir
bikarmeistari BSÍ 1983
Sveit Sævars Þorbjörnssonar frá
Bridgefélagi Reykjavíkur sigraði í úr-
slitaleik bikarkeppni Bridgesambands
Islands, sem spilaður var sl. helgi.
Andstæðingur Sævars var sveit
Gests Jónssonar, sem hafði sigrað
sveit Karls Sigurhjartarsonar í undan-
úrslitum meö aðeins 2 impum. Sævar
hafði hins vegar unniö sveit Olafs
Lárussonar meö nokkrum mun.
Urslitaleikurinn var sýndur á töflu
og hafði sveit Sævars forystu allan
leikinn.
l.lota:
Sævar 53—Gestur 28
2.1ota:
Sævar 38—Gestur 43
Staða 91-71
3. lota:
Sævar 58—Gestur 24
Staða 149—97
4.1ota:
Sævar 45—Gestur 50
Heildarúrslit:
Sævar 194—Gestur 147.
1 sveit Sævars spiluöu auk hans:
Hörður Blöndal, Jón Baldursson, Sig-
urður Sverrisson og Valur Sigurðsson.
Sigurður Sverrisson er hugmynda-
ríkur spilari og í spilinu í dag, sem er
frá úrslitaleiknum, reynir hann að
grugga vatnið fyrir andstæðingunum
með frábærum árangri.
Suður gefur, aUir utan hættu:
Nohhur * 732 . 109875 O G764 * 9
Vf.stuk Au.'Tub
* K84 Á D6
V DG63 '’2
0 Á95 0’ K108
*653 Sut>UK * ÁG1095 V ÁK4 OD32 * G8 *ÁKD10742
I lokaða salnum sátu n-s Sigurður og
Valur, en a-v Gestur Jónsson og
Sverrir Kristinsson. Þar gengu sagnir
áþessa leið:
Suður Vestur Norður Austur
1 S pass 2L! pass
2 G pass 4 S pass
pass pass
Sigurður fylgir skemmtilega eftir
blekkisögn sinni með fjögurra spaöa
sögninni, því hann telur yfirgnæfandi
líkur á því, að a-v geti unnið úttekt.
Varla er hægt að ásaka Gest fyrir að
komast ekki í fimmlaufagame-ið, en
við skulum líta á árangurinn í opna
salnum.
Þar spiluðu n-s Sigfús ö. Ámason og
Jón P. Sigurjónsson, en a-v Jón
Baldursson og Hörður Blöndal. Nú f óru
sagnir nokkuð á annan veg:
Suöur Vestur Noröur Austur
1S pass 1G 2L
pass 3L pass 3G
pass pass pass
Margir hefðu eflaust sagt tvö grönd
á spil vesturs í stað þriggja laufa, en
austur haföi ekki áhyggjur af hálita-
fyrirstöðunum og renndi sér í þrjú
grönd.
Engin leið er að hnekkja því spili og
eftir spaðatíuútspil suðurs vann Jón
fimm grönd með því að spila strax á
spaöakóng.
Sigurður og Valur höföu oröiö tvo
niöur í lokaða salnum og tapað 100 og
sveit Sævar græddi því 8 impa á
spilinu.
Bridgefélag
Selfoss og nágr.
Orslit eftir 3. umferð af Höskuldar-
mótinu6. okt. 1983.
1. Vilhjálmur—Þórður Stig 379
2. Kristján—Gunnar 377
3. Eygló—Valey 355
4. Brynjólfur—Bjarai 354
5. Sigurpáll—Gunnar 348
6. Sigfús—Kristmann 347
7. Ragnar—Hannes 343
8. Hermann—Magnús 338
9. Kristján—Valgarð 334
10. Guðmundur—Jón Bjarai 330
11. Gestur-Sæmundur 315
12. Leif—Itunólfur 312
13. Clfar—Témas 309
14. Gunnlaugur—Erlingur 306
15. Bjarai—Hörður 304
16. Guðjón—Hrannar 302
17. Stefán—Þorvaldur 285
18. Sigurður—Þorvarður 284
19. Leifur—Leifur 281
20. Sigurður Reynir—Vaigcir 277
Minningarmótiö um Höskuld Sigur-
geirsson er jafnframt aðal-
tvímenningskeppni félagsins, og á eftir
að spila tvær umferðir enn.
Stóra-flórídanamótið sem haldið
verður 15. okt. nk. er nú fullbókað þar
sem 40 pör hafa skráð sig í keppnina.
Bridgesamband
íslands
íslandsmót kvenna verður haldið 21.
og 22. okt. Spilað verður með baromet-
erfyrirkomulagi og hefst spila-
mennska kl. 8, og er áætlað að keppni
ljúki kl. 6 á laugardeginum. Þær konur
sem hafa ekki nú þegar látið skrá sig
geta skráö sig í sima 18350 í síðasta
lagi á mánudag eöa hjá Bridgefélagi
kvenna á mánudagskvöld.
Islandsmót í blönduðum flokki
(parakeppni) verður haldið 23. okt.
Spilaðar verða tvær umferðir með
Mitchel fyrirkomulagi, ein um daginn
og önnur um kvöldið. Bæði mótin verða
spiluð í Hótel Heklu. Tekið verður viö
þátttöku í blandaða flokkinn til
föstudags.
Bikarkeppnin
Þeir sem ekki hafa sent inn skýrslu
um spilara í vinningssveitum eru
beðnir um aö gera þaö sem fyrst.
XO Bridge
Stefán Guð johnsen
Bridgefélag
Kópavogs
Eftir aðra umferð í hausttvímenningi
félagsins er staðan þessi:
Stig
Vilhjálmur Sigurðss.-
Sturla Geirsson 491
GrímurThorarensen-Guðm. Pálsson 482
Guðrún Hinriksd.—Haukur Hanness. 475
Stefán Pálsson-Rúnar Magnússon 462
Síðasta umferð verður spiluð næsta
fimmtudag. Laugardaginn 8/10 var
keppni milli Selfoss og Kópavogs í
sveitakeppni. Sex sveitir mættu, úrslit
urðu:
B.S. b.k. Stig
Þórður Sigurðsson-
Friðjón Þórhallss. 20—0
Kristján M. Gunnarss.-
Ragnar Björnsson 16—4
Valgarð Blöndal-Björn Halldórss. 0—20
Sig.Hjaltason-Sig. Vilhjálmsson 2—18
Brynjólfur Gestss.-Sig. Sigurjónsson 0—20
Sigurður Gestsson-Grímur Thorarensen 14—6
Samtals:
Selfyssingar 52.
Kópavogur68.
TBK
Aðalfundur félagsins var haldinn aö
Hótel Sögu mánudaginn 10. október kl.
20.30. Meðal annars á dagskrá var
verðlaunaafhending og stjómarkjör.
Fráfarandi formaður, S.S., gaf ekki
kost á sér til endurkjörs. Núverandi
stjórn er skipuð þessum mönnum:
Formaður: Tryggvi Gislason.
Varaformaður: Gísli Tryggvason.
Ritari: KarlNikulásson.
Gjaldkeri: Rafn Kristjánsson.
Áhaldavörður: Bragi Jónsson.
Varamennístjórn:
Anton R. Gunnarsson blaðafulltrúi,
Ingólfur Böðvarsson.
Síöastliöinn fimmtudag var áfram
haldiö hausttvímenningskeppni
félagsins í Domus Medica að venju,
þ.e.a.s. 2. kvöldið af 5. Spilað er í tveim
14 para riðlum.
Hæstuskorfengu.
A-riðill
Ingóifur Böðvarss.-Bragi Jónsson 204
Þorfinnur Karlsson-Gunnl. Kristjánss. 194
Helgi Ingvarsson-Gissur S. Ingólfsson 192
B-rlðUl
Sigtryggur Sigurðss.-Guðmundur Péturss. 199
Stefán Guðjohnsen-
ÞórirSigurðsson 187
Benedikt Olgeirss.-Eymundur Sigurðss. 186
Meöalskor 156.
Eftir tvö kvöld er staðan þessi:
Stig
Ingólfur Böðvarss.-Bragi Jónss. 367
Anton Gunnarss.-Friðjón Þórhallss. 366
Stefán Guðjohnsen-
Þórir SÍgurðsson 364
Sigtryggur Sigurðsson-
Guðm. Pétursson 358
Þorfinnur Karlsson-Gunnl. Kjartansson 354
Benedikt Olgeirsson-
Eymundur Sigurðsson 350
Gunnlaugur Oskarss.-Helgi Einarss. 341
Guðrún Jörgensen-Þorsteinn Krist jánss. 332
Keppninni veröur svo fram haldiö
næstkomandi fimmtudag kl. 19.30.
Keppnisstjóri er Agnar Jörgensen.
Bridgefélag
Reykjavíkur
Nú er lokiö þremur kvöldum af
fjórum í hausttvímenningi félagsins.
Þessi pör eru efst og spila þau í A-riðli
síðasta kvöldið:
Jón Baldurss.-Hörður Blöndal 552
Guðlaugur Jóhannss.-Örn Amþórss. 547
HermannLáruss.-ÓlafurLáruss. 544
JónÁsbjörnsson-Simon'Símonars. 542
Hörður Amþórss.-Jón Hjaitas. 520
Guðmundur Sveinsson-Þorgeir Eyjólfss. 512
Helgi Nielsen-Alison Dorash 508
Jón P. Sigurjónss.-Sigfús Áraas. 508
Ásgeir Stefánss.-Jakob Kristinss. 504
Georg Sverrisson-Kristján Blöndal 501
Ásmundur Pálss.-Karl Sigurhjartars. 501
Hailgrimur Haligrímss.-
Sigm. Stefánss. 495
Sigurður Sverriss.-Valur Sigurðss. 4985
Hrólfur Hjaltason-Jónas P. Erlingss. 494
Síöasta umferðin verður spiluö nk.
miðvikudag 19. okt., en 26. okt. hefst
aðalsveitakeppni félagsins og eru
væntanlegar þátttökusveitir minntar á
að skrá sig sem fyrst.
Eins og kunnugt er af fréttum sigraði bandariska sveitin þá ítölsku í æsispenn-
andi úrslitaleik um heimsmeistaratitilinn. Sveitirnar skiptust á um forystuna þar
til í lokin að aðeins skildu 5 impar. Myndin sýnir sigurvegarana hampa Bermuda-
bikarnum. Talið frá vinstri: Bob Mamman, Mike Becker, Bobby Wolff, Peter
Weichsel, Ron Rubin, Joe Musumeci fyririiöi, Alan Sontag. Fjórir þessara bridge-
meistara spiluðu á Stórmóti Flugleiöa og Bridgefélags Reykjavíkur fyrir tveim-
ur árum.