Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1983, Qupperneq 34
34
DV. LAUGARDAGUR15. OKTOBER1983.
PETER SHILTON
Sagt frá þeim leikmönnum sem gætu orðið næstu landsliðsmarkverðir
Englands og spjallað um möguleika þeirra
Ein er sú spuming sem áhugamenn
um ensku knattspymuna velta iyrir sér
meira en öðrum. Það er spuraingin um
hver verði næsti markvörður enska
landsliðsins. Síðan í heimsmeistara-
keppninni á Spáni 1981 hefur Peter ShUt-
on, markvörður Southampton, haldið
þessari stöðu einn. Ray Clemence hefur
aUtaf verið númer tvö og Joe Corrigan
var númer þrjú þar tU hann fór til
Bandaríkjanna í lok síðasta keppnis-
tímabUs. Corrigan er nú kominn aftur og
leikur með Brighton en hefur ekki tekist
að vinna sæti sitt aftur í enska lands-
liðinu, enda kominn á fertugsaldurinn.
En það era þeir Peter ShUton og Ray
Clemence einnig og þótt þeir sýni engin
þreytumerki, þá er betra fyrir Bobby
Robson að fara að hugsa um framtíðina.
Peter ShUton hefur gefið mönnum langt
nef og spyr af hverju hann ætti ekkl að
geta haldið eins lengi áfram og koUegi
hans í norður-írska landsUðsmarkinu,
Pat Jennings, sem nú er 38 ára. Og
vissulega er þetta spurning sem er hug-
leiðingarverð, því að ShUton (34 ára)
hefur sjaldan verið eins góður og einmitt
nú. En gerum ráð fyrir að staða hans
losni innan tveggja ára. Það er ljóst að
Bobby Robson, einvaldur enska liðsins,
á við stórt vandamál að glima, því að
England hefur ávaUt haft á að skipa 5—6
markvörðum á heimsmæUkvarða í einu.
Nægir þar að nefna menn eins og Gordon
Banks, Gordon West, Tommy Lawrence
og fleiri. ShUton, Clemence og Corrigan
héldu toppmarkvörðum eins og Phtt
Parkes (QPR, West Ham), Paul Cooper
(Ipswich) og Jimmy Rimmer (Aston
VUla, Swansea) úti i kuldanum þannig
að þeirra möguleikar era úr sögunni. Þá
er komið að ungu markvörðunum sem
ætlunin er að ræða um hér. Það skal þó
tekið fram að færi svo að ShUton og
Clemence héldu sætum sinum næstu tvö
árin, gæti farið svo að nýir markverðir
bættust i hópinn.
Sigurbjöra G. Aðalsteinsson.
RAYCLEMENCE
Hver tekur
við
grænu
peysunni af
Peter Shilton?
r
Gary BaUey (MANCHEST-
ER UNITED): 25 ára. Hann
spUaði sinn fyrsta leik fyrir
Manchester United 11.
nóvember 1978, gegn Ips-
wlch. liðinu sem strákur.
Hann var rétt rúmlega
tvitugur og Dave Sexton, þá-
verandi stjóri United, notaði
Gary í algerri neyð. Sexton
hafði þá í langan tíma verfð
að reyna að ná í Jim Blyth
frá Coventry og virtist loks
ætla að takast það, þegar það
kom upp úr dúraum að Blyth
var bakveikur og ekkert
tryggingafclag vildi tryggja
hann. Bafley var þá notaður
og stóð sig frábæriega vel,
þrátt fyrir nokkra byrjunar-
örðugleika. Gary lék í úrsUt-
um FA-bikarsins þetta timabíl
er United tapaði 3—2 fyrir
Arsenal. Sigurmarkið kom á
siðustu mínútu leiksins og
vUdu ýmsir kenna reynslu-
leysi BaUey um. Gary Bafley
er núverandi þristur enska
landsliðsins, þ.e. hann kem-
ur á eftlr Shflton og
Clemence sem markvörður
liðsins. Hann hefur einu sinni
setið á bekknum í iandsleik.
Það var gegn V-Þýskalandi í
október 1982, er Ray
Clemence var meiddur. Bafley
hefur leikið 11 landsleiki með
undir 21 árs Uðlnu og einnig
nokkra B-landsleiki. Það fer
ekkert á mUli mála að Gary
Bailey hefur mesta möguleika
á að hreppa peysuna nr. 1 er
ShUton fer úr henni. Það
verður þó að gerast í bráð,
þvi Bafley er orðinn 25 ára og
ef ShUton heldur sæti sínu
næstu 4 ár er liklegt að litið
yrði framhjá honum og yngri
maður valinn. Eg ætia samt
að gefa honum efsta sætið.
GARY
BAILEY
Peter
Fox
PETER FOX (STOKE): 26 ára. Hann
hóf ferU sinn hjá Sheffield Wednesday
en var keyptur tU Stoke fyrir £20.000
árið 1978. Nafn hans hefur oft verið
nefnt í sambandi við markmanns-
skyrtuna ensku en þá hefur hann dottið
út úr Stoke Uðinu eins og sjálfkrafa.
1981 var Peter nefndur í sambandi við
B-liðið en þá slettist upp á vinskapinn
hjá honum og Richie Barker, stjóra
Stoke, og Fox var sendur úr liðlnu. Á
síðasta keppnistímabUi áttl Fox frá-
bæra leiki hvað eftir annað og var farið
að tala um hann sem næsta markvörð
enskra. Þá var hann sendur út af í leik
gegn Luton fyrir brot á Paul Walsh
(sk. „Proffessional foul”) og dæmdur í
tveggja leikja bann. 1 markið fór þá
ungur markvörður að nafni Mark
Harrison. Hann stóð sig frábærlega vel
og Richie Barker ákvað að halda
honum í liðinu. Brottvisunin og það að
vera settur úr liðinu fékk svo á Peter
að hann var að hugsa um að hætta
knattspyrauiðkun. Það voru aðdá-
endur hans, meira en nokkuð annað,
sem héldu honum í fótboltanum. Hon-
um barst gífurlegur fjöldi bréfa þar
sem fólk hvaðanæva úr Evrópu lýsti
Peter Fox, markvörðurinn snjaUi hjá Stoke.
yfir vanþóknun sinni á þeirri meðferð
sem hann hafði hlotið, enda var
dómurinn í strangasta lagi. Fox ákvað
þvi að halda áfram en krafðist sölu frá
Stoke. Hann vann þó sætl sitt fljótt og
hefur haldið þvi síðan.
Að minum dómi er Peter Fox besti
markvörðurinn af þeim sem hér er
ritað um, en möguielkar hans tak-
markaðlr sökum aldurs.
Dave Sexton "|
notaði hann í neyð *
BROTTVISUN VARÐ TiL
ÞESS AÐ HANN MISSTI
SÆTI SITT HJÁ STOKE